Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Side 1
Hrakm á brott
Dýralœknirinn
Dagmar Vala
Hjörleifsdóttir og
Halldór Jónsson
héraðslœknir
hafa hrakist á
brott afbýli sínu
á Vesturlandi.
Þau telja sér ekki
fœrt að búa þar
lengur vegna
vegarins sem
verið er að
leggja. Þau telja
sig neydd til að
flytja til útlanda.
Þetta kippti gjörsamlega
fótunum undan veru okk-
ar í hreppnum því að við
byggðum bæ okkar með það
fyrir augum að hafa þar litla
hestarækt, sem ég var búin að
hlakka til að dunda mér við.
Svo ætlaði óg að hafa þarna lít-
inn hestaspítala og var búin að
teikna hann en haginn fór und-
ir veginn. Sárast var þó að þeir
eyðilögðu friðað mýrlendi frá
fjallinu niður að sjónum. Par
verpir obbinn af öllum varp-
fuglum í landinu,“ segir Dag-
mar Vala Hjörleifsdóttir dýra-
læknir.
Dagmar Vala, sem jafnframt
því að hafa rekið dýralækna-
stofu á Akranesi hefur gegnt
starfi framkvæmdastjóra Heil-
brigðiseftirlits Vesturlands, og
eiginmaður hennar, Halldór
Jónsson, héraðslæknir Vestur-
lands og einn af þremur
læknum á heilsu-
gæsl-
unni á Akranesi, eru að pakka
saman föggum sínum og flytja
frá paradísinni að Móum í
Innri-Akraneshreppi vegna
lagningar nýs vegar frá munn-
anum á Hvalfjarðargöngum til
Akraness. Fjölskyldan á ekki
rétt á neinum bótum eða hljóð-
múr þótt vegurinn liggi 150
metra fyrir utan stofugluggann
hjá þeim því að þau hafa bara
leigt hagann, sem fer undir
veginn.
Sorgarsaga frá upp-
hafi
Saga Dagmarar og Halldórs er
mikil sorgarsaga. I tvö ár höfðu
þau leitað að góðri jörð þar sem
þau gætu verið í friði í náttúr-
unni með dýrin sín þegar þau
fundu jörðina Móa. Pau lögðu
allt sitt í að láta draumana ræt-
ast, lögðu mikla vinnu á sig,
fjárfestu 22 milljónir í einbýlis-
húsi og tamningagerði og ætl-
uðu að byggja hestaspítala þeg-
ar draumurinn hrundi. Árið
1991 kynnti Vegagerðin áform
sín um að leggja veg þvert í
gegnum allar jarðirnar í
hreppnum. Dagmar og Halldór
segjast vera nánast gjaldþrota
því að engar fá þau bæturnar
og litlar líkur eru á að þeim
takist að selja jörðina.
„Maður var búinn að sá fræ-
inu, rækta tréð og eplin voru
komin á það en þegar maður
ætlaði að fara að bíta í þá var
það hoggið,“ segir Dagmar.
„Þetta var gífurlegt áfall.“
Bændurnir mótmæltu
Dagmar Vala segir að vegurinn
hafl mætt mikilli mótspyrnu
strax frá upphafl og mótmæltu
allir bændurnir en Vegagerðin
og umhverfisráðuneytið hafl
látið það sem vind um eyru
þjóta. Fyrstu áætlanir gerðu
ráð fyrir að vegurinn færi þvert
yfir nýbyggt einbýlishús Dag-
marar og Halldórs, síðar átti
„hraðbrautin að liggja fyrir ut-
an stofugluggann hjá okkur.“
Þá áttu gatnamót að vera fyrir
utan Móa. Vegurinn skyldi
byggður þrátt fyrir mótmæli
íbúanna og þá staðreynd að
annar vegur væri fyrir í
hreppnum.
Dagmar Vala og fjölskylda
hennar gagnrýna yflrvöld hart
og telja að Vegagerðin og um-
hverflsráðherra hafi komið illa
fram við íbúana. Þau eru búin
að fá nóg. Dagmar Vala segir að
þau séu náttúrubörn og
geti ekki unað
mengun og ónæði
frá umferðinni.
Þau eru því
þegar farin að
pakka saman
eigum sínum,
Dagmar Vala
er búin að
loka stofu
sinni og þau
eru ákveðin í
að flytja á
brott. Að öllum
líkindum hrekj-
ast þau alla leið
til útlanda.
-GHS
Dagmar vala Hjorleifsdottir dyralæknir hefur
lokað dýralæknastofu sinni og hrakist á brott
frá jörð sinni að Móum í Innri-Akraneshreppi
vegna lagningar vegar þvert yfir hagann, sem
hún hefur verið með á leigu. Hún unir ekki
mengun og ónæði af veginum og bendir á að
annar vegur sé þegar í hreppnum. Verið er að
leggja veginn. Myn&.GVA
MAÐURVIKUNNAR
Aumingja Hemmi Gunn! Hvern
dreymdi um að 17 marka metið í
landsleik gegn bandarískum byrj-
endum í skýjakljúíi fyrir nokkrum árum
ætti eftir að falla? Gústaf Bjarnason er
maður vikunnar: 21 mark í landsleik gegn
milljarðaþjóðinni Kína á sjálfum Selfossi -
heimabæ kappans - er met sem á eftir að
standa fram á næstu öld. Til hamingju
kallinn! Kaldhæðnin er sú að Gústaf átti
aldrei að leika þennan leik. Ef KA
hefði ekki slegið Ilauka út í
handboltanum hefði Gústaf
verið í leyfi frá landsliðsstörf-
um þessa vikuna til að undir-
búa sig í'yrir úrslitakeppnina.
Hann getur þakkað
KA fyrir að
hafa komist
óafmáanlega
á spjöld hand-
knatlleikssög-
unnar.