Dagur - 15.04.2000, Page 9

Dagur - 15.04.2000, Page 9
Xfe^íT' LAUGARDAGUR 15. MARS 2000- 25 urfarasetrið á ári og hefur verið stígandi í þeirri tölu. „I ferða- þjónustunni er búið að gjör- nýta alla þá þætti sem auðunn- ir eru. Lykillinn að árangri í greininni í dag er hugkvæmni og áræðni. Allt slíkt krefst fórna og áhættu rétt eins og vesturferðirnir á sínum tíma gerðu. Þessa áhættu hef ég orðið að taka í uppbyggingu Vestufarasetursins, en sem bet- ur fer hef ég verið svo lánssam- ur að fólki hefur líkað hug- myndin og útfærslan. Þá má glögglega finna jákvæða strauma í kringum verkefnið og hefur það reynst okkur ómet- anlegt. Þessir straumar hafa ef til vill komið til af því við höf- um lagt mikinn metnað í upp- bygginguna þannig að allir að- standendur geti verið stolir af því að tengjast Vesturfarasetr- inu og starfsemi þess.“ Mikilvægt bakland Talið er að í Norður-Ameríku séu í dag á milli 100 og 200 þúsund manns af íslenskum ættum, en engin nákvæm eða staðfest tala er til. „Eg gerði mér enga grein fyrir baklandi þessa verkefnis þegar ég fór fyrst að vinna í þessu málum. En þegar maður fer um vestra finnur maður glöggt hve til- finningar fólks gagnvart Islandi eru sterkar og að það er í raun skylda okkar að taka í þessa út- réttu hönd frænda okkar í Vest- urheimi. Þetta handtak er ís- lenskri þjóð líka afar mikil- vægt,“ segir Valgeir. Aðspurður um hvort hann telji að Islendingar hafi verið meðvitaðir um áhugann vestra, segir hann það sjálfsagt vera mjög misjafnt. „Margir hafa gert sér fulla grein fyrir þessu, eins og til dæmis sá ágæti mað- ur Árni Bjarnarson á Akureyri. Hann vann áratugum saman að því að styrkja og efla þessi tengsl og að sjálfsögðu hafa margir aðrir plægt þann sama akur. Megin þorri almennings held ég þó að hafi ekki haft skilning á þessu. En áhuginn er í dag orðinn meiri og mun fara vaxandi á næstu árum ekki síst vegna þess mikla kynning- arátaks sem íslensk stjórnvöld standa nú að í Norður-Amer- íku,“ segir Valgeir. Hann nefnir einnig ættfræði- þjónustu Vesturfarasetursins, en daglega berst þvf fjöldi fyrir- spurna frá fólki víða um lönd. Ekki síst fólki í Vesturheimi, sem er að grenslast fyrir um ís- lenskar ættir sínar. „Nýlega fékk ég til dæmis bréf frá konu sem húsett er í Brasilíu og ber ættarnafnið Reykdal, sem vildi kynna sér hinar íslensku rætur. Fyrir skömmu gerðum við svo samning við Genelogia Island- orum um samstarf og það er hluti af þeirri viðleitni okkar að geta staðið myndarlega að þessari þjónustu. Fyrirtækið hefur yfir að ráða öflugum gagnagrunnum á ættfræðisviði, sem flýta fyrir og auðvelda þjónustuna verulega. Ættfræði- áhuginn er greinilega mikill; áhugi fólks á því að hnýta sam- an slitna þræði, rekja rætur sínar og heimsækja skyldfólk er eitthvað sem varla mun úreld- ast. Föðurland og fjölskylda „Það munaði litlu að ég yrði Vestur-íslendingur,“ segir Val- geir Þorvaldsson, sem er Skag- firðingur að ætt og uppruna, en úr Skagafirði fóru einmitt mjög margir vestur um haf í hinum miklu þjóðflutningum. „Langalangafi minn í móður- ætt, Gunnar Guðmundsson og Verónika kona hans, fluttu vestur í kringum síðustu alda- mót með öll sín börn - nema Jóhönnu dóttur sína, langömmu mína. Hún var þeg- ar hér var komið sögu orðin fulltíða kona og komin með fjölskyldu þannig að hún fór hvergi. Hinsvegar veit ég að langamma og maður hennar, Frans Jónatansson, sem bjuggu í Málmey, hugleiddu það að bregða undir sig betri fætinum og halda vestur um haf. Eg hef komist yfir bréf sem langafi sendi til systur sinnar, sem bjó í Kanada, þar sem hann segir henni frá þessum þönkum sín- um og spyr hana ráða. Bréf frá henni fékk