Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1981, Blaðsíða 37
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1981. 37 „Þegar tíu ráðherrar halda sérstakan fund um hvað snúð- ur með gtassúr skulí kosta” Þjóðfélagið er þjakað af verðbólgu, öryggisleysi og óvissu um framtíðina. Auðlindir, menning, menntun, dugnaður og fjölhæfni þjóðarinnar kemur allt fyrir ekki. Framfarasóknin er koðnuð í fæðingunni og ungt fólk sér ekki fremur en það eldra trausta fótfestu framundan. Leiði, firring og flótti vegast á við reisn og afrek og hafa betur, oftar en ekki. íslendingar eiga bágt, þeir eru á villigötum. Þetta gæti verið i hnotskurn álit æði margra á stöðu islenska þjóðfélagsins. Og siðan er spurt: Hvers vegna er ástandið á þennan veg? Hvers vegna er svo komið fyrir þjóðinni, sem hefur alla möguleika og burði til þess að vera glæst fyrirmynd, frjáls, rik af öllu, sjálfstæð og sæl með sitt? Ofstjórn ríkisins drepur framtakið og framfar- irnar Með þessar vangaveltur I huga hélt ég á fund Arna Arna- sonar framkvæmdastjóra Verslunarráðs tslands að loknu Viöskiptaþingi 1981. Sllkt við- skiptaþing er haldið á vegum Verslunarráösins annað hvert ár, þar sem fjallaö er hverju sinni um það sem hæst ber i at- vinnumálum og þá efnahags- málum um leið. Að þessu sinni fjölluöu 180 þingfuiltrúar um „framtiö einkarekstrar” og á þessu þingi var samþykkt endurskoðuð stefna Verslunar- ráösins i efnahags- og atvinnu- málum. 1 þeirri stefnu er meðal annars að finna „áætlun um al- hliöa atvinnuuppbyggingu og varanlegar aögeröir til verð- hjöðnunar”, þar sem aðgerðir eru skýrðar, rökstuddar og jafnvel dagsettar til heils árs fram i timann. Stefna og áætlun Verslunar- ráðsins eru itarlegri, ná- kvæmari og markvissari gögn um þessi mál en venja er að sjá frá hagsmunasamtökum i þjóð- félaginu. Og þessi gögn fullyröa þeir Verslunarráðsmenn að gætu lagt grunninn að nýrri framfarasókn. — Árni, er það ykkar skoðun aö efnahags- og atvinnulifið sé á vonarvöl? „Það er komið ilt i ógöngur, stöönun og jafnvel afturför. Enda þótt eignarform atvinnu- lifsins almennt gefi ekki til kynna að það sé rikisrekiö heldur aö stærstum hluta einka- rekstur og samvinnurekstur, segir það ekki söguna eins og hún er. Atvinnuvegirnir eru skipu- lagðir af opinberum aðilum i öllum meginatriðum og jafnvel smáatriðum, og þeim eru skömmtuð kjör eftir opinberum útreikningsaðferðum, sem miða við allt aðrar forsendur en frjálst atvinnulif verður að gefa sér. Samkeppni er sem sagt litið meira en nafnið tómt og ofstjórn rikisins drepur framtakið og framfarirnar, skapar þessa kyrrstööu og afturför, sem hefur svo aftur niðurdrepandi á- hrif á fólkið og dregur úr vilja og lifsánægju. Alþingi hefur afsalað sér völdunum til ráðherra — Er þetta ein tegund af só- sialisma...? „Já, þetta er markaössó- sialismi meðal annars. Menn eru orðnir háöir rikisvaldinu um mikilvægustu þætti afkomu sinnar, hvort sem þeir eru at- vinnurekendur eða launþegar. Rikið ræður orðið I reynd hver lifir og hver deyr. Það hefur aukið skattheimtu sina úr 25% i 45% af þjóðartekjunum á siöustu 30 árum og opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um helming. Rikið hefur einnig bæði með lögum og skipulagi á ráöstöfun fjárfestinga og láns- fjár gerst sifellt umsvifameira i atvinnulifinu, I greinum sem einkaaöilar gætu að ööru jöfnu annast fullkomlega. Með sama hætti eru stærstu þættir opin- berra framkvæmda i höndum rikisins sjálfs og það leitar slðan aðeins til annarra, þegar það ræður ekki við kúfana. En þetta kemur i veg fyrir að hér blómg- ist verktakaiðnaður. Hlutur Alþingis i þessu efni er athyglisveröur. Það hefur sýnt stöðugt minna sjálfstæði og að- hald og veitt ráðherrum gifur- legtvald. Við