Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
Andlát
Jóhanna Vigdis Sæmundsdóttir,
Barónsstíg 21, andaðist á hjúkrunar-
deild Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur að kvöldi 19. nóvember.
Jón Ellert Jónsson, bifreiðarstjóri,
andaðist á Landspítalanum, 24.
nóvember.
Krístín Jóhanna Sölvadóttir, Karfavogi
46, andaðist þann 12. nóv. sl. Jarðar-
förin hefir farið fram. j
Rebekka Ingvarsdóttir, Merkurgötu 7|
Hafnarfirði, andaðist 20. nóvember á:
St. Jósefsspítala Hafnarftrði.
Sigurður Eiríksson, Laugalæk 17, lézt
af slysförum, 24. nóvember.
Sigurjóna Ólafsdóttir, frá Görðum,
Vestmannaeyjum, er látin.
Þórður Auðunsson, fyrrverandi bóndi
á Eyvindarmúla, Fljótshlíð, lézt að
kvöldi 24. nóvember á Vífilsstaða-
spítala.
Tónlist
Helga Ingólfsdóttir
leikur forvera Bachs
6. Háskólatónlcikar vetrarins verða í Norræna
húsinu í hádeginu á morgun, föstudaginn 27. nóv.
Helga Ingólfsdóttir leikur á sembal. verkið Andlát
og útför Jakobs eftir Jóhann Kuhnau, sem var fyrir-
rennari J. S. Bachs við Tómasarkirkjuna í Leipzig
og líklega fyrstur manna í heiminum til að semjaj
sónötur fyrir hljó’mborð. ÖHum er heimill aðgangur
aðvenju. i
Helga Ingólfsdóttir
semballleikarí.
Tilkynningar
Kvenfólag
Háteigssóknar
heldur jólafund sinn þriðjudaginn 1. desember kl.
20.30 í Sjómannaskólanum. Sýndar verða kerta- og
blómaskreytingar. Mætið vel og stundvíslega og
takið meö ykkur gesti.
Baháiar
hafa opið hús að óðinsgötu 20 öll fimmtudagsa-
kvöld frá kl. 20.30. Frjálsar umræður, allir
velkomnir.
FERÐAKAUPSTEFNA í LONDON
Um næstkomandi mánaðamót tekur Ferðamálaráð
þátt i umfagnsmikilli ferðakaupstefnu í London.
Ferðamönnum frá Bretlandseyjum til ísiands fjölg-
aði um 15% á tímabilinu janúar-sept. í ár, miöað við
sama tímabil á árinu 1980. Bretar eru því í öðru sæti
í ár á listanum yfir aukningu ferðamanna til íslands
frá einstökum löndum, næstir á eftir Bandarikja-
mönnum. Margt bendir til þess að ferðamönnum til
íslands frá Bretlandseyjum fjölgi einknig verulega á
næsta ári.
Fótaaðgerð
fyrir ellilffeyrisþega
í Hallgrímssókn er hvern þriðjudag kl. 13—16 í
félagsheimili kirkjunnar. Tímapantanir í síma
16542, Sigurlaug, Kvenfélagi Hallgrímskirkju.
Afmælissjóður
Jóhönnu
Egilsdóttur
Alþýðuflokkurinn hefur ákveðið að standa fyrir
stofnun Afmælissjóðs Jóhönnu Egilsdóttur í tilefni
af 100 ára afmæli hennar. Tilgangur sjóðsins er aðl
vinna að fræðslu um verkalýðsmál og jafnaðar-'
stefnuna. Framlögum í sjóðinn er veitt viðtaka á
skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—10, sími
29244 og verða sérstök gjafabréf gefin út sem viður-J
kenning fyrir framlögum. — Þau stofnfjárloforð j
sem berast á afmælisdaginn verða tilkynnt Jóhörinu
í afmælishófi hennar.
Alþýðuflokkurinn.
MR-nemendur ánægðir með
reglugerð menntamálaráðu-
neytisins
Eftirfarandi ályktun var lögð fyrir skólafund Skóla-
félags Menntaskólans í Reykjavik þann 16. nóvem-;
ber1981: . )
„Skólafélag Menntaskólans í Reykjavík lýsir yfir .
eindregnum stuðningi við nýtilkomna reglugerð1
menntamálaráðuneytisins hvað varðar framhalds- j
skóla. Látum vér í ljós ánægju með störf nefndar- j
innar er um þcssi mál fjallaði og samgleðjumst um i
leið öðrum framhaldsskólanemum á landinu.” j
Sveinn Andrei Sveinsson, 5.-R,
Ásdís B. Schram, 5.-R,
Hreinn Sigmarsson, 5.-R,
Árni Geir Sigurðsson, 5.-Z.
