Dagur - 10.05.2000, Síða 8
8- MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000
SMÁTT OG STÓRT
Trúður í klukkutíma
Skrifari dagsins fékk sl. laugardag símhringingu frá skoðanakönnuðum
Gallup og var beðinn um að segja sitt álit á helstu málum sem eru í deigl-
unni. Mikið var til dæmis spurt um símamál svo sem hve oft ég hringdi til
útlanda, hvort ég legði meira uppúr góðu sambandi eða lágu verði og
hvaða hug ég bæri til Landssímans. Þetta er náttúrlega bráðnauðsynlegt
að sé á hreinu, enda telja menn að helsti vöxtur atvinnulífsins felist i rek-
stri símafyrirtækja, sem eiga allt sitt undir því að fólk hangi í símanum.
Það var svo undir lok yfirheyrslu skoðanakönnuðarins sem fyndnasta
spurningin kom. Ef þú værir að halda barnaafmæli og fengir trúð til þess
að mæta og vera með töfrabrögð og galdra hvað værir þú til í að borga fyr-
ir klukkutímann, var spurt. Eg sagði út í loftið að ég væri til í að borga tíu
þúsund krónur, en spurði f leiðinni á hverra vegum þessi spurning væri í
loftið sett. Stúlkan sem spurði kvaðst ekki vita það, en spurningin þótti
mér svo fyndin en þó helst fáránleg að deginum hjá mér var bjargað.
UMSJÓN:
SIGURÐUR BOGI
SÆVARSSON
sigurdur@dagur.is
„En pestin gekk
hratt yfir og ég er
farin að geta
borðað.“
- Telma Agústs-
dóttir, Euruvison-
drottning rekur
raunir sínar í DV
f fyrradag.
Öldin, Jónas
og Skólaljóðin
Eg hygg að í huga Islendinga séu morð sem
framin hafa verið á síðustu áratugum ekki
nema þrjú, fyrir utan Guðmundar- og
Geirfinnsmálin svonefndu. I fyrsta lagi
morð lögmanns í Reykjavík á eiginkonu
sinni 1967 og tvö morðmál árið eftir, þ.e.
þegar flugstjóri í Reykjavík skaut yfirmann
sinn til bana og þegar leigubílstjóri í borg-
inni var myrtur með dularfullum hætti. Og
hver skyldi ástæða þessarar takmörkuðu þekkingar vera. Eg held að þetta
komi til vegna þess að Oldin okkar eru bækur sem til eru víða og hafa með
afgerandi hætti mótað söguþekkingu þjóðarinnar vegna þess hve skemmti-
legar þær eru - og frá áðurnefndum málum er sagt þar áberandi og skil-
merkilega. Sýn okkar allflestra á helstu menn og málefni í Islandssögunni
er líka svipuð - við trúðum því að Danir hafi afleitir verið - og það held ég
að komi til af því að Islandssaga Jónasar frá Hriflu var kennd í skólum
Iandsins í áratugi og boðskapur í þá veru var þar settur fram. Ljóðasmekk-
ur íslendinga er líka svipaður, fæst okkar þekkjum yngra skáld en Stein
Steinarr - enda er hann aftastur í Skólaljóðunum.
1968
Leigubílstjóri finnst
myrtur undir stýri
"/. Uigubildjófi Iti llrcyfli var ikotlnn lil bana i bifreií
Unni I fyrriivitt og bcnda likur til aö um rinmorð »é aö rxfla
Hinn limi hél Gtmnar Siguröor Trywn «»on, 4bja ira að aldri
Murðinpnn mun hafa nouð .jílfvlrka akammbyswi, hbup
vkkl 32, og tkaul lutnn Gunnar ncðarlega l hnakkann hargr
mc|þn. Mun Gunnar hafa lád*l n*r vatnilundU. BUlinn stó
vií L«u*ala*. rítt sunnan BuftðuLckjar, og þar hifur roorð
iojþnn yfirgeRð luinn einbvernlima i límabilinu fri U. 4 t
6.15 um mnrguninn.
Öldin okkar.
■ fína og fræga fólkið
Klassísk
Bond stúlka
Goldfinger var nýlega valin besta
Bond myndin í skoðanakönnun
sem BBC efndi til. Kvenleikari
þeirrar myndar var Honor Black-
man sem þar lék Pussy Galore.
Hún er tvífráskilin og á tvö kjör-
börn. Hún segist aldrei ætla að búa
með karlmanni aftur, telur sig ekki
hafa skapgerð í sambúð, sé of
gagnrýnin og vilji að allt sé full-
komið. Hún segir að hugmynd sín
um fullkominn dag sé að sitja í sól-
inni, svamla í sjónum, borða góðan
hádegisverð með hvítvfni, lesa og
enda daginn á því að horfa á knatt-
spyrnuleik með Manchester
United.
Honor Blackman er enn glæsileg þótt
þrír áratugir séu liðnir frá því hún lék
í Goldfinger.
ÍÞRÓTTIR
Xfc^wr
Hér takast á þeir Jón Þór og Sveinbjörn Jun í -4 Ikg flokki 11-12 ára.
- MYND: R. RICHTER.
Spemiaiidi keppni á
Islandsmótmu 1 júdó
Keppendur frá KA, JK
og Ármamii unnu
flesta íslandsmeist-
aratitla á meistara-
móti 11-14 ára í júdó
sem fram fór um helg-
ina.
