Dagur - 10.05.2000, Side 17

Dagur - 10.05.2000, Side 17
MIDVIKUDAGVR 10. MAÍ 2 0 0 0 -17 tLANDINU Þráum að ala upp böm „Ég er ekki á móti umræðum en það verður að bera virðingu fyrir lífi fólks, segir Felix Bergsson. Felix Bergsson gleðst yfirgóðum viðtökum leikritsins Hins fiill- komnajafningja sem fiallarum lífsamkyn- hneigðra og hann gleðst líka yfir nýjum lögumfráAlþingi. Hinsvegar er hann ekki ánægðurmeð um- ræðuna ífjölmiðlum síðustu daga. „Eg efast um að fjölskyldur í þessu Iandi mundu almennt þola það að á þær væri ráðist í útvarps-og sjónvarpsþáttum, kvöld eftir kvöld, á svipaðan hátt og gert var við okkur. Eg er ekki á móti umræðum en það verður að bera virðingu fyrir lífi fólks,“ segir Felix og heldur áfram: „Okkur er borið á brýn að við séum að leggjast á börnin okkar, smita þau af alnæmi og svo framvegis. Það er óþolandi að þurfa að sitja undir þessu.“ Felix býr í fallegu húsi við Vesturgötuna í Reykjavík, ásamt manni sínum, Baldri Þórhalls- syni og tveimur börnum þeirra frá fyrri hjónaböndum, átta og tíu ára. Felix segir börnin aldrei hafa orðið fyrir aðkasti af hálfu skólafélaga sinna vegna heimil- isaðstæðna sinna enda hafi þau hlutina á hreinu og ekkert að fela. Það sé hinsvegar sárt þegar aðkast komi úr fjölmiðlum landsins, frá fullorðnu fólki, jafnvel í ábyrgðarstöðum. „Fólk verður að athuga að þetta snert- ir ekki hara okkur heldur líka fjölskyldur okkar, fólk sem stendur okltur nærri og það skiptir máli hvernig hlutir eru fram settir." Flann segir Ómegastöðina kapítula útaf fyrir sig og furðar sig á að leyfi skuli fást til að reka útvarpsstöð sem gangi fram með slíku offorsi gegn einum hópi í samfélaginu. „Mundum við Ieyfa nýnasistum að stofna hér stöð til að úthrópa innflytjendur í ís- lensku samfélagi? Nei við leyf- um ekki rasískar umræður í okk- ar fjölmiðlum og það eru komin lög í Iandinu sem banna árásir á okkur samkynhneigða á grund- velli kynhneigðar okkar. Það er spurning hvort það er ekki kom- inn tími til að láta reyna á þau lög fyrir dómstólum.“ Þetta var góður dagur Felix kveðst afar ánægður með lagasetningu þingsins nýlega þar sem samkynhncigðum veitist heimild til ættleiðingar harna maka sinna. „Þetta var góður dagur, ekki bara fyrir samkyn- hneigða heldur alla sem unna mannréttindum og vinna að þeim málum. Mér finnst það mikilvægt í sambandi við um- ræðuna á Alþingi að í fyrsta sinn fór fólk fyrir alvöru að horfa á okkur samkynhneigða sem fjöl- skyldur, sem við erum. Að við eigunt börn og erum uppalend- ur.“ Aðspurður segist Felix þó geta átt von á að með opnari umræð- um og minnkandi fordómum horfist fólk í augu við kynhneigð sína fyrr á lífsleiðinni og það fækki hjónaböndum þeirra og gagnkynhneigðra. Börn verði þó til með ýmsum hætti. „Við sam- kynhneigðir erum ekkert öðru- vísi en aðrir að því Ieyti að við eigum sömu þrá um að eignast börn og fá að ala önn fyrir þeim. Við erum heldur ekki öðruvísi en aðrir foreldrar að því leyti að við drögum ekki börn inn í okk- ar svefnherbergi." Flann viðurkennir að ótrúlegar breytingar hafi orðið á aðstæð- urn samkynhneigðra á Islandi á síðustu árum. „Við erum framar mörgum þjóðum að þessu leyti. Danir hafa þó þegar samþykkt samskonar Iög og hér var verið að undirrita og Hollendingar tóku skrefið alla leið og leyfa frumættleiðingu. „ Ljúfsár, fyndin og hræðileg Felix segir leikrit hans Hinn full- komna jafningja framlag hans til að opna umræðuna um líf sam- kynhneigöra á vitrænum nótum og veita fólki innsýn inn í það án þess að tala í predikunartóni. „Eg var eitt og hálft ár að skrifa þetta verk og vann mjög náið með Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra allan tímann. Eg hregð mér þarna í 5 gerfi og sag- an er allt frá því að vera ljúfsár og fyndin til þess að vera hræði- Ieg.