Ályktun þessi hlaut samþykki með 155 atkvæðum !
gegn 142. Því er hún send til allra dagblaðanna í {
Reykjavik.
17. formannafundur Sam-
bands sunnlenzkra kvenna
var haldinn í Þykkvabæ í Djúpárhr. Rang. 31. októ-
ber 1981. í sambandinu eru 29 kvenfélög á Suður-
landi. Formaður þess er HaUa Aðalsteinsdóttir,
Kolsholti. Mörg mál voru tekin fyrir, einkum
fræðslumál og starfsemin á komandi vetri.
Ásthildur Sigurðardóttir flutti erindi um störf og
þátttöku bændakvenna i landbúnaöi fyrr og nú.
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar sam-
hljóða á fundinum:
1. Nú líður senn að þvi að starfsemi Sjúkrahúss
Suðurlands flytji i nýtt húsnæði. í tilefni af þvi vill
formannafundur SSK benda á það ófremdarástand,
sem ríkir í málefnum aldraðra á Suðurlandi. Skorar
þvi fundurinn á stjórn Sjúkrahúss Suðurlands að
hefjast þegar handa um lagfæringar á gamla sjúkra-
húsinu svo ekki líði á löngu þar til vistun aldraöra
geti hafizt þar í bættum húsakynnum. Heitir fundur-
inn á aUa þá sem ljá vilja þessu máli lið að láta ekki
sitt eftirliggja.
Eftirfarandi ályktun var einróma samþykkt á 17.
formannafundi Sambands sunnlenzkra kvenna 31.-
október 1981:
Fundurinn ályktar að hvejta aUar íslenzkar konur
til aö leiða hugann að þvi öryggisleysi, sem mann-
kynið býr við í skugga gjöreyðingarvopna vegna si-
aukins vígbúnaðarkapphlaups risaveldanna.
Einungis virkt og öflugt almenningsálit mun geta
snúið þeirri óheillaþróun við.
Fundurinn vekur athygli á, að vonarneisti sé aö
kvikna með vexti friðarhreyfingarinnar í Evrópu,
þar sem kirkjunnar menn og konur fara fremst í
flokki.
Þvi skal fagnað að almenningur virðist nú vera aö
vakna til dáða og kjósi að standa vörð um áfram-
hald lifs á jöröu. ísl. geta ekki frekar en
aðrar þjóðir firrt sig ábyrgð á framtíð mannkyns og
eiga leið með öllum friðarsinnum hvarvetna i heim-
inum.
Jöklarannsóknafólag
íslands
Jörfagleði félagsins verður í Snorrabæ v/Snorra-
braut laugardaginn 28. nóv. 1981. Húsið opnað kl.
19.00. Veizlustjóri: Elín Pálmadóttir. Borðræða:
Guðm. E. Sigvaldason. Dans til kl. 03. Rútuferð
heim fyrir þá sem þess óska. Miðar fást í verzlun-
inni Vogaver, Gnoðarvogi 44—46, sími 81490, og
verzluninni Tizkuskemman, Laugavegi 34a, simi
14165. Miöar óskast sóttir fyrir fimmtudagskvöld
26. nóvember. Skemmtinefnd.
Skip Sambandsins
GOOLE: t.ARVÍK:
Arnarfell ...30/11 Hvassafell .25/11
Arnarfell .. . 14/12 Hvassafell . .8/12
Arnarfell ,.. 11/01 Hvassafell .21/12
Arnarfell . . 25/01 Hvassafell . . 4/01
ROTTERDAM: GAUTABORG:
Arnarfell . . .2/12 Hvassafell .26/11
Arnarfell . . 16/12 Hvassafell . .9/12
Arnarfell . . 13/01 Hvassafell .22/12
Arnarfell . . . 27/(8 Hvassafell .. 5/01
ANTWERPEN: KAUPMANNAHÖFN:
Arnarfell . ..3/12 Hvassafell .27/11
Arnarfell .. 17/12 Hvassafell . 10/12
Arnarfell . . 14/01 HvassKELL.... .23/12
Arnarfell . . 28/01 Hvassafell . . 6/01
HAMBORG: SVENDBORG:
Helgafell . . .3/12 Hvassafell .28/11
Helgafell . .21/12 Helgafell . .4/12
Helgafell . . . 7/01 Hvassaflel . 11/12
Helgafell .. 25/01 Dísarfell .21/12
Helgafell .23/12
HELSINKI: f Hvassafell . . 7/01
Dísarfell . . 17/12 Helgafell . . 9/01
Dísarfell •• 17/1
GLOUCESTER, Mass. HALIFAX, Kanada:
Skaftafell .. .2/12 Skaftafell . .4/12
Skaftafell ca. . . . . 20/01 Skaftafell ca.... . 23/01
Óskað eftir fólkið með góða
söngrödd, á Listahátíð 1982
Einn af stórviðburðum Listahátíðar 1982 er frum-
flutningur á viðamesta tónverki Jóns Leifs, Eddu-
óratoríum, sem samið var viö Eddukvæði og fjaUar
um sköpun heimsins. Framkvæmdastjórn Listahá-
tíðar hefur farið þess á leit við Pólýfónkórinn og;
stjórnanda hans Ingólf Guöbrandsson að taka
verkið til flutnings ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands
og einsöngvurum.
