Dagur - 10.05.2000, Blaðsíða 2
2 - MIÐVIKUDAGU R 10. MAÍ 2000
FRÉTTIR
Gott að fá úttekt á
Soltúns-samiiingi
Vinstri grænir biðja
ríkisendurskoðanda
að rannsaka Sóltúns-
salninginn - sem heil-
brigisráðherra fagnar.
„Við lítum á þetta sem svo alvar-
Iegt mál, að við höfum óskað eft-
ir því við ríkisendurskoðanda að
á því verði gerð rannsókn,“ sagði
Ogmundur Jónasson, málshefj-
andi í utandagskrárumræðum á
Alþingi um byggingu og rekstur
hjúkrunarheimilis við Sóltún í
Reykjavík.
Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, sagðist fagna þessu
alveg sérstaklega „því við höfum
aldrei gert jafn nákvæma þarfa-
greiningu eins og einmitt núna.
Og útboðslýsingin er svo ná-
kvæm og gerðar það miklar kröf-
ur að ég held að það sé gott fyrir
okkur öll að fá þá úttekt.“
Um 73 nýjax hjukrunar-
stöður
Ögmundur óskaði svara frá heil-
brigðisráðherra um ýmiss atriði
samnings við Securitas og Aðal-
verktaka, sem eigi að fá 11,8
milljarða fyrir að annast 92 aldr-
aða á elliheimili í 25 ár og eigi
síðan stofnunina. Hann spurði
um tilganginn með einkafram-
kvæmd. Hvers vegna Hrafnistu
hafi ekki verið gert kleift að
bjóða í heimilið sem hlyti að vera
hagkvæmt fyrir alla. Skýringu á
mildu hærri daggjöldum til Sól-
túns en samsvarandi stofnana.
Og hvernig ráðuneytið hyggst
framfylgja þvf að Oldungur
standi við að umsamin stöðugildi
verði við hjúkrun, alls 73,2 þar
af 15,8 hjúkrunarfræðingar og
55 sjúkraliðar.
Stofuanirnar sjálfar meta
sjúklingana
„Með einkaframkvæmt teljum
Ögmundur Jónasson.
við okkur hafa náð góðum samn-
ingum á grundvelli strangra fag-
legra skilyrða,“ sagði Ingibjörg,
sem kvað miður að Hrafnista
skyldi ekki bjóða í framkvæmd-
ina. Frá áramótum væru dag-
gjöld ákvörðuð á grundvelli RAI-
mats sem sé alþjóðlegur mæli-
kvarði, í 7 flokkum, á hjúkrunar-
þyngd sjúldinga. Svo nú sé beitt
samræmdu, hlutlægu mati á öll-
um stofnunum, líka Sóltúni.
Það séu stofnanirnar sjálfar sem
meti sjúklingana á grundvelli
matsnefndar, undir eftirliti RAI
mats nefndar ráðuneytisins.
Svo telji forsvarsmenn stofn-
ana sig nú með þyngri sjúklinga
en RAI-matið segi til um og þess
vegna fá of lág daggjöld, „...þá er
eitthvað að matinu sem þeir
gera, eða að þörf vistmanna fyrir
þjónustu hefur aukist," sagði
Ingibjörg. Hugsanlega þurfi að
breyta daggjöldum á einhverjum
stofnunum. En það verði ekki
gert á grundvelli Sóltúnssamn-
ingsins, heldur RAI-matsins, og
þau geti þá bæði hækkað og
lækkað.
Úr ennþá dýrari rúmiiiu
Tilganginn með Sóltúnssamn-
ingnum sagði Ingibjörg að mæta
brýnni þörf fyrir mjög veika aldr-
aða á Reykjavíkursvæðinu, sem
nú liggi á sjúkrahúsum, þar sem
rekstrarkostnaður á legudag sé
20.000 kr. á bráðadeild og
16.500 kr. á öldrunarlækninga-
deild. Ráðuneytið muni sjá til
þess að faglega verði staðið við
Sóltúnssamninga.
Margir aðrir tóku til máls, ým-
iss gagnrýnir eða fagnandi,
þeirra á meðal Guðmundur
Hallvarðsson sem fagnaði því að
sjá fram á verulega hækkun dag-
gjalda til Hrafnistu og annarra
öldrunarstofnana. - HEI
Þorgerður og Þórunn á þingi í gær.
Nýlög
afgreidd á
færibandi
Alþingismenn samþykkja lög á
færibandi nú síðustu daga fyrir
sitt langa og góða sumarleyfi.
Búið var að samþykkja 20 lög
um fimmleytið í gær.
A dagskrá þessa 109. fundar
Alþingis voru 43 mál auk utan-
dagskrárumræðna. Af þeim má
nefna: Fæðingar og foreldraor-
lof. Sóttvarnarlög. Vernd, frið-
un og veiðar villtra fugla og
spendýra. Nefnd um sveigjan-
Ieg starfslok. Eignarréttur ríkis-
ins á auðlindum hafsbotnsins.
Könnun á læsi fullorðinna. Þró-
unarsjóður sjávarútvegsins.
Varnir gegn snjóflóðum og
skriðuföllum. Veitinga og gisti-
staðir. Loftferðir. Bflaleigur.
Rannsókn sjóslysa. Verðbréfa-
viðskipti og -sjóðir. Þjóðlendur.