hann um hæl, þar sem hún réði honum alfarið frá þessu. Segir í bréfinu að bágt megi lífið vera á íslandi svo ekki sé það betra en í Kanada. Og ef til vill vegna þessa bréfs yfirgáfu þau heiðurshjón aldrei landið sitt kalda." Valgeir hefur vegna uppbygg- ingar Vesturfarasetursins oft- sinnis verið á ferð vestanhafs á síðustu misserum og hefur í þeim ferðum Ieitað uppi og kynnst ættingjum sínum þar. „Þetta er yndislegt fólk, sem hefur mikla þörf fyrir að fá fréttir að heiman og talar gjarnan um að fara heim til Is- lands. Það að tala um að fara HEIM segir sína sögu.“ „Það má glögglega finna jákvæða strauma I kringum verkefnið og hefur það reynst okkur ómetanlegt." segir Valgeir, sem segir mikið uppbyggingastarf vera framundan. Þegar við horfum á teiknimyndir í sjónvarpi eða bíó hugsum við ekki um hve mörg handbrögð felast í gerð þeirra. Því hefur Ásta Sig- urðardóttir fengið að kynnast en hún hefurteiknað slíkar myndir í 17 ár. Ásta býr í Danmörku en var í heimsókn á ís- landi nýlega og hafði frá mörgu að segja. „Þegar ég var sextán ára datt mér allt í einu í hug að gaman væri að verða myndhöggvari svo ég fór í nám í þeirri listgrein í Konung- legu listaakademíunni í Kaup- mannahöfn. Síðar sá ég eftir að hafa ekki heldur valið myndlistar- nám því maður þénar ekkert á höggmyndalistinni,“ segir Asta og bætir við eins og afsakandi; „Eg var svo ung og ekki alveg búin að finna sjálfa mig.“ Hún kveðst hafa farið út í auglýsingateiknun strax eftir skólann og teikni- myndabransann. „Eg byrjaði að gera teiknimyndir þegar ég var orðin tuttugu og sjö og hef haldið því áfram síðan.“ - I inngangi að viðtalinu kemur fram hvað þii ert búin að starfa lengi við það svo nú getur fólk reiknað. „Já það er ekkert leyndarmál að ég er fædd ‘56 og er því Ijörutíu og tjögurra ára.“ Föðurmissir Viðtalið fer fram á Súfistanum í Hafnarfirði. „Þú getur þekkt mig á því að ég er með stórt svart hár,“ hafði hún sagt í símanum þegar við ákváðum að hittast þar og Iétt hefði verið að finna hana á íjölmennari stað, því hið „stóra" svarta hár hennar og heimskonu- legt útlit dregur að sér athyglina. Við íslendingar erum ekki vanir að tala um „stórt“ hár en Astu leyfist að fara aðeins útfyrir al- gengar reglur því hún hefur ekki búið á landinu síðan hún var 9 ára. Með tilliti til þess hefur hún ótrúlega gott vald á málinu. En hvað kom til að hún flutti til Danmerkur 9 ára? Faðir minn sem var bæjarverk- fræðingur í Hafnarfírði féll frá þegar ég var fjögurra ára. Við vor- um þá þrjár systurnar, sú elsta var 12 ára. Þetta var auðvitað mikil sorg fyrir okkur og mamma sem er fædd í Danmörku festi ekki yndi hér eftir Iát pabba. Því flutti hún út með okkur systur og sett- ist að í Oðinsvéum og þar býr hún enn. Tvær systur mínar eru fluttar hingað aftur og mér þykir mjög gaman að koma í heimsókn til þeirra." Fannst hræðilegt að flytja út - Hvemig sk)'ldi henni hafa líkað aðflytja til útlanda 9 úra gömul? Mér fannst það hræðilegt því „Ég er með eina íslenska barnabók í huga sem mig langar að búa til teiknimynd eftir," segir Ásta Sigurðardóttir mynd: gun. hér leið mér vel og þótti vænt um marga. Við bjuggum í Hafnar- fírði, nánar tiltekið að Alfaskeiði 16, áttum góða nágranna og þeirra á meðal var besti vinur minn sem hét Gísli - hann er því miður dáinn núna. í Óðinsvéum fannst mér allt flatt - ekki bara landslagið. Krakk- amir þar voru mun kurteisari en við og allt öðru vísi aldir upp. Mér fannst þeir satt að segja hálf- gerðir aumingjar! Þeir fóru svo varlega í öllu og voru ekki vanir að taka neinar sjálfstæðar ákvarð- anir. Við systur vorum vanar fijálsræði úr Hafnarfirðinum. „Fari’ði út í góða veðrið," var alltaf sagt við okkur, alveg sama hvernig viðraði. Þetta er ekki svona núna. Krakkar hér virðast miklu verndaðri er áður var og eru keyrðir hvert sem þeir þurfa að fara.