Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Qupperneq 1
4 Eftirminnilega gott BRAGA - íslenskt og ilmandi nýtt Gleðilega páska Fimmtudagur 27. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 60 tbl. Eftirminnilega gott BRAGA íslenskt og ilmandi nýtt Blað SAGA PÁSKA- EGGSINS Allir hafa góða lyst á súkkulaði eggjum um páskana enda er talið að framleidd séu hátt í 300 þúsund páska- egg á hverju ári. Þessi páskaegg eru frá Nóa- Síríusi og blandast þarna saman inni- haldið úr venjulegu eggi og konfekteggi. Einnig eru framleidd súkkulaðiegg hjá Mónu og Góu. Mynd: BG Súkkulaðiegg eiga sér djúpar rœtur í hefð- inni þó að ekki hafi verið farið að framleiða þau fyrr en á fyrstu áratugum þessarar aldar. Allir krakkar hafa góða lyst á páskaeggjum og margir fullorðnir líka. Súkkulaðiegg eru framleidd í tugum tonna á hverju ári og þykja ómissandi á boðstólum um páskana, h'til jafnt sem stór. Talið er að páskaeggjaframleið- endur selji um eitt páskaegg á mann í landinu á hverju ári eða hátt í 300 þúsund stykki. í öll þessi páskaegg fara um 70 tonn af súkkulaði. Það er þó aðeins h'tið brot af sælgætisneyslu árs- ins sem nemur hvorki meira né minna en 3.000-4.000 tonnum. Páskaegg hafa tiltölulega ný- lega unnið sér sess á íslandi enda fóru innílutt páskaegg ekki að fást hér á landi fyrr en á fyrstu áratugum þessarar ald- ar. Innflutt páskaegg fengust í verslunum en urðu ekki algeng fyrr en um og upp úr 1920 og varð þá jafnvel vart við sam- kepppni með verðlækkunum og tilheyrandi. Björnsbakarí varð fyrst til þess að framleiða páskaegg, bæði úr súkkulaði og marsipan, og fylgdu Nói-Síríus og sælgætisgerðin Víkingur fljótt á eftir. - En hvernig skyldi þessi hefð hafa komið til? Bændur greiddu landsdrottn- um sínum skatt á miðöldum og fólst skatturinn gjarnan í eggj- um um páskana. Mikið magn af eggjum gat safnast saman hjá landeigendum og komst því smám saman á sú venja að gefa flmmtung af páskaeggjunum til fátækra. Þannig þróaðist sá sið- ur í öðrum Evrópulöndum að gefa börnum páskaegg. Smám saman var farið að sjúga innihaldið úr eggjum og mála skurn og skreyta og nota til gjafa um páska. A 17. öld fór fólk að gefa skreytt páskaegg og á 18. öld varð léttara yfir skreytingunum og þá fóru einnig hamingjuóskir og ýmis skemmtilegheit á miða að fylgja eggjunum. Miðanum var smeygt inn um smágat á skurn- inni. Á 19. öld fór sælgætisiðnað- urinn í Mið-Evrópu að hagnýta sér páskaeggin og framleiða sætindi í fyrstu egglaga öskj- urnar. Síðar komu súkkulaði- eggin til sögunnar. Páskaegg úr súkkulaði bár- ust til Skandinavíu á 19. öld en á íslandi varð ekki vart við páskaegg fyrr en eftir aldamót, að hluta til vegna þess hversu lítið var um egg hér á landi. -GHS

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.