Dagur - 02.08.2000, Blaðsíða 16

Dagur - 02.08.2000, Blaðsíða 16
16- MIDVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 .D^ht Áslaug Ármannsdóttir, Akureyri: Ætli ég fari ekki í Sjallann á Iaugardaginn og láti síðan ráðast hvað ég geri það sem eftir lifir helgi.“ Ellert Baldursson, Akureyri: „Mig langar til Eyja en þar sem þær eru svo langt í burtu verð ég bara hér heima í staðinn. Enda er það skásti kosturinn. Gústav Sigjónsson, Akureyri: „Mér er boðið í brúðkaup á Selfossi 12 ágúst og um helgina geri ég ráð fyrir að leggja af stað austur yfir. Ætli ég verði ekki á Húsavík eða Bakkafirði.“ Eygló Bergsdóttir, Akureyri: „Eg verð að vinna og svo er aldrei að vita nema ég fari eitthvað út á lífið. Þá fer ég þangað sem stuðið verður.“ Svava Vilhjálmsdóttir, Akureyri: „Ég hugsa að ég verði bara heima. Ég geri ráð fyrir að kíkja eitthvað í bæinn en mér lýst vel á það sem í boði er hér á Ákureyri. Aðalbjörg Þóra Þráinsdóttir, Akureyri: „Ég verð að vinna alla helgina. Ef ég verð í góðu skapi er aldrei að vita nema ég kíki eitthvað út á lífið. Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? ,/Etli ég verði ekki að vinna,“ sagði Bragi, en hann starfar á bensínstöð við Vest- urlandsveginn. Hann ætlar ekkert út á land að eltast við hátíða- höldin. Hildur Elín Ólafsdóttir „Ég ætla að fara til Vestmannaeyja. Ég hef farið þangað einu sinni og síðan þá kemur ekkert annað til greina." Hún fer þangað alltaf með vinum sfnum og segir stemninguna einstaka. Auður Sigurðardótt- ir: „Ég hugsa að ég verði heima hjá mér að pakka fyrir næstu helgi, en þá fer ég í ferðalag til Ítalíu.“ Hún segist vera orðin ábyrgur fjölskyldu- haldari, og því ekkert að pæla í útihátíðum. Sirrí og Ingveldur ætla bara að vera í bænum enda báðar með barn að hugsa um. „Við kíkjum samt kannski eitthvað út á Iífið hér í bænum,“ sögðu þær. Georg Kári Hilmarsson ætlar að vinna á Selfossi um helgina. „Ég er í tveimur vinnum," segir hann. „Ég ætla samt að kíkja til Vestmanna- eyja á laugardagskvöldið.11 Ragnheiður Bjarnadóttir er ákveðin í að fara vestur á Firði, þar sem Önundarfjörðurinn heillar. „Þar er gullin sandströnd sem er einstök á íslandi. Þar ætla ég að synda í sjónum.1 “Ég ætla norður,“ segir Rann- veig Guðmundsdóttir. „Byrja á Sauðárkróki og síðan til Akur- eyrar.“ Hún segir alltof dýrt á útihátíðarnar til þess að þær komi til greina. Einar Gunnlaugsson, Akureyri: „Ég verða að vinna alla helgina á skemmtistaðnum Venus. Ég á von á miklu Ijöri og held að það verði vitlaust að gera.“ Benedikt Bragason, Akureyri: „Ég verð heima fram á sun- nudag en þá held ég austur að Ljósavatni til að vígja eitt stykki kirkju. Það geri ég þó meira af skyldurækni en trúrækni." Marea Weekend ELX estiva Ótrúlega vel 4 ÆQ JC AAA — útbúinn á kr: I ll/JlVVv#" Fjórir loftpúóar Loftkœling me<3 hitaslýringu (AC Stillanlegur hitablástur afturi) Þrjú þriggja punkta belti í aftursœti Fimm hnakkapúðar Lúxuslnnrétting Samlitir stuðarar Samlitir speglar og hurðarhandföng Halogen linsuaðailjós Rafstýrðir og upphitaðir útispeglar Rafstýrðir bílbeltastrekkjarar Vökvastýri Fjarstýrðar samlœsingar Geislaspilari 4x40 wött Fjórir hátalarar Rafdrlfnar rúður að framan Snúningshraðamœlir Útihitamœlir 103 hestafla 1.6 lítra 16 ventla vél Tölvustýrð fjölinnsprautun ABS hemlalœsivörn EBD hemlajöfnunarbúnaður Hœðarstilling á ökumannssœti Rafstýrð mjóbaksstilling Armpúðl í aftursœti Vasi á miðjustokk Vasar aftan á framsœtisbökum Hœðarstilling á slýri Lesljós í aftursœti Litaðar rúður Þakbogar JK| Rœsivöm (lykli þriðja bremsuljósið Hiti, þurrka og rúðusprauta á afturrúðu 14" felgur Stillanleg hœð aðalljósa Tvískipt aftursœti Heilklœtt farangursrými Geymsluhólf í farangursrými Tvískiptur afturhleri Mottusett Galvanhúðaður 8 ára ábyrgð á gegnumtœringu Eyðsla skv. meginlandsstaðli 8,31/100 km 'öldur *M. 461-3000 Istraktor B I L A R 20

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.