Dagur - Tíminn Akureyri - 05.04.1997, Qupperneq 15
Hveraig kemur kóngafólkið undan vetri?
Nýtt hár og nýr maður (eða hvað?) f vetrarlok hjá Karólínu Mónakóprinsessu.
BÚBBA
skrifar hér sinn síð-
asta pistil, að sinni
a.m.k. Beinir hún nú
sjónum sínum að því
hvernig kóngafólkið í
Evrópu kemur
undan vetri.
Jæja, lesendur góðir. Þá er
komið að því. Ritstjórinn
reyndi að gleðja mig með
því um daginn að nú væri kom-
inn tími á sumarfrí. Það er nú
svona álíka eins og að segja við
fluguveiðimann - svo maður
taki nærtækt dæmi - að hætta
að spá í flugur, línur, kasttækni
o.s.frv. Því fyrir fólk svona eins
og mig er ekki um það að ræða
að hætta að fylgjast með kónga-
fólkinu. En það er öllum hollt
að fá sér sumarfrí og það mun
ég gera með því að leggja
blaðaskrif til hliðar fram að
hausti. En áður en af því verður
skulum við aðeins líta á hvernig
staðan er hjá hinum ýmsu
kóngaijölskyldum í vorbyrjun.
Bretland:
Tengdadætur á ferð
og flugi
Eftir allt sem á undan er gengið
á undanförnum árum þá var
veturinn tiltölulega rólegur hjá
íjölskyldu Elísabetar drottning-
ar í Bretlandi. Fyrrum svilkon-
urnar Díana og Sara voru tals-
vert í fréttum í vetur enda nýttu
þær síðustu mánuði til þess að
sanna sig í nýju umhverfi, þar
sem menn hafa almennt lítinn
skilning á hörmum þeirra sem
una illa hallarlífi.
Þegar upp er staðið hefur Dí-
ana enn sannað að hún hefur
bein í nefinu og hefur fulla
burði til þess að standa fyrir
sínu. í september heimsótti hún
Hilary Clinton um leið og hún
aflaði ljár til krabbameinsrann-
sókna, í desember tók hún þátt
í ráðstefnu um varnir gegn
holdsveiki í London og tók þátt í
samkomu hjá Metropolitan og
Museum of Art í New York. En
hápunktur vetrarins var líklega
ferð hennar til Angóla, þar sem
hún varpaði ljósi á hörmungar
sem fylgja notkun jarð-
sprengna. Vakti sú ferð mikla
athygli. Nú og í febrúar
tilkynnti hún að hún hyggðist
selja viðhafnarkjóla sína á upp-
boði og afla þannig tekna til
góðgerðarstarfsemi. Dagblaðið
Express on Sunday flutti fróttir
af því að Díana ætlaði að gefa
einungis helminginn af tekjun-
um sem þannig öfluðust til góð-
gerðarstarfsemi. Díana gerði
sér lítið fyrir, stefndi blaðinu
fyrir ærumeiðingar. Lyktir urðu
þær að ritstjórarnir féilust á að
greiða Díönu um 1,3 milijónir
króna sem hún gaf til góðgerð-
arstarfsemi. Díana hefur komið
sér vel fyrir í þjóðarsálinni hjá
Bretum, þeim er hlýtt til henn-
ar. Það fer fáum sögum af ást-
arlífi prinsessunnar nema hvað
stöku sinnum er minnst á það
að hún eigi í ástarsambandi við
frægan hjartaskurðlækni.
Sara Ferguson á ekki upp á
pallborðið hjá bresku þjóðinni.
Tíðar fróttir af henni við að
kynna ævisögu sína eða leita
annarra leiða við að stytta
skuidahalann urðu henni ekki
til mikiis vegsauka. Má nefna
ferðir út og suður við að taka
þátt í auglýsingum eða mæta í
góðgerðarboð gegn greiðslu.
Hún er flutt inn í gestaherberg-
ið hjá Andrési fyrrverandi eig-
inmanni sínum, til þess að
spara húsaieigu (sem var 600
þúsund krónur á mánuði). En
flárþörf hennar er rosaleg. Það
er ekki nóg með að hún þurfi
að vinna sér inn mikla peninga
til þess að greiða niður skuldir.
Ilún þarf fíka að greiða skatta
af öllum tekjunum og það er
ekkert smáræði sem hún skufd-
ar á þeim vettvangi eða um 160
milljónir króna. Taumleysi Söru
við að afla peninga hefur sett
hroll að Elísabetu drottningu,
en það verður að segja Söru til
hróss að hún passar sig á því
að auglýsa ekki vörur í veldi
tengdamóður sinnar fyrrver-
andi.
Karl Bretaprins unir sér í
sveitinni með ástkonu sinni
Camillu og fer engum sögum af
þeim vettvangi. Sagt er að hann
ímyndi sér að með tímanum
geti þjóðin fellt sig við að hún
verði drottning við hlið hans
þegar fram líða stundir. - Sá er
bjartsýnn!
Ferming Vilhjálms krónprins
leiddi í ljós að þau Díana og
Karl geta hist á almannafæri án
þess að gera sjálfum sér og öðr-
um lífið leitt en til þess var tek-
ið að þau nánast töluðust ekki
við. Voru viðstaddir sjálfsagt
fegnir því.
Já meðal annarra orða. Ját-
varður prins hefur ekki tilkynnt
hvenær hann hyggst kvænast
Sophie Ryhs Jones sambýlis-
konu sinni. Ég spáði því víst að
það myndi draga til tíðinda með
vorinu en sú spá ætlar víst ekki
að rætast. Sannast sagna held
ég að hann Játvarður sé dálítið
sér á parti.
Danmörk:
Hvenær verður
Margrét amma?
