Dagur - 16.03.2001, Blaðsíða 19
LEIKHUS
KVIKMYNDIR
Tónleikar, leikrit og flmgrni
Mikið verðurum að
vera íAkureyrarkirkju
á sunnudaginn.
Bamaleikrit, tónleikar
ogfdstuvaka ermeðal
þess sem verður í boði.
Viðburðir í Akureyrarkirkju
næstkomandi sunnudag eru að
mestu helgaðir börnum og flutt-
ir af börnum, en eru að sjálf-
sögðu fyrir fullorðin börn líka.
Barnaraddir munu óma frá
þremur barnakórum, en tveir
kórar heimsækja Akureyri þessa
belgi og slást í hóp með Barna-
og unglingakór Akureyrarkirkju
á tónleikum. Stoppleikhópurinn
kemur með barnaleikrit í
farteskinu í sunnudagaskólann
og loks verður íhugaður boð-
skapur föstunnar og kunnir
listamenn flytja fagra tónlist.
Ævintýrið mn Óskimar tíu
Stoppleikhópurinn kemur í
sunnudagaskóla barnanna og
sýnir barnaleikritið ,/Evintýrið
um Oskirnar tíu“ í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju Id. I 1 á
sunnudagsmorgun. Leikritið
byggir á bókinni „Við Guð erum
vinir" eftir norska höfundinn
Kari Vinje en leikgerðina gerði
Eggert Kaaber sem jafnframt
leikur öll hlutverkin í sýning-
unni. ,/Evintýrið um Óskirnar
tíu“ Ijallar um Oskar, lítinn strák
sem finnur töfrastaf uppi í sveit
hjá ömmu og afa. Hann kynnist
álfi nokkrum sem á stafinn og
fær að óska sér tíu sinnum. I
verkinu er komið inn á að kenna
Tveir kórar heimsækja Akureyri þessa helgi og slást thóp með Barrta- og ung-
lingakór Akureyrarkirkju á tónleikum sem haldnir verða í Akureyrarkirkju á sunnu-
dag. Kórarnir eru Kór Snælandsskóla í Kópavogi og Húsabakkakórinn Góðir hálsar
úr Svarfaðardal og saman munu þeir flytja fjölbreytt efni á tónleikunum.
börnum að biðja
rétt, mátt bænarinn-
ar og það að gleyma
ekki þeim sem þurfa
á bænum okkar að
halda. Leikritið er
ætlað 2-8 ára börn-
um og tekur um 20
mínútur í sýningu.
Uppreiuiaitdi
listamenn
Tónleikar verða
kirkjunni kl. 16.00 á
sunnudagseftirmið-
daginn. Þar munu
þrír barna- og ung-
lingakórar ásamt ein-
söngvurum og strengjasveit
flytja þætti úr Gloríu eftir A.
Vivaldi. Tónleikarnir eru haldnir
í tengslum við heimsókn Kórs
Snælandsskóla í Kópavogi norð-
ur yfir heiðar en
hann mun í sam-
vinnu við Barna -
og unglingakór Ak-
ureyrarkirkju og
Húsabaldkakórinn
Góða hálsa úr
Svarfaðardal flytja
fjölbreytt efni á tón-
leikunum auk fyrr-
nefndra þátta úr
Gloríu. Kórarnir
hafa fengið sér til
liðsinnis Strengja-
sveit Tónlistarskól-
ans á Akureyri und-
ir stjórn Guðmund-
ar Ola Gunnarsson-
ar og unga nemendur úr söng-
deild skólans, þær Sólbjörgu
Björnsdóttur, Unni Helgu Möll-
er og Þórnýju Lindu Haralds-
dóttur sem annast einsöngshlut-
Eggert Kaaber leikur öll hlut-
verkin ísýningunni. „Ævintýr-
ið um Úskirnar tíu" sem
Stoppleikhópurinn kemur
með norður.
verk. Stjórnendur barnakóranna
eru Heiðrún Hákonardóttir,
Sveinn Arnar Sæmundsson og
Rósa Kristín Baldursdóttir.