Jón Leifs samdi Eddu-óratorium á íslandi og i
Berlín á árunum fyrir siðari heimsstyrjöldina, eða
1935—1939. Það er skrifað fyrir stóra sinfóníu-
hljómsveit og blandaðan kór sem viða skiptist i 8
raddir. Það er álit þeirra sem kynnt hafa sér handrit
þessa stórverks, að hér sé um einhverja merkustu og
kynngimögnuðustu tónsmíð sem ísiendingur hefúr
samið til þessa. Pólýfónkórinn hóf æfingar á verk-
inu í siðasta mánuði, en Ijóst er að verkið gerir mikl-
ar kröfur bæði um tónsvið og fjölda radda svo að
enn vantar nokkuö á að nægur mannafli sé fyrir
hendi til að gera því fullnægjandi listræn skil.
Til flutnings eddu-óratoríum þarf að dómi söng-
stjórans, Ingólfs Guðbrandssonar, stærri kór en nú
er starfandi hér á landi. í Pólýfónkórnum eru nú
rúmlega 120 félagar, en söngstjórinn telur að 40—50
raddir þurfi til viðbótar. Til þess að hrinda þessu
máli í framkvæmd er því í ráöi að stofna einskonar
Listahátíðarkór sérstaklega með flutning þessa verks1
í huga.
Fullvist má telja að flutningur þessa tiikomumikia
og rammíslenzka verks muni vekja mikla athygli
ekki aöeins hér á landi heldur hvarvetna í tónlistar-
heiminum. Er því skorað á söngfólk og tónlistarunn-
endur að leggja málinu liö og gefa sig fram til þátt-
töku. Æfingar á verkinu munu standa yfir næstu 5
vikur, og síðan verða þær teknar upp aftur um miðj-
an aprU, en frumflutningur verksins er fyrirhugaður
við opnun Listahátiðar 5. júní 1982.
Óskað er eftir fólkið með góða söngrödd og ein-
hverja hljómfræðiþekkingu eða tónlistarmenntun í
allar raddir, en þó einkum í tenór og bassa. Endan-
leg ákvörðun um flutning verksins byggist á því að
góðir söngkraftar bætist í hópinn á næstu dögum og
eru þeir beðnir aö hafa samband við skrifstofu
Listahátíðar í slma 12444 eða við stjórn Pólýfón-
kórsins í síma 43740 eða 38955 fyrir 7. nóvember.
c
Afmæli
ÞórOur Halldórsson bóndi aö Lauga-
landi i Skjaldfannardal við ísafjarðar-
djúp varð níræður 22. nóvember. Kona
hans er Helga Jónsdóttir frá Skarði á
Snæfjallaströnd. Eiga þau sjö börn.
Happdrætti
Happdrætti
Körfuknattleiksdeildar
30. október sl. var dregið í happdrætti Körfuknatt-
leiksdeildar ÍR. Vinningar komu á eftirtalin númer:
1. vinningur Pentax ME Super Ijósmyndavél verðm.
kr. 4.300 nr. 624 . 2. vinningur Fujica HD-S ljós-
myndavél verðm. kr. 1.800 nr. 356. 3. vinningur
ljósmyndavél verðm. kr. 800 nr. 2718. 4. vinningur,
ljósmyndavél verðm. kr. 800 nr. 615. 5. vinningur
ljósmyndavél verðm. kr. 800 nr. 1976. 6. vinningur,
ljósmyndavél verðm. kr. 800 nr. 349. 7. vinningur,
ijósmyndavél, veröm. kr. 800 nr. 617. Alls verðm.
