Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.03.1997, Blaðsíða 4
16 - Fimmtudagur 27. mars 1997 ^tgur-íömmrt UMBÚÐALAUST Páskafrí Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar Kannski er það ellin - eða ef til vill eitthvað allt annað - sem veldur því að páskarnir verða mér sífellt kærari. Það er samt örugglega ellin, eða á maður ef til vill frekar að segja þroskinn, sem veldur því að ég verð sífellt íhaldssamari á mngjörð páskanna. Með því á ég ekki við hina trúarlegu umgjörð, heldur að þetta er síðasta vígi hátíða sem ekki er orðið neysluhyggj- unni algerlega að bráð. Að vísu fléttast fermingar og vitleysan í kringum þær inn í páskana, en páskarnir sjálfir hafa fengið ótrúlegan frið fyrir kaupahéðn- um, nema náttúrlega páskaegg- in, en sem betur fer er það tak- mörkum háð hve miklu súkku- laði menn geta torgað á skömmum tíma svo Qölskyldu- gjaldþrot eru ólíkieg þeirra vegna. Menn gera yfirleitt betur við sig í mat og drykk, en eru lausir undan oki jólahreingern- inga, -baksturs, -gjafa, -boða og alls hins sem getur gert menn óða í svartasta skammdeginu. Lokun veitingastaða hefur alltaf farið fyrir brjóstið á einhverjum, en mér finnst eins og sá söngur sé lágværari en áður. Frekar er reynt að gera út á rólegheitin samanber kyrrð- ardaga í Skálholti og hreinsun sálar og líkama samanber páskaföstu í Lundi í Öxarfirði. Píslarsaga skemmtanafíkla í mínum huga er ekki spurning um að kyrrð páskanna og fá- breytt framboð afþreyingar yfir hátíðina er nútíma fólki nauð- synleg. Menn hreinlega neyðast til að hafa ofan af fyrir sér sjálf- ir. Páskahátíðin reynir nefni- lega á hugmyndaflug manna við að láta tímann líða. Skíða- áhugafólk, hestamenn og áhugamenn um sígilda tónlist sleppa reyndar dálítið ódýrt frá atburðaleysinu, en þetta er jú í flestum tilfellum heilnæm iðja og varla hægt að amast við slíku. Þeir sem hins vegar þjást mest þessa helgi - svo jafna má píslum þeirra við inntak páskanna sjálfra - eru skemmt- anafíklarnir. Veitingamennirnir harma líka hlutinn sinn og hafa stundum látið í sér heyra til að fá reglum breytt og tekist það að vissu leyti, samanber djammið sem hefst eftir mið- nætti föstudagsins langa. Hin nývaknaða reynsla Það er góð regla að líta ekki á takmarkaða möguleika til skemmtana sem hindrun held- ur sem tækifæri til að gera eitt- hvað nýtt. Þannig er sunnu- dagsmorgunn án timburmanna fersk reynsla helgarfyllibytt- unni og þeim sem sækir félags- skap stöðugt út fyrir heimilið er hátíðin tækifæri til að bjóða vin- um og kunningjum í heimsókn. Maður er manns gaman og möguleikar okkar til að hafa ánægju hvert af öðru undir öðr- um kringumstæðum og for- merkjum eru takamarkalitlir. Leiði er ævinlega skortur á hugmyndaflugi, hvort sem mað- ur er einn eða með öðrum. Það að bijóta upp venjubundið mynstur getur opnað fólki nýja sýn á lífið og tflveruna. Þess vegna er mikilvægt að Þannig er sunnu- dagsmorgunn án timburmanna fersk reynsla helgar- fyllibyttunni og þeim sem sœkir félagsskap stöðugt út fyrir heimilið er hátíðin tœkifœri til að bjóða vinum og kunningjum í heimsókn. halda páskunum hreinum ef svo má að orði komast. Þeir eru tækifæri til að lifa lífinu öðruvísi en venjulega, hvort sem í því felst aukið félagslíf eða nægju- söm einvera. Hitnar undir bankaráðsformanni eru Arsfundur Seðlabank- ans er nú afstaðinn og þar með er lokið mestu „jakkalakka" sam- komu þessa árs. Formaður bankastjórnar las þjóðinni og ráða- mönnum pistilinn um verðbólgu- horfur og afkomu við- skiptabank- anna sem enn eru að leggja stórfé inn á af- skriftareikn- inga. Bankastjórarnir greinilega ekki nógu dug- legir að draga fram ömmur lánþega og taka veð í íbúð- unum þeirra. Spurning hvort ekki þurfi að fá fleiri menn í verkið og íjölga bankastjórunum. í það minnsta að láta þá fá nokkra aðstoðarbankastjóra hvern. Flokksgæðingar En það sem vakti þó mesta athygli á ársfundinum var afkoma Seðlabankans sjálfs, þessarar þjóðhagslega mik- ilvægu stofnunar. í fyrra hafði hagnaðurinn minnkað niður í 400 millur en hafði verið 800 millur árið áður. Þetta telja spekingar slæm tíðindi og leita að sjálfsögðu skýringa. Garra er kunnugt um að fjölmargir gæðingar stjórnmálaflokkanna telja sig kunna að reka Seðla- bankann og þeir hinir sömu hafa því verið að benda á að orsök versnandi afkomu megi ugglaust rekja til slæmrar stjórnunar. Sjálfir segjast þessir flokksgæðingar myndu geta rekið bankann með betri út- komu, en þeir hafa þó yfir- leitt hlíft bankastjórninni sjálfri, enda ljóst að ekki verður skipt um banka- stjóra alveg á næstunni. En þeir benda á ábyrgð banka- ráðsins og bankaráðsstólar eru jú laus- ari í hendi en banka- stjórastólar. Eðli málsins samkvæmt er því farið að hitna undir bankaráðs- formannin- um í seðla- bankanum, ekki síst þegar í ljós kemur að hann er krati sem komst á spenann í tíð síðustu stjórnar. Þessi bankaráðsformaður er Þröstur Ólafsson, sem nú má búa við nagandi gagn- rýni músanna. Seðlabankinn næstur? Og sagan hjálpar ekki þessu kjörbarni Alþýðuflokksins því skyndilega hefur nafni KRON skotið upp í umræð- unni, og Miklagarðs, og Máls og menningar, og Al- þýðublaðsins o.s.frv. o.s.frv. Mýsnar spyrja nú hver um aðra þvera: Er Seðlabank- inn næstur? Garri veit það jafn vel og Þröstur að hann ber ekki einn ábyrgð á þessum stór- sögulegu fj á r m á 1 a e r fi ð 1 ei k - um. Hins vegar varðar eng- an um það þegar formanns- sæti í bankaráði Seðlabank- ans er annars vegar. Hún er kyndug tík þessi pólitík - það er gömul saga og ný. Grímur orðað þetta einmitt ágætlega á sínum tíma: „Kalinn á hjarta þaðan slapp ég.“ Garri.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.