Norðlendingar eru hvattir til að
fjölmenna á einstakan listvið-
burð og styðja þannig við bakið
á ungum og upprennandi lista-
mönnum.
íhugiuiarefoi föstunnar
Föstuvaka hefst svo í kirkjunni
að kveldi sunnudagsins kl.
20.30. Flutt verður efni í tali og
tónum sem helgað er íhugunar-
efni föstunnar og bæn mannsins
um frið. Kór Akureyrarkirkju
syngur undir stjórn Björns
Steinar Sólbergssonar tónlist
eftir Camille Saint Saéns, Zoltán
Kodaly, Hafliða Hallgrfmsson og
Jón Hlöðver Askelsson. Ein-
söngvari er Rósa Kristfn Bald-
ursdóttir, sópran. Sungið verður
úr Passíusálmum Hallgríms Pét-
urssonar, bæði í kórsöng, ein-
söng og almennum söng. Flutt
verður Litanía séra Bjarna Þor-
steinssonar og auk þess syngur
kórinn hluta af tónverki Jóns
Hlöðvers Askelssonar, „Dag-
söngvar um frið“ við texta Böðv-
ars Guðmundssonar, en verkið
var samið í tilefni kristnitökuaf-
mælisins og frumflutt í Hall-
grímskirkju 28. janúar sl. Saga
Jónsdóttir leikkona, Valgeir
Skagfjörð Ieikstjóri og Valgerður
Valgarðsdóttir djákni lesa ljóð og
ritningarlestra. Prestur er séra
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Það er von allra sem að föstu-
vökunni standa, að sem flestir
sjái sér fært að koma til kirkju
þetta kvöld, bæði til að taka þátt
í helgihaldinu, fhuga boðskap
föstunnar og njóta hins talaða
orðs og fagurrar tónlistar. -W
Qarsoq,frægastapopp-
hljómsveit Grænlands
treðurupp íFjöm-
kránni íHafnarfrrði nú
um helgina og tvær
næstu helgarenda er
Fjömkráin vettvangur
grænlenskra daga um
þessarmundir.
„Ég stefni að því að búa hér til
svipað aðdráttarafl og Gullfoss og
Geysir hafa og þessir grænlensku
dagar eru liður í þeirri áætlun,"
segir Jóhannes Viðar Bjarnason,
víkingur og veitingamaður í
Fjörukránni. Hátíðin hófst í gær
og verður fram haldið um helgar
næstu þrjár vikurnar. Viðamikil
kynning er á grænlenskri menn-
ingu þar sem meðal annars græn-
lenskir listamenn halda merki
sfns lands á lofti.
Sérstakt upplýsingahorn er í
Vestnorden gisti- og
menningarhúsinu og þar
verður Benedikta Thor-
steinsson með upplýsingar
um allt sem lýtur að
Grænlandi, náttúrufeg-
urðinni þar, mannlífinu og
ótal mörgu öðru sem
skólafólk og aðra gesti fýs-
ir að vita. Bæði hún og
aðrir munu flytja þar fyrir-
lestra um Grænland.
Trommudans
og grimudans
Flvað lleira skyldi Jóhann-
es vera með í pokahorn-
inu? „Við vorum svo
heppin að fá hingað græn-
lensku hljómsveitina Qar-
soq (sem þýðir ör)og hún
mun halda uppi stemmn-
ingu allar helgarnar. Qar-
soq er vinsælasta hljóm-
sveit Grænlendinga nú um stund-
ir og sá maður fýrirfinnst varla
þar í landi sem ekki kann eitthvað
af lögunum hennar. Trommu-
dansarinn Anda Kuitsi dansar
hefðbu nd i nn grænlenskan
trommudans af einstakri innlifun
og einnig koma grímudansararnir
Jóns Möllers. Ekki má svo
gleyma einum virtasta
myndlistarmanni Græn-
lendinga, Christian Nu-
unu Rosing sem kemur
hingað og sýnir verk sín
en hann fæst við stein-
högg, málverk og út-
skurð.“
Sauðnaut og svartfugl
Maturinn sem eldaður
verður ofan í gesti Fjöru-
krárinnar á þessum tíma
verður allur af grænlensk-
um toga og það er Niels
Davidsen, matreiðslu-
meistari frá Narsaq, sem
mun sjá um eldamennsk-
una. Af matseðlinum má
nefna reylct hreindýr, stór-
ar rækjur og reykta lúðu
sem forrétti og steikta
loðnu, sauðnaut, svartfugl
og hreindýrasteik í aðalrétti. Eftir-
réttirnir eru úr berjum eða rabar-
bara að hætti Grænlendinga.
