Dagur - Tíminn Akureyri - 24.05.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 24. maí 1997
JDcigitr-Smtúm
LIFIÐ I LANDINU
Það má búast við
miklum tilþrifum og
fjöri á Greifatorfœr-
unni á Akureyri í
dag. Það verða
smám saman komin
þúsundir drynjandi
hestafla á skóflu-
dekkjum, torfœru-
bílar sem stökkva
upp brekkur
og börð. í tilefni
dagsins heimsótti
Dagur-Tíminn
nokkrar kempur úr
torfœrunni.
Gleðilegt torfæru-
sumar!
Verð að baða mig heima hér eftir
Helgi Schiöth stefnir til himins í keppninni í dag á nýsmíðuðum bíl. Mynd gs.
Sárt að lenda
ur mikilli hæð
Einar Gunnlaugsson er ákveðinn í að
endurheimta fyrri sess í Greifator-
færunni. Mynd: GS
lega,“ fullyrti hann þegar spurt
var hvort hann stefndi ekki hátt
í dag, bæði í sætum og flugi.
„Ég hef nú ekki áhuga á því
að slá metið hans Sigurðar
Axelssonar, það er langt frá
því,“ sagði hann. „Pað er svo
helvíti sárt að lenda úr svona
mikilli hæð,“ segir Helgi, en
hann var þekktur fyrir há stökk
og mikil tilþrif.
„Ég slapp vel,“ segir Helgi
um skemmdir vegna flugferð-
anna á Frissa fríska á sinum
tíma. „Ég hef aftur á móti séð
menn sleppa hálf illa út úr því
eins og Gunna Egils forðum á
Akranesi. llann fór illa.“
„Ég byrjaði í janúar," svarar
hann því hvenær smíði bílsins
hali byrjað. „Ég smíðaði annan
fyrir Éinar Gunnlaugs, þessi er
voðalega líkur honum," sagði
Helgi og bætti svo við glettnis-
lega: „Ég smíðaði prótótýpu
handa Einari og kom svo með
einn fullsmíðaðan handa mér.“
Hann segist vera búinn að fá
góðan styrktaraðila: „Já, Frissa
fríska.“ -ohr
Haraldur Pétursson (lengst til vinstri) Islandsmeistari frá í fyrra er að
verða klár í slaginn. Hann er hér ásamt tveimur af aðstoðarmönnum sín-
Um. Myn&.HP
Að megniim til sami bfll
Ja, svona að verða það,“
svaraði Haraldur Péturs-
son, handhafi íslandsmeist-
aratitilsins, þegar hann var
spurður í vikunni hvort hann
væri að verða klár í slaginn.
„Petta er að megninu til sami
bíll,“ segir Haraldur um bflinn
Einar Gunnlaugs-
son er ákveðinn í
að hampa bikarn-
um eftir daginn í
dag.
Einar Gunnlaugsson hefur
verið í toppslagnum í tor-
færunni undanfarin ár,
hefur hampað ýmsum titlum og
það var um tíma komin hefð á
að hann ynni Greifatorfæruna
en hann vann hana þrjú ár í
röð þar til Haraldur Pétursson
íslandsmeistari náði af honum
toppsætinu í fyrra. Fá le’nti Ein-
ar í öðru sæti á Akureyri en
sumarið skilaði honum í þriðja
sæti í íslandsmeistarakeppn-
inni. „Pvi' verður snúið við
núna,“ segir Einar
ákveðinn.
Einar er
kominn á
nýjan
bfl
sem Helgi Schiöth tók þátt í að
smíða, „já, hann tók að sér
járnsmíðina,“ segir Einar um
þátt Flelga.
„Nei, þetta er allt öðruvísi,"
segir Einar aðspurður hvort
þessi bfll sé svipaður gamla
bflnum. „Þetta er byggt á sama
grunni. Ég er með sömu hás-
ingar, vél og skiptingu og var í
gamla bflnum en bfllinn sjálfur
er allur smíðaður upp á nýtt,
fjöðrun og öll yfirbygging. Hann
er lengri á milli hjóla en gamli
var en boddýið er styttra og
þyngdarhlutföllin eru allt önnur
en í gamla.“
Vélin er aftar og framhásing-
in framar þannig að þyngdar-
hlutföll bflsins eru meira miðju-
læg. Einar átti ekki mikið við
brotna öxla og þvíumlíkt að
stríða.
