Dagur - 27.05.2000, Page 14

Dagur - 27.05.2000, Page 14
LÍF OG HEILSA S fTÍIlT LAUGARDAGUR 27. MAI 2000 Nauðsynlegt er að beita líkamanum rétt við vorverkin í garðinum. Margur flaskar þó á því og fær illilega í bakið - eða lendir í öðrum vandræðum. „Við garðyrkjustörfin eigum við fyrst og fremst að hugsa um heilsu okkar sjálfra og huga svo að gróðrinum, þannig að við getum notið hans í ellinni," segir Heim- ir Björn Janusarson, for- maður Félags garðyrkju- manna. Margir hafa brennt sig illilega á því að beita líkamanum rangt eða illa við vorverkin í garðinum og á það jafnt við um garð- yrkjumenn og eins það fólk sem vinnur í eigin garði. En hvað ber helst að varast í þessu sambandi? Það ber margt að hafa i huga við garðyrkjustörfin. „Við umhirðu blómabeða ætti fólk líka að kappkosta að skríða á fjórum fótum við beðin, fremur en að vera álútt eða á hjánum. Þannig verður áreynslan á bakið minni, “ segir Heimir B. Janusarson, formaður Fétags garðyrkjumanna. mynd: e.ól. „Samkvæmt þeim tölum sem við höfum fengið þá voru 67% fé- lagsmanna okkar frá vegna bak- meiðsla í fyrra, einn dag eða fleiri. Við garð- yrkjumenn segj- um stundum í gamni að enginn sé orðinn full- vígður inn í stétt- ina fyrr en hann er búinn að fá illilega í bakið. Þó er þetta ekk- ert gamanmál, það veit ég sjálf- ur eftir að hafa fengið minn skammt. I fyrra lá ég til dæmis í rúminu í þrjár vikur eftir að hafa fengið slæmt þrusabit í bakið," segir Heimir, sem bætir því við að garðyrkjumönn- Líkamsbeiting er lykilatriði Á fjórum fótum við beðin „Við segjum stundum að meginmáli skipti að menn vinni með lærunum og höfðinu," segir Heimir. „Þar á ég við að menn hugsi svolítið um það sem þeir eru að gera og séu síðan beinir í baki við störf sín og forðist að reyna á það, en láti hins vegar þungann sitja í rass- og lær- vöðvum. Fólk ætti til dæmis aldrei, þeg- ar það mokar með skóflu í hjólbörur, að vinda uppá líkamann, eins og sumum hættir til að gera, heldur á fólk alltaf að geta horft á hlassið sem mokað er úr - og síðan á fólk að taka hliðarskref og hvolfa svo úr skóflunni í börurnar. Við umhirðu blómabeða ætti fólk líka að kappkosta að skríða á Ijórum fótum við beðin, fremur en að vera álútt eða á hnjánum. Þannig verður áreynslan á bakið minni.“ Um önnur ráð segir Heimir að mikil- vægt sé að góð verkfæri séu valin. Sköft- in nógu löng, hjólbörur þurfi að vera af réttri stærð miðað við þann sem þær keyrir og skóflur og kantskerar nógu beittir. Heimir ítrekar þó að það séu ekki verkfærin sem séu grundvallaratriði, heldur það að líkamanum sé rétt beitt. Þursabit í bakið Félag garðyrkjumanna hefur á undan- förnum árum staðið fyrir námskeiðum fyrir sína félagsmenn um rétta líkams- beitingu en á því hefur verið brýn þörf. um sé einnig ráðlagt að stunda einhverja Iíkamsrækt - enda skipti það miklu máli að vcra í góðu formi í þessu starfi þar sem mikið reynir á Iíkamann. Annað sem Heimir B. Janusarson legg- ur líka áherslu á er að fólk leiti til fag- manna með úðun eiturefna á trjáplönt- ur. „Þeir hafa bæði rétta búnaðinn og eru í þeim hlífðarfatnaði sem þarf. Við úðunina eru notuð hættuleg efni sem er ekki beint heppilegt að fari í mannslík- amann. Því er virkilegrar aðgátar þörf þegar þcssi eitraði kokteill er í annan stað,“ segir Heimir. -SBS. Heilsumolar Alfaalfa Auðug af vítamínum Hinn virti líffræðingur Frank Vouer hef- ur gefið alfaalfa viðurnefnið „græðarinn mikli“ en hann komst að því að hin grænu Iauf þessarar merkilegu belgjurtar innihalda átta ómissandi ensím. Einnig innihalda þau um 8000 ae. af A-vítamíni og 20.000 til 40.000 af K-vítamíni í hverjum 100 g. Alfaalfa er auk þess góð uppspretta B6 og E-vítamína og inniheld- ur nægilegt D-vítamín og fosfór til að tryggja vaxandi börnum sterk bein og tennur. Læknar hafa notað alfaalfa við meðferð magakvilla, uppþenslu, átumeina og lyst- arleysis af því það inniheldur U-vítamín sem einnig fyrirfinnst í hráu hvítkáli. Einnig er alfaalfa