Dagur - 02.08.2000, Page 1
Heimdellingar juku í gær á gremju
fjölmargra skjólstæðinga Geirs
Haarde fjármálaráðherra á Skatt-
stofu Reykjavíkur.
Óttast ekki-
Heinidall
„Já, við ætlum að sjálfsögðu að
birta okkar árlegu lista með tekj-
um fjölmargra Islendinga. Að-
gerðir Heimdellinga trufluðu
okkur ekki vitund,“ segir Jón
Hauksson, ritstjóri Frjálsrar
verslunar. Heimdellingar stilltu
sér upp í afgreiðslusölum skatt-
stjóra í gær til að koma í veg íyr-
ir að áhugasamur almenningur -
og fjölmiðlar - kæmust í álagn-
ingaskrár. Eitthvað misreiknuðu
hinir ungu sjálfstæðismenn sig,
því skrárnar voru opnar almenn-
ingi frá 31. júlí en ekki 1. ágúst
eins og þeir hugðu.
„Við lukum mestri af okkar
vinnu á mánudag. Við þurftum
að fara yfir nokkra einstaklinga
aftur um þrjú leytið í dag [þriðju-
dag] og þá voru engir Heimdell-
ingar á staðnum,“ segir Jón.
Örtröð óánægðra
skattgreiðenda
Jón segir að Frjáls verslun muni
óhikað vinna úr og birta upplýs-
ingar um tekjur einstaklinga nú
sem fyrr. „Formaður Heimdallar
fór víst af stað í vetur með boð-
skap um að kæra eða fara í mál
ef þetta yrði birt, en ég óttast
ekki málaferli af hálfu Heimdell-
inga. Það liggur fyrir og hefur
margreynt á það, að stjórnvöld
gera ráð fyrir því að álagninga-
skrár séu lagðar fram almenningi
til sýnis og ekkert ólöglegt við að
birta þessar upplýsingar á til-
greindu tfmabili," segir Jón.
Heimdellingar mættu á Skatt-
stofu Reykjavíkur uppúr klukkan
9 í gærmorgun til að flækjast fyr-
ir þeim sem ætluðu að skoða
álagningaskrárnar. Þeir hittu
hins vegar ekki fyrir forvitna
blaðamenn, heldur annars vegar
aragrúa óánægðra skjólstæðinga
Geirs Haarde Qármálaráðherra,
sem byrjuðu að streyma inn kl. 8
og sem sumir hverjir máttu bíða
á staðnum í nokkrar klukku-
stundir eftir viðtali við fulltrúa
skattstjóra. Helst að Heimdell-
ingar hafi aukið á gremju þeirra.
- FÞG
Vaxandi hættu-
merki um fátækt
Forseti íslands varar
við vaxandi hættu-
inerkjum um fátækt
og bjargarleysi meðal
aldraðra. Náttiíran er
fjöreggið sjálft. Sí-
felld leit að ímdan-
tekmngum og fráviks-
leiðum okkur sjálfum
til handa getur skaðað
orðstír þjóðarinnar.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, varaði í ávarpi sínu til
þjóðarinnar í gær við vaxandi
misskiptingu lífsins gæða í sam-
félaginu. „Afskiptaleysi um hag
þeirra sem minna mega sín má
hér aldrei ná yfirhönd. Því verð-
um við að huga vel að vaxandi
hættumerkjum um fátækt og
bjargarleysi, einkum hjá þeim
sem aldraðir eru.“
I ávarpinu, sem forsetinn flutti
eftir að hann tók við embætti
öðru sinni við hátíðlega athöfn í
Alþingishúsinu, var víða komið
inn á brýn málefni samtímans,
svo sem nátturuvernd, nýtingu
auðlindanna, starfsemi stjórn-
málaflokka og ástand mennta-
mála.
„Skólaárið er hér styttra, ár-
angur í alþjóðlegum samanburði
oft lakari og framlög til mennta
lægri en tíðkast með flestum
samstarfsþjóðum," sagði forset-
inn og spurði: „Hvernig getum
við þá með sanngirni vænst þess
að Island haldi áfram að skara
fram úr þegar árin líða á nýrri
öld?“
Hann sagði stjórnmálaflokk-
ana eiga í vaxandi mæli „erfitt
með að ná hjartslætti tímans og
takast á við þau nýju viðfangsefni
sem nú ber að höndum. Hin
skapandi umræða er óðum að
flytjast á annan völl og þingið
sjálft er ekki sama spegilmynd og
örlagavaldur og áður var.“
„Fjöreggið sjálft“
„Náttúra Islands er fjöreggið
sjálft, auðlegð okkar og heiman-
Ólafur Ragnar Grímsson var settur inn í embætti sem forseti íslands öðru sinni í Alþingishúsinu í gær. Hér sést
þegar hann kom út á svalir Alþingishússins og veifaði til mannfjöldans. mynd: e.ól
mundur," sagði forsetinn. Aðeins
væri hægt að varðveita fiskistofn,
lífríkið og umhverfið allt ef hver
og einn virðir annan. „Sífelld leit
að undantekningum og fráviks-
Ieiðum okkur sjálfum til handa
hlýtur einhvern tíma að taka
enda og getur fyrr en síðar skað-
að orðstír okkar."
Hann hvatti til þess „að ná
sáttum um nýtingu landgæð-
anna, skapa grið sem allir virða
um óbyggðir og afréttir, gera
þjóðarsátt sem varir um þá ásýnd
Islands sem við ætlum að varð-
veita.“ Virðingin fyrir náttúru
landsins hafi nú hlotið svipaðan
sess og órofa samhengi tungu og
menningar gerði á tímum sjálf-
stæðisbaráttunnar. „Við megum
hvorki láta glímuna um stundar-
hag né heldur þá misskiptingu
lífsins gæða sem nú birtist okkur
í vaxandi mæli kljúfa þjóðina
smátt og smátt í andstæðar
sveitir.“
Þá benti forsetinn á það í
ávarpi sínu að hann væri „engum
háður nema þjóðinni sem veitir
honum umboð sitt. Hans eru
ekki hagsmunir stjórnar eða
stjórnarandstöðu, flokka eða for-
ræðisafla. Forsetinn er aðeins
bundinn íslenskri þjóð.“
Sjá kafla úr ræðu forsetans og
frásögn af innsetningarathöfninni
á bls. 8-9 og viðbrögð við ræðunni
á bls. 6