Dagur - 27.05.2000, Page 9
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000- 25
^LÍrJLi 1 LAjJDJjJU
J
Ein frægasta bygging Mario Botta
er bústaður í Cadenazzo í Sviss.
Erskine í hópinn, en þetta er í
fyrsta skipti sem efnt er til
samkeppni fyrir sýning-
una. „Mér fannst þa''
viðeigandi því Island e
Iítið land og það va
áhugi fyrir því hji
Arkitektafélagi ís
lands,“ segir Kirster
ánægð með niðurstöð-
una. „Ég hef einnig
boðið ungum dönsk-
um arkitekti, Karina
Tengberg, sem full-
trúa kynslóðar fram-
tíðarinnar á sýning-
una á Kjarvalsstöð-
um.
Kirsten stefnir á að
næsti áfangastaður
Garðhúsabæjarins
verði Bandaríkin, en
hún er einnig með
aðra farandsýningu í
gangi á verkum Frank
O. Gehry sem upp-
haflega var sett upp í
Louisiana safninu í
Danmörku. Þá er
Kirsten Kiser ritstjóri
vefsíðunnar
www.arcspace.com þai
sem hægt er að finm
allt um byggingarlis
samtímans, auk heit
ustu arkitektafréttanna,
líka frá fslandi. — MEÓ
Alvaro Siza teiknaði Serralaves nUtimatismsa,,,,.
í Porto sem opnaði fyrir ári siöan.
Sjú einnig „Garðhús
íslenskra harna' ímið-
opnu.
vetrardögum,11 segir Hjördís.
„Síðan er hægt að fara upp
stiga, sem liggur utan um arin-
inn, upp á aðra hæð, þar sem
líka eru sæti. Úr þeim má
horfa upp í himinninn á stjörn-
ur, norðurljós eða miðnætur-
sólina, í gegnum kúpt glerþak.11
„Efri hæðin er til að nota þegar
veðrið er fallegt," áréttar Dennis.
„Garðhúsið á að endurspegla
andstæðumar í okkur. Við erum
inni í okkur í myrkrinu og kuld-
anum á vetuma, en gægjumst út
úr skelinni á vorin." í stuttu máli
endursjieglar húsið hugmyndir
okkar íslendinga um notalegheit.
Flytur út
„Þetta er ekki beinlínis hús
sem þú myndir byggja við hlið-
ina á karöflugarðinum þínum,
heldur er það meira hugsað
sem athvarf frá amstri dags-
ins,“ segir Hjördís. „Hér áður
fyrr var garðhúsið ástæða til að
komast út úr borginni, þó fólk
hafi líklega fengið skikann að
hluta til vegna kreppunnar.
Hann var því líka hvatning til
fólks um að bjarga sér.“
„Garðhúsið okkar hefur verið
byggt í fullri stærð fyrir sýning-
una á Kjarvalsstöðum, en verð-
ur sett upp eins og það sé enn í
byggingu," segir Dennis.
„Þannig sést hvernig það er
gert. Þegar sýningunni lýkur
verður það sent út til Dan-
merkur í garð f Vallensbæk,
utan við Kaupmannahöfn, og
sett þar upp með garðhúsum
hinna arkitektanna."
A sýningunni verður húsið
sjálft sett upp í miðrými Kjar-
valsstaða, en módelið af því og
öllum hinum húsunum ásamt
teikningum arkitektanna og
myndböndum frá Vallensbæk
og af ekta dönskum garðhúsa-
bæ verða í Vestursalnum.
- MEÓ
Markmiðið fráleitt að
„Ég lít svo á að með þvíað fræða aimenning og skólanemendur um þeirra nánasta umhverfí séum við að styrk/a byggðirnar.
Við skulum ekki gleyma því að skólar eru afar áhrifamiklir í allri mótun ungs fólks," segir Bragi Guðmundsson. mynd: sbs.
rækta heimóttir
Bókin Líf við Eyjafjörð
kemur út í haust.
Fjörðurinn fagri í
brennidepli og fræðsla
fyrir skólanema jafnt
sem almenning.
Grenndarkennslu ber
að auka, segir ritstjóri
bókarinnar.
Um þessar mundir er verið að
leggja lokahönd á gerð bókar-
innar Líf í Eyjafirði sem fjöl-
margir vísinda- og fræðimenn
skrifa undir ritstjórn Braga
Guðmundssonar, dósents við
kennaradeild Háskólans á Ak-
ureyri. í bókinni er fjallað um
líf í og við fjörðinn, það er frá
botni hans og upp á efstu
brúnir - svo sem um líf örvera,
sjávarvera, dýra, plantna og
fugla, en einnig um byggðir og
mannlíf, minjar og bækur.
„Bókin er fræðibók en hún á
einnig að vera aðgengileg öll-
um almenningi sem vill vita
meira um lífið við fjörðinn. Við
viljum ná til sem flestra með
þessu riti og vonumst til að það
komi að góðum notum í skóla-
starfi á öllum stigum. Ég hef
ævinlega talað fyrir því að þátt-
ur grenndarkennslu sé aukin
og menn hugi vandlega að því
hvaða viðfangsefni eru valin í
skólum landsins. Það er eðlileg
og sjálfsögð námsaðferð að
vinna út frá sínu nánasta um-
hverfi þegar það er hægt,“
sagði Bragi, þegar blaðamaður
Dags ræddi við hann um gerð
þessarar bókar.