gott hægðalyf og nátt- úrulegt þvagræsilyf. Undraverðir eiginleikar hvítlauks Hvítlaukur inniheld- ur kalíum, fosfór, dágott magn af B- og C-vítamínum, auk kalsium og hvítu- efna. Hann virðist hafa undraverða eig- inleika. Við Vínarhá- skóla kom f ljós að hjá 40% sjúklinga hafði blóðþrýstingur Iækkað verulega eftir að þeir fengu hvít- lauk og hann hefur einnig reynst áhrifa- ríkur við að hreinsa umfram sykur úr blóði. Að auki er sagt að hann ráði bót á inflúensu, hálsbólgu og lungapípustíflun. Hvítlauk sem bætiefni er best að taka í perluformi. I þeim eru hinar mikilvægu hvítlauksolíur en þær valda ekki hinni frægu hvítlaukslykt þar eð þær leysast upp í meltingarveginum en ekki magan- um. Yucca góð við gigt Eyðimerkurplantan Yucca hefur verið notuð í aldaraðir af indíánum í Ameríku og Mexíkó við ýmsum kvillum. Læknar í Kaliforníu mæla sérstaklega með efni úr yuccaplöntunni við gigtarverkjum og maga- og þarmavandamálum. Meðal- skammtur er fjórar töflur á dag og þær ættu að fást í lyfja-og heilsubúðum. Heimild: Bætiefnabiblían Hvítlaukur er allra meina bót Það ber alltaf a goma Meira að segja skjaldbökur stunda kynlíf Mannskepnan hefur víst nokkr- ar grunnþarfir sem hún verður að sinna til að tóra. Þetta get- um við verið sammála um held ég. Þarfirn- ar tengjast t.d. áti og svefni og svo að sjálfsögðu kynlífi, en svo skemmtilega vill til að það er ein af mínum uppáhaldsþörfum. En kynþörfin sem býr.í okkur öllum á oft á tíðum undir högg að sækja °g er gjarnan uppspretta alls konar vitleysu og leiðinda. Við höfum öll gaman af kynlífi, þeir sem eru svo stálheppnir að hafa fengið fullnægingu vita að það er fátt sem jafnast á við slíka sælu- bylgju sem gagntekur líkama og sál en samt getum við ekki talað almennilega um þetta sammann- lega áhugamál okkar án þess að roðna, flissa eða hreinlega fá blygðunarkast og reiðast bölvuð- um perrunum sem voguðu sér að impra á slíkum ófögnuði. Stund- um gerist það þó að fólki tekst að spjalla um kynferöismál á frjáls- legum og til þess að gera hispurs- lausum nótum og þá er nú gam- an. Að mér vitandi er aðeins einn hópur tii á fslandi sem kemur reglulega saman til þess beinlínis að ræða um kynlíf sem sameigin- Iegt áhugamál. Þetta er BDSM félagið - félag þeirra sem hneigj- ast að bindi- og drottnunarleikj- um, sadó- og masókistaleikjum eða munalosta. Það má kannskisegja að þessi félagsskap- ur sé kynferðislegur jaðarhópur, rannsóknir segja okkur að sirka 15% þeirra sem eru kynferðislega virkir hafi einhvern tíma stundað einhvers konar kynlíf sem getur kallast BDSM kynlíf og 50% hafa einhverja hugaróra þar að lút- andi, en þessir umræðufundir eru sannarlega til fyrirmyndar. Konugaman Um daginn varð ég fyrir þeirri skemmtilegu reynslu að taka þátt í samkomu þar sem komnar voru saman tuttugu konur í þeim til- gangi að skoða og kaupa ýmis leikföng ætluð til auðgunar kyn- Iífs og holdsins nautna. A staðn- um voru sirka 50 mismunandi tegundir kynlífsleikfanga - titrar- ar af öllum stærðum og gerðum, limhringir, gervisköp, náttúru- lega lagaðir gúmmílimir, titrandi egg, sturtuleikföng, endaþarms- leikföng, hitagel, géblettstól, titr- arar með áfestibúnaði og svo ná- kvæm eftiriíking af göndli síð- ustu aldar sem var hluti af klám- myndaleikaranum heitna John Holmes. Sem við sátum þarna og skoðuðum tólin í andakt og dreyptum á suðrænum bleikum konukokkteilum, spunnust skemmtilegar umræður um kyn- Iíf, tæki og tól, nautnir, fantasíur og ég veit ekki hvað og hvað. Við vorum auðvitað allar mættar á svæðið með þeim formerkjum að skoða kynlífsleikföng og sú stað- reynd varð til þess að skapa af- slappað andrúmsloft gagnvart umræðuefninu forboðna. Flestar fóru svo heim med egg, hvorki spælt né soðið heldur titrandi á ógnarhraða. p.s. I dag sá ég skjaldbökur hafa kynferðismök í dýragarðin- um í Antwerpen. Ragnheiðnr Eiríksdóttir er hjúkrunarjræðingur kynlifspistill@hotmail.com

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.