Dagur - 10.05.2000, Qupperneq 16
Stefán Karl Stefánsson út-
skrífaðist úrLeiklistarskólcL
íslandsfyrír tæpu árí og
þann 1. júní komst hann á
fastan samning íÞjóðleik-
húsinu. ÁSOára afmælis-
degi þess tók hann við viður-
kenningu úrEgner-sjóðnum
fyrírhlutverk sitt í Glanna
glæp en þann dag birtist
hann leikhúsgestum einnig í
fyrsta sinn í hlutverki Bokka
íDraumi á Jónsmessunótt.
Stefán Karl Stefánsson stingur upp á
stefnumóti á Kaffivagninum við eina
bryggjuna úti á Grantla. Hann kann vel
við staðinn enda ætlaði hann sér að verða
trillukarl og er með próf upp á vasann sem
sannar það áform. En Ieiklistin vann sigur
á sjónum og það er ekki á honum að heyra
að hann sjái eftir því.
Þeir sem séð hafa Stefán Karl á sviði
þurfa heldur ekki að efast um ánægju
hans af leiklistinni. Hún skín í gegn þeg-
ar hann haltrar um svið Þjóðleikhússins í
gervi hins stríðna Bokka, „sem kannski
hefur hlotið illa andlega og líkamlega
meðferð hjá Oberon, húsbónda sínum“.
Þar kemur skýringin á spelkunum sem
Bokki þarf að burðast með í uppfærslu
Baltasar Kormáks á Draumi Shakespeares
á Jónsmessunótt.
Rangt er gaman
En okkur langar líka til að vita hvernig hið
dimma öskur Bokka varð til, sem skýtur
mannfólkinu skelk í bringu í skóginum, og
hvernig Stefán Karl fer að því að ná út úr
sér slíku hljóði, sem sumir hafa efast um að
komi úr barka hans sjálfs.
„Það býr engin sérstök tækni að baki
hljóðinu, en til að fólk sé einhverju nær get
ég upplýst að það er gert á innsoginu. Það
þarf að vera frekar hátt til að drífa upp á
svalir og ég er ekki viss um að þetta fari vel
Ástin er Stefáni Karli Stefánssyni huglæg þessa dagana, þar sem hann leikur örlagavaldinn Bokka
í Draumi á Jónsmessunótt. mynd: teitur.
með röddina. Það er því eins gott að ég þarf undirstrikar óræðan persónuleika Bokka,
ekki að gera þetta oftar en þrisvar til fjórum sem leikarinn segir að sé kynlaus. „Hann
sinnum á kvöldi,“ segir Stefán Karl. hefur engar tilfinningar, hvorki til karla né
Ropið, eins og leikstjórinn kallar það, kvenna. Hann þekkir muninn á réttu og
röngu, en hann veit Iíka hvað honum finnst
gaman.“
Ómeðvitaður leikur
„Bokki kitlar hégómagimd paranna tveggja,
Hermíu og Lísanders, Helenu og Demetr-
íusar, og leikur sér að henni. Þetta er sama
hégómagirndin og er að drepa allt og alla.
Fólk slær hvort öðru gullhamra til að koma
vel út, en Bokki minnir okkur á að það er
einlægnin sem skiptir máli.
Sumir hafa tilhneigingu til að leika sér
með aðra, eins og Bokki gerir, þegar þeir eru
í óvissu og vita ekki hvað þeir vilja. Eg reik-
na með að það séu til mörg sambönd úti í
bæ þar sem fólk veit ekki alveg hvað það er
að gera eða hvað það á að gera. Það er ekki
öruggt um ást sína og fer ómeðvitað í leiki,
sem alltaf enda illa fyrr eða síðar.“
- Heldurðu að mannkynið hafi ekkert lært
ú þessu sviði, þráttfyrir alla þekkinguna sem
það hefur aflað sér á öðrum sviðum ígegnum
aldimar?
„Ljóðskáld, leikarar, myndlistarmenn og
sálfræðingar hafa reynt að skilgreina ást-
ina, en hvað er hún? Kannski við ættum
að sleppa því að skilgreina hana of náið og
njóta þess að vera ástfangin án þess að
hugsa um eigin hégóma."
Aðrir skipta máli
- Er ástin það hesta sem komið hefur fyrír
þig?
„Já. Það besta sem komið hefur fyrir mig
er ást mín til konunnar minnar og ást henn-
ar til mín. Eg myndi fórna öllu fyrir hana,
jafnvel leiklistinni. Það er alveg á hreinu.
Því hvað er maður án þess? Ekki neitt.
Þetta er auðvitað eitthvað sem hver og
einn verður að finna hjá sjálfum sér. En ef
þú verður virkilega ástfanginn gerir þú allt
íyrir ástina, en býður ekki eftir því að ástin
geri allt fyrir þig.
Ég held að þetta sé eitthvað sem allir þrá,
en gleyma að rækta vegna þess hve upp-
teknir þeir eru af sjálfum sér. Þcir láta sér
nægja að gleypa við aliri þessari mötun sem
er í gangi og gleyma að hugsa.
En kannski þarf maður að reka sig á til
að átta sig á að það skiptir máli að hugsa
um aðra í kringum sig. Oðruvísi er maður
ekki heil manneskja. Og kannski velti ég
þessu meira fyrir mér en ella út frá
Drauminum, því hann fjallar um allskyns
flækjur og farsa, sem maður veit að enn
eru að gerast dags daglega úti í þjóðfélag-
inu.“
MEÓ.
REYKIAVIK-AKUREYRI-REYKIAVIK ...fljúgðufrekar
Atta sinnum
Bókaðuí síma 5703030 og 400 7000
•7J0kr . með flu^vallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is