Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 23
ÍDitgur-®mTOtn
Fimmtudagur 27. mars 1997 - 35
Pétur
Jósefsson
fasteignasali
S
Eg reynl að missa ekki af
fréttum og fréttatengdu
efni í sjónvarpi og ýmiss
fróðleikur er vinsæll hjá mér
eins og t.d. þættirnir „Öldin
okkar“, sem eru góðir því þeir
„Er aðdáandi
ítalskra kvikmynda“
taka mjög trúverðuglega á
markverðum atburðum sem
gerðust fyrr á þessari öld. Ég
hlusta töluvert á Rás 1, t.d.
eru þættir Þrastar Haralds-
sonar, f vikulokin, milli klukk-
an 11 og 12 á laugardögum
mjög góðir og oft tekst Þresti
að halda þáttunum líflegum
og skemmtilegum og komið
að kjarna málsins þegar
íjallað er um það helsta úr
fréttum vikunnar. Stundum
hlusta ég á dægurmálaútvarp
Rásar 2 milli klukkan 4 og 6,
sumt af því efni er gott en
annað miður eins og gengur
og gerist.“
Pétur Jósefsson segist vera
aðdáandi ítalskra kvikmynda
og vilja sjá meira af þeim en
segist gera sér grein fyrir að
kannski sé ekki miJfill mark-
aður fyrir þær eða að margir
séu sama sinnis og hann.
„Það er ansi
einsleit menn-
ingaráhrif sem
við verðum fyrir
frá hinum engil-
saxneska mál-
heimi, enskar og
amerískar kvik-
myndir eru hér
svo yfirgnæfandi
á dagskrám
sjónvarpsstöðv-
anna. Ég vil
gjarnan taka það
fram að ég er
eindreginn
stuðningsmaður
Ríkisútvarpsins
og það þarf að
vera til. T.d. hef-
ur Bretum aldrei
dottið í hug að
leggja niður eða
selja BBC.“
Englendiiigurinn sem fór upp hæðina...
Á skírdag frumsýnir Stöð 2 eina vinsælustu kvikmynd síðari
ára. Myndin heitir Englendingurinn sem fór upp hæðina en
kom niður íjalhð, eða The Englishman Who Went Up a Hill but
Came Down a Mountain. Sögusviðið er smáþorpið Ffynnon
Garw í Wales og árið er 1917 þegar fyrri heimsstyrjöldin stóð
enn yfir. Ensku kortagerðarmennirnir Reginald Anson og Geor-
ge Garrad eru komnir til að mæla stolt íbúanna, fjallið Ffynnon
Garw. Reginald og George komast að þeirri niðurstöðu að ekki
sé um fjall að ræða heldur hæð. Útreikningar félaganna setja
íbúana úr jafnvægi um stundarsakir en stolt heimamanna er
meira en svo að þeir láti slá sig auðveldlega út af laginu. Þeir
grípa því til sinna ráða því fjallið skal ná að standa undir nafni
hvað sem það kostar. Aðalhlutverkið leikur Hugh Grant.
Vestfjarðavíkmgurimi 1996
s
Ikvöld verður sýndur þáttur um aflraunakeppnina Vestijarða-
víkinginn sem haldin var í júlí sl. í fjórða sinn. Keppnin er
haldin á sunnanverðum Vestfjörðum í fögru umhverfi s.s. í
Vatnsfirði og við fossinn Dynjanda. Átta kunnir kraftamenn
kepptu, sjö Islendingar og einn Finni, Ikka Kinnunen. Á meðal
íslensku keppendanna voru Hjalti „Úrsus“ Árnason, Torfi Ólafs-
son og Auðunn Jónsson. Keppnisgreinar Vestijarðavíkingsins
eru sérstakar, svo sem sundlaugargrein Svans í Tálknafirði, þar
sem keppendur rogast með þungar tunnur í sundlauginni.
Sumar greinar eru í ætt við hefðbundnar greinar Hálandaleika í
Skotlandi en þjóðlegust eru líklega steinatök í Örlygshöfn við
Patreksijörð. Þar reyna keppendur sig við kunna aflraunamenn
úr Hvallátrum, Amlóða, Hálfsterkan, Fullsterkan og Alsterkan.
ÚTVARP
SJON VA R P
09.00 Barnaefni
14.30 íþróttaauki.
15.00 Handbolti. Bein útsending frá
leik í undanúrslitum íslandsmótsins.
16.45 Leiöarljós
17.30 Fréttir.
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Stundin okkar.