skulum átta okkur á þvi, aö hér mætti til dæmis breyta algerlega um efnahags- stefnu og kúvenda þar i hverj- um einasta þætti bara með breyttum reglum frá ráðherr- um og rikisstjórn. Alþingi hefur brugöist, þegar löggjöf er orðin nánast nafnið eitt og ráöherrum falið valdiö eins og það leggur sig.” Rikið leysir engan vanda, það er orðið vandamá lið — Nálgast það þá ekki stjórn- leysi, ef málefni þjóðarinnar ráöast af tilskipunum ráöherra á hverjum tima? „Jú, þingræöisvaldið er að breytast I smákóngavald og það Þegar rikisstjórn þjóðarinnar er komin þetta langt út fyrir eðlilegan starfsvettvang sinn i umboöi Alþingis, er ekki von á góðu. Og viljaleysi Alþingis speglast auövitað i itarlegum umræðum um hvert smámáliö af ööru á meðan þjóðin situr i súpunni eftir árangurslitla bar- áttu þingmanna við að treysta undirstöður þjóðfélagsins. Mergurinn málsins er sá, að stjórnmálaflokkarnir og stjórn- málamennirnir hafa komið sér i aðstööu til þess að segja ein- staklingunum og fyrirtækjunum hvernig hver og einn skuli sitja og standa. Þetta er fyrir- greiðslupólitikin, sem ekki tekst að uppræta af þvi að fyrir- greiöslumennirnir þora ekki að sleppa höndunum af beislinu og svipunni. Það er litil reisn yfir þessari tegund af pólitik og hún er ekki árangursrik fyrir þjóö- ina, þvert á móti. Þetta smá- kóngaveldi, sem stendur og fellur á misskilningi Alþingis á hlutverki sinu, er þaö sem er að gera okkur Islendinga grá- hærða.” Atvinnulífið á sjálft að bera ábyrgðina, ekki rikið — Hvernig viljið þið breyta efnahags- og atvinnulifinu nú, er það hægt án mikilla fórna og á skömmum tima? „Við eigum fyrst og fremst að færa ábyrgðina aftur til at- vinnulifsins. Alþingi á að setja meginreglur og hafa eftirlit með þvi að vilji þess nái fram að bylta neinu, það duga úrræði, sem hér hefur verið beitt áöur og við þekkjum. Aðgerðirnar felast i þvl að örva innlendan sparnað og draga þannig úr eftirspurn og neyslu, auka sam- keppni með frjálsri verömynd- un undir eftirliti og lækka ó- beina skatta. Um leiö þarf að framkvæma markvissa áætlun i orkumálum til þess að örva fjárfestingu og framleiðni I fyrirtækjum og mynda grund- völl að bættum lifskjörum. Þessar aðgerðir þarf að gera á skömmum tima og þær verða að leiða til sjáanlegs árangurs mjög fljótt. Við Islendingar erum þannig gerðir, aö við höf- um ekki þolinmæði til þess að biða lengi eftir þvi aö fá umbun erfiðisins. En hér er fólk tilbúið til þess að taka á og hrista af sér verkefnin, ef vissa er fyrir þvi að þau skili árangri.” Verslunarráðið leggur fram eins árs áætlun — Aætlun Verslunarráðsins um „alhliða atvinnuupp- byggingu og varanlegar aðgerð- ir til verðhjöðnunar” er nokkuö nýstárlegt og skilmerkilegt plagg. Er það ein tegund af leiftursókn, sem þiö leggið til? „Ef þú átt við svokallaða leiftursókn Sjálfstæðisflokksins frá þvi fyrir siöustu kosningar, þá ber fyrst að lita á það að hún var engin leiftursókn. Þar að auki voru áform Sjálfstæðis- flokksins afar óljóst skilgreind fyrir almenningi, sem vissi þar af leiðandi ekkert hvaðan á hann stóö veðriö. Þessi áætlun okkar byggir á tiltölulega einföldum aðgerðum, sem allar eru þekktar. Hún byggir á samræmingu þekktra aögerða varðandi þá þætti, sem ég nefndi hér áðan. Hún byggir á þvi að tilkynntar verði alveg ákveðnar aðgeröir fyrirfram og dagsettar ár fram i timann, þannig að þjóðin sjái fyrir sér tiltekna þróun. Við teljum að Viðtal við Árna Árnason framkvæmdastiðra í framhaldi af viðskiptahingi verslunarráðs íslands, um: - íslenskan markaðssðsíalisma - vandamálið, islenska rikið - Mikilvægi einkarekstursins - Hyja efnahags- og alvinnustefnu má auðvitað færa aö þvi mjög sterk rök að hentistefna og stjórnleysi séu næstu skrefin, ef