Dagur - 02.08.2000, Blaðsíða 9
MIDVIKVDAGUR 2. ÁGÚST 2000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Speimandi Polar-Cup
Norðurlandamótið í
körfuknattleik, Polar-
Cup, hófst í gær í
íþróttahúsmu í
Keflavík.
Island sendir tvö lið til mótsins,
og gengur B-liðið undir nafninu
Elítuhópurinn. Islenska elítu-
landsliðið er skipað leikmönnum
fæddum 1979 til 1982. Þetta er
í fyrsta skiptið sem Island teflir
fram tveimur liðum í þetta mót
en til greina kom að bjóða lands-
liði Þjóðverja þáttöku. Frítt er
fyrir börn 15 ára og yngri. Róð-
urinn verður eflaust erfiður fyrir
bæði landslið, en á síðustu mót-
um hefur Island verið að berjast
á neðri enda mótsins. En það er
full ástæða til að hvetja fólk til
Keflavíkur þessa viku og sjá góð-
an körfubolta, um leið og það
hvetur landann til sigurs. I gær
fóru fram fjórir leikir. I fyrsta leik
mótsins í gærdag unnu Finnar
Dani 78-67, en í gærkvöld léku
Svíar við Island-B og Island við
Noreg.
Mótið heldur áfram á miðviku-
dag kl. 16.00 en þá leika:
Danmörk - Island-B
Finnland - Noregur
ísland - Svfþjóð
Fimmtudagur kl. 16.00
Danmörk - Noregur
Finnland - Svíþjóð
ísland - Ísland-B
Föstudagur kl. 16.00
Svíþjóð - Noregur
Finnland - Ísland-B
Island - Danmörk
Laugardagur kl. 12.00
Island-B - Noregur
Danmörk - Svfþjóð
Island - Finnland
Landsliðshópurinn á Norður-
landamótinu er valinn af Friðriki
Inga Rúnarssyni. Þeir eru Falur
Harðarson, Keflavík; Herbert
Arnarsson, Friðrik Stefánsson,
Lappeenrannan; Jón Arnar Ingv-
arsson, Haukum; Fannar Ólafs-
son; IUP; Birgir Örn Birgisson,
KFI; Baldur Ólafsson, Long Is-
land; Gunnar Einarsson, Kefla-
vík; Jón Arnór Stefánsson, KR;
Sævar Sigurmundsson, Ala-
bama; Logi Gunnarsson, Njarð-
vík og Jakob Sigurðsson, KR.
Elítu-hópinn valdi Sigurður
Ingimundarson. í honum eru
Sigurður Þorvaldsson, IR; Ólaf-
ur Sigurðsson, IR; Steinar Ara-
son, IR; Hreggviður Magnússon,
ÍR; Ólafur Ægisson, KR; Helgi
Magnússon, KR; Sigurður Ein-
arsson, Njarðvík; Magnús Þór
Gunnarsson, Keflavík; Jón N.
Hafsteinsson, Keflavík; Hlynur
Bæringsson, Skallagrími; Steinar
Kaldal, KR; Óðinn Asgeirsson,
Þór Ak.; Ingvar Guðjónsson,
Haukum; Magnús Helgason,
Þór Ak.; Einar Örn Aðalsteins-
son, Þór Ak.; Guðmundur Ás-
geirsson, Grindavík; Sigurjón
Lárusson, Stjörnunni og Guðjón
Lárusson, Stjörnunni. — GG
Magnús Helgason, Þór, í úrvalsdeildarleik á síðustu leiktíð. Magnús leikur
með Elítuliðinu á Polar-Cup. Þeirra bíður erfitt verkefni ef að líkum lætur.
Jákob Jóhann í 2.
sæti á EM imglinga
Jakob Jóhann Sveinsson synti
200 m bringusund á lokadegi
EM í sundi unglinga og varð
hann í 2. sæti á tímanum
2:18.63 sem er ekki nema 19
sekúndubrotum frá hans besta
tíma, 2:18.44. íris Edda Heimis-
dóttir synti 100 m bringusund og
varð í 7. sæti á tímanum 1:13.48
sem er ekki nema 6 sekúndu-
brotum frá hennar besta tíma,
1:13.42.
Hjörtur Már komst í undanúr-
slit í 50 m flugsundi og synti á
tímanum 26.43 og varð í 16.
sæti af 39 keppendum. íris Edda
Heimisdóttir og Jakob Jóhann
Sveinsson eru nú eftir þctta mót
að hefja æfingar fyrir Ólympíu-
leikana í Sydney sem hefjast 15.
september nk. þar sem þau
keppa ásamt 7 öðrum íslenskum
sundmönnum. — GG
Jakob Jóhann Sveinsson.
