Dagur - 15.04.2000, Síða 18

Dagur - 15.04.2000, Síða 18
 'i)}J:LjU]ÐJj'JU j- 34 - LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 „Ég hefí nokkur skipti verið sóttur vegna ungra krakka sem ég hefþá nýlega verið búinn að ferma, þegar þau hafa verið komin út i mikla fíkniefnaneyslu. Og það er fróðlegt að heyra þeirra sýn á þessi mál, því afþeirra frásögnum verður ekki annað dæmt en auðveldara sé að verða sér úti um eiturlyf en áfengi, “ segir sr. Svavar Alfreð Jónsson sóknarprestur á Akureyri hér í viðtalinu. Þurfum að þekkja okkar styrk Akureyrarkirkja og Knattspyrnufélag Akur- eyrar munu á næstunni fara af stað með verk- efni á sviði forvarna gegn fíkn. Kirkjan og íþróttafélögin eiga margt sameiginlegt, segir sóknarpresturinn - sem segir skeytingar- leysi um náungann vega þungt f fíkniefnavand- anum. „Eg veit ekki til þess að áður hafi verið stofnað til samstarfs af þessum toga milli kirkju og íþróttafélags, sem bæði eiga þó stórt markmið sameiginlegt; það er að byggja upp æsku landsins. Og líklega er það einver besta forvörn sem býðst, að unga fóJk- ið okkar sé heilsteypt og hafi sterka sjálfsmynd. Þegar svo er þá hafa þau miklu frekar styrk og skaphöfn til að segja nei við eitrinu og fíkninni," segir séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknar- prestur við Akureyrarkirkju. Þörfin er brýn Á næstunni fer af stað samstarf á sviði forvarna sem Akureyrar- kirkja og Knattspyrnufélag Akur- eyrar, KA, standa saman að - og ef til vill munu fleiri aðilar koma inn í samstarfið. Sótt hefur verið um fjárveitingu til þessa verk- efnis hjá ríkisstjórninni, þar sem málið hefur fengið mjög góðar undirtektir. Það skýrist alveg á næstu dögum hve miklir pening- ar fást til þessa verkefnis og hvernig verður að því staðið, en málsmetandi fólki á Akureyri þykir sem að oft hafi veriö þörf en nú fyrst nauðsyn til að hefja sókn á sviði forvarna gegn vá fíkniefnanna. Borgarfundur sem haldinn var á Akureyri í vikunni er glöggt dæmi um það. Að sögn Svavars Alfreðs Jóns- sonar hefur þetta samstarf kirkj- unnar og KA átt sér nokkurn að- draganda. „Forsagan er sú að fyrir þremur árum tókum við hér í kirkjunni æskulýðsstarfið til skoðunar og þá hvernig mætti efla það enn frekar. Við sáum hag í að fara í samstarf við önn- ur æskulýðsfélög bæjarins og þá lá auðvitað beint við að leita til KA, sem stærsta æskulýðsfélags í sókninni. Efnt var til KA messu og hún svo endurtekin á sfðasta ári, en þá var það Jó- hannes Bjarnason íþróttakenn- ari sem flutti eftirminnilega ræðu um samstarf kirkju og íþróttahreyfingar og uppbygg- ingarstarf þeirra. Þessi ræða varð svo sannarlega til að vekja fólk til umhugsunar, enda sáum við að þörfin fyrir kraftmiklu átaki þessara aðila gegn vímu- efnavandanum væri brýn. Hitt sáum við einnig að lítið væri hægt að aðhafast nema fá sér- stakan starfsmann sem gæti sinnt þessum verkefnum heill og óskiptur.“ Síðustu mál sýna alvarleikann Sem kunnugt er kom upp á dög- unum á Akureyri nokkuð um- fangsmikið fíkniefnamál, sem lögreglan hefur nú að fullu upp- lýst. Málið er þó ef til vill aðeins toppurinn á ísjakanum, því allar tölur sýna og sanna mikla aukn- ingu mála af þessum toga á síð- ustu árum. Og séra Svavar kveðst einnig hafa sína sýn á þetta mál af sinni skrifstofu í Akureyrarkirkju, enda leiti þang- að stundum einstaklingar sem misst hafi tök á tilveru sinni og þurfi á andlegum stuðningi að halda. „Eg hef í nokkur skipti verið sóttur vegna ungra krakka „Með þessu er ekki sagt að Akureyri sé eitt- hvað eiturlyfjagreni því ástandið gæti verið miklu verra en það er, en á ríður að hver haldi vöku sinni. Síðustu mál sem hafa komið upp sýna okkur alvarleika málsins og góðu heilli er nú farin af stað um- ræða um þetta mál.