“ Hinn fullkomni jafningi var frumsýndur í janúar 1999 og sýningar áttu upphaflega bara að verða sex en viðtökurnar voru þannig að þær urðu 18.“Það komu 5000 manns og við hætt- um fyrir fullu húsi en það stóð alltaf til að byrja aftur," segir Felix og bætir við að sýningin sé tæknilega flókin og því sé ekki einfalt að ferðast með hana. Þó sé búið að setja hana upp í Fær- eyjum, Noregi og London og Bandaríkjamenn, Danir og Ástr- alir hafi sýnt henni áhuga. „I Astralíu er haldin stór hátíð samkynhneigðra á hverju sumri og það gæti hugsast að Jafning- inn færi á þá hátíð. Svo er mein- ingin að fara aftur til Bretlands í haust. Þar sýndum við fimm sýningar í vor og það var uppselt á allar“ Aður en haldið var til London sýndi Felix Jafningjann á ensku hér í Reykjavík og þangað var boðið blaðamönnum frá bresku pressunni. Hann segir þá hafa verið afar ánægða með komuna hingað og þótt athyglisvert í hvaða fanægi málefni samkyn- hneigðra væru hér á landi. „Þeir voru ánægðir með að koma inn á heimilið okkar og hitta börnin og foreldra okkar. Borgarstjórinn bauð þeim í Ráðhús Reykjavíkur og lýsti yfir stuðningi vdð það sem við erum að gera. Það þótti þeim mjög athyglisvert. Fólk í slíkum stöðum í Bretlandi hefur ekki verið jafn jákvætt. Þess má líka geta að Menntamálaráðu- neytið hefur stutt við bakið á sýningunni okkar frá byrjun. Allt þetta er mjög mikilvægt." Sumarhátíð Fyrsta sýning á Hinum full- komna jafningja núna verður þann 12. maí í Islensku Oper- unni. Hún verður bæði á ís- lensku og ensku og er liður í há- tíðahöldum vegna Hinsegin daga (Gay Pride) sem haldnir verða í ágúst. Felix lýsir þeim hátíðahöldum: „Við fáurn hingað lciksýningu frá Astralíu í lok þessa mánaðar og sýnum þá líka Hinn fullkomna jafningja á ensku. í kjölfarið verða ýmsar samkomur í sumar sem er ætlað að hita upp fyrir „Hinsegin heigi“ í ágúst þar sem aðal há- tíðin verður á Ingólfstorgi. Það er mikilvægt fyrir okkur að hitt- ast, skemmta okkur saman og stilla saman strengina og það er líka mikilvægt að fólk viti að viö séum til og erum hluti af þessu samfélagi.“ GUN. IMENNINGAR LIFIB Margrét Eiísabet Ólafsd Lfkafyrirböm Það styttist í Lista- hátíð í Reykjavík og miðasala í fullum gangi. Hér hefur áður verið minnst á nokkra er- lenda listamenn sem von er á til landsins á hátíðina, en því má ekki gleyma að hérlendir lista- menn koma líka við sögu. Is- lenski dansflokkurinn sýnir Auðun og ísbjöminn eftir Nönnu Olafsdóttur á Leiklistar- hátíð bamanna, en þar verða einnig flutt t\'ö leikverk innblásin af fs- Ienskum fombók- menntum. Böðvar Guðmundsson studdist við Völs- ungasögu þegar hann ritaði Prinsessan í hörp- unni fyrir Leik- brúðuland og Þór- arinn Eldjárn hefur gert sér lítið fyrir og fært Völuspd í aðgengi- legan húning fyrir stálpuð börn og unglinga. Þessar sýningar Leiklistarhátíðar barnanna verða dagana 20. maí til 1. júní í Borgarleikhúsinu, Tjarnarbíói og Möguleikhúsinu. Leikbrúðulanc sýnirnýtt verk eftir Böðvar Guðmunds- son. íslensk tónskáld Islensk tónlist mun einnig skipa veglegan sess á Listahátíð í ár. Islensk sönglög úr leikhúsi í 100 ár verða flutt í Þjóðleikhús- inu