Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. 21 Þar eyöi- ff lögðu þeir Akureyri” — Ákveðið að hefja f ramkvæmdir við uppfyllingar í „Bótina” á Akureyri vegna hraðbrautar um bæinn Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveöið aö ráöast í framkvæmdir viö gerö hraöbrautar frá Kaup- vangsstræti aö Strandgötu, sem er hluti af þjóöveginum um bæ- inn. Þegar þessum áfanga er lok- ið ereftir spottifrá Strandgötu aö Grænugötu, til aö ljiika lagningu tveggja akbrauta hraðbrautar i gegn um bæinn endilangan. Þessi kafli brautarinnar, frá Kaupvangsstræti aö Strandgötu, hefur valdið verulegum ágrein- ingi i bæjarstjórn. Framkvæmdir þessar fela i sér, aö fyllt veröur upp i Torfuneshöfnina og svo- nefnda „Bót”. Bæjarfulltrúamir GisB Jónsson og Tryggvi Gislason hafa veriö helstu talsmenn gegn þessum uppfyllingum i bæjar- stjórn. Vildu þeir sveigja braut- ina inn fyrir Bótina, til að halda þvi sem þeir töldu Sérkenni Akur- eyrar. Gerðu þeir lokatilraunina til varnar á f undi bæjarstjórnar á þriðjudaginn. Fluttu þeir þá til- lögu um að framkvæmdum við uppfyllingar i Bótina og hluta hafnarinnar yrði frestað, þar til búið yrði að hanna og ákveða framkvæmdir við nýja höfn, sem gegndi þvf hlutverki er Torfu- neshöfnin gegnir nU. Benti Tryggvi á það máli sínu til stuðn- ings, að það væri ekki ráðlegt að rifa gamla húsið áður en hægt væri að flytja inn i það nýja. Sig- urður Óli Brynjólfsson, flokks- bróðir Tryggva.taldiílagi að rifa eitthUs ef maður ætti tvö þótt þaö nýja væri ekki tilbúið. Freyr Ófeigsson taldi i lagi að rffa hluta af gamla húsinu, þar til bUið væri að byggja það nýja. Þessi sjónar- mið Sigurðar Óla og Freys spegla sjónarmið andmælenda Tryggva og Gísla f bæjarstjórninni. Fór svo, að þeir voru bornir ofurliði, þvi tillaga þeirra fékk aðeins þeirra atkvæði gegn 9 atkvæðum annarra bæjarstjómarmEmna. „Þar með eru þeir búnir að sturta i höfnina”, dæsti i Rögnvaldi Rögnvaldssyni, ráðhUsherra Akureyringa, þegar þessi Urslit lágu fyrir. Og Rafn Hjaltalin, bæjargjaldkeri, sem einnig var mdial áheyrenda, bætti við: „Þar eyðilögðu þeir Akureyri”. Lokað próf kjör Sjálf stæðisf lokksins íReykjavík: Flokksmönnum hef- ur fjölgað um 600 Um sex hundruð manns hafa gengið i' Sjálfstæðisfélögin I Reykjavík eftir að ákveðið var 8. október að prófkjör fyrir borgar- stjórnarkosningarnar yrði lokað, að þvi er Sveinn Skúlason fram- kvæmdastjóri Fulltrúarráðs Sjálfstæðisfélaganna I Reykjavik sagði f samtali við Vísi. Lætur nærri að félagatalan hafi aukist um 9% en félagsbundnir sjálf- stæöismenn I Reykjavik voru 6.800. Sveinn sagði að megnið af nýju félagsmönnunum væri fólk sem hefði tekið þátt i prófkjörum Sjálfstæðisflokksins á undan- förnum árum en einnig hefði mikið af ungu fólki gengið i flokk- inn. Hann reiknaöi með þviað enn fleiri létu skrá sig i' flokkinn á næstu dögum og prófkjörs- dagana nú um helgina mætti biiast viö þvi að um þúsund manns létu skrá sig. Um framkvæmd prófkjörsins gilda þærreglur að allir þeir sem verða orðnir 20 ára á kosninga- daginn 23. mai á næsta ári geta látið skrá sig um leið og próf- kjörið fer fram og þannig öðlast rétt til þátttöku. Félagsbundnir sjálfstæðismenn á aldrinum 16-19 ára hafa einnig rétt til þátttöku i prófkjörinu ef þeir hafa gengið i flokkinn fyrir prófkjöriö. —KS ÆVINTÝRA- SIGLING 24.jan~14.feb Frankfurtj George Town/Qayman Bay/Jamaica I / Sto. Tomas/ Guatemala ^Qpdqgena/Kolumbia ' s;_§tpeorge’s/Grenada ""lSridgetown/Barbado^ n\estad,^_zue\a 0Ta'TralMeneZ uaG°aj u / Belem/Brasilia Recife/Brasilia Vegna sérstakra samninga getum við nú boðið uppá eina glæsilegustu ferð sem íslendingum hefur gefist kostur á. Flogið verðurtil Frankfurt, Vestur Þýskalandi og þaðan með breiðþotu í beinu leiguflugi til Montego Bay, Jamaica. Þar verður stigið um borð í lúxusskipið Berlin, sem búið er öllum hugsanlegum þægindum. Siglingin með viðkomum tekur 20 daga og verður efnt til skoðunarferða á öllum viðkomustöðum. Að lokinni siglingu, verður flogið frá Recife Brasiliu um Frankfurttil íslands. íslenskur fararstjóri verður með hópinn allan tímann. OMTIK FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388 og 28580. Snyrti-og nuddstofan Paradís Fischersundi Sími 21470 Opið laugardaga Sigrún J. Kristjánsdóttir Snyrtifræðingur og sjúkranuddari Við höfum þann heiður að bjóða þig aldeilis velkomin á Texas snack bar, í hjarta borgarinnar eða öllu heldur við Hallærisplanið í Reykjavík. Við kappkostum að gera þig ánægðan og bjóðum ýmsar tegundir rétta sem eru af- greiddir á stundinni. HEITIR OG KALDIR RÉTTIR, - NYR X ^ JL- ALLT EFTIR ÞÍNUM OSKUJSl. SNAfCK.* BAR Á TEXAS MENU finnur þú rétti á sanngjörnu verði, fyrst skal telja Texas-borgara í ýmsum gerðum, samlokur sem eiga sér ekki líkar og auðvitað pylsur. Auk þess bjóðum við Texas-pizzu sem freistar þín örugglega. VERTU VELKOMIN, - GÓMSÆTIR RÉTTIRNIR BÍÐA ÞÍN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.