Hápunktur vetrarins hjá Mar-
gréti Danadrottningu og hennar
fjölskyldu voru hátíðarhöldin
vegna 25 ára valdaafmælis
Margrétar. Ingiríður drottning-
armóðir komst í fréttirnar ný-
lega þegar kviknaði x bílsæti
sem hún sat í. Ingiríði sakaði
ekki en reykjarsvælan var víst
orðin ansi svæsin í bflnum þeg-
ar aðrir farþegar áttuðu sig á
því að það logaði undir drott-
ingarmóðurinni. Nú bíða Danir
helst eftir einhverjum merkjum
í þá átt að erfingi sé á leiðinni
hjá þeim Alex prinsessu og Jóa-
kim prins. Verður mönnum
mjög starsýnt á nettan maga
konunnar og ekki er tekið neitt
mark á orðum ungu hjónanna
um að þau vilji láta barneignir
bíða um sinn.
Mónakó:
Hárleysi var helsta
fréttin
Hárleysi Karólínu prinsessu og
hjónabandsraunir Stefaníu
systur hennar voru helstu frétt-
irnar frá smáríkinu Mónakó í
vetur.
Karólína
bar hár-
leysið með
reisn og
nú núverið
lagði hún
liöfuðföt-
unum
kom þá í
ljós að hún
er komin
með þenn-
an fína
drengja-
koll. Koll-
urinn þyk-
ir klæða
Karólínu
vel (eins
og reyndar
flest annað
sem hún
skrýðist).
Ég skrifaði
nú heilan
pistil um
meint ást-
arsam-
band
Karólínu
og Ernst
prins af
Hanover
sem er for-
ríkur,
harðgiftur
maður.
Enn eru á
kreiki sög-
ur um að
þau séu
meira en
vinir
maðurinn
ferðast
með henni
um þvera
og endi-
langa Evr-
ópu - og
hallast ég
að því að
þarna sé á
ferð mikið
ástar-
drama.
Stefam'a, litla systir Karólínu,
var auðvitað í sjokki eftir að
upp komst um svæsið framhjá-
hald eiginmannsins, Daniel
Ducruet (sem ég nefni ætíð
Du’cruel, eins og þið vitið). Hún
hefur þó lagt sig fram við að
sýnast hress og kát og er fasta-
gestur á síðum blaða sem birta
fréttir af fína og fræga fólkinu. -
Og alltaf er konan á ströndinni,
tattóveruð og vöðvastælt í pínu-
litlu bikiníi. Það er eins og hún
sé eilíflega í fríi, þó að hún reki
fataverslun og veitingastað í
Mónakó.
Eins og fyrri daginn eru bara
engar fréttir af Alberti krón-
prins. Það er greinilegt að hann
er ekkert á leiðinni í hjóna-
bandið þótt Rainer fursti faðir
hans hafi stórar áhyggjur af
þessu áhugaleysi sonarins. (Já,
það er alveg rétt það hafa
gengið sögur um að hann hafi
ekki sérstakan áhuga á kven-
kyninu og myndir af honum í
faðmi fagurra fljóða eru sagðar
ekkert annað en skuespill.)
Spánn:
í lagi á yfirborðinu
Á yfirborðinu virðist allt með
felldu hjá spænsku konungsfjöl-
skyldunni. Það er ekki síst að
þakka Sophiu Spánardrottningu
sem stendur sig með mikilli
prýði og háttvísi í annars frekar
fjörugri fjölskyldu. Það er vel
þekkt leyndarmál að Juan Carl-
os er ekki við eina fjölina felld-
ur í kvennamálum og á það til
að hreinlega hverfa frá opin-
berum skyldum þegar kallið
kemur í þeim efnum. Felipe
krónprins átti spænska kærustu
sem var honum ekki boðleg svo
hann varð að láta hana róa.
Núna er hann með einhverri
bandarískri stúlku en það þykir
nokkuð víst að Felipe, sem er
með bláasta blóðið af öllum í
Evrópu, mun ekki komast upp
með að rækta vinskapinn við þá
bandarísku. Elena prinsessa er
að því er virðist hamingjusam-
lega gift bankamanninum en
enn sjást engin merki um íjölg-
un í fjölskyldunni. Kristína
yngri systir hennar en ennþá
ógift þrátt fyrir öll heppilegu
mannsefnin sem móðir hennar
hefur boðið í hádegisverð.
Noregur og Svíþjóð:
Misheppnuð andlits-
lyfting
llvað getur maður sagt? Marta
og Hákon Noregskonungsbörn
eru bara eins normal og nokkur
konungborinn getur verið.
Hvorugt er á leiðinni í hjúskap
að því er best er vitað. Svíakon-
ungsbörn eru líka stolt foreldra
sinna. Carl Philip var að vísu
staðinn að því kornungur pilt-
urinn að reykja í laumi í skól-
anum. Viktoría er við frönsku-
nám í Frakklandi og er svona
að byrja að þjálfa sig fyrir
drottningarhlutverkið. Af full-
komu miskunnarleysi voru
sagðar fréttir af því að Silvía
drottning hefði farið í andlits-
lyftingu, sem tókst fádæma illa.
Silvía nálgast það óðum að geta
sýnt sitt rótta andlit því örin eru
svo til liætt að sjást.
Að síðustu óska ég ykkur
gleðilegs og ævintýralegs
sumars. Öllum þeim sem hafa
komið með ábendingar varð-
andi efni í þessa pistla sendi ég
bestu kveðjur og þakkir fyrir
áhugann. Svo er ekki úr vegi að
senda kveðjur til Ilrafnhildar
Halldórsdóttur á Rás 2. - Það
hefur verið reglulega notalegt
að vakna við það á laugardags-
morgnum að verið er að lesa
upp úr manns eigin ritsmíðum
á ljósvakanum.