Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Síða 7
Itagur-'ClImmm Laugardagur 5. apríl 1997 -19
jaforæði
Mér finnst sérstaklega
ánægjulegt að hafa fengið
allar þessar konur saman í einn
hóp og finna þann styrk sem
fólginn er í því að konur, jafnt
sem karlar, taki þátt í að
stjórna sínu nánasta umhverfi.
Það er góð tilfinning að vita að
svo margar konur eru ábyrgir
aðilar fyrir því hvernig hlutirnir
ganga í samfélaginu. Ég er
Ingunn St. Svavarsdóttir sveitar-
stjóri er stolt af öllum þessum
ábyrgu konum í Öxarfirði.
sannfærð um það að ef við að-
eins gætum komið því til leiðar
að meira jafnræði verði meðal
kvenna og karla jafnt úti á
landi sem í þéttbýlinu þá yrði
fólk mun ánægðara og liði al-
mennt miklu betur.“
góðum höndum
Hér rikir
Formaður
Miðnætursólar-
hringsins
Inga er fædd og uppalin í Öx-
arfirði, nam viðskiptafræði við
Háskóla íslands, útskrifaðist
1992 og fluttist þá aftur í
heimahagana. „Ég vann alltaf á
sumrin í Landsbankanum á
Kópaskeri og eftir að ég kláraði
viðskiptafræðina þá fór ég í
gamla starfið í bankanum og
tók svo við afgreiðslustjórastöð-
unni í júlí í fyrra. Ég kann mjög
vel við mig í þessu starfi.“
Ingiríður Ásta Karlsdóttir stýrir úti-
búi Landsbanka íslands á Kópa-
skeri.
En Inga er líka formaður
Miðnætursólarhringsins. Ilvað
er nú það? „Jú þetta eru ferða-
málasamtök sem ná frá Keldu-
hverfi austur til Vopnaíjarðar.
Sjö sveitarfélög standa að þess-
um samtökum og á einn fulltrúi
frá hverju þeirra sæti í hinni
eiginlegu nefnd. Markmiðið
með samtökunum er að mark-
aðssetja þetta stóra svæði fyrir
ferðamenn. Miðnætursólar-
hringurinn var stofnaður í maí
1995 og hefur hingað til bent á
náttúruperlur og eftirsótt ferða-
mannasvæði sem vissulega eru
í þessum landshluta. Til stend-
ur að setja upp auglýsingaskilti
sem auðvelda eiga ferðamönn-
um að fara um svæðið og kynna
sér það sem markverðast er að
sjá.“
„Nátttíruperlur
þessa svæðis
alþekktar“
Sigþrúður Stella Jóhannsdótt-
ir er Keldhverfungur, líf-
fræðingur að mennt og starfar
sem þjóðgarðsvörður í Þjóð-
garðinum í Jökulsárgljúfrum
allt árið.
„Ég er mjög ánægð í mínu
starfi það er (jölbreytt og
skemmtilegt. í fyrrahaust var
svæðið austan við Jökulsána
friðlýst sem náttúruvætti, en
Þjóðgarðsvörðurinn, Jökulsár-
gljúfrum, Sigþrúður Stella Jó-
hannsdóttir, er einnig formaður
Dettifossnefndarinnar.
svæðið vestan við ána er í Þjóð-
garðinum. Á vegum Náttúru-
verndarráðs starfar nefnd, svo-
kölluð Dettifossnefnd, sem er
samráðsnefnd um þetta svæði
og er ég formaður hennar og
fulltrúi Náttúruverndar. Til
stendur að byggja upp betri að-
stöðu fyrir ferðamenn og eru
nú þegar komnir góðir göngu-
stígar við Dettifoss og verið er
að hanna og laga bilastæðin
þar. Þá verður öll hreinlætisað-
staða þarna bætt strax í sumar.
Það er mjög brýnt að bæta að-
stæður fyrir ferðamenn því
margir heimsækja Þjóðgarðinn
sem og aðrar þekktar náttúru-
perlur í okkar landshluta."
Eini kvenflug-
umferðarstjóri
íslands í
Mustarfi
Með glettnisblik í augunum
segir Fríða flugumferðar-
stjóri okkur frá starfi sínu sem
er afgreiðsla flugvéla Flugfélags
Norðurlands, sem heldur uppi
áætlunarferðum til Kópaskers
þrisvar í viku. „Ég er búin að
vera í þessu í sautján og hálft
ár og er mjög ánægð með starf-
ið mitt þó það sé vissulega
bindandi. Fyrstu árin fékkst
enginn til að leysa mig af en allt
hefur þetta nú lagast. Ég sé um
að flytja allan póst og alla frakt
á völlinn og það er svo líka í
mínum verkahring að hlaða og
Líklega eini körfuboltaþjálfari
landsins sem aldrei hefur spilað
körfubolta, Hólmfríður Halldórs-
dóttir, flugumferðarstjóri á Kópa-
skeri.
losa flugvélarnar. Fólk hér er
ekki nógu duglegt að nota þess-
ar flugsamgöngur kannski
vegna tímasetningarinnar á
íluginu, en það er morgunflug,
sumir setja fyrir sig millilend-
inguna á Raufarhöfn og enn
aðrir segja að það að þurfa að
skipta um vél á Akureyri þegar
ferðinni er heitið til Reykjavíkur
sé ástæða þess að það keyrir
heldur til Húsavíkur í fiugið
þaðan."
En Friða hefur tíma fyrir
tómstundir og aðra vinnu þrátt
fyrir flugið. Hún hefur verið
formaður UMFNÞ, Ungmenna-
félags Norður-Þingeyinga síð-
astliðin fimm ár og er körfu-
boltaþjálfari barna og unglinga
á staðnum. „Ég ’nef aldrei spil-
að körfubolta en áhugi á íþrótt-
inni er mikill meðal ungmenna
hér svo ég las mér bara til og
fékk tilsögn í faginu og skellti
mér bara í þjálfunina. Þar á
meðal eru þrír flokkar sem
keppa á íslandsmóti, strákar í,
10. flokki, strákar og stelpur
saman í yngsta flokknum og 8.
flokki. Hérna áður fyrr var ég
með þjálfun í frjálsum íþróttum
en er alveg hætt því.“
Þessi hópur kvenna við Öxarfjörðinn á það sameiginlegt að vera í forsvari
fyrir fyrirtækjarekstri flestar með sinn eigin rekstur, „og fara létt með
það“.
Ríkisstarfsmenn í stjórnunarstörfum eru líka til meðal kvenna á Kópaskeri
og nágrenni þó við séum einhvern veginn vanari því að sjá karlana skipa
flestar æðstu stöður hjá hinu opinbera.
! f
«*■ w»“ÍÉjf ■ ■ ■ - L ■ i4fc- W ** r vv«| í|
í sveitarfélagi eins og Öxarfjarðarhreppi, þar sem meira að segja sveitar-
stjórinn er kona, finnum við að sjálfsögðu konur í ábyrgðarstöðum og
gestir fá ekki betur séð en að atvinna og mannlíf blómstri í þessum lands-
hluta. Hvort það er stjórnsömum konum að þakka skal ósagt látið.
Myndir og texti:
Guðrún Kristín Jóhannsdóttir