Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. Spurningin Gætir þú hugsað þór að eyða jólunum á sólarströnd? Ingi Ragnar Björnsson, fulltrúi I Landsbankanum: Nei, það gæti ég ekki, það myndi ég helzt ekki vilja. Ég held að jólin séu til þess að vera heima. Baldvin B. Skaftfell, á eftirlaunum: Nei, ákveðið. Ég kann betur við mig heima. Ég myndi varla vilja missa af jólastemmningunni heima og sam- skiptunum við fjölskylduna. Pétur Magnússon bankamaður: Já, jólin eru andleg hátíð og mér skilst að það sé alveg sama hvar við eyðum þeim séum við rétt innstillt inn á boðskap jólanna. Eiður Guðnason alþingismaður: Ég vil helzt vera heima hjá mér um jólin. Mér fyndust það engin alvörujól ef ég væri á sólarströnd. Rut Magnúsdóttir skrifstofustúlka: Nei, mig langar ekki til þess. Ég vil vera heima hjá fjölskyldunni. Guðmundur Haraldsson prentari: Nei, ég held ekki, á ölium öðrum tímum en jólunum. Maður er búinn að venja sig á að vera heima hjá sér á jólunum. Lesendur Lesendur Lesendur .evðv.’ *,r,eÚ" a-tííSíS-n J!ss,öíf?§ss. i fhtr' >»ng, *•+, *?*> •< h‘Uur **«• tSí'jJ^Stng 'pe**i w* t*°*’ **•*'«.;I* j\V» } et"0'? vyo'0' *.'S5»ífVS, <-JS^2á «*£•*•£ •tóí*1*'*"* p®$5£ «!SSs ÉÍÉ* P*K*r v,*»« .. oriiíA " * ** tja,. *,ío fe." Ss^iasÆe ‘ ______________—-------------------------__.. . 1 Mogga er stungið upp á Sigriði Asgeirsdóttur sem borgarstjóraefni og Svarthöfði VIsis vUI gera hana að forseta borgarstjórnar. Engan kvennalista, en Sigríður borgarstjóri Margrét Sigurðardóttir skrifar: Ég vil taka undir bréf frá „Móður” í VIsi I gær, þar sem hún varar „allar lýöræöishugsandi konur” við að gleypa hrá öll skrif um kvennaframboð, þvi slik framboö séu runnin undan rif jum Alþýðubandalagsins. Þetta eru vissulega orð 1 tima töluö, þar sem boðað hefur verið Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: Ég hef verið að furöa mig á vinnubrögöum við framkvæmdir borgarinnar, nánar tiltekiö við hitaveitu og fleira við Kleppsveg og Elliðavog. Nti eru þessar undraverðu framkvæmdir búnar að standa allt sumarið og meira til, meö öll- um þeim hættum I umferðinni, sem þeim fylgja. Þarf verkfræð- inga til að gera mestu mistökin i framkvæmdum rikis og bæja? Ég hef séð svona mistök svo vlða að ég get ekki mælt með svona vinnubrögðum eða varið þau á nokkurn hátt, heldur for- dæmi ég þau. Það er búið að taka aö minnsta kosti tvo mánuði aö koma þessari hitaveitulögn undir „Nói” skrifar: 1 „Það hefur lengi undanfarið hlakkað drjúgt I framsóknar- mönnum yfir Sjónvarpinu og grænu pennunum, sem menn veifa I öllum viðræðuþáttum þar. Sjónvarpsmenn voru snöggir til að pennavæða gesti sina með þessum grænu túss-kúlupennum (á bölvuðu máli). En eru jafn seinir að uppgötva að slikir penn- til fundar um væntanlegt kvenna- framboð i Reykjavlk um næstu helgi. Ég vil þvi Itreka þá skoðun mlna og „Móður” að lýðræöis- hugsandi konur láti ekki slikt framboð glepja sér sýn. Jafnframt vil ég vekja athygli á mjög eftirtektarverðri grein eftir Sverri Þóröarson I Morgunblað- inu I dag, þar sem stungiö er upp Kleppsmýrarveginn og hefur það skapað stórhættu I umferðinni þar um gatnamótin allan tlmann. Þar hafa orðið mörg umferðar- slys og óhöpp. Þótt undarlegt sé, hafa slysin ekki oröið fleiri þótt umferöarhöft hafi verið á. Það er þó ekki rétt- læting á þeim vinnubrögðum, sem þarna eru viðhöfð. Sami trassaskapurinn er meö umferðarljósin á þessum hættu- lega stað. Við þau er ekki unniö nema á margra mánaða fresti og þau standa eins og svartar vofur á gatnamótunum. Það er heldur ekki nóg meö að unnið er slælega við þessar fram- kvæmdir, heldur er aö þeim