Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 24
24 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. Vantaöi staö þar sem boöiö er upp á alla fegrunaraöstoö — segja Jjórmenningarnir sem opnað hafa Salon Ritz — fegrunar- miðstöð við Laugaveginn ,,Það var alllaf gamall draumur hjá okkur (regar við vorum á Loft- leiðum að setja upp stofu þar sem viðskiptavinurinn gæti fengið alla þjónustu á einum stað og þá l'yrir sanngjarnt verð,” sagði Guðjón Þór Guðjónsson rakari sem nýlcga opn- aði hárgreiðslu-rakara-snyrtistofu að Laugavegi 66 ásamt Jóni Stefni, Guðrúnu Þorbjarnardóttur og Sig- ríði Lvsteinsdóttur. En alls vinna átta manns á stofunni. „Við bjóðum upp á allt sem boðið er upp á á rakara- og hárgreiðslu- •stol'um. Auk þess sem við erum með snyrtistofu bjóðum við ljósaböð og vantsnudd," sagði Guðjón ennfremur. Bæði Guðjón og Jón voru áður rakarar á Hótel Loft- leiðum en nú hefur sú stofa verið lögð niður. „Okkur fannst vanta stofu þar sem allt þetta væri að fá en hugmyndin er kotnin erlendis frá þar sem mikið er um stofur setn reknar eru með þessum hætti. Það má kannski kalla þetta fegrunarmiðstöð,” sagði Guðjón. Þeir félagar Jón og Guðjón höfðu ákveðið að láta þennan draum rætast fyrir einu ári siðan en þá bauðst þeim húsnæðið að Laugavegi 66. ,,Það varð siðan aldrei neilt úr því, þannig að þetta fyrirtæki datt upp fyrir i heilt ár. Við fengum húsnæðið síðan mjög skyndilega 15. október og fölk vorum ákveðin í að opna síðasta laugardag. Til þess að það yrði hægt var unnið hér dag og nótt t.d. frá kl. 7 um morguninn sl. föstudag til kl. 6 á laugardag, sleitulaust, en þá hófst hér hjá okkur reisugillið,” sagði Guðjón ennfremur. Stofuna kalla þau Salon Ritz. Hvers vegna? „Það er ekki vegna þess að við séum á móti islenzku nafni heldur einnig vegna þess að þetta nafn kom alltaf upp þegar við vorum að velta nafninu fyrir okkur,” sagði Guðjón Þór. -ELA. Andrés Sigurðsson starfar á skrrfstofunni hjá Vörumarkaðnum auk þess sem hann starfar með JC hreyfingunni. DB-mynd Kristján úrn. Hún prjónar jólasveina: Byrjaöi á þessu fyrir bamabömin „Ég byrjaði á þessu þegar barna- börnin fæddust. í staðinn fyrir að prjóna hosur eða peysur sem svo margir gerðu bjó ég til litla karla og síðan jólasveina um jólin. Karlarnir vöktu mikla hrifningu og svo fór að íslenzkur heimilisiðnaður sýndi þeim einnig áhuga,” sagði Guðrún Sigur- jónsdóttir húsmóðir og amma sem notar llestar sinar frístundir til að prjóna litla karla og jólasveina, sem síðan prýöa heimili og gleðja börn bæði hér á landi og erlendis. „Ullendingar sem komið hafa inn i verzlun heimilisiðnaðarins hafa sýnt þessum brúðum mikinn áhuga, þannig að salan er ekki einungis fyrir jólin,” sagði Guðrún. Ekki sagðist hún vita hvað karlarnir hennar væru orðnir margir en ekkert stoppa þeir við. „Ég sit ekki við þetta,” segir hún, „grip í prjónana þegar ég hef ekkert að gera. Það er mikið puð að troða inn i karlana. Eiginlega finnst mér það leiðinlegast við þetta,” sagði hún Guðrún sagðist alltaf hafa prjónað hosur og vettlinga hér áður fyrr en ekkert meira en það. „Ég fann þesssa prjónakarla upp hjá mér og gerði þetta í fyrstu aðeins að gamni minu fyrir barnabörnin. Síðan komu kunn- ingjarnir á eftir og þannig hefur þetta þróazt,” sagði Guðrún Sigurjóns- dóttir. Nú þegar líða tekur að jólum situr Guðrún og býr til jólasveina og hefur varla við að framleiða, svo vinsælir eru karlarnir hennar. -ELA. 'tm > Guðrún ásamt tveimur barnabörn- um sinum, þeim Þórdisi Evu Þor- leiksdóttur fimm ára og Kötíu Kristjánsdóttur sem er aðeins eins og hátfs árs. Guðrún byrjaði ein- mitt að gera prjónakariana fyrir barnabörnin. DB-mynd Hiimar K. Alþjóðavaraforseti JC og hefiir Afríku sem umráðasvæði: Veröur örugglega ógleymanleg og spennandi ferö — segir Andrés Sigurðsson sem heldur til Afríku í febrúar Þrir af fjórum eigendum Salon Ritz þau Guðrún Þorbjarnardóttír, Jón Stefnir og Guðjón Þór. Á myndina vantar Sigriði Eysteinsdóttur. „Ég hef gegnt öllum störfum hér innanlands hjá JC og langaði til að prófa eitthvað nýtt. Það hefur kannski verið ákveðinn metnaður og ákveðinn áhugi á að láta gott af sér leiða sem réð því að ég gaf kost á mér,” sagði Andrés B. Sigurðsson sem nýlega var kosinn einn af alþjóðavaraforsetum JC. Andrés er annar íslendingurinn sem gegnir því mikilvæga starfi en hinn var Ólafur Stephensen auglýsingaframleiðandi. „Það er einn alheimsforseti,” sagði Andrés ennfremur, „síðan koma fimm framkvæmdvaraforsetar og síðan sextán varaforsetar. Hver varaforseti hefur u.þ.b. átla lönd til að fylgjast með, fyrst og fremst sem fulltrúi JC. Á hann að heimsækja löndin a.m.k. tvisvar á ári og skiptast á skoðunum og upplýsingum auk þess sem hann er nokkurs konar ráðgjafi. Mitt umráðasvæði er Mið- og Suður-Afríka og kom það mér nokkuð á óvart að fá þau lönd,” sagði Andrés. i byrjun janúar fer hann til Banda- ríkjanna þar sem hann mun sitja ráðstefnu JC-stjórnarinnar og strax í febrúar heldur hann lil Afríku. „Jú, þetta eru frekar erfið lönd sem ég lenti á en mér finnst þau mjög spenn- andi. Það má kannski segja að ég hafi átt von á að fá önnur lönd. Ég er þegar farinn að undirbúa þessa erfiðu ferð, er t.d. með langan Iista yfir lyf og það er ýmislegt sem maður þarf að passa sig á þegar út er komið. Jú, ég hef einu sinni áður komið til Afríku. Ég fór til Jóhannesarborgar, Kenya og Nairobi árið 1977 á vegum JC en þessi ferð min núna verður allt annars eðlis,” sagði Andrés. Hann hefur starfað innan JC- hreyfingarinnar í átta ár. Starfið sem varaforseti er sjálfboðavinna en al- heimsstjórnin tekur þátt i að borga l'erðir og uppihald. „Þetta verða sjálfsagt heilmikil útgjöld fyrir mig að fara þetta,” sagði Andrés, „en á móti örugglega ógleymanleg ævin- týraferð,” sagði hann. -ELA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.