Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Side 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Side 3
rmwiTi iTR.-rr rt»t» n; '"1)0 t li'Ktrv »r»«n|-»Wir»»>»t»* 1 ... V V jDagur-Œmrirnt Laugardagur 5. apríl 1997 -15 H repparígnr og Bæjarbúar á Akureyri, f Mosfellsbæ, Grindavík og Reykjanesbæ verða ákaflega uppteknir um helgina því að á sunnudaginn fara fram aðalleikir helgarinnar, KA og Afturelding í íslands- mótinu í handbolta og svo eigast við erkiíjendurnir Keflavík og Grindavik í þriðja leik sínum í íslandsmótinu í körfubolta. Að sjálfsögðu er brýnt að lið- in fái góðan stuðning frá sínum mönnum og þá ríður á að forráðamennirnir sýni lit. En hvernig er það með blessaða bæj- arstjórana - auðvitað hljóta þeir að sýna gott fordæmi og styðja sitt fólk. Eða hvað? Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akur- eyri, er harðákveðinn í að fylgjast með leiknum KA-Afturelding þó að hann komist ekki á leikinn að þessu sinni. Sonur Jakobs, Sverrir Björnsson, er í KA þannig að það er öruggt að Jakob kemst ekki hjá því að hlusta á útvarpið. Jakob bendir á það sé ekkert „duló“ þó að Sverrir hafi föðurnafnið Björnsson. Eig- inkona Jakobs er nefnilega norsk og Sverrir er fæddur í Noregi. Þess vegna hefur hann föðurnafnið Björnsson. Lítill hrepparígur er miili sveitarfé- laga fyrir norðan hvað íþróttirnar varð- ar, það er helst rígur milli KA og Þórs. Jakob segist þó búast við að Þórsarar styðji sveitunga sína og hann er ekki í nokkrum vafa um hvernig leikurinn fer. Veðjar á Aftureldingu Gamla blakkempan Jóhann Sigurjóns- son, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, er ekki heldur í nokkrum vafa um hvernig leik- urinn fer á sunnudaginn. IJann veðjar á Aftureldingu, enda víst að Mosfellingar ijölmenni á heimaleikinn og þá geta KA- menn átt erfítt uppdráttar. Jóhann er harðákveðinn í að fara á leikinn enda segist hann fylgjast vel með íþróttum, lesi alltaf íþróttasíðurnar og styðji sína menn. Ekki er mikill hrepparígur í Mosfells- bænum enda tiltölulega nýtt bæjarfélag og eimir enn af því að aðkomumennirn- ir, sem þar búa, haldi með öðrum liðum. Þetta er þó óðum að breytast, sérstak- lega með nýjum kynslóðunum sem eru að alast upp. Börnin eru öll harðir stuðningsmenn Aftureldingar. Og for- eldrarnir þá líka. Hefur sæti númer 62 Á Suðurnesjum hefur Iöngum gætt hrepparígs í íþróttunum enda eru þar ákafir keppnismenn í körfuboltanum. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Reykjanes- bæ, bendir á að Reykjanesbær sé „körfu- boltabær landsins" og hann fylgist með sínu liði eftir fremsta megni. Hann á árskort og fer á alla heimaleiki sem vinnan leyfir. Að sjálfsögðu fer hann á leikinn á sunnudaginn og mun þá sitja í góðum félagsskap á besta stað þar sem ekki væsir um hann - í sætinu númer 62 við hliðina á sýslumanninum. „Ég er búinn að vera stuðningsmaður þeirra í áratugi þannig að það hefur ekkert breyst," segir Ellert um Keflavík- urliðið. Hann viðurkennir að á Suður- nesjum sé „lireppapólitískur eða íþrótta- pólitískur rígur. Það er náttúrulega svo- lítill rígur milli UMFN og Keflavíkur í körfubolta. Þetta er svipað og milli KR og Fram eða KR og Vals. Svo er náttúru- lega íþróttapólitískur rígur milli Kefla- víkur og Grindavíkm-. Það er alveg klárt,“ segir hann. Ellert er ekkert illa haldinn