Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981.
KVIKUYNDAMARKAÐUmNN
VIDEO * TÆKI * FILMUR
SKÖLAVÖRÐUSTI'G 19 IKLAPPARSTÍGSMEGIN)
SfM115480
OKKUR VANTAR KONU
í húsið til þess að halda heimili fyrir mann og tvö börn á
skólaaldri. Má vera með barn.
Upplýsingar i síma 96-25162 eftir kl. 19.
KJÖT OG ÁLEGG
Kjötvinnslan er flutt úr Hólmgarði
AÐ SMIÐJUVEGI D-24,
SÍMI 78820
HJÓLBARÐAR
Kínverskir vörubílahjólbarðar,
verð frá kr. 2.540,00.
Umboðsmenn víða um land.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
EINKAUMBOÐ Á fSLANDI: |^£Y|M|R SF
SÍMI 95-4400, BLÖNDUÓSI.
Til sölu
BMW520 autom. érg. '80 Renautt 20 TL érg. 78
BMW520 órg. '801 fíenault 18 TS. érg. 79
BMW518 érg. W Ronault 14 TL. órg. '80
BMW323Í irg. '81 Renauft 14 TL órg. 79
BMW320 érg. 79 fíonauh 14 TL órg. 78
BMW320 érg. 78 Renauh 18 TS. órg. 79 ,
BMW316 Arg. "81 Renauh 12 TS. órg. 78
BMW316 érg. '80 Renauh 12 station órg. 74
BMW316 érg. 79 RonauhS TS. órg. 75
BMW316 órg. 78 Renauh4 TL. órg. 79
BMW316 órg. 77 Renauh Estafette órg. 78
BMW315 érg. "81 Renauh 4 VAN F6 órg. 79
fíonauft 20 GTL. érg. 79 Renauh 4 VAN órg. 75
OpiÖ 1—6 laugardaga. |
KRISTINN GUÐNAS0N HF.
L. 2 SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 J
ÓSKUM EFTIR UMBOÐSMÖNNUM
FYRIR ALLAR TEGUNDIR SKÓFATNAÐAR OG
ÍÞRÓTTAVARA Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
Bíldudalur, Borðeyri, Blönduós,
Breiðdalsvik, Búðardalur, Djúpivogur,
Dalvlk, Flateyri, Flatey,
Grundarfjörður, Grímsey, Grenivfk,
Garður, Húsavfk, Hveragerði,
Hella, Hólmavfk, Hvammstangi,
HjaKeyri, Hrfsey, ísafjörður.
Króksfjarðarnes, Kópasker, Njarðvfk,
Ólafsvík, Ólafsfjörður, Patreksfjörður,
Raufarhöfn, Sandgerði, Suðureyri,
Súðavfk, Skagaströnd, Svalbarðseyri,
Sauðárkrókur, Stöðvarfjörður, Vogar,
Vopnafjörður, Þórshöfn. Þorlákshöfn, Þingeyri,
Allar upplýsingar veittar hjá skóverzlun
V alur Margeirsson fékk mikla bót á psoriasissjúkdómi sinum eftir böð við Svartsengi. Mynd-emm.
Fréttir um psoriasissjúklinginn íSvartsengi vakti athygli:
Lækningamáttur sjávar
í Svartsengj kannaður
—átta þingmenn vilja láta útbúa aðstöðu þar fyrir sjúklinga
ef sjórinn hef ur lækningamátt
Á þingi í gær var lögð fram tillaga
um að könnun færi fram ájækninga-
mætti jarðsjávar við Svartsengi. Leiði
sú könnun til jákvæðrar niðurstöðu
verði þegar komið upp aðstöðu fyrir þá
sjúklinga sem að læknisráði er talið rétt
að noti jarðsjóinn til baða.
Gert er ráð fyrir að við könnunina
verði haft samráð við samtök lækna,
samtök psoriasis- og exemsjúklinga,
svo og samtök annarra sjúklinga sem
not gætu haft af slíkum böðum.
Flutningsmenn tillögurnar eru sex
þingmenn Reyknesinga og tveir þing-
menn Reykvíkinga með Matthías Á.
Mathiesen í broddi fylkingar.
í greinargerð er minnt á að fyrir
fjölda psoriasis- og exemsjúklinga hafi
loftslagsbreyting, sól og sjávarböð í
hlýjum sjó reynzt mikil lækning.
