Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Side 2
14 - Laugardagur 12. apríl 1997
|Dagur-'35ttróm
Barnahornið
Nú er helgin loksins runnin upp og
vonandi viðrar vel fyrir fjölskyldur
sem eru duglegar að nota tímann
saman. Það er alltaf upplagt að nota helg-
arnar í útiveru, teygja úr skrokknum og
njóta birtu og sólar. Nú eru síðustu forvöð
að fara á skíði og svo er ýmislegt hægt að
dunda sér annað því að bíóhúsin og leik-
húsin standa alltaf fyrir sínu, sundstaðirnir
eru opnir og svo er stutt út í guðsgræna
náttúruna.
Lína sýnd á Akureyri
Lína langsokkur eftir sænska rithöfundinn
Astrid Lindgren verður á dagskránni
klukkan 11 á laugardaginn á Bjargi við
Bugðusíðu, gengið inn niðri. Rithöfundur-
inn sem skrifaði Línu verður fyrst kynntur
stuttlega og svo verður myndin sýnd og
tekur dagskráin í heildina um einn klukku-
tíma. Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Barnatónleikar
í Ráðhúsinu
Flestir krakkar hafa gaman af tónlist enda
mörg hver að læra á hljóðfæri, píanó, selló
eða læra að syngja. Tónlistarskóli fslenska
Suzukisambandsins verður með tónleika í
Ráðhúsinu um helgina og eru það nemend-
urnir sem koma fram. Fyrstu tónleikarnir
verða klukkan 14 á sunnudaginn og standa
þeir yfir í 45 mínútur. Síðan er hlé og verð-
ur svo byrjað aftur klukkan 15.15. Þarna
er kjörið tækifæri fyrir börnin að fylgjast
með öðrum börnum koma fram.
Egner á Vesturlandi
Krakkar á Vesturlandi geta kæst því að
Leikfélag Hafnarijarðar leggur land undir
fót um helgina og sýnir í félagsheimiii
Stykkishólms atriði úr barnaleikritum
Thorbjörns Egners, til dæmis Karíus og
Baktus, Dýrin í Hálsaskógi og Karde-
mommubærinn. Leikararnir eru á öllum
aldri og er miðaverð krónur 600.
...og á Húsavík
Leikféiagið á Húsavík heldur áfram sýning-
um sínum á Kardemommubænum um
helgina. Sýnt verður bæði í dag og á morg-
un og hcfjast sýningar klukkan 15.
Hátíð fyrir bókaorma
I Ráðhúsi Reykjavíkur verður svo í dag
barnabókahátíð og verður þar lesið upp úr
bókum fyrir áheyrendur á öllum aldri. Rit-
höfundarnir Herdís Egilsdóttir, Árni Árna-
son og Guðrún Helgadóttir lesa upp úr
bókum sínum, Maggi Scheving, goð alira
krakka, mætir líka og svo verður Möguleik-
húsið með nokkur leikatriði.
Teiknimyndir í Norræna
Þrjár teiknimyndir byggðar á þekktum
sænskum barnabókum verða sýndar í Nor-
ræna húsinu á morgun kl. 14. Myndirnar
eru með sænsku tah og því ættu þau ljöl-
mörgu börn sem hafa þurft að fylgja for-
eldrum sínum til Svíaríkis vegna náms eða
atvinnu að geta horft sér til ánægju á: „Ur
en kos dagbok“, „Mannen som tankte med
hatten“ og „Bella och Gustav - om en liten
vecka". Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis að venju.
Dagur-Tíminn skorar á þá sem eru með
eitthvað á prjónunum fyrir börn um helgar og
í miðri viku að koma því á framfæri í faxnúm-
er 460 6171. Börn og foreldrar þeirra verða
að frétta af því sem er að gcrast til að geta
tekið þátt!
