Dagur - 16.03.2001, Síða 5
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 - S
FRÉTTIR
Ekki alvöruhj óna-
band í Grmdavík
Stormasamt er i bæjarmálum í Grindavik.
MeiriMutasamstarf í
Grindavík springur í
annað sinn á kjör-
tímabilinu.
Meirihluti bæjarstjómar Grinda-
víkur, semj-listi Bæjarmálafélags
jafnaðar og félagshyggju og
Framsóknarflokkur mynduðu í
febrúarmánuði 1999, brast á
meirihlutafundi sl. miðvikudag,
sem var undanfari bæjarstjórnar-
fundar. Akvörðunin um meira-
hlutaslit var svo tilkynnt í upphafi
bæjarstjórnarfundarins, en hann
gekk síðan eðlilega fyrir sig.
Hörður Guðbrandsson, J-lista og
forseti bæjarstjórnar Grindavíkur,
segir ástæðuna trúnaðarbrest og
að bæjarfulltrúar J-lista hafi
ákveðið að slíta samstarfinu. J-
listi á 3 bæjarfulltrúa en B-listi 2,
en í minnihluta er D-listi með 2
bæjarfulltrúa.
B og D-listar mjmduðu meiri-
hluta eftir kosningarnar 1998, en
sá meirihluti féll einnig vegna
mannaráðninga. Þáverandi for-
maður Sjálfstæðisfélags Grinda-
víkur vildi fá embætti forstöðu-
manns áhaldahúss Grindavíkur-
bæjar, sem ekki var laust, og því
hefði þurft að segja upp þáver-
andi forstöðilmanni. Það vildu
framsóknarmenn ekki fallast á.
Þá hafði meirihlutasamstarf þess-
ara flokka staðið óslitið í 17 ár.
Væntanlega með Sjálfstæðis-
flokki
Hallgrímur Bogason, oddviti B-
lista og fráfarandi varaforseti
bæjarstjórnar, segir að væntan-
lega fari Framsóknarfiokkur og
Sjálfstæðisflokkur að ræða saman
um myndun meirihluta, en það
sé ekki komið á koppinn. Astæð-
una fyrir klofningnum nú segir
Hallgrímur vera þá að til hafi
staðið að kjósa til stjórnarsetu í
Hitaveitu Suðurnesja, í fyrsta
sinn, en fyrir Alþingi liggur tillaga
um stofnun hlutafélags um Hita-
veitu Suðurnesja.
„Oltkur þótti hag Grindavíkur
betur borgið þannig, en að þar
sæti oddviti Samfylkingarinnar á
staðnum, Hörður Guðbrandsson
sem er forseti bæjarstjórnar, en
þar hefur setið fyrir okkur Ómar
Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokks, sem hefur verið stjórnar-
forntaður Hitaveitunnar. Það er
kannski ekki óeðlilegt að J-listinn
sækist eftir þessu embætti því í
stjórn Hitaveitunnar er töluverð
pólitík, og svo er Hafnarfjörður
að bætast í hópinn. Þetta meiri-
hlutasamstarf listanna hefur alla
tíð verið stirt, ekkert alvöruhjóna-
band. J-listamenn hafa lengi ver-
ið í minnihluta og ætluðu að
bvlta miklu á skömmum tíma og
væntingar þeirra miklar," segir
Hallgrímur Bogason.
Ómar Jónsson var kjörinn í
stjórn Hitaveitu Suðurnesja á
bæjarstjórnarfundinum. Næsti
bæjarstjórnarfundur er um miðj-
an aprílmánuð.
Trúnaðarbrestur fyrir ári
Hörður Guðbrandsson, J-lista,
segir að fyrir ári síðan hafi fyrst
borið á trúnaðarbresti milli bæj-
arfulltrúa framsóknarmanna og
þeirra. Það sé búið að endurtaka
sig með þeim afleiðingum að upp
úr slitnaði.