“ .varu Kom f oúwwr: Úr bókinni um Ástu, systur hennar og Gísla „Ég eryngst systranna og mér fannst hinar hafa mig útundan en í lok bókarinnar kemur hetjan mín, hann Gísli og biður mig að koma út að leika" - Svo hefurðu sest ú skólabekk ytra? „Já, þá tók ekki betra við, kenn- ararnir voru þéraðir í þá tíð í Danmörku og það tók sinn tíma fyrir mig að læra það eins og fleira." - Varstu ekki góð í teikningu í skólanum? „Ekkert sérstaklega. Ég teiknaði held ég ekkert meira en aðrir þeg- ar ég var krakki. Þetta hefur kom- ið með æfingunni. Ég byrjaði hara að gera teiknimyndir til að afla (jár. Fyrsta myndin sem ég vann við var Valhöll, stór dönsk teiknimynd. Ég sótti um og byrj- aði á fyrsta degi myndarinnar og hef unnið við við þetta stanslaust síðan. Danir eru framarlega á teiknimyndasviðinu svo atvinnu- möguleikarnir eru góðir þar fyrir fólk eins og mig.“ Teiknar allt í höndum Ásta býr með manni sem er norskur í aðra ættina, teiknari og tónlistamaður og heim- ili þeirra er í hjarta Kaupmannahafnar. „Ég kunni strax vel við mig í Kaumannahöfn þótt ég væri ekki hrifin af Óð- insvéum. Svo ferðast ég dálítið mikið í tengslum við starfíð því ég er laus- ráðin og hef unnið fyrir teiknimyndaframleið- endur í ýmsum lönd- um.“ - Notarðu tölvutækn- ina við teikningamar? „Nei, ég teikna allt í höndunum. En ég nota tæknina oft við að senda gögn á milli. Til dæmis teiknaði ég vin- sæla sænska mynd sem heitir Hundahótelið. Ég vann við hana í 15 mán- uði og sat allan tímann í Kaupmannahöfn því öll samskipti við framleið- andann fóru fram gegn um tölvu. Mér fannst það þægilegt form í byijun en í lokin var ég orðin mjög þreytt á því. Mér fannst vanta að geta ekki talað við fólk- ið.“ Langar að búa til íslenska mynd Meðal mynda sem Ásta hefur gert er Fuglastn'ðið sem var vin- sæl hér á landi. Ástrík hefur hún teiknað og í kvikmyndahúsum Danmerkur er verið að sýna Ost og kærlihed sem fjallar um mýs. Þótt barnamyndir séu í meiri- hluta þeirra mynda sem Ásta hef- ur unnið við eru hinar líka til. „Hundahótelið er fyrir alla nema kannski lítil börn og myndin um HC Andersen er ekki síður fyrir fullorðna en börn. Þar teiknaði ég aðalpersónuna sjálfa. Það var dá- lítið erfitt að teikna H.C Ander- sen því allir hafa gert sér mynd af honum en jafnframt var það mjög gaman og góð tilbreyting frá fígúrunum sem ég fæst svo oft við að skapa." - Hvernig eru teiknimyndir gerðaf? „Fyrst eru raddirnar spilaðar inn á segulband og með því að hlusta á áherslur fáum við teiknararnir hugmyndir af hreyfingum. Svo er oft tónlist í myndunum og við verðum fyrir áhrfifum af henni.“ - Hversu margar teiknaðar myndir eru í einni sekúndu í teiknimynd? „Tuttugu og fjórar en við teiknum bara aðra hverja þannig að við gerum tólf. Hitt væri of dýrt og svo er heldur ekki alltaf stöðug hreyfing. Ég geri ekki allar teikningarnar sjálf heldur er fólk sem fyllir upp í. Ef við hugsum okkur að einhver teygi hendina fyrst í aðra áttina og svo hina þá teikna ég bara hendurnar í sitt hvorri áttinni en aðrir teikna hreyfinguna á milli." - Ert þú þá höfundur að h reyfingunum ? „Já, það má líkja mér við leik- ara. Ég er ráðin af því ég get skapað og lifað mig inn í hlut- verkin en svo er leikstjóri yfir mér. Hinsvegar hef ég bug á að framleiða mynd sjálf og er með eina íslenska barnabók í huga sem mig langar að búa til teiknimynd eftir. Þá slæ ég ör- ugglega í gegn á Islandi!" GUN.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.