Dagur - 10.05.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000 - 9
r^nr.
ÍÞRÓTTIR
Þrjú rauð
á Elland Road
Slaguriim urn þriðja
sætið í ensku deildinni
milli Leeds og Liver-
pool heldur áfram fram
í síðustu umferð, eftir
að Leeds náði aðeins 1-
1 jafntefli gegn Ev-
erton á heimavelli sín-
um Elland Road í fyrra-
kvöld. Aðeins eins stig
munur er á liðunum
fyrir síðustu umferð-
ina og er spennan því
mikil.
Ekkert annað en sigur gegn West
Ham í síðustu umferð ensku úr-
valsdeildarinnar getur trj'ggt
Leeds United þriðja sætið í deild-
inni og þar með meistaradeildar-
sæti að ári, eftir að Iiðið náði að-
eins 1-1 jafntefli gegn Everton í
miklum baráttuleik á Elland Road
í fyrrakvöld. Þrír leikmenn fengu
að líta rauða spjaldið hjá Andy
D¥Urso hræðilegum dómara
leiksins, en það voru þeir Richard
Dunne og Don Hutchison hjá Ev-
erton og Michael Duberry hjá
Lecds, auk þess sem sjö leikmenn
voru bókaðir, þar af sex frá Ev-
erton. Leeds er þar með aftur
komið í þriðja sæti deildarinnar
með 68 stig, eða einu stigi meira
en Liverpool sem er í fjórða sætinu
með 67 stig, en markahlutfall
Liverpool sem á sfðasta leik gegn
Rradford á sunnudaginn, er mun
betra. Þess vegna dugar Leeds
ekkert annað en sigur gegn West
Ham á Upton Park þegar liðin
mætast á sunnudaginn.
21. iuark Bridges
Það var markamaskínan Michacl
Bridges sem kom Leeds yfir f
leiknum gegn Everton í lyrrakvöld,
þegar hann skoraði sitt 21. mark á
leiktíðinni á 29. mínútu leiksins,
eftir slæm mistök David Weir í Ev-
ertonvörninni. Wier Ieit eitt
augnablik af Bridges og þá notaði
Lee Bowyer tækifærið og sendi
langa stungusendingu í gegnum
vörnina. Bridges var á réttum stað
og hamraði boltann í netið fram-
hjá Paul Gerrard, markverði Ev-
erton. Það var nokkuð gegn gangi
leiksins, en Everton, sem hefur
ekki unnið leik á Elland Road síð-
an árið 1952, Iék mun bctur í fyrri
hálfleik án þess þó að ógna mark-
inu.
Leeds missti flugið
Leeds kom meira inn í Ieikinn í
upphafi seinni hólfleiks og var það
helst fyrir einstaklingsframtak
Kewells að meira líf færðist í sókn-
arleikinn. Það dugði þó ekki til, því
á 59. mínútu urðu Nigel Martins f
marki Leeds á herfileg mistök,
sem urðu til þess að Nick Barmby
tókst að jafna leikinn fyrir Ev-
erton. Boltinn barst inn í teiginn
þar sem Martin kom vaðandi út,
en einhverra hluta vegna skoppaði
hann yfir enska landsliðsmark-
vörðinn og þar með komst Barmby
á auðan sjó og sendi boltann ör-
ugglega í netið.
Eftir markið misstu leikmenn
Lceds fiugið og tókst því ekki að
bæta við marki, þrátt fyrir að vera
manni fleiri í heilar tíu mínútur.
