Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Blaðsíða 9
4Da9ur-©tmmn Laugardagur 24. maí 1997 - 21 LIFIP I LANDINU Gísli G. Jónsson er á kafi við að gera bílinn kláran í keppni. Hann hefur nóg af lausu auglýsingaplássi hafi einhver áhuga. Mynd:HÞ Stóð tíl að endurheimta titilinn Gísla G. uantar styrktaraðila. Ef ekkert kemur þá rœður hann ekki við þetta segir hann. Gísli G. Jónsson hampaði bæði íslands- og bikar- meistaratitb fyrir tveimur árum en það gekk ekki eins vel í fyrra, varð hann í öðru sæti í íslandsmeistarakeppninni, næstur á eftir Haraldi Péturs- syni. „Það stóð nú til, já,“ svar- ar Gísli með hægð þegar spurt er hvort eigi að endurheimta titilinn í sumar. „Pað hefur að vísu gengið svolítið illa að selja auglýsingar á bílinn þannig að það er allt óljóst ennþá með það að gera. Ef maður fær ekk- ert á bílinn þá þarf maður eitt- hvað að endurskoða þetta,“ segir hann. Það væri sannarlega sorglegt ef Gísli G. Jónsson yrði að hætta keppni vegna þessa. Hann hef- ur sett mikinn svip á torfæruna undanfarin ár og er einn af okkar bestu torfæruökumönn- um. Gísli G. ók um á Makkanum í fyrra. „Það gerðist eitthvað inn- an dyra hjá þeim. Ég var búinn að fá loforð fyrir öllu því sama og var í fyrra svo var það bara einhvern tíma í febrúar, þá var allt í einu sagt nei. Það kom svolítið flatt upp á mann, mað- ur var ekkert búinn að undir- búa sig undir það.“ Úthaldið kostar sitt, hann segir það reyndar fara alveg eftir því hvnrnig menn reikni það. „Ef menn reikna ekki vinn- una sína þá er þetta kannski einhver milljón kall, svona fljótt á Iitið," og Gísli segist halda að það sé svipað yfir línuna hjá þessum strákum sem eru í toppbaráttunni á annað borð. „En í rauninni kostar þetta mikið meira.“ Hann segist eiginlega ekkert hafa breytt bflnum í vetur. „Ég var að prufa loftpúðafjöðrun að framan, ég veit ekkert hvernig það kemur út.“ Nei, nei, hann er ekkert búinn að æfa sig í vor. Þarf þess ekki. „Ég tók smá rúnt á honum hérna í vetur, bara í snjónum hérna fyrir framan. Keyrði ofan í eina holu, skemmdi dekk og beygði stýris- tjakkinn. Þar með keyrði ég hann bara inn aftur og lagði honum.“ Gísli er ekki stressaður fyrir keppni: „Ég er alltaf rólegur yf- ir þessu þannig, það þýðir ekk- ert annað.“ -ohr Upphafsmaðurinn að grindarbílunum stefnir í slaginn aftur. Arni Kópsson er óumdeild- ur upphafsmaður að gr'indarbflunum sein nú eru orðnir allsráðandi í sérút- búna flokknum í íslensku tor- færunni, en nú eru komin fimni ár síðan hann hætti keppni og það var sannarlega mikill sjón- arsviptir að honum á sínum tíma. Hann var þekktur fyrir mikil tilþrif og það kom ósjald- an fyrir að hann færi þrautir sem enginn annar réði við. „Jú, slæmur," svarar hann aðspurður hvort ekki sé kominn fiðringur í hann nú þegar tor- færan er að byrja. Árni smíðaði tvo grindarbfla á keppnisferlin- um, Heimasæturnar, sem báðar eru ennþá í keppni. Þeim yngri ekur Gunnar Egilsson (Cool) sem lenti í 5. sæti í íslands- Árni Kópsson stundar köfunar- vinnuna í dag en veit fyrir víst að hann á eftir að mæta aftur í slaginn í torfærunni. meistarakeppninni í fyrra og þeim eldri ekur Ásgeir Jamil Allansson (Skutlan) sem lenti í 6. sæti í fyrra. Áður hafði Árni smíðað keppnisbíl í fiokki götu- bfla. Árni segir fiðringinn kannski ekkert sérstaklega vera út af því að torfæran sé að byrja, „þetta er bara búið að vera að ágerast," segir hann. „Ég held það ekki, ég veit það!“ svarar hann ákveðið þegar spurt er hvort hann haldi að hann eigi eftir að koma í slaginn aftur. Hann er ekki byrjaður að smíða bfl en byrjaður að skoða málið. - En hvernig finnst Árna torfæran hafa þróast síð- an hann hætti í slagnum? „Aðalvandamálið sem ég sé er að keppnishaldið mætti þró- ast meira. Það þarf að fara að vinna eitthvað meira í því, gera það meira fagmannlegra.“ Árni segir skipulagið oft hafa verið í lagi en það þurfi að gera meira fyrir innanlandsmarkað. „Það hefur ekkert verið unnið í því,“ segir hann og á þar við bæði auglýsinga- og áhorfenda- markað. -ohr Torfœrukeppmr summins 24. maí Akureyri íslandsmeistari 14. júní Reykjavík íslandsmeistari 5. júlí Egilsstaðir íslandsmeistari 19. júlí Akranes íslandsmeistari 16. ágúst Reykjavík Heimsbikarmeistari 30. ágúst Reykjavík Heimsbikarmeistari 13. september HeUa fslandsmeistari r :------------------\ AKUREYRARBÆR Skólagarðar! Skráning í skólagarða og starfsvelli Akureyrar- bæjar fer fram dagana 21. maí-30. maí, á skrif- stofu Umhverfisldeildar í síma: 462 5600. Starfsemin hefst 9. júní lýkur 28. ágúst og er ætl- uð börnum, fædd árin 1985, 86 og 87. Þátttökugjald er kr. 2.000.- Umhverfisstjóri. Háskólinn á Akureyri Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við Háskólann á Akureyri: Staða dósents í markaðsfræði Kennslu- og rannsóknasvið er markaðsfræði, æski- legt sérsvið markaðsrannsóknir, sölustarf og útflutn- ingsverslun. Til greina kemur að ráða í stöðu lekt- ors. Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild. Staða lektors í rekstrarfræði - gæðastjórnun Kennslu- og rannsóknasvið er rekstrarfræði, æski- legt sérsvið hagnýt notkun gæðastjórnunar í ís- Ienskum iðnaði og þjónustu. Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki- lega skýrslu urn vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar, rannsóknir, kennslustörf, stjórnunarstörf svo og námsferil sinn og önnur störf. Með umsókn- um skulu send eintök af þeirn vísindalegu ritum sem umsækjendur vilja láta taka tillit til. Einnig er nauðsynlegt að í urnsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir eru að sinna og hver eru áform þeirra ef til ráðningar kentur. Ennfremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og heimilisföng minnst tveggja aðila sem leita rná til um meðmæli. Sæki umsækjandi um tvær eða fleiri stöður við Háskól- ann á Akureyri á sama tíma skal hann láta fullnægj- andi gögn fylgja báðum/öllum umsóknum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla- kennara á Akureyri. Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður rekstrardeildar eða rektor háskólans í síma 463 0900. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 10. júní 1997.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.