Dagur - 10.05.2000, Qupperneq 20
20 - MIDVIKUDAGUR 10. MAÍ 2000
Xfc^HT'
VÍKUR BLAÐIÐ
FráOxfordtil
Norðurlands
Alexander Smárason, doktor í
kvensjúkdómum hóf störf á FSA
og Sjúkrahúsi Þingeyinga á
Húsavík í september á síðasta
ári og er í 25% starfi á Húsavík.
Alexander og kona hans Rósa
Kristjánsdóttir, sem er frá Húsa-
vfk, höfðu áður búið f Oxford í
10 ár ásamt börnum sínum. Þar
starfaði Alexander fyrst við rann-
sóknir á meðgöngueitrun sem
lauk með doktorsprófi, og árin
þar á eftir var hann í eiginlegu
sérnámi í kvensjúkdómum og
fæðingafræðum. Síðustu 2 árin
áður en hann flutti heim var
hann lektor við háskólann en í
því fólst að starfa sem læknir,
stunda rannsóknir og sinna
kennslu læknastúdenta í Ox-
ford. „Eg hafði mikla ánægju af
kennslunni og var með marga
skemmtilega nemendur, m.a.
einn stórmeistara í skák“, segir
Alexander.
Friðfinnur Hermannsson,
framkvæmdastjóri Heilsustofn-
unar Þingeyinga, segir að það
hafi verið grfðarlegur fengur fyr-
ir stofnunina að fá svo hæfan
sérfræðing til starfa. Enda hafi
þörfin greinilega verið brýn eins
og mikil eftirspurn og aðsókn
kvenna í Þingeyjarsýslum og af
Austurlandi í þessa þjónustu
sanni.
En hvað varð til þess að þau
hjónin snéru aftur heim í heið-
ardalinn á Islandi?
„Við vorum auðvitað búin að
festa rætur úti í Oxford og ég
var í góðri stöðu þar, þannig að
það var ekki starfið cða launin
sem réðu úrslitunr. Ætli það
hafi ekki verið Islendingurinn í
manni sem mestu réði um þetta.
Okkur Iangaði til að njóta aftur
alls þess sem við höfðum saknað
frá Islandi, landsins, fólksins og
að sjálfsögðu veiðiskaparins,
ekki má gleyma honum. Þá
hafði það auðvitað áhrif að elsti
sonur okkar fór heim ári á und-
an okkur til að stunda nám við
gamla menntaskólann okkar. Og
raunar viljum við gefa öllum
börnunum kost á því að kynnast
Islandi og íslenskri menningu.
Hvar svo sem þau kjósa að búa í
framtíðinni, þá er mikilvægt að
þau fái að kynnast upprunanum
og landinu sínu af eigin raun“.
Alexander segir að það séu
auðvitað mikil viðbrigði að koma
til starfa á litlum sjúkrahúsum
cftir að hafa t.d. starfað ytra á
sjúkrahúsi þar sem voru um
7000 fæðingar á ári. Samskiptin
við sjúklingana er líka með öðr-
um hætti. „Fólk er allsstaðar
jafn þakklátt, en erlendis þá sá
ég aldrei sjúldinga nema eftir til-
vísun frá heimilislækni, en hér
koma konur oftast milliliðalaust
til mín. Annar stór munur er að
í England þurftu konur ekki að
borga fýrir þjónustuna eins og
hér, mér leiðist að rukka fólk“.
Aðspurður um tækjakost í
heilsugæslunni á íslandi þá segir
Alexander hann yfirhöfuð mjög
góðan og í ágætu Iagi á Húsavík
eftir að stofnuninni var gefinn
legholsspegill í vetur. Auðvitað
má gera betur í þeim efnum
þannig að hægt sé að gera meira
heima í héraði. Hann segist hafa
mjög mikið að gera hér á staðn-
um og vera fullnýttur f þessu
hlutastarfi. „Ég gæti auðvitað af-
greitt fleiri með því að gefa hveij-
um einstaklingi styttri tíma, en ég
tel mig enn vera að gera rétt með
því að gefa öllum sem til mín
koma góðan tíma, jafnvel þó það
þýði að færri komist að“.