Staðan
Arsenal, sem þegar hefur tryggt
sér annað sætið í deildinni fékk
Sheffield Wednesday í heimsókn á
Highbury í gærkvöld og sjáum við
stöðuna fyrir þann leik hér að neð-
an:
Man. Utd 37 27 7 3 96:45 88
Arsenal 36 22 6 8 68:36 72
Leeds 37 21 5 11 58:43 68
Liverpool 37 19 10 8 51:29 67
Chelsea 37 17 11 9 49:34 62
Aston Villa 37 15 13 9 46:34 58
Sunderland 37 16 10 1 1 56:53 58
Leicester 37 16 7 14 55:51 55
WestHam 37 15 9 13 52:53 54
Everton 37 12 14 1 1 59:47 50
Tottenham 37 14 8 15 54:48 50
Newcastle 37 13 10 14 59:52 49
Middlesbr. 37 13 10 14 44:52 49
Coventry 37 12 8 17 47:53 44
Southampt. 37 11 8 18 43:62 41
Derby 37 9 11 17 44:53 38
Wimbledon 37 7 12 18 46:72 33
Bradford 37 8 9 20 37:68 33
Sheff. Wed. 36 7 6 23 31:67 27
Watford 37 5 6 26 34:77 21
Síðasta umferð á suunudag
Aston Villa - Man. Utd
Bradford - Liverpool
Chclsea - Derby
Coventry - Watford
Everton - Middlesbr.
Newcastle - Arsenal
Sheffield W. - Leicester
Southampt. - Wimbledon
Tottenham - Sunderland
West Ham - Leeds
Valur og Grindavík
í urslitaleiMim
Grindavík og Valur
tryggöu sér uin helg-
ina réttinn til að leika
til úrslita í deildarbík-
arkeppni karla í knatt-
spymn.
Grindvíkingar unnu 7-1 stórsigur
á Leiftri frá Ólafsfirði þegar liðin
mættust í undanúrslitum deildar-
bikarsins, í Reykjaneshöllinni á
sunnudaginn.Eftir að hafa unnið
Keflvíkinga 5-1 í 8-liða úrslitun-
um mættu Grindvíkingar fullir
sjálfstrausts í leikinn gegn Leiftri
og sýndu þar enn einu sinni hvers
þeir eru megnugir. Það létti þeim
líka róðurinn að Hlynur Jóhanns-
son fékk að líta rauða spjaldið
strax á 47. mínútu og rnunar um
minna. Sverrir Þór Sverrisson
gerði fyrsta mark Grindvíkinga
strax á 7. mínútu, en fimm mínút-
um síðarjafnaði Hlynur Jóhanns-
son. En Adam var ekki lengi í
Paradís, því þremur mínútum síð-
ar kom Skotinn Scott Ramsey,
Grindvíldngum aftur yfir. Öðrum
þremur mínútum síðar fengu
Lciftursmenn dæmda vítaspyTnu,
en Albert Sævarsson varði spyrn-
una frá Alexandre Santos. Grind-
víkingar byrjuðu seinni hálfleik-
inn eins og þeir enduðu þann fyTri
og strax á 47. mínútu var Sverrir
Þór að komast í gegnum vörn
Leiftursmanna, þegar Hlynur
braut á honum og fékk þar að líta
áðurnefnt rautt spjald. Brotið var
rétt utan vítateigs og skoraði Scott
Ramsey beint úr aukaspyrnunni.
Fjögur mörk Grindvíkinga fylgdu í
kjölfarið, sem þeir Paul McShane,
Scott Ramsey, Ólafur Bjarnason
og Sinisa Kekic skoruðu.
Mills altnr hetja Valsmanna
Bandaríski markvörðurinn Jon
Mills, sem var hetja Valsmanna í
8-liða úrslitunum gegn FH á dög-
unum, þar sem hann varði þijár
vítaspyrnur í vitaspyrnukeppni,
var aftur hetja Valmanna í undan-
úrslitaleiknum gegn Fylki, þar
sem hann varði spyrnu frá Þór-
halli Dan Jóhannssyni og try’ggði
sínum mönnum þar meðlO-9 sig-
ur á Fylki. Staðan var jöfn 1-1 eft-
ir venjulegan Ieiktíma, þar sem
Adolf Sveinsson kom Valsmönn-
um yfir á 19. mínútu, en Hrafn-
kell Helgason jafnaði fyrir Fylki
tíu mínútum síðar. í framlcnging-
unni skoruðu liðin sitt hvort
markið, Ómar Valdimarsson fyrir
Fylki, áður en Arnór Guðjohnsen,
besti maður Valsara, jafnaði met-
in. Fylkismenn höfðu sótt stíft í
lok framlengingarinnar, en tókst
ekki að bæta við marki og því var
gripið til vítaspyrnukeppninnar,
sem endaði 10-9 fyrir Val. Grinda-
vík og Valur mætast á laugardag-
inn í úrslitaleik deildarbikarsins á
gervigrasinu í Laugardal.