unniö ar fást nú orðið I ýmsum öörum litum og frá öörum framleiðend- um en sem halda sig við græn- ingjana. Nei, þetta er engin smámuna- semi. Þessir grænu pennar eru orðnir óþolandi! Alveg óþolandi. Sjónvarpsmenn mættu taka sér til fyrirmyndar lýöræðisleg gos- drykkja- og ölboð fjármálaráö- á þvl, að Sjálfstæöisflokkurinn tefli fram konu, frú Sigriði As- geirsdóttur lögfræðingi, sem borgarstjóraefni i næstu kosning- um. Þetta er mjög athyglisverð hugmynd hjá Sverri, sem ég tek hiklaust undir. Það mundi draga mjög kraftinn úr væntanlegu kvennaframboði og raunar gera það óþarft. með yfirþyrmandi hugsunarleysi eða kæruleysi með eyðslu á al- mannafé. Frá minu sjónarmiði hefði mátt spara margar milljón- ir á þessu verki. Ég get ekki betur séð en aö hitaveitu stokkar séu viða algjör- lega ofanjaröar. Hvers vegna máti ekki grafa þarna grynnra fyrir lönginni? Láta hitaveitu- stokkinn jaðra við jörð og nota hann siöan sem gangbraut og hjólreiðabraut. Þetta heföi verið hægt að gera við hitaveitu um borgina vlða þar sem hitaveitu- stokkar eru. Vatnið myndi kannski kólna við þetta um eitt til tvö stig, nógu er það nú heitt samt. Þá hefðu kannski færri orö- ið fyrir hálfgeröum slysum af völdum þess. herra, sem býður eina tegund frá hverjum islenskum framleið- anda. Þótt pennar séu ekki fram- leiddir hér. Og svo vitum við það, að svona áróður er bannaður I rlkisfjöl- miölum... já, burt með framsókn- arpennana næsta árið, þar næsta árið og þar, þar næsta árið, úr þvi sem komið er.” ÞAKKIR TIL ÚT- VARPS OG SJÓN- VARPS —fyriralltsemer mannbætandiog skemmtilegt Muna Jóna skrifar frá Dýrafirði: Ég bið að heilsa eftirtöldum, með þakklæti fyrir allt það sem er mann- bætandi og skemmtilegt bæði í út- varpinu og sjónvarpinu, enda er það imargt. Pétri þakka ég enn og aftur fyrir hvað hann er elskulegur í lagavalinu. Mig langar raunar að heyra oftar í Sigrúnu á Rangá og Huldu Emils. Þær hafa báðar mjög fallegar raddir. Svo er nú hann Ómar okkar allra. Hann kemur nú oft með bezta efnið í sjónvarpið og verður honum varla fullþakkað, því svoleiðis kann maður að meta. Hann verður bara að hætta að reyna að drepa sig í þessum rallíum. Það borgar sig varla. Ekki getur hann haft bikarana með sér eftir síðasta rallíið á jörðinni. Náttúruverndarráð segir líka að það megi ekki plægja svona upp jörðina og ekki hvetur lögreglan menn til þess að dansa svona á götum. Nei, Ómar, hættu þessu helv- ítis ralli áður en konan þín tekur af þér ráðin og allar góðar konur fylgja henni að máli. Síðan langar mig til þess að minnast á mjög góðan samtalsþátt við Auði Eir og Gunnar Kvaran. Sá þáttur var bæði fræðandi og bæt- andi.Ef bara allir hugsuðu svona, þá væri nú öðruvísi í þessum heimi í dag. Það er svo ótrúlega margt hægt að gera sem kostar lítið en bjargar miklu. Svö má nú ekki gleyma Þorgeiri Ástvaldsyni. Þættirnir hans eru oft afbragðsgóðir, fyrir utan nú blessað fallega og glaða andlitið hans og glampann í augunum. Þá er það hann Trausti veðurfræð- ingur. Hann er nú alveg rúsínan í öllu saman. Ég þakka honum svo innilega fyrir hvað hann kemur skemmtilega fyrir og munu víst margir vilja taka. undir þau orð. í mtnum huga er hann alltaf gleðigjafi. Muna Jóna skrifar okkur frá Dýra- firði og segir m.a. að Trausti Jónsson veðurfræðingur sé „nú alveg rúsínan i öilu saman”. Á Munda Jóna þá við rikisfjölmiðlana okkar svona yfir- ieitt. Bréfritara þykir slæiega staðið að framkvæmdum borgarinnar við Elliðavog og Kleppsmýrarveg. Eins og svartar vof ur á gatnamótunum Grænu pennana burt úr sjónvarpinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.