Dagur - 16.03.2001, Side 16
16- FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001
Tkgur
LANPiWM
Þæreru á léttu nótunum og
skemmta sérsaman við að
syngja, konumarsem nú
leita aðfleiri konum til að
koma til aðJullskipa
KvennakórAkureyrar.
Það var fyrir tæpum fjórum árum að
verið var að undirbúa sjötíu ára afmæli
KA og ákváðu nokkrar KA-konur af því
tilefni að koma saman og æfa sönglög
fyrir veisluna. Konurnar skemmtu sér
svo vel við sönginn að þær ákváðu að
halda áfram að hittast og syngja saman.
Söngfuglarnir kölluðu sig lengst framan
af KA-kórinn og sungu meðal annars í
KA-messum sem haldnar voru í Akur-
eyrarkirkju. Erfitt var að fá karla til þess
að vera með í kórnum og fáar konur
sýndu honum áhuga. Það var því tekin
ákvörðun um að hættæ að nota nafnið
KA-kórinn þar sem það var talið vera
fráhrindandi fyrir þær konur sem ekki
voru í KA, en langaði til að vera með.
Þar sem kórinn er eingöngu skipaður
konum, var ákveðið að stofna kvennakór
og bjóða konum á öllum aldri sem hefðu
einhvern áhuga að koma og vera með.
Stjórnandi kórsins og undirleikari er
Björn Þorleifsson tónlistarkennari og
hefur kórinn æfingaraðstöðu á sal Tón-
listarskólans síðdegis á sunnudögum.
Kvennakór Akureyrar hefur nú verið
stofnaður og hlaut hann styrk frá menn-
ingarmálanefnd Akureyrarbæjar til að
auglýsa eftir fleiri konum í kórinn. Dag-
ur leit inn á æfingu hjá Kvennakór Akur-
eyrar síðastliðinn sunnudag og forvitn-
aðist um framtíðaráform kórsins og fyrir
svörum urðu kórfélagarnir Ragnhildur
og Dóra og stjórnandinn Björn.
Vantar fleiri koiiur
- Björn hefur verið stjórnandi kórsins frá
upphafi. Hvernig finnst honum að
stjórna konunum?
„Það öfunda mig örugglega margir af
því hafa stjórn á sextán konum og von-
andi fleirum áður en langt um líður.“
- IJvað þurfið þið að fá margar konur
í viðbót til liðs við ykkur?
„Við þurfum að minnsta kosti að fá
helmingi fleiri til að fá sem breiðast
raddsvið fyrir kórinn. Þegar við byrjuð-
um þá höfðu fæstar konurnar sungið í
kór áður, enda er það ekkert skilyrði."
„Það eru engar kröfur gerðar," bætir
Dóra við, „við erum að þessu af því okk-
ur þykir fyrst og fremst gaman að koma
saman og syngja og þetta er allt á léttu
nótunum hjá okkur.“
„Þetta er fyrst og fremst skemmtilegt og svo fær maður algjöra útrás og kemur endurnærður
heim‘\ segja þessar hressu konur í Kvennakór Akureyrar. mynd: brink
- Hefur Kvennakór Akuregrar sungið
eitthvað opinberlega?
„Við sungum á árshátið STAK nýverið
þar sem okkur var mjög vel tekið og
fengum sérlega góð viðbrögð frá fólkinu
bæði á árshátíðinni og eftir hana. Næst á
dagskránni er að kynna kórinn og
verðum við á kaffihúsinu Bláu könnunni
föstudagskvöldið 23. mars næstkomandi.
En framtíðaráformin ráðast auðvitað af
því hversu margar konur við fáum til
liðs við okkur. Við viljum því nota tæki-
færið hér og auglýsa eftir konum til að
koma og vera með í Kvennakór Akureyr-
ar“, segja þær Ragnhildur og Dóra sem
segjast iá algjöra útrás í söngnum og
koma endurnærðar heim eftir hverja
söngæfingu.
Símanúmer sem hægt er að hringja í
til að skrá sig og fá nánari upplýsingar
eru hjá Dóru sem er í síma 462-2646,
Ragnhildi í síma 461-2287 og Birni
stjórnanda kórsins í síma 462-3645. -w
Kvennakór Aknreyrar
stofnaður
Að ..temia bömin
Félagsvísindastofnun heldur
námskeið fyrirforeldra og
aðra sem vilja læra að hjálpa
bömum að bæta hegðun sína
ogfélagslega aðlögun.