af íþrótta- rígnum enda er það allt í bróðerni og stundum meira í gamni en alvöru. Þegar til leiks er komið ætla sér náttúrulega allir að vinna. Ellert kvíðinn? Er Ellert ekki dálítið kvíðinn? „Ég gæti trúað því en við kvíðum engu hér. Þetta verður alltaf í sóma hjá drengjunum. Þeir eru í vaxandi gengi núna. Þetta er eins og með öldurnar, þeir eru á uppleið. Fyrsti leikurinn var dapur, leikurinn í gærkvöldi, fimmtudagskvöld, var þó nokkuð efnilegur og svo verður þetta stjörnuleikur á sunnudaginn," segir Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í Grinda- vík. Jón segir að bæjarstjórinn í Grindavík elti sína menn „eins og hundur“ og því ekki spurning að hann keyri til Keflavík- ur á sunnudaginn, setjist þar á bekk og hvetji sína menn. Þetta sé orðið ósjálf- rátt hjá honum eins og svo mörgum öðr- um í Grindavík. Liðið eigi þar öflugan hóp stuðningsmanna. Og enginn svíkst um að mæta á mikilvægan leik. -GHS f Jakob Björns- son bajar- stjóri œtlar að fylgjast með sínum mönn- um á sunnu- daginn, enda á hann son í KA. Gamla blak- kempan Jó- hann Sigur- jónsson, bœj- arstjóri í Mos- fellsbœ, styður sitt fólk Á sunnudaginn segir hann vœntanlega: „Áfram Aftur- elding!" Ellert Eiríks- son situr í sœti númer 62 í Keflavík og er þar í góð- um félags- skap. í nœsta sœti er nefni- lega sjálfur sýslumaður- inn. Jón Gunnar Stefánsson, bœjarstjóri í Grindavík, spyr: „Er Ell- ert ekki kvíð- inn?" en Keflavík og Grindavík eig- ast við í þriðja leik sínum í körfunni. ice, ice babie nino go mad in tne arctí W* m m *>*>«» n*MÍst *K>*1»VÍV >1 * v,SÍ»Ht*í-S»»í «(XV* Pm t-í» <««« Me* e< . Hd' (w »0« Ht-xlx. * ttOM- éx; HAr* « ■MrHi*] rt »Ni hmvf.n o1 Gus Gus fær heldur betur góða auglýsingu í nýjasta eintakinu af tónlistarblaðinu ARENA. Þar eru þau kölluð „ís, ísbeibí" og kannski engin furða þegar horft er á myndina og allan snjóinn. Viö erum efst uppi á hœð í miðri Reykja- vík, vaxin í harrtrjám í dóm- kirkjulegu umhverfi búnu til í hring af gríðarstórum silfruð- um geymslutönkum. Hátt yfir höfði okkar er dómkirkja úr gleri sem hýsir veitinga- hús með úrvalsgóðu íslensku eldhúsi. “ Þannig byrjar grein undir yfirskriftinni „ís, ísbeibí - níu brjáluð á norðurslóð- um“ í breska tónlistarblaðinu ARENA um nýjustu stórstjörn- una frá skerinu, fjöllistahópinn Gus Gus og tónleika þeirra í Perlunni. Greinin er yfirfull af mergjuðum lýsingarorðum á ensku sem engin leið er að þýða en það segir kannski sitt. Arena hefur greinilega sent blaðamann hingað til lands til að fylgjast með tónleikum Gus Gus og birtir stutt spjall við ýmsa úr hópnum auk þess að auglýsa að geisladiskurinn Polydistortion eigi að koma út 7. apríl. Ekki amaleg byrjun fyrir Gus Gus! - En hvað skyldi Gus Gus finnast um það að Reykjavík sé orðin að aðalstaðnum á jörð- inni? Það er breski blaðamaðurinn Tim Clark sem spyr og Biggi verður fyrstur fyrir svörum: „Þetta er svolítið eins og nýju fötin keisarans.“ Og Baldur Stefánsson bætir við: „Við þurf- um meira fólk, það þarf að fylla upp í göt, rúm, heilmikið súr- efni.“ Já, Gus Gus, „ísbeibí á norð- urslóðum", er nýjasta stjarnan á popphimninum og það svo um munar. Það er margt spennandi að gerast hjá þeim og vonandi gengur þeim vel að koma hug- myndum sínum á framfæri. -GHS

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.