íslandsmótið í júdól 1-14 ára fór
fram um helgina í íþróttahúsinu
Austurbergi í Breiðholti. Góð
þátttaka var á mótinu og voru
keppendur frá sex félögum
mættir til keppni. Þeir komu frá
UMFF (Þykkvabæ), UMFS (Sel-
fossi), UMFG (Grindavík), KA
(Akureyri) og Reykjavíkurfélög-
unum JR og Armanni.
Keppt var í tólf flokkum karla,
en aðeins einum flokki kvenna
sem var sameinaður flokkur -36
kg og -40 kg 11-12 ára. Keppnin
var mjög jöfn og spennandi í öll-
um flokkum og skiptust íslands-
meistaratitlar nokkuð jafnt á fé-
lögin, en keppendur frá KA á Ak-
ureyri og frá Reykjavfkurfélögin
JR og Ármann unnu þó flesta
þeirra eða þrjá hvert félag, en
UMFS og UMFG tvo titla hvort
félag.
Verðlaunahafar
Karlaflolikur 11-12 ára
-27 kg og -30 kgflokkur
1. Óskar Vignirsson, UMFG
2. Axel Kristinsson, Árm.
-34 kgflokkur
1. Ari Alexandersson, Árm.
2. Arnar Freyr Þórsson, JR
-38 kgflokkur
1. Kristján Jónsson, JR
2. Ari Húnbogason, KA
3. Torfi Ge. Símonarson, UMFF
-41 kg flokkur
1. Halldór Kárason, KA
2. Bergþór Sigurðsson, UMFG
3. Sveinbjörn Jun Iura, JR
3. Birgir Ómarsson, Árm.
-46 kgflokkur
1. Tryggvi Ólason, UMFS
2. Tryggvi R. Guðnason, UMFF
3. Þórður Sigbjartsson, UMFF
+50 kgflokkur
1. Hörður Hannesson, Árm.
2. Magnús S. Magnússon, JR
3. Helgi Björnsson, KA
Kvennaflokktir 11-12 ára
-36 kg og -40 kgflokkur
1. Guðrún Gunnarsdóttir, UMFG
2. Elfa Ó. Guðlaugsdóttir, UMFF
3. Sylvía Steingrímsdóttir, UMFG
Karlaflokkur 13-14 ára
-42 kgflokkur
1. Styrmir Erwinsson, UMFS
2. Rúnar Guðlaugsson, UMFF
-46 kg og -50 kgflokkur
1. Darri Kristmundsson, Árm.
2. Þórarinn Ág. Jónsson, JR
3. Óttar Fr. Einarsson, UMFG
-55 kgflokkur
1. Heimir Kjartansson, JR
2. Herbert Vilhjálmsson, JR
3. Eggert Jóhannesson, JR
-60 kgflokkur
1. Eðvarð Helgason, KA
2. Jón S. Tómasson, JR
3. Alvar Skúlason, JR
-66 kgflokkur
1. Alex Stefánsson, KA
2. Lárus G. Lúðvíksson, Árm.
3. Stefán Þ. Bjarnason, Árm.
+ 66 kgflokkur
1. Örn Arnarsson, JR
2. Sveinn I. Sveinbjörnss., UMFS
3. Jón Óli Helgason, KA
Fyrsti sigur HaMdnens
Finninn Mika Hakkinen, heims-
meistari sfðasta árs í Formula 1
kappakstrinum vann sinn fyrsta
sigur á árinu þegar hann sigraði í
Spánarkappakstrinum í Barcelona
um helgina. Hálddnen náði næst
besta tímanum í tímatökunni á
laugardag, en þar náði helsti
keppinautur hans, Þjóðverjinn
Michael Schumacher, bestum
tíma. Schumacher hafði forystu
fyrstu 42 hringina, en endaði í
fimmta sætinu eftir að hafa þurft
að taka þrjú hlé. 1 öðru sæti varð
David Coultard, félagi Hákkinens
hjá hjá McLarcn, en hann náði
fjórða besta tímanun í tímatök-
unni.
Næsta keppni verður í Nurbur-
gring helgina 20.- 21. maí.
Úrslit á Spáni
Fyrstu sex:
1. M. Hakkinen, McLaren 1:33,55
2. D. Coulthard, Mclaren 1:34,11
3. R. Barrichello, Ferrari 1:34,24
4. R. Schumacher, Williams 1:34,32
5. M. Schumacher, Ferrari 1:34,43
6. H, Frentzen, Jordan 1:35,17
Staðan í heimsbikamuin
Ökutnenn:
1. M. Schumacher, Ferrari 36
2. M. Hákkinen, McLaren 22
3. D. Coulthard, McLaren 20
4. R. Barrichello, Ferrari 13
5. R. Schumacher, WiIIiams 12
6. G. Fisichella, Benetton 8
7. J. Villeneuve, BAR 5
8. H. Frentzen, Jordan 5
9. J. Trulli, Jordan 4
10. J. Button, Williams 3
11. R. Zonta, BAR 1
11. M. Salo, Sauber 1
Lið:
1. Ferrari 49
2. McLaren 42
3. Williams 15
4. Jordan 9
5. Benetton 8
6. BAR 6
7. Sauber 1