Alþingi lætur skeika að sköp- uöu. Viö erum komnir of langt út I ríkisafskipti og ástandið I þjóðfélaginu lýsir þvi best aö rlkið leysir ekki vandamálin, þaö er þvert á móti orðið vanda- mál. Það lýsir þvi ákaflega vel á hvaða braut við erum, þegar tiu ráðherrar þurfa aö halda sér- stakan fund til þess aö ákveða hvað snúður meö glassúr skuli kosta. ganga. Rikisstjórn á hverjum tima á að lúta ströngu aðhaldi Alþingis. En mestu máli skiptir aö áherslur og ábyrgð færist aftur til atvinnulifsins, sem þá verður að sjálfsögðu að hafa eölilegt svigrúm til þess að geta staðist I samkeppni á þeim fjöl- þjóðlega markaði, sem nær orö- ið til okkar i mjög mörgum og raunar flestum greinum. Það er hægt að ná skjótum á- rangri i baráttunni við verð- bólguna án þess að fórna nokkru öðru en þessu smá- kóngaveldi. Til þess þarf ekki að Arni Árnason. með þessum hætti megi koma verðbólgu niður fyrir 20% á einu ári og varðveita árangurinn til frambúðar með nýrri skipan i efnahags- og atvinnumálunum. Sá samdráttur i opinberum framkvæmdum og afskiptum, setn við hugsum okkur i þessu sambandi, yröi aðallega með þeim hætti að gera bankakerf- inu kleift að fjármagna atvinnu- lifið i stað sjóðakerfisins, auk þess að með skattalækkunum yrði bæði breytt launakjörum og atvinnulifið örvað til aukinna og nýrra verkefna. Einkareksturinn hefur alls staðar grundvallar- þýðingu — Hver yröi hlutur einka- rekstursins i þessum breyting- um? „Einkareksturinn hefur alls staðar grundvallarþýðingu, en þýðing hans veröur þeim mun ljósari, þegar honum eru sköpuð skilyröi til þess að njóta sin. Eins og ég sagði i upphafi þessa viðtals, er atvinnulifiö hér á landi oröið ofurselt markaðs- sósialisma og hér rikir stöönun og jafnvel afturför. Hlutur einkarekstursins i breyttu efna- hags- og atvinnulifi yrði væntanlega mikill og af honum má fyrst og fremst vænta bar- áttu og sjáanlegs árangurs á mjög skömmum tima. Við skulum ekki gleyma þvi, að Sovétmenn myndu drepast úr hungri ef þriðjungurinn af matarforða þeirra kæmi ekki frá einkarekstrinum i Sovétrikj- unum, þar sem aöeins 1% jarð- næðis gefur þennan hlut. Samt var Okraina kornforðabúr Evrópu, en Sovétmenn hafa verið háöir vesturlöndum og einkum Bandarikjunum með korn i áratugi. Berum saman Kina og Formósu, á Formósu eru tifalt hærri þjóðartekjur á mann en i Kina, eða virðum fyrir okkur Japan og Sovétrikin, sem stóðu jafnfætis eftir seinni heimsstyrjöldina, eða Kenya og Tanzaniu i Afriku, lönd hlið við hlið en með gjörólikt efnahags- og atvinnulif, Filabeinsströnd- ina og Gineu... og þannig mætti lengi telja. Það er lærdómsrikt að ferðast um Vestur-Evrópu og Austur-Evrópu með þennan samanburö i huga. Það blandast engum hugur um áð járntjaldið skiptir þjóðum eftir efnahags- kerfum, svo að munar áratug- um, þótt ekki séu nema 35 ár frá þvi aö þessar þjóðir hófu endur- reisn eftir heimsstyrjöld. Hér á landi lifum við ennþá við striðsminjar i efnahags- málum og erum enn tvistígandi yfir aðgerðum til framfara, sem aðrar frjálsar þjóðir hafa sannað að skipta sköpum. Menn trúðu þvi jafnvel ekki 1960 að hér yrði til gjaldeyrir, þegar frjálsræðið var aukið, en viö þurftum ekki að nota lánaheim- ildir erlendis, þegar til kom. Þvi miður stóð sú frjálsræðis- þróun sem hófst 1960 ekki nema i fjögur ár, en við stæðum i öðr- um sporum nú ef þá hefði fylgt frjáls verömyndun, opnir lána- markaðir og frjáls gjaldeyris- og millirikjaverslun. Framfaraþróuninni hér hjá okkur hefur seinkað, en hún er ekki úr sögunni, ef við spilum rétt úr þvi sem við höfum á hendinni. Til þess þarf að losna við hindurvitni og læra tökin á þvi að nýta okkur meiri þjóðar- auð en flestar aðrar þjóöir eiga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.