Á íslandi hefur ekki verið hefð fyrir nám-
skeiðum fyrir foreldra varðandi uppeldi
og hegðun barna en hins vegar talið sjálf-
sagt fyrir þann sem fær sér hund að fara
á námskeið. Það er Zuilma Gabriela Sig-
urðardóttir lektor í sálfræði við HÍ, sem
bendir á þetta. En hún hefur sérhæft sig í
atferlisgreiningu og kennir á SOS nám-
skeiðum sem Félagsvísindastofnun hefur
efnt til, bæði fyrir foreldra og kennara,
sem vilja læra að hjálpa börnum að bæta
hegðun sína og stuðla þannig að tilfinn-
ingalegri og félagslegri aðlögun á heimili,
í skóla og annars staðar. Kennslugögnin,
sem hafa verið þýdd og staðfærð, kynna
tækni sem hefur verið margprófuð og við-
urkennd sem árangursrík leið til að
stjórna hegðun barna.
Aldrei að gefa eftir ef baraið öskrar
Spurð um þá tækni sem foreldrum er
kennd segir Gabriela reglu númer eitt;
„Gríptu barnið meðan það er gott“. Þ.e.
að sinna skuli barninu meðan það er að
gera eitthvað jákvætt: „Þegar það er ró-
legt, hlustar á þig og hlýðir jjér.“ Séu
samskiptin orðin þannig að barnið gerir
jafnvel mest af því sem það ekki má þá
sé t.d. hægt að bíða þar til það loksins
gerir eitthvað gott og rétt, eða t.d. að
grípa tækifærið þegar það sé að vakna.
Gabriela segir líka mikilvægt að gefa
ekki eftir stigmagnandi hegðun barns.
Hafi barni verið sett einhver mörk eigi
aldrei að gefa eftir og ekki að semja þeg-
ar það bregst við öllum illum látum. Lít-
ilsháttar óviðeigandi hegðun eigi að
hunsa sem mest, í stað þess að vera að
sífelldu þusi. Þykjast ekki heyra vælið,
frekar en að snúa sér strax að barninu
með: Af hverju ertu alltaf að þessu væli.
Skammir duga ekki
„Skammir duga yíirleitt ekki,“ segir
Gabriella, sem mælir með mildilegum
refsingum fyrir alla andfélagslega hegð-
un: Ef barn hótar, hendir og gerir til-
raun til að skemma, lemja eða meiða
eða sýnir aðra vanvirðingu gagnvart
fólki eða hlutum, geti t.d. verið gott ráð
að að taka eitthvað af því tímabundið,
t.d. í 2 mínútur: Athygli foreldranna,
leikfang, að þurfa hætta í tölvuleiknum í
2-3 mínútur, að slökkt sé á sjónvarpinu
í 3 mínútur, eða að barnið sé sent í ann-
að leiðinlegra herbergi þar sem það
þurfi að bíða í 2 mínútur. Og gráti barn-
ið, öskri, heimti eða sé með læti ætti að
hunsa það, en passa bara að barnið fari
sér ekki að voða.
Leysir ekki allan vanda, en...
„Já, þetta hefur sýnt sig að skila góðum
árangri og eru í raun árangursríkustu
leiðir sem við þekkjum til þess að móta
hegðan barnanna til þess að hlutirnir
gangi vel. Sé foreldrum kennt þetta
nógu snemma geta þau bæði tekist á við
þau vandamál sem koma upp og komið í
veg fyrir að þau versni með aldrinum,
en einnig má nota þessar aðferðir til að
losa börn við hegðunarvandamál sem
eru þegar komin upp. Auðvitað er þetta
ekki tækni sem fólk lærir á 6 vikna
námskeiði, heldur fyrst og fremst
fræðsla sem fólk þarf síðan að æfa sig í
að nota. Og þó þú hafir tileinkað þér
hana þýðir það ekki að þú komir aldrei
framar til með að lenda í vandræðum
með börnin þín. Við getum öll búist við
því að börn lendi í einhverjum náms-
vandamálum, hegðunarörðugleikum
eða samskiptaörðugleikum við okkur
eða aðra,“ segir Gabriela.