18.25 Tumi
18.55 Ættaróðaliö
19.50 Veöur.
20.00 Fréttir.
20.30 Fólkiö sem lifir
21.00 Vestfjarðavíkingurinn 1996.
Þáttur um aflraunakeppnina Vest-
fjarðavíkinginn sem haldin varíjúlí
sl. I fjóröa sinn á sunnanverðum
Vestfjörðum.
21.55 Gabb (Schtonk). Þýsk verð-
launamynd frá 1992 um eitt mesta
hneykslismál í Þýskalandi á seinni
árum. Maöur nokkur seldi útgáfufé-
lagi dagbækur Hitlers en seinna
kom í Ijós aö þær voru falsaðar.
23.55 Einkaerfinginn (The Family
Plot). Bandarísk spennumynd frá
1976. Par sem er að leita aö erf-
ingja mikilla eigna rekst á óheiöarleg
hjón og verður þátttakandi í dem-
antaráni og morötilraun. Kvikmynda-
eftirlit ríkisins telur myndina ekki
hæfa áhorfendum yngri en 12 ára.
01.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
11.35 Listaspegill.
12.00 f sjávardjúpum
13.15 Heiða
14.50 Þrír ninjar snúa aftur (3
16.15 Sígild ævintýri.
16.35 Steinþursar.
17.00 Meö afa.
18.00 Páll Rósinkranz á tónleikum.
19.00 19 20.
20.00 Stjörnustríö
20.55 Englendingurinn sem fór upp
hæöina en kom niöur fjalliö (The
Englishman Who Went up a Hill but
Came down a Mountain). Þessi vin-
sæla mynd gerist áriö 1917, á tím-
um fýrri heimsstyrjaldarinnar. Enskir
kortageröarmenn koma í welska
þorpiö Ffynnon Garw til aö mæla
prýði staöarins, fjalliö Ffynnon Garw.
22.40 Föðurland (Fatherland). Rut-
ger Hauer og Miranda Richardsson
fara meö aöalhlutverkin. Stranglega
bönnuö börnum.
00.30 Hold og blóö (e) (Flesh and
Bone). Arlis er maöur sem kvalinn er
af fortíðinni. Hann starfar viö aö
ferðast á milli smábæja og fylla á
vörusjálfsala. Aöalhlutverk: Dennis
Quaid, Meg Ryan og James Caan.
1993. Stranglega bönnuö börnum.
02.35 Dagskrárlok.
17.00 Spítalalíf (MASH).
17.30 íþróttaviöburðir í Asíu (Asian
sport show). íþróttaþáttur þar sem
sýnt er frá fjölmörgum íþróttagrein-
um.
18.00 Körfubolti um víöa veröld
(Rba Slam 2).
18.30 Meistarakeppni Evrópu.
19.15 ítalski boltinn.
21.00 Flugásar 2 (Hot Shots! Part
Deux). Léttgeggjuö gamanmynd fyrir
fólk á flestum aldri! Kappinn Topper
Harley er mættur til starfa enn á ný
en garpurinn sá lætur sér fátt fyrir
brjósti brenna. 1 myndinni í kvöld
getur bókstaflega allt gerst! Leik-
stjóri er Jim Abrahams.
Aöalhlutverk: Richard Crenna og
hinn óborganlega Rowan Atkinson,
oftast þekktur undir nafninu Mr.
Bean. 1993. Bönnuö börnum.
22.25 Lögreglan fyrir réttl (e) (One
of Her Own). Sannsöguleg saka-
málamynd. Toni Stroud er nýbyrjuð í
lögreglunni þegar einn vinnufélaga
hennar nauögar henni. Leikstjóri:
Armand Mastroianni. Aöalhlutverk:
Martin Sheen og Lori Loughlin.
1994. Bönnuö börnum.
23.50 Spítalalíf (e) (MASH).
00.15 Dagskrárlok.
9.00 Fréttir. 9.03 „Ég man þá tíö“.
10.00 Fréttir. 10.03 Veöurfregnir.
10.15 Snilld Leonardos. 11.00
Guösþjónusta í Dómkirkjunn! í
Reykjavík. Séra Hjalti Guömundsson
prédikar. 12.10 Dagskrá skírdags.
12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veöur-
fregnir og auglýsingar. 13.00 Út-
varpsteikhúsið. Allt hefur sinn tíma
eftir Andrés Indriöason. 14.30 Miö-
degistónar. 15.00 Ný tónlistarhljóö-
rit Ríkisútvarpsins. 16.00 Fréttir.
16.05 Þjóömál og þjóösögur. 17.00
Tónlist á síödegi. 18.00 Lögstígur.