Lögum hafi verið breytt 1979 þannig að
þeir sem að mati sérfræðinga gætu með
þessum hætti leitað sér lækninga
erlendis hlytu til þess ferðastyrk.
Síðan er minnt á þann atburð sem
skýrt var frá á sínum tíma er Valur
Reglur um bóksölu rýmkaðar
Einokuninni
aflétt
segir Björgvin Guðmundsson
f ormaður samkeppnisnef ndar
Reglur þær er gilt hafa um
veitingu bóksöluleyfa hér á landi
hafa nú veriö rýmkaðar til muna.
Hafa Verðlagsstofnun og Félag
islenskra bókaútgefenda • samið
nýjar reglur um veitingu slikra
leyfa. Samkvæmt þeim er nú
sl^lt að veita aðilum er uppfylla
tiltekin almenn skilyrði bóksölu-
leyfi, en þau þóttu áöur nokkuð
háð geðþóttaákvörðunum Félags
islenskra bókaútgefenda.
Kveikjan að þessum
breytingum er umsókn Hagkaups
til bóksölu á siðasta ári. Varð
mikið fjaðrafok vegna þessa
máls, sem lyktaði þannig að
fyrirtækið fékk bráðabirgðaleyfi
til bóksölu, þrátt fyrir itrekuð
mótmæli Félags íslenskra bóka--
útgefenda. Með tilkomu nýju
reglanna fær Hagkaup nú fullt og
óskorað leyfi til bóksölu.
Visir hafði samband við Björg-
vin Guömundsson formann sam-
keppnisnefndar.en hún hefur lagt
blessun sina yfir nýju reglurnar.
Sagði Björgvin að meginbreyt-
ingin væri sú, að uppfylltu menn
Heimiliskettir eymamerktir
Nú lítur út fyrir aö tlmi gömlu
góðu kattahálsbandanna sé að
liða undir lok. Kattavinafélag Is-
lands hefur nefnilega ákveðið að
beita sér fyrir þvl, að frá og með
áramótum verði allir heimilis-
kettir eyrnamerktir.
Aö sögn Svanlaugar Löve, for-
manns Kattavinafélagsins, verö-
ur þessu þannig fyrir komið að
tiltekin merki verða flúruð I
hægra eyra kattarins. Komið
verður á fót sérstöku merkikerfi I
þessu augnamiði. Verður landinu
skipt upp I umdæmi, svipað þeirri
merkingu sem notuö er þegar bif-
reiðar éru merktar eftir lands-
hlutum.
Samfara þessu mun Kattavina-
félagið láta útbúa sérstakt nafn-
sklrteini fyrir hvern kött.
—JSS
Margeirsson fékk mikla bót á psoriasis-
sjúkdómi með því að njóta baða í
heitum jarðsjó við Svartsengi. Telja
flutningsmenn að leiði könnun i ljós að
sjórinn við Svartsengi hafi í sér
lækningamátt gæti það gjörbreytt
möguleikum þessara sjúklinga til að fá
einhverja bót meina sinna án utan-
ferða. Heilbrigðisráðuneytið eigi að
hafa forystu um þá könnun.
-A.St.
Björgvin Guömundsson.
viss skilyrði, svo sem nægilegt
rými til bóksölu og nægilegt Urval
bóka, ásamt fleiru væri skylt að
veita þeim bóksöluleyfi.
,,Það má þvi með sanni segja,
að einokuninni á veitingu bök-
söluleyfa sé aflétt með þessum
breytingum sagði Björgvin.
Samfara umræddum
breytingum ákvað samkeppnis-
nefnd að veita undanþágu frá
ákvæðiverðlagslaga um bann við
ófrávíkjanlegu lágmarksverði.
„Þessu háttar þannig til, að
samkvæmt ákvæðum verðlags-
laga er bannað að setja ófrá-
vlkjanlegt lágmarksverð á vörur
og þjónustu”, sagði Björgvin um
þetta atriöi. „Félag islenskra
bókaútgefenda sótti siðan um
undanþágu á þessu ákvæði. Var
hún veitt eftir að samkomulag
náðist um reglurnar um úthlutun
bóksöluleyfa”.
Þess má loks geta aö nýju
reglurnar um veitingu bóksölu-
leyfa ná aðeins til þéttbýlla staða
á landinu.
—JSS