Dagur - 19.12.2000, Síða 24
Bændur nota áburð frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi
Kaupir fjölkorna áburð til helminga við einkorna
Sigurgeir Pálsson á Sigtúnum hefur tryggt sér
áburð á góðu verði frá Áburðarverksmiðjunni
„þegar örla fer á grænum gróðri og vora tekur eru oft þungatakmarkanir á vegum.
Þá er það mikill skaði að geta ekki nálgast áburðinn. Það er því gott að fá hann snemma
heim. Væntanlega verður það á næstu vikum en venjulega ber maður á fyrripartinn
í maí. Árið sem er að líða hefur verið gott hvað varðar veðurfar en maður getur ekki
treyst á það. Með góðum áburði get ég hins vegar verið viss um góða uppskeru," segir
Sigurgeir Pálsson, bóndi á Sigtúnum í austanverðri Eyjafjarðarsveit.
Sigurgeir, sem er 44 ára gamall, hefur stundað búskap
í tvo áratugi. Búið rekur hann með konu sinni, Jórunni
Agnarsdóttur. Þau eru með vel á fjórða tug kúa en í
mjólk hafa þau framleiðslurétt upp á 175 þúsund lítra.
Þá stunda þau umtalsverða nautakjötsframleiðslu.
Hagstætt verð
Sigurgeir hefur þegar gengið frá áburðarkaupum við
Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi. Hann gerir ráð fyrir
að þurfa allt að 40 tonn af áburði til að bera á tún sín
sem eru alls um 75 hektarar. Sigurgeir ætlar að kaupa
nýja fjölkorna áburðinn til helminga á móts við ein-
korna áburð enda sé hann verulega ódýrari.
„það eru blikur á lofti og áburðarverð gæti hækkað
á næstu mánuðum. Því er alla vega spáð varðandi
innfluttan áburð. Með því að kaupa áburð frá
Áburðarverksmiðjunni núna er ég að tryggja mér
áburð á góðu verði."
„Áburðurinn er hreinn og vistvænn og hefur verið
þróaður að íslenskum aðstæðum en sumpart vitum
við ekki hvað við erum að kaupa þegar um erlendan
áburð er að ræða."
Eykur gæði afurðanna
„Bændur ættu að vera sér meðvitaðir um að ef þeir
kaupa ekki áburð frá Áburðarverksmiðjunni þá eru
þeir í raun að grafa undan sinni eigin framleiðslu. Ef
bændum finnst í lagi að kaupa innfluttan áburð þá
vænti ég þess að neytendur muni í auknum mæli kalla
á innflutning á landbúnaðarvörum. Bændur verja
markaðinn best með því að kaupa sjálfir innlendan
áburð."
Eins og aðrir bændur í nútímabúskap lætur Sigurgeir
efnagreina heyið hjá sér árlega með tilliti til næringar-
og steinefnainnihalds. Þá leitar hann reglulega til
ráðunauta varðandi áburðarnotkun.
„Allflestir bændur hér í Eyjafirðinum nota áburðinn
frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi enda hefur hann
reynst vel. Rétt notkun kemur fram í afurðunum og
þá er ég ekki einungis að tala um mjólkurmagnið
heldur líka gæðin, til dæmis hvað varðar efnainnihald
mjólkurinnar," segir Sigurgeir.
Mém 2% munHmkkun á mr&nkrá kmr&MmrkmityumM tíí áraméta
Áburðartegund Tonnaverð í 600 kg sekk án vsk.
Einkorna áburður McO 3% geymsluafsl. Meö 5% verksmiöjuafsl. Með geymslu- og verksmiðjuafsl.
