Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Síða 2
2.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981.
NIARDVIKINGAR
HÖFNUÐU
SAMRUNA
VIÐ KEFLAVÍK
— bæjarstjórn sammála um að sameining sé ótímabær
Bæjarstjórn Njarðvíkur
samþykkti samhljóða í gærkvöld að
ekki sé tímabært að athuga um sam-
runa Njarðvíkur og Keflavíkur, en
bæjarstjórn Keflavíkur hafði
samþykkt tillögu um slíka athugun
20. október í haust.
Keflvíkingar lögðu til að kosin
yrði nefnd fjögurra manna, tveggja
frá hvoru bæjarfélagi, til þess að
kanna kosti og ókosti við hugsanlega
sameiningu. Var gert ráð fyrir að
þessari athugun lyki fyrir 1. febrúar.
Bæjarráð beggja bæjarfélaganna
héldu sameiginlegan fund snemma í
nóvember og bæjarstjórn Njarðvíkur
fjallaði síðan um málið 10.
nóvember. Frá þeim fundi hafa félög
þeirra fjögurra flokka sem fulltrúa
eiga í bæjarstjórn Njarðvíkur haldið
fundi með kjósendum, og kom í ljós,
að lítill áhugi var í bænum á þessu
máli. Sú niðurstaða lá fyrir á bæjar-
stjórnarfundinum í gærkvöld. Auk
þess kom þar fram, að bæjarfulltrú-
um þótti of skammt til kosninga til
þess að raunhæft væri að vinna að
sameiningu nú. Það mál kynni að
valda stórpólitísku moldviðri og ýta
til hliðar eðlilegum og nauðsynlegum
umræðum um almenn bæjarmál.
DV hefur fregnir af því, að
óformlegar skoðanakannanir í Kefla-
vík og Njarðvík hafi speglað sömu
niðurstöðu og hjá bæjarstjórnunum.
Keflvíkingar séu almennt hlynntir
sameiningu, en Njarðvíkingar mót-
fallnir henni.
-herb.
Meðal kvenna á Akureyri ríkir mikill áhugi um kvennaframboö, en margt þarf að
ræða áður en það getur orðið að veruleika. Hér spjalla þær saman (frá vinstri) Val-
gerður Bjarnadóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Sigfríður Þorsteinsdóttir og Lára
Erlingsen. DV-mynd: Guðmundur Svansson.
Undirbúningur fyrir kvennaf ramboðið á
Akureyri er í f ullum gangi:
GRUNNTÓNNINN í
STEFNUSKRÁNNI
VERÐUR JAFNRÉTTI
Litið inn í söltunarstöð FH á Höf n:
Ekki aðgerðaleysi þó
vertíð se lokið “
Starfsmenn i söltunarstöð FH á Höfn með tunnustaflana að baki sér.
Enginn skyldi halda að starfsfólk í
söltunarstöðvum landsins sæti
auðum höndum þó svo hinni stuttu
síldarvertíð sé lokið. Fréttaritari DV
á Höfn gerði sér ferð í söltunarstöð
FH á Hornafirði fyrir skemmstu,
svona rétt til að komast að því hvort
eitthvað væri um að vera í bænum.
Ekki bar á öðru því þar voru allir
á fullri ferð við að pækla, velta og
umhlaða síldartunnum í lagerhúsi,
sem starfsmenn töldu að rúmaði um
20.000 tunnur. A.m.k. virtist vd rúmt
um þær 16.000 sem saltaðar voru í
haust. Stöðin hefur ennfremur annað
húsnæði sem rúmað getur 10.000
tunnur ef á þarf að halda. Var
verkstjóri stöðvarinnar óhress yfir
að geta ekki nýtt betur þann húsa- og
vélakost, sem fyrir hendi er því hluti
Hornfirðinga í síldveiðunum væri
stór. -Júlía, Höfn/SSv.