Kr. 10.100.-
íþróttir
íslandsmótiö í blaki
í dag kl. 20.00: UMFL — Víkingur, Laugarvatn, 1.
d.
íþróttafólagið
Leiknir
^lnnanhússæfingar í knattspyrnu.
1. og 2. fl.: sunnudagakl. 17.10.
3. fl.: sunnudaga kl. 15.30.
4. fl.: miövikudagakl. 19.10.
5. fl: laugardaga kl. 15.30.
6. fl.: sunnudaga kl. 13.10.
Kvennaknattspyrna: laugardaga kl. 13.10.
Basarar
Jólabasar
Vinahjálpar
verður haldinn að Hótel Sögu (Súlnasal) laugar-
daginn 28. nóvember kl. 1 e.h. Glæsilegt happ-
drætti. Kaupið jólagjafirnar hjá okkur um leið og
þið styrkiðgott málefni. Nefndin.
Basar og kökusala
að Hallveigarstöðum
laugardaginn 28. nóvember kl. 14. Tekið á móti
munum frákl. lOsamadag, Borgfirðingafélagið.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 226 - 26. NÓVEMBER1981 KL. 09.15. Ferðamanna- gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarlkjadollar 8.156 8.180 8.998
1 Storfingspund 16.786 15.832 17.416
1 Kanadadollar 6.921 6.941 7.636
1 Dönskkróna 1.1405 1.1439 1.2583
1 Norskkróna 1.4207 1.4248 1.6673
1 Ssansk króna 1.4932 1.4976 1.6474
1 Finnsktmark 1.8858 1.8913 2.0804
1 Franskur franki 1.4496 1.4539 1.6993
1 Bolg. franki 0.2180 0.2186 0.2406
1 Svbsn.franki 4.5917 4.6062 6.0657
1 Hollenzk florina 3.3488 3.3587 3.6946
1 V.-þýzkt mark , 3.6648 3.6756 4.0432
1 ítöbklfra 0.00684 0.00686 0.00764
1 Austurr. Sch. 0.5217 0.6232 0.6755
1 Portug. Escudo 0.1273 0.1277 0.1405
1 Spánskur poseti 0.0858 0.0861 0.0947
1 Japansktyen 0.03779 0.03790 0.04169
1 IrsktDund 13.025 13.063 14.369
8DR (sérstök dráttarróttlndl) 01/0» 9.5556 9.6837
Simsvarí vegna genglsskránlngar 22180.
Nýjar bækur
Þrír leikir um
hetjur
eftir Aiskýlos
Meginefni bókar þessarar er leikritin
„Prómeþeifur fjötraður”, „Persar”
og „Sjö gegn Þebu” eftir griska fom-
skáldið Aiskýlos (525—456 f.Kr.b.) í
þýðigu dr. Jóns Gíslasonar. Er útgáfan
með sama sniði og fyrri þýðingar Jóns
á forngrískum leikritum sem Menning-
arsjóður hefur gefið út. Auk þýðingar
leikritanna þriggja í óbundnu máli er ít-
arlegur inngangur eftir þýðanda
fremst og skýringar aftast. Þá er enn-
fremur gerð grein fyrir sögu textans og
helstu útgáfum. Loks er eftirmáli. Þar
sem greinir fyrirkomulag bókarinnar
og ævi og ritstörf Jóns heitins Gísla-
sonar. Eftirmálanum lýkur með
þessum orðum: „Samstarf Jóns Gísla-
sonar við Menningarsjóð var ánægju-
legt og farsælt. Kynning Jóns á forn-
klassískum heimsbókmenntum ber
honum órækt vitni sem rithöfundi og
fræðimanni”.
Fyrri þýðingar Jóns Gíslasonar á
forngrískum leikritum sem Menningar-
sjóður hefur gefið út eru þessar:
Aiskýlos: Oresteia („Agamemnon”,
, .Dreypifórnfærendur’ ’, , .Refsinorn-
ir”), 1971; Evripides: Þrjú leikrit um
ástir og hjónaband („Alkestis”,
„Medea”, „Hippolýtos”), 1974; Sófo-
kles: Þebuleikirnir („Oidípús konung-
ur”, „Oidipús i Kólonos”, „Anti-
gona”), 1978. Raktar eru aflrar þýfling-
ar Jóns Gislasonar, svo og frumsamin
rit hans og útgáfur, i eftirmála hinnar
nýju bókar.