Erla og Teitur best í körfunui
Erla Þorsteinsdóttir og Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmenn ársins.
Þau Teitur Örfygsson,
Njarðvík og Erla Þor-
steinsdóttir, Keflavík,
voru valin leikmenn
ársins á lokahófí
körfuknatfleikmanna
sem haldið var um
helgina.
Teitur Örlygsson, leikmaður
Njarðvíkinga, var valinn
körfuknattleiksmaður ársins í
fjórða sinn á ferlinum á lokahófi
KKI sem haldið var á föstudags-
kvöldið. Teitur sem varð einnig fyr-
ir valinu árin 1989, 1992 og 1996,
var auk þess valinn í lið ársins og
er það í ellefta skipti á tólf árum
sem hann er valinn í Iiðið. Auk
Teits voru eftirtaldir valdir í Iið árs-
ins: Fannar Ólafsson, Keflavík,
Friðrik Stefánsson, Njarðvík, Ólaf-
ur Ormsson, KR og Svavar Birgis-
son, Tindastóli.
Hjá konunum var Erla Þor-
steinsdóttir, Kefiavík, valin leik-
kona ársins, en auk hennar voru
eftirtaldar valdar í lið -ársins: Alda
Leif Jónsdóttir, IS, Hanna Kjart-
ansdóttir, KR, Sólveig Gunnlaugs-
dóttir, UMFG og Guðbjörg Norð-
fjörð, KR.
Bestu nýliðarnir voru valdir þau
Birna Eiríksdóttir, Tindastóli og
Ægir Hrafn Jónsson, IA og hlaut
Ægir Örlygsbikarinn sem nú var
veittur besta nýliðanum í Epson-
deildinni til minningar um Örlyg
Sturluson.
Af dómurunum var Leifur Garð-
arsson, Haukum, valinn sá besti
og er það annað árið í röð sem
hann er valinn bestur. Efnilegast
dómarinn var svo valinn Rúnar B.
Gíslason, Tindastóli.
Þjálfarar ársins voru valdir þeir
Ósvaldur Knúdsen hjá kvennaliði
ÍS og Valur Ingimundarson hjá
karlaliði Tindastóls.
Bestu erlendu Ieikmennirnir
voru valdir þau Ebony Dickinson,
leikmaður KFl og Brenton
Birmingham, leikmaður Grindvík-
inga.
Besti árangux Íslajndsmótsins
Besta vítanýting:
Alda Leif Jónsdóttir, Keflavík 86,8%
Birgir Mikaelsson, Skallagr. 88,1%
Flest stig:
Ebony Dickinson, KFÍ 32,1
Brenton Birmingham, UMFG 32,1
Flest varin skot:
Alda Leif Jónsdóttir, ÍS 2,7
Friðrik Stefánsson, UMFN 1,9
Flest fráköst:
Ebony Dickinson, KFÍ 18,7
Clifton Buch, KFI 14,2
Besta nýiing 3ja stiga:
Kristín Blöndal, Kefiavík 39,5%
Brenton Birmingham, UMFG 48,5%
Flestir stolnir boltar:
Alda Leif Jónsdóttir, Kefiavík 4,7
Brandon Titus, Hamri 3,9
Flestar stoðsendingar:
Alda Leif Jónsdóttir, Kefiavík 4,9
Anna M. Sveinsdóttir, Keflavík 4,9
Kristín Blöndal, Keflavík 4,9
Tómas Holton, Skallagrím 7,1