„Það eru ýmiss brot á málefna-
samningi Hokkanna sem verða til
þess að þetta samstarf springur,
en kornið sem fyllti mælinn var
að þeir ákváðu að styðja minni-
hlutamann í stjórn Hitaveitu
Suðurnesja. Það eru ýmis teikn á
lofti um það að framsóknarmenn-
irnir fari aftur í eina sæng með
sjálfstæðismönnum. Við höfum
ekki talað við sjálfstæðismennina
enn sem komið er,“ segir Hörður
Guðbrandsson.
„Við ætlum að leyfa mönnum
að kólna og ekki hlaupa að neinu.
Hvorki Hörður né Hallgrfmur
hafa haft samband við mig,“ seg-
ir Olafur Guðbjartsson, oddviti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
Grindavíkur. - GG
Bankafólk
haldi rétti
Friðbert
Traustason
formaður
Sambands
íslenskra
bankamanna
segir að sam-
bandið hafi í
raun aldrei
sett sig á
móti þvf að
ríkisbank-
arnir verði
einkavæddir. Hins vegar sé það
mat bankamanna að það eigi að
fara mátulega hratt í það um
þessar mundir. Hann segir að
áherslur sambandsins í þessu
máli snúist fyrst og fremst um
það að rfkið sjái til þess að rétt-
arstaða starfsmanna Lands-
banka og Búnaðarbanka verði
tryggð við þessa sölu. 1 því sam-
bandi áréttar hann að ef þessar
áformuðu sölur mundi seinna
meir leiða til einhverra samein-
inga, verði það skilyrt við sölu
hlutabréfa ríkisins að starfs-
menn haldi öllum sínum rétt-
indum. Þá leggja bankamenn
áherslu á að starfsmannaveltan
verði látin ráða því hvernig stað-
ið verður að hugsanlegri fækkun
starfsmanna.
Friðbert leggur einnig áherslu
á að í frumvarpi bankamála-
ráðherra verði stigið skref í þá
átt að reyna að auka atvinnulýð-
ræðið í landinu. Það verði m.a.
gert með því að tryggja fulltrú-
um starfsmanna þátttöku í
stjórnun fyrirtækja eins og
banka. - GRH
Tolliirinn rnálti ekki
opna bókasendingu
Tollstjðri mátti ekki
opna bðkasendingar
til að ná í vörureikn-
inga. í berhögg við
einkalífsvemd stjöm-
arskrárinnar og með-
alhófsreglu stjóm-
sýsluréttar - leit að
fíkniefnum aiinað mál.
Hæstiréttur hefur fellt þann
dóm, að tollstjóranum í Reykja-
vík hafi verið óheimilt að opna
fjórar bókasendingar til Harðar
Einarssonar sumarið 1999 í því
skyni að nálgast vörureikninga
svo að ákvarða mætti virðisauka-
skatt af vörunni. Dómurinn hef-
ur fordæmisgildi og mun að ein-
hverju leyti binda hendur starfs-
manna tollstjóra, en þó felur
dómurinn ekki í sér að starfs-
mönnuin tollstjóra sé bannað að
leita við úrtaksleit að t.d. fíkni-
efnum í póstsendingum - þeir
mega einlaldlega ekki opna send-
ingar í hvaða tilgangi sem er.
Hæstiréttur komsl að þeirrí
niðurstöðu að aðgerðirnar brytu
Hörður Einarsson. Ekki mátti opna
bókasendingar til hans samkvæmt
niðurstöðu Hæstaréttar í gær.
ekki á 65. og 73. grein stjórnar-
skrárinnar, en hins vegar var
talið, að tollframkvæmdin hefði
gengið í berhögg við einkalífs-
vernd stjórnarskrárinnar auk
meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar,
en skattheimtusjónarmið hefðu
aðallega ráðið henni.
