Dagur - 19.12.2000, Page 19

Dagur - 19.12.2000, Page 19
KLáfferjan stóla- lvfta á vetuma? Aukiim skiliiiugur hjá forráðamöimiun Akureyrarbæjar að sögn Sveins í Kálfs- skinni. Enn stendur þó á fjármagni en nýj ar hugmyndir gefa góð fyrirheit. Nátt- úruvemdarráð vill umhverfismat. Hlutvcrk fyrirhugaðrar kláfferju í Hlíðarfjalli gæti orðið tvíþætt þannig að hægt sé að reka mannvirkið á ársgrundvelli. I skoðun er hvort skynsamlegt sé að taka kláfana úr yfir vetrartím- ann og setja stóla á vírinn. Skíðafólk gæti því nýtt sér tog- brautina yfir vetrartímann og af- kastagetan aukist með því veru- lega. Sveinn Jónsson í Kálfsskinni, sem öðrum fremur hefur unnið hörðum höndum að því að hrin- da kláfferjuhugmyndinni í fram- kvæmd, segir að enn vanti þó nokkuð á að dæmið sé í höfn. Þannig vanti enn fjármagn en þorra pappírsvinnunnar sé von- andi lokið. „Mig óraði ekki fyrir því að jafnmargir og raun ber vitni þyrftu að skipta sér af því þótt við séum að spá í að bæta við einni lyftu í fjallið. Þannig er hara þetta blessaða kerfi,“ segir Sveinn. Sáu við vitlausa karlinuin Hann segir að bæjaryfirvöld á Akureyri hafi tekið mjög vel við sér hvað varðar vinnu við deiliskipulag og því sé lokið. Hins vegar hafi hann á sínum tíma nánast fengið loforð frá umhverfisnefnd um að ekki þyrfti mat á umhverfísáhrifum fyrir framkvæmdinni en svo hafi ný reglugerð litið dagsins ljós. „Þar var ákvæðum um kláfferju bætt inn í. Einhverjir hafa séð að einhver vitlaus karl hygðist bygg- ja svona mannvirki á íslandi og þá var náttúrulega við því brugð- ist.“ Sveinn á von á svari innan skamms hvort þörf verður talin á matinu. Engir hafa sett fram slíkar kröfur nema Náttúru- verndarráð að hans sögn. Fjárfestar hafa sett spurn- ingarmerki við arðsemi kláfferj- unnar en ávinningur fram- kvæmdarinnar gæti aulvist veru- lega ef stólalyftuhugmyndin verður að veruleika. Á fimmta hundað milljóna kostar að koma ferjunni upp og síðan er ætlunin að byggja veitingahús á toppnum auk annarra framkvæmda. Sveinn lýsir sérstakri ánægju með viðhorf nýs forstöðumanns í Hlíðarfjalli og segir hann já- kvæðan fyrir því að ferjan nýtist skíðafólki á veturna. Fyrstu hug- myndir gengu út á að ferjan yrði aðeins notuð á sumrin, ekki síst til að þjóna útsýnislöngun ferða- Ianga. Aiikna samviiiiiu Aætlað er að það muni kosta um 1.500 krónur að fara með kláf- ferjunni að sumarlagi en á vet- urna yrði ekki sérstaklega rukkað í hana sem stólalyftu. Sveinn segir mikilvægt að Eyfirðingar taki höndum saman við að gera þetta svæði eftirsóttara. Hann telur rétt að eitt skíðakort gildi fyrir helstu skíðasvæði Norður- Iands. „Við getum byggt kláfferjuna upp á einu ári en auðvitað hefur veðráttan áhrif á uppsetninguna. Við misstum af eindæma sumri, það var eitt það besta sem kom- ið hefur og mannvirkjagerðin á toppnum hlýtur að þurfa að bíða þangað til búið er að koma kláf- ferjunni upp. Það er því erfitt að segja hvenær þetta gæti orðið að veruleika," segir Sveinn, spurður um tímasetningar. — BÞ Matarpakkar í Glerár- kirkju Árleg jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar hófst 3. desember sl. Fjárframlög munu verða nýtt til hjálpar Islcndingum og til þró- unar- og neyðaraðstoðar víða um heim. Innanlands er veitt aðstoð í formi matarpakka og hafa miirg