“ sem ég hef þá nýlega verið bú- inn að ferma, þegar þau hafa verið komin út í mikla fíkniefna- neyslu. Og það er fróðlegt að heyra þeirra sýn á þessi mál, því af þeirra frásögnum verður ekki annað dæmt cn auðveldara sé að verða sér úti um eiturlyf en áfengi. Þá heyri ég það líka að þrýstingurinn sem sölumennirn- ir á götunni beita er mikill, enda eru þeir undir miklum þrýstingi þeirra sem ofar eru staðsettir í pýramýda sölukerfsins. Og pen- ingarnir sem eru undir í þessum geira eru miklir, enda er þetta sú atvinnugrein í heiminum sem veltir hvað mestu fjármagni." En kann svo að vera að Akur- eyringar séu slegnir þeirri blindu að trúa því að í þeirra litla bæ við fallegan fjörð verði fíkniefn- in ævinlega fjarri. „Auðvitað er Akureyri lítill bær við fallegan fjörð, en hvað fíkniefnin varðar er hættulegt að líta svo á að hér sé allt í Iagi,“ segir sr. Svavar. „Með þessu er ekki sagt að Akureyri sé eitthvað eiturlyfja- greni því ástandið gæti verið miklu verra en það er, en á ríður að hver haldi vöku sinni. Sfð- ustu mál sem hafa komið upp sýna okkur alvarleikann og góðu heilli er nú farin af stað umræða um þetta.“ Þjóðfélagið er kröfuhart Stundum er sagt að sterk bein þurfi til að þola góða daga - og ef til vill má segja að hver og einn einstaklingur þurfi að vera nokkuð sterkur á svellinu svo hann geti staðið af sér freisting- ar líðandi stundar í kröfuhörðu samfélaginu. Og í því samhengi ítrekar séra Svavar hve mikil- vægt sé að sjálfsmynd unga fólksins sé heilsteypt, en hann leynir þó ekki þeirri skoðun sinni að ekki hafi tekist nægi- lega vel oft og tfðum að móta hana. „Okkar þjóðfélag er mjög kröfuhart og margir brotna hreinlega undan þeim kröfum sem þjóðfélagið leggur á okkar herðar og mér finnst of algengt að börn komi út úr skólunum hreinlega niðurbrotin. Auðvitað má segja að hinar miklu kröfur sem á okkur eru lagðar og við við leggjum á sjálf okkur séu drifkraftur þjóðfélagsins, en þetta er kannski einum of. Við þurfum að þekkja og vita hver styrkur okkar er og hvað við get- um lagt af mörkum til samfé- lagsins - þannig að slíkt reynist okkur ekki um megn.“ Þurfum að breyta forgangsröðinni Ríkjandi ástand f fíkniefnamál- um á Akureyri og víðar er einnig að mati séra Svavars til komið vegna almenns skeytingarleysis og fálætis nútímans um náung- ann. „Eg er stundum að segja það við fólk hve undarlegt það sé að á sama tíma og þeim töfra- tækjum sem eiga að létta okkur lífið fjölgi þá gerist það um leið að fólk hafi alltaf minni tíma til að sinna Ijölskyldunni eða hin- um raunverulegu verðmætum f lífinu. Eins og stjórnmálamenn segja þá þarf að breyta forgangs- röðinni, þá á þann veg að við berum virðinginu fyrir lffinu og öllum hinum fórnandi kærleik." Þjóðkirkjan getur verið dug- legri í því að beita sér í mörgum málum almenningi til heilla, segir séra Svavar. Hann segir kirkjuna mega vera pólitískari og eiga að taka þátt í því að ræða ýmsar grundvallarspurningar samfélagsins út frá kristnum gildum. „Mörg mál sem ofarlega eru á baugi í dag kreQast einmitt slíkrar umræðu, svo sem um- hverfis-, utanríkis- og nú síðast fíkniefnmálin. Það breytir því þó ekki að vandamálin halda áfram að vera til staðar, en umræða út frá nýjum sjónarhóli getur hjálp- að okkur við að ná tökum á hon- um. Eg hef að minnsta kosti trú á þvf að það verkefni sem við erum nú að fara í með KA- mönnum muni skila okkur því.“ -SRS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.