„Jafnrétti er grunntónninn í þeim
drögum að stefnuskrá sem unnið hefur
verið að og væntanlega verður tilbúin
eftir 2—3 vikur,” sagði Elín Antons-
dóttir, einn af talsmönnum fyrirhugaðs
kvennaframboðs á Akureyri, í samtali
við blaðið.
Helgina 15.-16. nóvember var
haldin ráðstefna í Hrafnagilsskóla, þar
sem unnið var að stefnuskránni og rætt
um starfið framundan. Sagði Elín, að
góð samstaða og einhugur hefði ríkt á
ráðstefnunni og engan bilbug væri að
finna a því fólki, sém stæði á bak við
fyrirhugau framboðog stöðugt bættust
nýir stuðningsmenn í hópinn. Taldi
Elín, að um 40 manns hafi sótt
ráðstefnuna.
Ekki er farið að ræða skipan fram-
boðslistans, en á þinginu var rætt um
þátttöku í fyrirhuguðu sameiginlegu
prófkjöri stjómmálaflokkanna á
Akureyri vegna bæjarstjórnar-
kosninganna á næsta ári. Kom fram
fullur vilji til þess á ráðstefnunni að
kanna þann möguleika til hlítar. Þá
voru þær Valgerður Bjarnadóttir,
Gunnhildur Bragadóttir, Jónína
Marteinsdóttir og Konný Kristjáns-
dóttir kosnar í uppstillingarnefnd.
Einnig var kosið 1 fjáröflunarnefnd, út-
gáfunefnd, kosninganefnd og nefnd til
að vinna úr þeim drögum að
stefnuskrá, sem liggja fyrir, þegar yfir-
standandi hópvinnu um einstaka mála-
þætti lýkur. G.S./Akureyri.
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Videó í gangi
dagognótt
Video-æöiö hefur leikíö
landsmenn misjafnlega grátt
en almennt hefur afleiöing
myndbandavæöingarinnar
orðið sú, að menn horfa
meira en nokkru sinni á skjá-
inn. Myndböndin hafa ekki
komið í stað slakrar dagskrár
i siónvarpl heldur aðeins hæsl
við hana og þá iöulega að
henni lokinni.
Sandkorn vissi til þess
að slíkt var úthaldið yfir vide-
óinu í einu húsi úti á lands-
byggðinni að heimilisfóikið
lét sig ekld muna um að horfa
á tvær kvikmyndir að sjón-
varpsdagskrá lokinni á föstu-
dagskvöldi. Að sjálfsögðu var
sú síðari svæsin klámmynd,
sem'ftyndi mjög á þolrifin i'
þeim er á horfðu.
Foreldrarnir voru enn að
nudda stírurnar úr augunum
upp úr lO. þegar smáfólkið á
bænum var farið aö taka bak-
föll af hlátri yfir aðförum
Tomma og Jenna og annarra
úr þeirra vinahópi. Kl. 13
stóð svo til að endursýna fyrri
myndina frá því kvöldið áður.
Það er ekki eitt heldur allt
þegar við íslendingar tökum
ástfóstri við hlutina.
Sex tímum
of seinn
Sameining Dagblaðsins og
Visis kom fleirum en starfs-
fólkinu einu saman á óvart.
Árni Gunnarsson, alþingis-
maður, var einn þelrra er
hrökk iilitega við. Hann fékk
|þaö hlutverk að boða Hörð
Einarsson, framkvæmda-
stjóra Visis, á sáttafund í
deilum á milli Visismanna og
hinna blaðanna f Blaðaprenti.