„Ællum að vinna ÍBV“
Eftir sigur Þórs/KA í Landssíma-
deild kvenna var mikill hugur í
stelpunum. Lára Eymundsdóttir,
fyrirliði, sagði að þær væru
ákveðnar í því að klára dæmið og
halda sér í úrvalsdeildinni. „Við
eigum möguleika á því að vinna
IA, við vorum óheppnar um dag-
inn og vinnum þær þegar þær
koma norður. Það er heldur ekki
útilokað að vinna IBV hér
heima, það er allt hægt. En eigi
ég að vera raunsæ þá eru hverf-
andi líkur á því að við komust
upp úr næst neðsta sætinu, og
þá Iendum við í umspili um laust
sæti í úrvalsdeild. Mér finnst Iík-
legast að við mætum Grindavík,
liðinu sem féll í fyrra. Við eigum
að vera í þessari deild, og ætlum
alls ekki niður í haust.“
Næsti leikur er gegn KR í
Frostaskjólinu 11. ágúst og svo
gegn Vestmannaeyingum 26.
ágúst á Þórsvellinum. — GG
Sigur gegn Noregi en tap gegn Dönum
Lanaslið íslands skipað Ieikmönnum U21 Kvenna lék gegn landsliði
Noregs á Opna Norðurlandamótinu á sunnudag og sigraði 2-1. Áður
hafði lsland tapað fyrir Þýskalandi 3-1. Mótið fer fram í Bamberg í
Þýskalandi. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Islandi, Noregur jafnaði en
Rakel Ögmundsdóttir tryggði íslenska liðinu sigur. Rakel skoraði
bæði mörk Islands í gær og jafnfVamt sitt þriðja mark í mótinu, en
hún skoraði markið gegn Þýskalandi. Leikið var í gær gegn Dan-
mörku og fór sá leikur 3-1 fyrir Dani. Mark Islands skoraði Rakel
Logadóttir.
A morgun er leikið um sæti í mótinu en þá leikur Island um 5. sæt-
ið við Svía. Flestir leikmenn koma frá Breiðabliki en einnig frá
Stjörnunni, Vestmannaeyjum, KR og Val. Landsliðsþjálfari er Jör-
undur Aki Sveinsson. Leyfilegt er að nota tvo eldri leikmenn og það
eru Margrét R. Ólafsdóttir, Breiðabliki sem er fyrirliði, og Rakel Ög-
mundsdóttir, Breiðabliki. — GG
Jón Amar hætti í 2.
sæti eftir 7 greinar
Jón Arnar Magnússon varð að hætta
eftir 7 greinar í tugþrautakeppninni í
Talence í Frakkalandi. Jón Arnar varð
að hætta eftir 7. greinina, kringlukast,
vegna tognunar í stórtá, en hann var þá
í 2. sæti keppninnar með 6.152 stig, 82
stigum á eftir heimsmeistararanum
Dvorak. Jón Arnar hafði forystu eftir
fyrri daginn með 4474 stig.
Nool hefði þurft að vera rúmum fjór-
um sekúndum fljótari en Dvorak í síð-
ustu keppnisgreininni, 1.500 metra
hlaupi, til að vinna. Hann var um tveim
metrum á undan Dvorak lengst af, tók á sprett þegar um 300 metr-
ar voru eftir ( mark, en tókst ekki að halda hraðanum til enda, og þeir
komu nánast samsíða í mark. Attila Zsivoczky varð þriðji í tugþraut-
arkeppninni með 8.293 stig, Roman Sebrle frá Tékklandi hlaut
8.228 stig, fimmti varð Frakkinn Lauren Hernu með 8.178 stig og
sjötti Iandi hans Lionel Marceny. — GG
Marel til Stahæk
Marel Jóhann Baldvinsson, leikmaður úrvalsdeildarliðs Breiðabliks,
hefur skrifað undir samning við norska úrvalsdeildarliðið Stabæk,
sem er í 7. sæti norsku deildarinnar. Stabæk greiðir Breiðabliki um
23 milljónir íslenskra króna fyrir Marel. I samningum er einnig gert
ráð fyrir allt að 13 milljón króna greiðslu, standist Marel þær vænt-
ingar sem til hans eru gerðar. I samningnum er einnig kveðið á um
samstarf félaganna, s.s. menntun þjálfara, leikmannaskipti, stjórnun
o.fl. Samningur Marels er til 4 ára, og var leikur Breiðabliks gegn
Leiftri sfðasti leikur Marels með félaginu. Marel skoraði tvö mörk í
5-0 sigri Breiðabliks. Marel hefur leikið með öllum flokkum Breiða-
bliks. — GG
Jón Arnar Magnússon.