Varnarsamstarf Islands og
Bandaríkjanna. Lögleiðing
ólympískra hnefaleika. Nýbúa-
miðstöð á Vestfjörðum. Hluta-
félag um Leifsstöð. Og síðast
en ekki síst stjórnarfrumvarp
um breytingu á lögum um tekju-
og eignarskatt. - hei
/ Bandaríkjaferö sinni heimsótti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, bandaríska þingið og hitti þar ýmsa forystumenn
þingmanna. Á meðfylgjandi mynd er forsetinn að færa bókasafni bandaríska þingsins íslendingasögurnar að gjöf. Með hon-
um á myndinni eru f.v.: Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra, og öldungardeildarþingmennirnir Harry Reid, Edward Kenn-
edy, Richard Lugar, Tom Harkin og Christopher Dodd.
Eim iun 40 á skrá
Atvinnuástand hefur heldur Iag-
ast í Ólafsfirði frá því að Fisk-
verkun Sæunnar Axels var Iýst
gjaldþrota. Þá fóru 70 manns á
atvinnuleysisskrá en í dag eru
um 40 manns á atvinnuleysis-
skrá. Ekki hefur enn orðið vart
brottflutnings fólks úr byggðar-
laginu vegna þessa bága ástands,
en Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæj-
arstjóri, segir að eflaust muni
einhverjir missa þolinmæðina og
fara nú þegar skólum ljúki í lok
mánaðarins, hafi ekkert skýrst í
málum viðkomandi.
Lýstar kröfur í þrotabú Sæ-
unnar Axels námu 642 milljón-
um króna, en þá hafði báturinn
Kristján ÓF verið seldur. Seldar
hafa verið fjórar fasteignir úr
þrotabúinu til atvinnurekenda á
staðnum, þó enginn þeirra sé í
fiskverkun. Þetta eru rafvirki,
trésmiður, vöruflutningafyrirtæki
og fyrirtæki í Ólafsfirði sem hef-
ur verið að gera það gott við
framleiðslu á slökkvibifreiðum.
Fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í
smíði stoðtækja og sérhannaðs
skófatnaðar hefur einnig sýnt
áhuga á að nýta það mikla hús-
næði sem nú stendur vannýtt.
Enginn vinna er við söltun hjá
Garðari Guðmundssyni vegna
kvótaleysis útgerðarinnar en ver-
ið er að þurrka og salta hjá Stíg-
anda. - GG
Rík ástæða að óttast laimaskrið
Þjóðhagsstofnun óttast aukið launaslírið m.a. með því að hækkun
lægstu launa gangi lengra upp launastigann en kjarasamningar gera
ráð fyrir. „Sú er raunar reynsla fyrri ára,“ scgir í Hagvísum. Ætlað er
að samið hafi verið fyrir hönd um 50 þúsund starfsmanna í fyrirtækj-
um innan SA. Samningarnir, sem eru til hálfs fjórða til fjögurra ára,
kveði á um 12,7 til 13,5% beinar taxtahækkanir og meiri hækkun
lægstu taxta. Marsspá sína um 6% Iaunahækkun og 5,3% hækkun
neysluverðs milli þessa og síðasta árs segir ÞHS byggjast á að launa-
skrið verði með svipuðum hætti og að undanlörnu, en „rík ástæða er
til að óttast að launaskrið geti orðið meira, vegna þenslunnar í hag-
kerfinu sem m.a. felur í sér að hækkun lægstu Iauna kann að ganga
lengra upp launastigann en samningar gera ráð fyrir.“ - hei
Samnmgar felldir
Samningur Samstöðu í Húnaþingi við SA var felldur í atkvæðagreiðslu
í annað sinn. Samingurinn var hins vegar samþykkur í Skagafirði. At-
kvæðagreiðslu lauk í fyrradag og í Skagafirði sögðu liðlega 60% já en
hjáSamstöðu sögðu 57% nei. Valdimar Guðmannsson formaður Sam-
stöðu sagðist í gær stoltur af sínu fólki, niðurstaðan sýndi að það
myndi ekki sætta sig við annað en meiri launahækkanir.
ÍR og Leikuir að sameinast
Á fundi borgarráð í gær var samþykkt að kaup íþróttaaðstöðu Leiknis
við Austurberg í Breiðholti í Reykjavík. Um er að ræða gervigrasvöll,
vallarhús og fljóðljós og er kaupverðið um 30 millj. kr. Það mun létta
á skuldum félagsins. Viðræður Leiknis og IR um sameiningu standa
nú fyrir dyrum í framhaldinu með það að markmiði að stofna eit stórt
félag í Breiðholti. Leiknir og IBR munu semja um afnot af vellinum.
Olíuverðið 115%hærra
Þótt olíuverð sé nú aftur á niðurleið var það að jafnaði ] 15% hærra
fyrstu fjóra mánuði ársins (26,2 USD/fat) en á sama tímabili 1999
(12,2 USD/fat), þegar verðið var hins vegar á hraðri uppleið.
Samkvæmt yfirliti Þjóðhagsstofnunar komst verðið hæst í febrúar í
næstum 29 dollara, en fór niður fyrir 23 dollara í apríl. Á síðasta ára-
tug varð meðaloh'uverð á heilu ári langlægst árið 1998 um 12,8 doll-
ara fatið, en langhæst árið 1990 um 22,8 dollara fatið. En fjögur ár;
1991, 1992, 1996 og 1997 var verðið öðru hvoru megin við 20 dollara
fatið. Meðaltal síðasta áratugar var um 18,3 dollarar, sem er heldur
hærra en á síðasta ári. - HEi