A aðalfundi Styrktarfélags
Sjúlerahúss Þingeyinga sem
haldinn verður í Miðhvammi
annaðkvöld, mun Alexander
flytja erindi. „Þar mun ég fyrst
og fremst ræða hvað ég hef verið
að starfa hér í vetur, hvaða þró-
un ég vil helst sjá í starfseminni
hér, kynna notkun tækjanna
sem keypt voru sérstaklega til
Sjúkrahússins eftir að ég kom
hingað, og ef tími vinnst til,
mun ég segja eitthvað frá því
hvað ég var að fást við í Oxford.“
JS
Fjölskyldu-
dagurá
þriðju hæö
Það var glatt á hjalla á fjöl-
skyldudeginum á 3. hæð
Sjúkrahúss Þingeyinga á Húsa-
vík s.I. sunnudag. A 3. hæð
dvelja margir af elstu íbúum
sýslunnar og þeir voru þarna
flestir mættir sem rólfærir voru
ásamt aðstandendum sínum
sem komnir voru í heimsókn af
þessu tilefni, sumir um langan
veg. Menn voru glaðir og
hressir og nutu samvistanna.
Borð svignuðu undan krásum
og menn sungu við raust og
nutu veitinga og skemmtiat-
riða. Sigurður Hallmarsson og
Ingimundur Jónsson voru
mættir með harmoniku og gítar
og spiluðu og sungu öll gömlu
góðu lögin og nutu aðstoðar
þeirra Halfiða Jósteinssonar og
Asgeirs Böðvarssonar við söng-
inn. Og viðstaddir tóku hraust-
Iega undir og söngurinn hljóm-
aði alla leið niður á 1. hæð.
Fjölskyldudagur sem þessi
hefur ekki verið haldinn á
Sjúkrahúsinu í nokkur ár en
stefnt er að því að gera þetta
að árvissum atburði.
JS
Þeir spiluóu og sungu fyrir gamla
fólkió og gesti, Hafliði, Ingimundur,
Sigurður og Ásgeir.
Kaupfélagið
ágötuuui!
Kaupfélag Þingeyinga á ekki
í mörg hús að venda þessa
dagana, enda er það langt
komið með að selja öll sín
hús. Frá stofnum KÞ hefur
það verið með lögheimili sitt
við Garðarsbrautina á Húsa-
vík, fyrst að Garðarsbraut 4 í
Söludeild KÞ en síðar að
Garðarsbraut 5 eftir að aðal-
verslunarhúsið var byggt þar
í kringum 1950. Þaðan
hrökklaðist svo KÞ þegar
Þorgeir og félagar keyptu
húsið fyrir nokkrum mánuð-
um, og flutti þá höfuðstöðv-
ar sínar aftur til upprunans
og skráði lögheimili sitt í
gömlu Söludeild.
Nú er búið að selja Sölu-
deild og gömlu kaupfélags-
húsin, þannig að KÞ er eig-
inlega á götunni þessa dag-
ana og ljóst að einhverjir
verða að skjóta skjólshúsi
yfir félagið. Og í ljósi þess
að KÞ hefur ávallt verið til
húsa við Garðarsbrautina,
finnst sumum eðlilegt að
það fái inni í gömlu húsi við
götuna, húsi sem byggt var
árið 1907 og státar enn af
opnum náðarfaðmi, sem sé
Húsavíkurkirkju.
TheABBAShow
Eins og fram kemur á öðr-
um stað í blaðinu hefur sýn-
ing leikdeildar Eflingar í
Reykjadal á Síldin kemur og
síldin fer slegið f gegn og
hlotið mikla aðsókn. Eitt af
burðarhlutverkum í verkinu
er í höndum frú Aðalbjargar
Pálsdóttur sem fer þarna á
eftirminnilegum kostum.
Aðalbjörg er dags daglega
kölluð Abba eins og kunnug-
um mun kunnugt.
Því er það ekkert undar-
legt að afkomdur Öbbu tala
ekki um að fara á Síldina,
þegar þau eru á Ieið í leik-
húsið. Nei, þau eru öll að
fara á „The ABBA Show“.
Öfgar iiui konur
Margt misjafnt og mismerki-
legt hefur verið sagt um
konur. Meðal annars eftir-
farandi:
„Það er ekki rétt að konur
geri kröfur úr hófi fram.
Konan er hæstánægð með
Ii'tið, ef það er einmitt það
sem hún vill fá - að öðrum
kosti er henni ekkert nóg“.
(ók. hö0«
„Ef þú villt komast að því
hvaða galla stúlka hefur
skaltu hrósa henni við vin-
konur hennar".
(Benjamin Franklin).
„Þessi kona gekk ekki út í
öfgar, hún á heima í þeim“.
(Quentin Crisp)