Afinælisbam dagsins:
Völsungur 70 ára í dag
Sjötugur er í dag heiðursöldungurinn
Völsungur. íþróttafélagið Völsungur
var stofnað 12. apríl 1927 af 27
ungum drengjum á Húsavík á aldrinum
10-14 ára. 12 þeirra eru enn á lxfi.
Fyrsta stjórn félagsins var skipuð þeim
Jakobi V. Hafstein, sem var formaður,
Jóni Bjarklind, Jóhanni Hafstein, Ilelga
Kristjánssyni, Ásbirni Benediktssyni og
Benedikt Bjarklind.
Völsungur er auðvitað síungur þrátt
fyrir 70 árin, sem hafa auðvitað verið
viðburðarík. Fjölmargir Völsungar hafa
náð langt í hinum ýmsu greinum íþrótta
og tekið þátt í landsleikjum og keppt fyr-
ir íslands hönd á Olympíuleikjum og víð-
ar. Sennilega eru þekktustu „gömlu“
Völsungarnir þeir Ásmundur Bjarnason
hlaupari og olympíufari og Arnór Guð-
johnsen knattspyrnukappi sem enn er
að. (Og svo skemmtilega vill til að sá er
þetta ritar var fyrsti þjálfari Arnórs í
knattspyrnu, en óþarfi að minnast nokk-
uð á það enda eiga blaðamenn ekki að
vera ota sínum persónulega tota í frétta-
skrifum).
Ingólfur Freysson er formaður Völs-
ungs og fetar þar í fótspor föður síns,
Ilallmars Freys Bjarnasonar, sem var
formaður félagsins en hann lést fyrir
nokkrum árum.
Að sögn Ingólfs verður haldið upp á
afmælið í dag með eftirminnilegum
hætti. Bæjarbúum og öllum velunnurum
Ingólfur Freysson, formaður Völsungs.
félagsins er boðið á hátíðarsamkomu í
íþróttahöllinni kl. 14 og þar verður m.a.
á boðstólnum stóreflis afmælisterta. Kl.
17 er síðan kaffisamsæti fyrir sérstaka
boðsgesti í Miðhvammi. js
Dansandi kindur
ogjólasveinar
Nærfatasýning aldarinnar verður í
flugskýli Flugleiða á Keflavíkur-
flugvelli í kvöld þegar bandaríska
undirfatafyrirtækið Joe Boxer sýnir
haustlínuna í kven- og karlmannanær-
fatnaði. Félagarnir Nicholas Graham,
stjómarformaður Joe Boxer, og Sigurjón
Sighvatsson bjóða til veislu „til heiðurs
fslandi" í tengslum við sýninguna. Fyrst
er kvöldverður af fínasta tagi fyrir um
150-180 manns og eru það blaða- og
fréttamenn frá öllum stærstu fjölmiðlum
Ameríku sem koma. Eftir kvöldverðinn
bætast svo aðrir 150 við og þá hefst sjálf
tískusýningin. Boðskortin hafa þegar
verið send út og eru hátíðleg í meira
lagi. Þarna er sko greinilega ekkert fisk-
verkafólk á ferðinni.
Allir helstu skemmtikraftar fslend-
inga munu troða upp fyrir bandarísku
gestina. Páll Óskar flytur Evróvisjónlagið
sitt, Botnleðja kemur fram og að sjálf-
sögðu nýjustu stjörnurnar, Gus Gus. Á
dagskránni er líka ýmislegt í meira lagi
óvænt, dansandi kindur og svo munu
nokkrir rauðklæddir jólasveinar falla of-
an úr himninum um hálfáttaleytið í
kvöld - að sjálfsögðu rammlega festir við
fallhlífar. Að undanförnu hafa menn ver-
ið að vinna í ílugskýli Flugleiða við að
koma borðum fyrir því að veisluborð
mimu svigna undan krásunum. Og síðla
kvöldsins mun tískusýningarfólk ganga
um á nærklæðum einum saman.