hass já - reikniiiga nei
Starfsmenn embættisins opnuðu
bókasendingarnar og taldi Hörð-
ur embættinu óheimilt „að
stunda reglubundna skoðun og
opnun bókasendinga" þannig að
einu gilti í hvaða tilgangi slík
skoðun væri gerð. Áleit hann að-
gerðirnar höggva að einkalífi
sínu og tjáningarfrelsi. Tollstjóri
taldi hins vegar að tollalög hafi
heimilað þá framkvæmd sem um
væri deilt, en þar er kveðið á um
að tollgæslan megi skoða og
rannsaka allar vörur, sem fluttar
væru til landsins.
Undirréttur sýknaði embættið
alfárið og tók Hæstiréttur undir
rökin að hluta. Hins vegar taldi
Hæstiréttur að tollframkvæmdin
hefði gengið í berhögg við einka-
lífsvernd stjórnarskrárinnar auk
meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar.
Taldi Hæstiréttur að embættinu
hafi verið óheimilt „að opna um-
deildar bókasendingar á þann
hátt sem gert var, í þeim tilgangi
einum að nálgast vörureikninga
eða önnur gögn til ákvörðunar
aðflutningsgjalda".
Hörður efaðist ekki í málinu
um rétt tollstjóra til að opna
sendingar „við úrtaksathuganir
eða annars, ef sérstök rök hnígi
til þess“ og átti þá væntanlega við
grun um fíkniefnasendingar og
þvíumlíkt. - FÞG
Hitaveita Suðumesja hlutafélag
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um
sameiningu Hitaveitu Suður-
nesja og Rafveitu Hafnarfjarðar
og stofnun hlutafélags um rekst-
urinn varð að lögum í gær með
samhljóða samþykkt Alþingis.
Reykjanesbær verður stærsti
hluthafinn við sameininguna
með 43,5%, ríkið og Hafnarfjörð-
ur verða með 16,7% hvor aðili,
Grindavík með 9,3% og smærri
hluti munu eiga Sandgerði,
Garður og Vatnsleysustranda-
hreppur.
Fjármálaráðherra og iðnaðar-
ráðherra fara saman með eignar-
hlut ríkisins í Hitaveitu Suður-
nesja hf. - FÞG
Glæsilegur leikskóli var tekinn í notkun í Hafnarfirði í gær. Skólinn er við
Háholt og er hann byggður samkvæmt verðlaunateikningu frá Albínu
Thordarson.
Skátaþing 2001 um næstu helgi
Bandalag íslenskra skáta heldur Skátaþing dagana 16. til 18. mars
nk. Þingiö verður haldið í Verkmenntaskólanum á Akureyri og hefst
setning kl. 20.00 föstudaginn 16. mars. Þingið sitja forsvarsmenn
skátafélaga á landinu en einnig fulltrúar stjórnar, ráða og nefnda
BIS. Við setninguna vcrður formlega opnuð ný heimasíða Bandalags
íslenskra skáta, www.scout.is. Auk þess verður við setningu þingsins
drengjum á Blöndósi sem björguðu félaga sínum úr snjóflóði, sem
allir eru skátar, afhent hetjudáðamerki Bandalags íslenskra skáta.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Skátaþing íjalla um ör-
yggi í skátastarfi, samstarf foreldara og skáta, aukin gæði í skátastarfi
og stöðu skátastarfs í nútíma samfélagi. Á þinginu verða einnig kynnt
margvísleg málefni sem varða skátastarf s.s. Landsmót skáta 2002
sem haldið verður á Hömrum við Akureyri, þjónustusamningur
SkátafélagsinsVífils við Garðahæ, Fararstjórn á skátamót erlendis,
nýbreytni í ylfingastarfi, skátamiðstöðvar í Englandi, áhrif ungs fólks
á stefnumörkun í skátastarfi og fjarnám í félags- og tómstundafræð-
um við Kennaraháskóla íslands. - GG