á dagskránni Ilvert örstutt spor 20. og 23. maí en aðrir tónleikar verða í Salnum í Kópavogi. Hinn framsækni tón- listarhópur Caput og hin virta Kammersveit Reykjavíkur ætla bæði að einbeita sér að verkum íslenskra tónskálda, hópurinn á tónleikum 31. maí og sveitin þann 5. júní. I Salnum verða einnig tónleikar með íslenskum einsöngvurum þann 30. maí þar Óvænt sóknarfæri? f föstudagsblaði Dags í viku hverri er lítill og sakleysislegur þáttur þar sem fólk er spurt um hvað það hyggist taka sér fyrir hendur um komandi helgi. Allflestir taka því vel að svara þessari spurningu og segja allt af létta, en einstaka mað- ur biðst undan. Og það af ástæðu sem svo sannarlega verður til þess að vekja mann til umhugsunar um hvernig ástatt sé orðið í þessu þjóðfélagi. Sumir veigra sér nefni- íega við að segja frá því að þeir ætli í leikhús, sumarbústað eða eitthvað slfkt, af ótta við að lesa megi að hús þeirra standi mannlaus og séu þar með kjörinn vettvangur fyrir inn- brotsþjófa. Streitukennt borgarliiið Þjóðfélagið er auðvitað orðið sjúkt þegar ástandið er einsog hér er að framan lýst, að fólk geti ekki brugðið sér af bæ án þcss að eiga á hættu að eigum þess hafi verið stolið eða þær skemmdar á meðan. Ætla má að í afar mörgum tilvikum sé það fólk sem svo víða gerir sig heimakomið eiturlyfjaneytendur, sem eru að leita sér að þýfi til þess að selja og Ijármagna með því neyslu sfna. Mikilvægt er að það takist að hafa hendur í hári þessa rumpulýðs. En mál þetta verður þó fyrst og fremst til þess að vekja upp samfélagsleg- ar spumingar, til dæmis þær hvort einkenni borgarsamfélagsins séu í Reykjavík orðin slík að borgin sé ekki jafn eftirsótt til búsetu og áður. Byggð í landinu þróast að vísu svo enn um stundir að íbúum á Reykjavíkursvæðinu Ijölgar stöðugt og ekkí færri en tvöþúsund manns Ilytja þangað utan af landi á ári hveiju. En svo segir mér hugur að á þróun þessari geti farið að hægja og straumurinn aftur farið að liggja út á land. Hugsun nútímafólks er nefnilega að verulegu leyti bundin þvf að geta lifað við öryggi og vellíðan. Streitu- kennt borgarlífið bíður í fæstum tilvikum uppá slíkan munað. MENIMINGAR VAKTIN Sigurður Bogi Sævarsson skrifar / Reykjavík. Þróun mála á Reykjavíkursvæðinu hefur verið að skapa tandsbyggð- inni óvænt sóknarfæri sem ber að nýta. Reykjavík fyrir efaafólk? En þó fólk hafi orðið einhveija peninga handa á milli þá er ekki þar með sagt að þeir séu ótakmarkaðir. Að því er fram kemur í fasteignaauglýsingum virðist það ekki vera fyrir nema efnafólk að búa á SV- horni landsins, og er það í samræmi við þróunina einsog hún gerist víða erlendis; að ríka og fi'na fólkið býr f borgunum, einmitt þar sem glæpatíðnin er mest, en millistéttin fremur í úthverfum eða úti á landi. I æ ríkari mæli og á sífellt fleiri svið- um verður stjórnarstefnan í Iandinu til þess að skerpa á því að tvær þjóðir búi í landinu. Oft hef ég í pistlum þessum Iýst yfir svartsýni minni á þróun mála á lands- byggðinni. En ég held þróun mála á Reykjavíkursvæðinu sfðustu misserin hafi í raun verið að skapa landsbyggðinni óvænt sóknarfæri, sem stjómvöldum og þeim sem hafa að atvinnu að efla lands- byggðina ber að nýta. Er þetta þó sagt með fyrirvara um hve miklu slíkar stofn- anir geti komið í verk; almenn þjóðfélags- leg þróun og straumur tímans ræður hér mestu og elja fólksins sjálfs og útsjónar- semi þess. sigurdur@dagur.is

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.