Nick Graham segir að fjallað verði um
tískusýninguna á næstunni í Ijölmörgum
ijölmiðlum erlendis enda standi vonir til
að vekja athygli um 100 milljóna manna.
-GHS
Himdsýning
Hundaræktarfélag íslands er með
ræktunarsýningu nú um helgina í
Reiðhöll Gusts í Kópavogi og verður þá
forvitnilegt að sjá úrval landsins. 36
hundategundir verða dæmdar á þessari
sýningu, þar af nokkrar tegundir sem
ekki hafa sést áður á sýningum félags-
ins.
Sýningin hefst klukkan 11 fyrir há-
degi báða dagana. í dag fer einnig fram
keppni ungra sýnenda en nú taka um 30
börn og unglingar þátt. Úrslit eru svo
áætluð rétt upp úr fjögur á morgun.
Dómarar eru Marlo Hjernquist og
Gunilla Fristedt sem bæði koma frá Sví-
þjóð.
Leiðrétt nafn
f myndatexta og frétt í blaðinu í fyrra-
dag var farið rangt með nafn Erlu Fann-
dal Birkisdóttur úr Mývatnssveit, sem
hjólaði kringum landið árið 1991. Erla
var sögð heita Erla Fanney í stað Erla
Fanndal. Við biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum.
C4VAUOAN - ROURE
-'Polaroid
SE*"
bsbed
•C'srrj&us/i
trsu/
ý/syts /o asi /won/stý/ 4» Aststoo o^
'/ýtysssi/ep of&eoéZrsiti/
trsts/a yrce/a///ee4rst/a//s?st /y^íí*
JOE BOXER f/tr// /íí?7
1o cdehr»rcJOF. BOXFJ?’* f.mr-ewi inrcmanonjl runway rhowin lcrtjiKÍ. an
enorc crcning of lcciandic talent vriH he femrru) nn dic runwayf
Enicruinmcnt provided by I’all Oskar, Botnleðjj («Jt.a.Silc)
nnd Cus Cuí DJ '* A. Morc and 1 lerb Lcgnwit/.
Special roonkal gucst appearanre*! Dancing shecp and morc!
Samrday, April 12, IW7
Uoors •ftn to the |xiblic at 9:30 pm
Sbow stirt lirne 10:00 pui
- Limital Spaoe -
- SRO -
lcclandair Dwncsbc Airrraft I langer at Reyltjavik Auport, Kcykjavflc
rVis cvcfiing has bcen produccd by Saga Frlus
SpnuiTtd bjr.
^l/eAo/rs.i \(ren/(t7sj<
usu/
S/ýHég/óst S/pÁsfts/Lism
eosv/sa/ífr isí/hí/« yrtu /o us> eotsusiy tst Aostos' Cj/
//tyttsf/sys ej/'&ce/asu/
^//osA/trs/i. r/cststss asts/« ytss./sr//issArst/u//rHr ej//Áe>
JOE BOKER . /Sé/é7 rw^vfe/i .
'tö celebrateJOE BOXEK’s fim-cvrr intcrnanoml nuiway vbow in lccland, an
entire evcnmg of Icclandir talent wiU be fcatured on the nmway!
Friteminrocnr from thc United Statet:
Thc cjst of thc Broadway hú rouskal 'Cllitaigo’
'Jitpttiinnien
U Osltar, Bub
raent from lcciand:
r, Botnlc»ja(a.k.a^íll) •>
and Oua Goa DJ.'a A. Aíorc and Hcri Legowitt.
Special inusical guest apptarances! Dancing shcep and more!
Saturday, April 12, (997
7,-OOptr
Icelandair Dornestic Aircraft i hngcr at Kcyiqank Airport, Reykjavtk
Pleasc rrvp by Apnl V tt> 3S4-569-9300
This evenitig has bccn ptoduccd hy Siga FiLits
Spamoicd byt
mfi> Mcwuofr vPoíoroÉd rr
GIVAUDAN-ROUDF
I iHta!
frli
Boðskortið er ekkert slor...