Um Aiskýlos segir þýflandi, Jón
Gíslason, i formála sfnum afl Oresteiu
frá 1971: „Aiskýlos er elstur hinna
þriggja miklu harmleikaskálda Forn-
Grikkja. Er hann almennt talinn þeirra
mikilúðlegastur. Fyrir Hellas hafði
hann i leiklistarefnum sambærilega
þýðingu og Shakespeare fyrir Vestur-
lönd . . . Aiskýlos hefur oft verið
nefndur faðir leikritaskáldskapar. Ber
að skilja þetta þannig, að hann lyfti
þessari bókmenntagrein á miklu ful-
komnara stig en hún var á, er hann hóf
leikritun, og hins vegar hafi bæði sam-
tímamenn hans og eftirkomendur notið
góðs af starfi hans í þessum skáldskap-
arefnum”.
Bókin, Þrír leikir um hetjur, er 237
bls. að stærð, sett, prentuð og bundin í
Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Jens Munk
eftir Thorkild Hansen
Bók þessi er heimildasaga um sæfar-
ann og könnuðinn Jens Munk (1579—
1628) og byggist á dagbókarbrotum úr
örlagaríkri háskaför í norðurveg, en
Thorkild Hansen eykur við staðreynda-
talið upplýsingum um ævi og tíma hins
dáðrakka og víðförla en ósigursæla
manns eftir ýmsum öðrum heimildum,
m.a. Reisubók Jóns Ólafssonar India-
fara og spinnur söguna af þeim toga.
Jens Munk lagði upp frá Kaupmanna-
höfn 1619 1 leiðangur 65 manna á
tveimur skipum og ætlaði að brjótast
útnorðurleiðina norður fyrir Ameríku í
þeirri von að finna nýja og styttri sigl-
ingaleið til Kina. Hafði leiðangurinn
vetursetu við Hudson-flóa í Kanada og
hrundi niður úr skyrbjúg og harðrétti.
Komst Jens Munk þó sumarið eftir
austur til Noregs á öðru skipinu við
þriðja mann að öllum hinum félögum
sínum dauðum en féll í ónáð hjá
Kristjáni konungi IV. eftir ófarir sínar.
Dó hann átta árum síðar vonsvikinn
öreigi.
Thorkild Hansen er í hópi viður-
kenndustu og víðlesnustu samtíðarhöf-
unda Dana, fæddur 1927. Hann stjórn-
aði rannsóknarleiðangri til Hudson-
flóa 1964 ásamt starfsbróður sínum
Peter Seeberg. Fundu þeir Munkshöfn,
vetursetustað Jens Munk frá 1620, og
hófst Thorkild Hansen þá handa að
vinna úr efniviði bókarinnar sem kom
út árið eftir og hefur verið þýdd á
margar tungur. Höfundur þykir sam-
ræma á frábæran hátt skáldskap og
sagnfræði í ritum sínum. Thorkild
Hansen fékk bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1971.
Þýðingin á Jens Munk er eftir
Magnús heitinn Kjartansson ritstjóra,
alþingismann og ráðherra. Lauk hann
henni skömmu fyrir andlát sitt, og mun
hún síðasta ritverk frá hans hendi. Jens
Munk er 391 bls. að stærð, og prýða
bókina margar ágætar og sjaldgæfar
myndir. Hún er sett, prentuð og bundin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
Gegnum holt
og hœðir
eftir Herdlsi Egilsdóttur
Bókaútgáfan örn & Örlygur hf.
hefur sent frá sér barnabókina
Gegnum holt og hæðir eftir Herdísi
Egilsdóttur.
Herdís Egilsdóttir er löngu þjóð-
kunnur höfundur barnaefnis bæði í
leikritum, bundnu máli og óbundnu.
Börnin hafa lifað sig inn í hin fallegu
ævintýri hennar og notið þess að
kynnast persónunum, hvort sem um er
að ræða lata og óþæga krakka, álfa
eða skessur og skessubörn. Per-
sónurnar i ævintýrinu Gegnum holt og
hæðir munu verða góðir vinir
barnanna og skemmtilegar teikningar
höfundarins í bókinni munu auðvelda
ungum sem öldnum að kynnast per-
sónunum sem þar koma fram, og mikið
má vera ef söngvarnir sem út koma á
plötu jafnhliða bókinni eiga ekki eftir
að heyrast oft, enda bæði lög og ljóð
auðlærð. Gegnum holt og hæðir er bók
sem hentar vel börnum sem geta lesið
sjálf, og ekki síður þeim sem verða að
að láta sér nægja að hlusta.
Bókin er 62 bls. og prentun og
bókband er unnið í Prentsmiðjunni
Hólum hf.