fyrirtæki á Akureyri lagt starfinu lið. Prestar á Akur- eyri og nágrenni ganga frá um- sóknum en matarpakkarnir verða afhentir í Glerárkirkju dagana 19. til 22. desemher. Á Þorláksmessu og aðfanga- dag verður hægt að koma með söfnunarbáuka í safnaðarheim- ilin á Olafsfirði, Dalvík ogAkur- cyri en þar verða einnig seld friðarljós. Hjálparstarf kirkjunn- ar er hluti af alþjóðlegu néti kirkjulcgra hjálparstofnanna sem tryggir að söfnunarfé nýtist vel. Helstu verkefnin eru auk aðstoðar við íslendinga, m.a. vatnsverkefni í Mósamhique og hjálp við dalíta, hina stéttlausu á lndlandi, alnæmisvarnir og hjú- skaparráðgjöf. — gg Fundiim! T|r • fMLv: * -títt —yjjg ’kM Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri brá á leik meö stjórnendum Jóiabæjarins um helgina og fór í felu- búning og blandaöi sér í mannhafið. Verðlaunum var heitið fyrir að finna Kristján og það var Eva 10 ára sem fann hann og fékk hún góðan jólapakka að launum. Hér má sjá þau Kristján Þór, Evu og „bæjarstjóra Jólabæjarins". - mynd: g. bender Akureyringar losna ekki við Omnyu næstu vikur. Ekki boðin upp í hráð Rússneski rvökláfurinn Omnya verður enn um hríð á Akureyri þrátt fyrir að Akurcyrarhöfn hafi farið fram á uppboð á skipinu við fyrstu hentugleika. Hörður Blön- dal hafnarstjóri skoraöi á sýslu- mann í Dcgi fyrir skemmstu að „bretta upp ermarnar" og bjóða skipið upp, en slíkt ferli er tíma- frekt og þarf margs að gæta að sögn sýslumanns. Uppboðið mun að líkindum dragast fram í febrú- ar og þá fýrst kemur í ljós hvort hægt verður að draga skipið burt þar sem örlög þess munu væntan- lega verða brotajárn. Björn Jósef Arnviðarson, sýslu- maður á Akureyri, segir að staðið hafi á gögnum frá uppboðsbeið- anda um eignarheimildir og hafi það seinkað málsafgreiðslu. Hins vegar sé búið að senda auglýsingu í Lögbirtingarblaðið eins og lög geri ráð fyrir en ýmislegt sé sér- stætt hvað varði þetta mál. Til að mynda sé skráning í Rússlandi um margt ófullkomnari en hér á landi og margs þurfi að gæta. „Þetta mál hefur verið í eðlilegum far- vegi,“ segir Björn. Flókið mál Embættið þarf að hafa upplýsing- ar um álögur á eigninni en að sögn sýslumanns er óljóst hvort yfirhöfuð einhverjar þinglýsingar séu til í Rússlandi um málið. „Lögmaður hafnarinnar er að afla gagna um málið en þetta er flókið og viðamildð ferli," segir Björn Jósef. „Þetta er í fyrsta skipti sem skip frá þessu svæði verður boðið upp hérna cn ég skil vel að höfnin vilji drífa þetta áfram. Kannski hafa þeir reiknað með að gjörningurinn væri einfaldari en raunin er?" — Bl> Jón Hjaltason útgefandi og Krist- inn G. Jónsson. - mynd: brink Búkollusýning Þessa dagana stendur yfir á Kaffi - Tröð í verslun Pennans - Bókvals á Akureyri sýningin Ævintýri og list- arv'erk. Þar sýnir Kristinn G. Jó- hannsson listmálari á Akureyri mvndir sem hann hefur málað og hirtast í nýrri útgáfu af hinu gam- alkunna ævintýri um Búkollu sem Bókaútgáfan Hólar á Akureyri gef- ur út. „Búkolla er mörghundruð ára gömul saga sem flestir kunna. Það er því erfítt að myndskreyta hana hana, því flestir eiga ein- hverjar mvndir úr sögunni í huga sér," sagði Kristinn þegar hann og Jón Hjaltason forleggjari hjá Hól- um kynntu bókina fyrir blaða- mönnum í sl. viku. - SBS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.