Áburðarkalk 30% Ca 14.496 14.061 13.771 13.358
Kjarni 33%N 20.782 20.159 19.743 19.151
Magni 1 26%N 19.767 19.174 18.779 18.215
Magni 2 20% N 17.836 17.301 16.944 16.436
Móði 1 26-14 23.334 22.634 22.167 21.502
Móði 3 26-7 22.101 21.438 20.996 20.366
Græðir 1b 12-14,6-17 26.139 25.355 24.832 24.087
Græðir 1a 12-19-19 26.788 25.984 25.449 24.685
Græðir3 20-14-14 23.782 23.069 22.593 21.915
Græðir 4 23-6-6 21.409 20.767 20.339 19.728
Græðir 5 15-15-15 23.963 23.244 22.765 22.082
Græðir 6 20-10-10 22.363 21.692 21.245 20.608
Græðir 7 20-12-8 22.688 22.007 21.554 20.907
Græðir 8 18-9-14 22.191 21.525 21.081 20.449
Græðir 9 24-9-8 22.518 21.842 21.392 20.750
Græðir 7a 20-10-8 22.809 22.125 21.669 21.018
Monoammoníumfosfat 11-52 26.860 26.054 25.517 24.751
Fjölkorna áburður
Fjöimóði 1 26-14 18.667 18.107 17.734 17.202
Fjölgræðir 6 20-10-10 17.890 17.354 16.996 16.486
Fjölgræðir 7 20-12-8 18.150 17.606 17.243 16.726
Fjölgræðir 9 24-9-8 18.014 17.474 17.114 16.600
Hagstætt verö til áramóta!
Vegna hækkunar á erlendu hráefni mun
Áburðarverksmiðjan einungis gefa út verð til
skamms tlma í senn í stað einnar verðskrár með
staðfestingarafslætti eins og í fyrra. i fyrstu verðskrá,
sem gildir meðan fyrirliggjandi hráefnisbirgðir
endast, er verðhækkunin um 7% sem aðallega
stafar af hækkunum innanlands. Að teknu tilliti til
5% verðbólgu er raunhækkun aðeins um 2%. Frá
þessari verðskrá er svo hægt að fá 3% geymslu-
afslátt og 5% verksmiðjuafslátt eins og i fyrra. í
janúar verður birt ný verðskrá. Þá má búast við
töluverðri hækkun vegna aukins hráefniskostnaðar
og raunar eru horfur á að verðskrá fari hækkandi
af þessum sökum fram á vor. Það eru þvt hyggindi
sem i hag koma að panta áburð sem fyrst.
Verð á innflutt-
um áburði
hækkar um 20%
>1
I
SÆ5v'ííti
20-40 n a
fv1 Í,aníl mifca hmkktsr,
4 ttor*
I frétt Morgunblaðsins 29. október síöastliöinn segir að allar llkur
séu á að innfluttur áburður hækki um a.m.k. 20% á næsta ári.
J^ff*!** tiíirgtíu ta j
““ kmklTOir trkmHt lóMu oj
Kynningarverö á
nýrri framleiðslu
Fjölkorno óburöur
Áburðarverksmiðjan kynnir að þessu sinni nýja
framleiðsluvöru til viðbótar við hefðbundnar einkorna
áburðartegundir eins og Græði og Móöa. Um eins árs
skeið hefur verið unnið að þróun fjölkorna áburðar sem
verður seldur undir vöruheitunum Fjölgræðir og Fjölmóði.
Fjölgræöir er með sambærilegu efnainnihaldi, uppleysanleika
og kornastærö og Græðir. Fjölmóði er sambærilegur við
Móða í efnaeiginleikum. Með nýju framleiðslunni býður
Áburðarverksmiöjan bændum fleiri valkosti. Nýju
áburðartegundimar eru boðnar i takmörkuðu magni og til
að byrja með aðeins í fjórum tegundum. Kynningarverð er
20°/o lægra en verð á einkorna áburði verksmiðjunnar.
Hreinn og vistvænn áburður
fyrir íslenskan landbúnaö
Áburöarverksmiðjan hf.
Gufunesi -128 Reykjavík - www.ahurdur.is
Sími 580 3232 - Fax 580 3209
- Farsœl þjónusta við bœndur í 45 ór.