Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 6
18 - Fimmtudagur 27. mars 1997 4Dagur-(IItmnm FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Staða sérfræðings í lyfiækn- ingum og hjartasjúkdómum Laus er til umsóknar staða lyflæknis með undirgrein í hjartasjúkdómum við lyflækningadeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. Umsækjandi skal hafa full- gild réttindi í lyflækningum og hjartalækningum. Æski- legt er að umsækjandi hafi reynslu í öllum hefðbundn- um störfum hjartasérfræðings, sérstaklega hjarta- ómskoðunum og gangráðsísetningum. Auk þess skal umsækjandi hafa góða reynslu í almennum lyflækning- um. Starfinu fylgir vaktaskylda á lyflækningadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknarvinnu. Um- sóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsókn- ir og ritstörf, auk kennslustarfa. Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt meðfylgjandi gögnum, skulu berast í tvíriti fyrir 1. maí 1997 til Halldórs Jónssonar, framkvæmdastjóra FSA. Nánari upplýsingar gefur Björn Guðbjörnsson, yfir- læknir lyflækningadeildar í síma 463 0100. Faxnúmer 462 4621. Öllum umsóknum um starfið verður svarað. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri - reyklaus vinnustaður - Opinn fýrirlestur Laugardaginn 29. mars nk. mun dr. Unnsteinn Stefánsson halda opinn fyrirlestur við Háskól- ann á Akureyri. Hefst fyrirlesturinn kl. 14 og verður í húsnæði háskólans við Þingvallastræti í stofu 16, fyrstu hæð. í fyrirlestrinum sem Unnsteinn nefnir; Hafið umhverfis ísland, mun hann fjalla um ástand sjávar á íslenskum hafsvæðum og lýsa helstu sjógerðum og ráðandi straumakerfum. Greint verður frá árstíða- og langtímabreytingum og áhrifum mismunandi veðurskilyrða á þessar breytingar. Þá mun Unnsteinn skýra frá niður- stöðum nýlegra rannsókna á næringarskilyrðum og frjósemi íslenskra hafsvæða í tengslum við lóðrétta blöndun. Unnsteinn Stefánsson lauk meistaraprófi í efna- fræði frá Wisconsinháskóla 1946. Hann lagði stund á haffræði næstu ár og varði doktorsrit- gerð um hafið norðan íslands, við Kaupmanna- hafnarháskóla árið 1962. Unnsteinn hefur starfað við rannsóknir við ýmsa háskóla vestan- hafs og starfað sem sérfræðingur í hafrannsókn- um við Menningar- og fræðslustofnun Samein- uðu þjóðanna. Hann var skipaður prófessor í haffræði við Háskóla íslands árið 1975. Unn- steinn hefur skrifað þrjár bækur á íslensku og eftir hann hefur birst fjöldi greina og ritgerða um haffræði í alþjóðlegum tímaritum. Hann dvelst nú við ritstörf í Davíðshúsi. Fyrirlesturinn er öllum opinn. yUMFERÐAR RÁÐ MENNING O G LISTIR Kannt þii að gera snjókarl? Alaugardaginn verður haldin keppni í snjó- karla eða snjókerl- ingagerð á vegum Hóla- vatns, sumarbúða KFUM og K, og Dags-Tímans. Allir hressir krakkar á aldrinum 7-12 ára eru hvattir til að mæta og sýna snilld sína en keppendur fá fjörutíu mín- útur til að ljúka við snjó- karlinn eða snjókerlinguna sína. Keppt verður í Iiðum og eru tveir eða þrír saman í liði. Alltaf einn flottastur? Þá er bara að mæta á stað- inn en keppnin er haldin austan við gömlu verksmiðj- urnar við gatnamót Glerár- götu og Dalsbrautar (þar sem húsgagnaverslunin Öndvegi var áður til húsa). Skráning er á milli klukkan 13:00 og 13:45. Keppni hefst klukkan 14:00. Klukkan 15:00 er ætlunin að fara í nokkra leiki á meðan dómnefnd sker úr um hvaða snjókarl er flott- astur. Klukkan 15:30 er síðan komið að verðlaunaafliend- ingu. Vegleg verðlaun eru í boði eða Stiga-stýrisleðar og línuskautar í boði Sport- vers og bækur frá bókaút- gáfunni Salt í boði Hóla- vatns. Mætum öll hress og kát á laugardaginn. Passía Krists á fóstunni Hœgt er að kíkja inn í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa og njóta þess að hlusta á Passíusálm- ana flutta af kunn- áttufólki í hátíðlegri kirkjunni. Upplestur Passíusálmanna er orðinn að árvissum viðburði í Hallgríms- kirkju. Lesturinn hefst kl. 13.30 og búist er við að hann standi Upp, upp mín sál og allt mitt geð, upp mitt hjarta og rómur með, hugur og tunga hjálpi til, herrans pínu ég minnast vil... Innra mig loksins angrið sker, œ, hvað er lítil rœkt í mér, Jesús er kvalinn í minn stað, of sjaldan hef ég minnzt á það... Hvað stillir betur hjartans böl en heilög drottins pína’ og kvöl? Hvað heftir framar hneyksli og synd en herrans Jesú blóðug mynd? til um 18.30. Ingibjörg Haralds- dóttir hefur umsjón með lestr- inum en auk hennar lesa Silja Aðalsteinsdóttir og Þorleifur Hauksson. Passíusálmar Hallgríms Pét- urssonar komu út árið 1666, ekki í síðasta sinn því útgáfurn- ar eru komnar á sjöunda tug- inn. Flokkurinn er í 50 sálmum sem skiptast í 5 þætti. Fyrsti þátturinn gerist í grasagarðin- um, annar er um dómsrann- sókn Kaífa og Pílató, þriðji um fullnustu dómsins, fjórði er orð Krists á krossinum og sá fimmti segir frá andláti Krists og greftrun.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.