Að efla siálfsvitund íbúa
tiltekins byggðarlags
Höfundar bókarinnar eru alls
22, hver sérfræðingur á sínu
sviði og allir búsettir á Norður-
landi. Fyrsta vinna við bókina
hófst fyrir um ári, en hug-
myndina segir Bragi vera mun
eldri: „Ég veit ekki til þess að
bók sambærileg þessari hafi
nokkru sinni verið gefin út
áður vegna þess að hún gengur
út frá hugmyndafræði og mikil-
vægi grenndarinnar. Hér reyn-
um við að skilgreina mikilvægi
þess að efla sjálfsvitund íbúa
tiltekins byggðarlags og styrkja
þá til búsetu með því að fjalla
nákvæmlega um umhverfi
þeirra og leggjum upp raun-
veruleg dæmi um hvernig hægt
er að vinna með það. Það hafa-
vissulega komið út allmargar
bækur sem fjalla jöfnum hönd-
um um náttúru og menningu,
landslag, sögu og sérkenni ein-
stakra svæða. Dæmi um slíkt
eru Ferðabók Eggerts og
Bjarna, margvísleg skrif Þor-
valdar Thoroddsens, Landið
þitt ísland og Arbækur Ferða-
félags fslands. Slíkar bækur
eru dýrmætar og þær standa
svo sannarlega í baksviði okkar
bókar.“
Um margt má fræðast með
því að skoða það sem nærri er,
segir Bragi og nefnir þar Akur-
eyri sem dæmi. Jarðfræðin
verður til dæmis, að hans sögn,
mörgum sem opin bók með því
að skoða hvalbökin; jökulsorfn-
ar klappir í Gerðahverfinu á
Brekkunni á Akureyri. „Götu-
nöfnin segja líka sína sögu um
þennan gróðursæla stað, nöfn
eins og Bjarkarstígur, Espi-
lundur og Birkilundur. Þórunn-
ar- og Helgamagrastræti eru
einnig til, nefnd eftir land-
námsmönnum Eyjafjarðar, og
svo framvegis. Þá er gönguferð
um Krossanesborgir hrein og
bein kennslustund í náttúru-
skoðun og í kafla sínum og
JónsMagnússonar um fuglalíf
leiðsegir Sverrir Thorstensen
lesendum um svæðið á einkar
skýran hátt. Sé hins vegar litið
í ljóð og sögur norðlenskra
skálda má um margt í mannlíf-
inu fræðast og þá er ég ekki
bara að tala um afrek norð-
lenskra þjóðskálda, heldur líka
og ekki síður það sem alþýðu-
skáldin sömdu og skrifuðu.
Nefni ég til dæmis Kristínu
Sigfúsdóttur frá Kálfagerði í
Eyjafirði sem sendi frá sér vin-
sæl leikrit án þess að hafa sjálf
í leikhús komið, sögur og ljóð.
Og svo skulum við ekki gleyma
handanheimunum og þeim
sögum og sögnum sem tengjast
þeim um allar trissur. Þar er
dýrmætur arfur sem ekki má
gleymast."
Skólar áhrifamiklir
í allri mótun
Bragi Guðmundsson segir frá-
leitt að ætla að bók af þessu
tagi ýti undir heimóttarleg
sjónarmið. A tímum hnattvæð-
ingar sé mikilvægara en nokkru
sinni fyrr að efla vitund fólks
fyrir sínu nánasta umhverfi.
Vinna með staðarmenningu sé
mikilvægt mótvægi og gefi fólki
dýrmæta fótfestu í að mörgu
leyti rótlausum heimi. „Mark-
miðið er fráleitt að rækta heim-
óttir. Ég lít miklu frekar svo á
að með því að fræða almenning
og skólanemendur um þeirra
nánasta umhverfi séum við að
styrkja byggðirnar. Við skulum
ekki gleyma því að skólar eru
afar áhrifamiklir í allri mótun
ungs fólks og sjálfsagt að við-
fangsefni þeirra taki meðal
annars mið af þjóðfélagsað-
stæðum hverju sinni, svo sem í
byggðamálum. Öllum skólum
ber að semja sér stefnuyfirlýs-
ingu með sérstakri skóla-
námskrá og mér finnst sjálfsagt
að þær séu annað og meira en
tilbrigði við þá aðalnámskrá
menntamálaráðuneytisins sem
í gildi er á hverjum tírna," segir
Bragi.
Kaflarnir í Lífi í Eyjafirði eru
fjórtán. í þeim fyrsta er ítarleg
umfjöllun um grenndarfræði
og umhverfismennt en í bókar-
lok eru lögð upp dæmi um
hvernig nýta megi umhverfi til
vettvangsferða með leikskóla-
og grunnskólabörn, framhalds-
skólanema og almenning. „I
þessari bók reyni ég að tengja
saman náttúru og menningu
þessa svæðis og ég trúi því að
blandan verði góð,“ segir Bragi
um bókina sem verður hátt á
fjórða hundrað blaðsíður og öll
prentuð í lit. Rannsóknarstofn-
un Háskólans á Akureyri gefur
hana út með góðum styrk sveit-
arfélaga við Eyjafjörð, fyrir-
tækja og nú síðast frá Menn-
ingarsjóði.
-SBS