18.30 A B C D. 18.45 Ljóö dagslns
endurflutt frá morgni. 18.48 Dánar-
fregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöld-
fréttir. 19.20 Tónlist. 19.30 Veður-
fregnir. 19.50 Söngfuglarnir Rómeó
og Júlía. Smásaga eftir Harald Jó-
hannsson. Helga Bachman les.
19.48 Ástarsöngvar frá dögum Róm-
eós og Júlíu. 20.00 Tónlistarkvöld í
dymbilviku. 21.20 Tónlist á síö-
kvöldi. 22.00 Fréttir. 22.10 Veöur-
fregnir. 22.15 Orö kvöldsins Valgerö-
ur Valgarðsdóttir flytur. 22.20 Er yfir
hrundi askan dimm. 23.10
Andrarímur. Þáttur Guömundur Andra
Thorssonar. 24.00 Fréttir.
Arg!
Rýnir hrökk við um daginn
þegar leitarinn á útvarps-
tarkinu stöðvaðist við fréttatíma
á FM 95.7. í fyrstu taldi hann
náttúrulega að þarna væri um
að ræða fréttir af barneignum
og giftingum fræga fólksins en
þegar reynt var að losa sig úr
leiðslu trommuheilans sem sló
af stakri reglusemi undir öllum
innskotum fréttamanns kom f
ljós að þarna voru fréttir af
samningaviðræðum vinnuveit-
enda og Dagsbrúnar-Fram-
sóknar... Og svo veit rýnir ekki
meir því heilinn datt út og fót-
urinn í - takt aftur við tromm-
una.
Itíkissjónvarpsfréttir gera
rýni stundum verulega argan.
Reglulega koma fróttir þar sem
fréttamenn hafa ekki gert
nokkra tilraun til afrugla óskilj-
anlegt reglugerðarmálið eða
skýra um hvað málið snýst (en
sem betur fer á fréttastofan
fréttamann eins og t.d. Helga
H. Jónsson). Fitt lítið dæmi:
Fyrir skömrnu var viðtal við Fi-
rík Jónsson formann KÍ vegna
samninga kennara við sveitar-
félögin. Farin var ný leið, sagði
Eiríkur. Hvaða nýja leið?
Þá gerir valið rýni ekki síður
argan. T.d. væri áhugavert að
vita hversu oft dýrmætum tíma
sjónvarpsfréttanna hefur verið
eytt í að „upplýsa“ áhorfendur
um að Jeltsín hafi ekki áhuga á
að Nató stækki til austurs
(ágiskun: 3-5 sinnum í viku síð-
ustu 2-4 mánuði). Þó að Jeltsín
hafi verið bjargað frá líkbörun-
um að sinni þá hlýtur fjanda-
kornið að vera hreyfing á fleiru
en talfærum Jeltsíns í heimin-
um.
Svo má bæta því við að rýni
þykir orðið stöðugleiki ótækt
um skip. Davíð og kompaní
hafa misþyrmt þessu orði svo
illilega undanfarin ár að sálar-
lífið fer hreinlega á flot þegar
farið er að tala um stöðugleika
og skip í sömu andránni. Jafn-
vægi er prýðisorð.
Gleðilega páska!
BYLGJAN
09.05 Hressandi morgunþáttur
meö Valdísi. Fréttir kl. 10.00 og
11.00. 12.00 Hádegisfréttir frá
fréttastofu Stöövar 2 og Bylgjunn-
ar. 12.10 Gullmolar Byigjunnar í há-
deginu. 13.00 íþróttafréttir. 13.10
Gulli Helga. Fréttir kl. 14.00, 15.00
og 16.00. 16.00 Þjóöbrautin. Fréttir
kl. 17.00. 18.00 Gullmolar. 19 20.
Samtengdar fréttir Stöðvar 2 og
Bylgjunnar. 20.00 íslenski listinn.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
RÁS 2
9.00 Fréttir. 9.03 Skíöavaktin.
10.00 Fréttlr. Skíöavaktin. 12.20
Hádegisfréttir. 13.00 Spurninga-
keppni fjölmiölanna. 14.00 Minn-
ing um Svavar og Ellý. 16.00 Frétt-
ir. 16.05 Fyrir 20 árum. 17.00 Úr
egginu. Siðir og venjur á páskum.
19.00 Kvöldfréttir. Kvöldtónar.
19.55 íþróttarásin. Fjögurra liða úr-
slit í handbolta. 22.00 Fréttir.
22.10 Spurningakeppni fjölmiöl-
anna. 23.10 Kvöldtónar. 24.00
Fréttir. LANDSHLUTAÚTVARP Á
RÁS 2. Útvarp Noröurlands 11.00-
12.20. Svæöisútvarp Vestfjaröa.
Skíöapáskar 17.00-19.00.