Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. 19 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd REAGAN HYGGUR GOTT TIL PRÚTTSINS VH) BREZHNEV Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, segist gera sér svör Brezhnevs forseta Sovétríkjanna við tillögum hans um bann við kjarnorkuvopnum i Evrópu að góðu sem grundvöll til samninga- viðræðna. ,,í vissum skilningi hefur Brezhnev gert tiiboð um að fækka þeim eld- flaugum, sem staðsettar eru þar. — Nú, jæja, það má byrja að prútta þar,” sagði Reagan i viðtali við ABC- sjónvarpsstöðina á þriðjudag, en viðtalið var birt í gærkvöldi. Reagan sagði, að Bandaríkin mundu gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til þess að ná samkomulagi um ráðagerð hans, sem felur í sér, að Nato hætti við að koma upp skotpöllum i Evrópu fyrir meðaldrægar kjarnorkuhlaðnar eldflaugar, en Moskvustjórnin í staðinn láti fjarlægja þær eldflaugar, sem hún beinir að V- Evrópu. Brezhnev hefur hafnað þessari ráðagerð, en lagt í staðinn til, að hætt verði við að setja upp nýja eldflauga- skotpalla og að Kreml fækki eitthvað eldflaugum sínum. Barbara Walters, hinn frægi frétta- spyrill, spurði Reagan, hver mundu verða viðbrögð hans við þessu svari Brezhnevs. „Eftir að ég lagði fram mína tillögu hafði Brezhnev boltann, og hefur nú sent hann til baka með þessu tilboði. Þetta er ósköp dæmigert prútt eða samningaþóf,” sagði Reagan. Hann kvaðst bjartsýnn á árangur viðræðnanna, sem hefjast eiga á mánudaginn i Genf, þar sem stjórnirnar í Moskvu og Washington munu leita leiða til þess að draga úr kjarnorkuvopnakapphlaupinu i Evrópu. Reagan sagði, að Moskva hefði meiri áhuga nú en í mörg undanfarin ár, þar sem Bandaríkin væru ekki lengur „önnum kafin við að afvopna sig”. — „Þeir sáu ekkert vit í því, meðan við vestanmegin vorum á niðurleið með varnir okkar og þeir á leið með að síga framúr. Þeir þurftu ekkert að semja þá.” Reagan gerir sér sendinguna að góðu Útlönd Brezhnev hafði boltann og sendi hann til baka. Afnám heng- ingaá dagskrá á Irlandi Samtök lögregluforingja í írska lýðveldinu halda því fram að stjórnar- frumvarp sem lagt hefur verið fyrir þingið í Dublin muni örva afbrotamenn til ofbeldisverka, nái það fram að ganga og verði að lögum. — Frumvarpið gerir ráð fyrir afnámi dauðarefsingar. Samtök varðstjóra og yfirlög- regluþjóna visa í yfirlýsingu sinni til hryðjuverka írska lýðveldishersins (IRA) og segja að þrátt fyrir „lýðveldisnafngiftina” vaki ekki annað fyrir þeim félagsskap en koma á hernaðarlegu einræði á eyjunni grænu. Telja þeir alls ekki timabært, meðan slik öfl leika lausum hala, að svipta óvopnaða lögreglu írlands síðustu og helztu vörninni. Á írlandi eru dauðadæmdir aflífaðir i gálganum en hengingar hafa ekki farið fram i írska lýðveidinu á suðurhluta eyjarinnar siðan 1964, en þá var dauðarefsingin afnumin nema sem viðurlög við örfáum afbrotum, eins og til dæmis morðum á lögreglumönnum. í Dublin er það flestra hald að frumvarpið um afnám dauðarefsingar að fullu verði samþykkt í þinginu. ______Jil vióskiptamanna________________________________ banka og sparisjóóa Orðsendinq Útlit er fyrir, aö verkfall starfsmanna banka og sparisjóða hefjist frá og með 27. nóvember n. k. Verða þá, ef til verkfalls kemur, afgreiðslur banka og sparisjóða lokaðar frá þeim tíma þangað til verkfalli lýkur. Varðandi lán og aðrar skuldir, sem falla í gjalddaga á meðan á verkfalli stendur, er á það bent að inna ber slíkar greiðslur af hendi strax og bankar og sparisjóðir opna að loknu verkfalli. Vakin er athygli víxilskuldara á, að víxlar, sem falla í gjalddaga í verkfalli bankastarfsmanna, verða afsagðir vegna greiðslufalls í lok2. afgreiðsludagseftirverkfall, hafi þeirþáekki veriðgreiddir. Dráttarvextirverðaekki reiknaðir innan ofangreinds frests. Víxilgreiðendum er bent á að póstsenda greiðslu á sannanlegan hátt fyrir eða í verkfalli bankamanna, til að komast hjá kostnaði og óþægindum. Svipaðar reglur gilda um frestun afborgana af lánum. Með tilvísun til 54. gr. víxillaga nr. 93/1933 erþví lýst yfir í þessu sambandi f. h. bankaog sparisjóðasem víxilhafa, að óviðráðanlegar tálmanir valda því, að ekki verður kleift að senda einstökum ábyrgðarmönnum tilkynningar þær, sem umrædd lagagrein gerir ráð fyrir, varðandi þá víxla, er falla í gjalddaga, meðan á verkfallinu stendur. Skv. lögum skal framvísa tékkum til innlausnar innan 30 daga frá útgáfudegi. í þeim tilvikum, að sýningarfrestur renni út meðan á verkfalli stendur, ber að framvísa þeim þegar að verkfalli loknu. Um skuldabréf og vixla í innheimtu gildasömu reglurog áðurgreinir. Meðferð annarra innheimtuskjala, svo sem kaupsamninga, fellur niður, meðan á verkfalli stendur. Vaxtauppgjör fer eftir efni skjala, en skuldarar geta komist hjá vanskilum með því að gera skil beint til skuldareiganda gegn nauðsynlegum kvittunum. SKÓLAVÚRÐUSTÍG 41 - SÍMI 20235. Uppsagnarfrestir innlánsreikninga lengjast sem nemur verkfallsdögum, þ. e. þá daga er afgreiðslur hefðu verið opnar. Lokun banka og sparisjóða um lengri eða skemmri tíma hlýtur að leiða af sér margvísleg vandamál, bæði fyrir peningastofnanir og viðskiptamenn þeirra. Útilokað er að gera tæmandi grein fyrir þeim, enda sum þeirra ófyrirsjáanleg. Samvinnunefnd banka og sparisjóða vill því beina því til álmennings, að fólk reyni að gera sér grein fyrir þeim vanda, sem að hverjum og einum snýr í þessu tilliti og gera viöeigandi ráðstafanir. Reykjavík, 25. nóvember 1981 Samvinnunefnd banka og sparisjóóa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.