Ekki sjrillir að heppnir matar-
gestir geta átt von á að hreppa
glæsilega vinninga, aðallega
ferðavinninga og farartækin sem
boðið er upp á í þeim ferðum eru
meðal annars hundasleðar. glx.
Ida Heinrich sem dvelur hér á landi við söngnám, syngur
grænlenska söngva fyrir gesti Fjörukrárinnar. mynd: ingó
Vivi Nielsen og Bolethe Bern-
hardsen, flytja fyrirlestra og sýna
grímudans - það atriði er reyndar
ekki fvrr en undir lok grænlensku
daganna. Ida Heinrich er græn-
lensk stúlka sem dvelur hér á
landi við söngnám. Hún kemur
fram á kvöldin í Fjörukránni og
syngur fýrir gesti, við undirleik
Grænlensk menning og matarhefð
■imi naeiNAi
SkátaJjtng 2001
Bandalag rslenskra skáta heldur
Slvátaþing dagana 16. til 18.
mars í Verkmenntaskólanum á
Akureyri og hefst setning í
kvöld kl. 20. Þingið sitja for-
svarsmenn skátafélaga á land-
inu en einnig fulltrúar stjórnar,
ráða og nefnda BIS. Við setn-
inguna verður formlega opnuð
ný heimasíða Bandalags ís-
Ienskra skáta, www.scout.is .
Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa mun Skátaþing fjalla
um öryggi í skátastarfi, samstarf
foreldara og skáta, aukin gæði í
skátastarfi og stöðu skátastarfs í
nútíma samfélagi. Á þinginu
verða einnig kynnt margvísleg
málefni sem varða skátastarf
s.s. Landsmót skáta 2002 sem
haldið verður á Hömrum við
Akureyri, þjónustusamningur
SkátafélagsinsVífils við Garða-
bæ, Fararstjórn á skátamót er-
lendis, nýbreytni í ylfingastarfi,
stótamiðstöðvar í Englandi,
áhrif ungs fólks á stefnumörk-
un í skátastarfi og íjarnám í fé-
lags- og tómstundafræðum við
Kennaraháskóla íslands.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir og
Stefán Hilmarsson.
Landskunnir
Ustamenn á Radisson
Ymislegt skemmtilegt verður
um að vera á Radisson-hótel-
Sögu um helgina jafnt fýrir
unga sem aldna. A laugardags-
kvöldið syngja saman í fýrsta
sinn landskunnir söngvarar og
listamenn á skemmtikvöldi í
Súlnasalnum. Þetta eru þau Jó-
hann Friðgeir Valdimarsson
tenór, Stefán Hilmarsson popp-
söngvari og Jóhanna Vigdís
Arnardóttir leik- og söngkona
ásamt undileikurunum Kjartani
Valdimarssyni á píanó og Frið-
riki Sturlusyni á bassa.
Skemmtikrafturinn og eftir-
herman Jóhannes Kristjánsson
galdrar fram þjóðkunnar per-
sónur á sinn einstaka hátt.
Dansað verður fram eftir nóttu
að skemmtun loldnni.
En gamanið er ekki búið, því
á sunnudaginn milli kl. 14 og
18 verður Opið hús á Radisson
SAS Hótel Sögu, en að undan-
förnu hefur hótelið smám sam-
an veríð að fá á sig nýja og
glæsilega mynd. Gestum verður
boðið í skoðunarferð um hótel-
ið, djasstrfó sér um að leika
Ijúfa tónlist og Jógi trúður kem-
ur í heimsókn á milli kl. 15 og
16 og skemmtir yngsta fólkinu.
Boðið verður upp á veitingar og
eru allir velkomnir.
\___________________________Z