„Nei, ég er með mjög öflugt dót
þannig. Pað var helst bfllinn
sjálfur sem var að gefa sig,
grind og annar þannig búnaður
sem er búið að bæta úr núna.“
Böðin sem Einar lenti í þegar
hann fór yfir ár og polla á
gamla bflnum voru fræg, hann
hlær dátt þegar spurt er hvort
hann losni við þau: „Já, nú er
engin sturta. Ég verð að baða
mig heima hér eftir.“
Það er búið að fara tvær
prufuferðir á nýja bflnum.
„Þetta lofar góðu. Mér finnst
hann mjög góður en maður sér
það ekki nema stúdera þetta í
samkeppni við aðra. Mann
vantar alvöru brautir og beina
samkeppni til að sjá muninn."
Skelin af gamla bflnum er
annþá til en ekki til sölu. „Nei,
hann er bara minning.“ -ohr
Helgi Schiöth mœtir
galvaskur í slaginn
á nýjum Frissa
fríska og stefnir
hátt.
Þetta er svona sérútbúinn
torfærubfll. Ég get ekki
lýst honum beint, hann er
með fjögur hjól og svona,“ svar-
ar IJelgi þegar spurt er um bfl-
inn nýsmíðaða og gerir með því
góðlátlegt grín að spurning-
unni: „IJvernig bfll er
þetta?“ Helgi er á leiðinni í
slaginn eftir rúmlega árs
frí.
Bfllinn var ekki alveg
klár í slaginn og ekki mikið
búið að prufa hann þegar
rætt var við Ilelga í vikunni.
„Nei, ég ætla nú að prufa hann
á morgun," svaraði Helgi að-
spurður hvort hann ætlaði að
láta duga að prufa bflinn bara í
keppninni sem fram fer í dag.
„Alveg til himins gersam-
en viðurkennir að það sé aðeins
búið að eiga við hann: „Það er
komið nýtt fjöðrunarkerfi, það
eru sérsmíðaðir gormar í hon-
um núna.“ Auk þess er búið að
taka bflinn allan upp og yfirfara
hann.
Haraldur segist vera bara
nokkuð vel stemmdur fyrir
laugardaginn. „Aðeins farinn
að koma fiðringur í mann, þetta
er allt að koma.“ Hann segist
ekkert vera tiltakanlega hrædd-
ur um að Einar nái titlinum aft-
ur. „Ekki svo, ekkert hræddur
kannski. En það getur náttúr-
lega allt gerst.“
Haraldur er búinn að vera í
torfærunni í fjögur ár: „Ég hef
nú ekki viljað telja fyrsta árið
með, það var bara leikaraskap-
ur.“ IJann er búinn að vera á
sama bflnum allan tímann, en
hann leit svolítið öðruvísi út í
byrjun en hann gerir nú. Það
gekk nánast allt upp í fyrra-
sumar og hann sJá^þ að mestu
við bilanir. „Það var einu sinni
sem hann bilaði hjá mér í
þraut, það var stýrisdæla. Það
var það eina sem skemmdi fyrir
mér,“ segir hann.
„Það er nú ansi teygjanlegt,"
svarar hann þegar spurt er að
hvað úthaldið kosti yfir sumar-
ið. „Það fer eftir bilunum en
það er verið að tala um ein-
hverjar eina, tvær milljónir.
Annars er erfitt að skjóta á
svona tölur, maður reynir að
fylgjast sem minnst með því svo
sjokkið verði minna."
Haraldur segist vera kominn
með góða styrktaraðila fyrir
sumarið og ef það bilar ekki
mikið þá hefur hann upp í
kostnað með tekjunum af
styrktaraðilunum. En hann
stendur ekki einn í slagnum:
„Við erum tíu saman í liði og
veitir ekki af, valinn maður í
hverju plássi.“ -ohr