Að morgni sl. flmmtudags,
fæðingardags nýja blaðsins,
hafði Ami samband við Visi
Aml Qunnarason var akkl nona
■yfjukitfur ar hann komst afl aamaln-
ktgu Dagblaðalna og VWa.
og vildi ná tali af Herði til
þess að boða hann á áður-
nefndan fund. Ekki tóksl
Áraa að ná tali af Herði ein-
hverra hluta vegna en fékk í
staðinn samband við Kjartan
L. Pálsson, sem útlistaði fyrir
honum hvað gerst hefði. Vísir
værí einfaldlega ekki til
lengur. Árni sat andaktugur
yfir útlistunum Kjartans en
gat ekki setið á sér og skellti
uppúr: „Ég hef Ifkast til
hringt einum 6 timum of
seint.”
næstu 12 árín
Viðtalsbók Ólafs Ragnars-
sonar við Gunnar Thorodd-
sen forsætisráðherra kom út í
gær. Á fundi sem þeir tveir
héldu með blaðamönnum af
þvi tilefni sagði Ólafur m.a.
að ýmsar myndir i bóklnni
segðu meira en mörg orð.
I framhaldi af orðum hans
hljóta menn að spyrja sig
hvað verið sé að gefa i skyn
með því að hafa síðustu mynd
bókarinnar af þeim Gunnari
og Konrad Adenauer, kansl-
ara Vestur-Þýskalands,
saman. í bókinni er bent á að
Adenauer hafi byrjað feril
sinn sem forsætisráöherra 73
ára gamall og gegnt þvi
embætti i 14 ár. . . .
Urðu í 2. sæti
í seinni heims
Þjóðerniskennd er okkur
íslendingum ákaflega sterkt i
blóð borin og eru sennilega
fáar þjóðir heims, sem Ifta
eins stórt á sig og við. Fremst-
ir allra á þessu sviði eru þó
vafalftiö Þjóðverjar, sem
neita því slaðfastlega að þeir
tapi nokkurn timann. Þeir
halda þvi t.d. fullum fetum
fram aö þeir hafi ekki tapað
síðari heimsstyrjöldinni. Þeir
hafi orðið f 2. sæti.
Njarðvíkur-
kirkjja í hættu?
Nú er á döfinni málarekstur
milli Jes Einars Þorsteins-
sonar arkitekts og Njarð*
vikurbæjar þar sem Jes Einar
er óánægður með það hvernig
Njarðvfkingar fara með
íþróttahúsið þar. Hann teikn-
aði þetta hús og var það
fyrsta verkefni hans af
mörgum, sem hann hefur
annast á þessu sviði. Njarð-
víkingar hafa undanfarin ár
asnast til að setja upp gardfn-
ur, mála og jafnvel setja hurð
fyrir klósett án þess að leita
eftir heimildum Jes Einars.
En þá fyrst keyrði um þver-
bak, þegar þeir girtu af agnar-
lítið horn úti við húsið og fóru
að hugsa um að setja þar
niður heita potta fyrir gufu-
baðsgesti. Jes Einar hefur nú
fengið hæstaréttarlögmann í
málið.
Njarðvikingar eru sagðir
óttaslegnir um framtfð nýju
kirkjunnar sinnar, sem stend-
ur f aöeins 200 metra fjariægð
frá íþróttahúsinu.
Umsjón: Sigurður Sverrisson
Seffoss:
Aldraðirfá
átta íbúðir
— einn hlakkartilað
deyja í svona
faílegri íbúð
Þann fyrsta desember var
afhent 8 íbúða hús sem
leiguíbúðir handa öldruðum á
Selfossi. Húsið er að Grænumörk
1. f þvi eru 4 hjónaíbúðir, 51
fermetri að stærð hver. Er leiga
fyrir þær 925 krónur á mánuði.
Einnig eru 4 einstaklingsíbúðir,
42 fermetrar að stærð. Fyrir þær
eru greiddar 650 krónur á
mánuði.
Byrjað var á húsinu fyrir
hálfu öðru ári. Reiknað er með að
það kosti um 4 milljónir að sögn
Jóns Guðbjörnssonar sem sér um
öll fjármál Selfossbæjar hvað
varðar þessar leiguíbúðir.
Selfossbær hefur þegar hafið
framkvæmdir við annað hús eins,
fyrir eldri borgarana. Reiknað er
með að það verði tekið í notkun í
apríl árið 1983.
Matsala verður fyrir þá ibúa
nýja hússins sem það viija á
Sjúkrahúsi Selfoss. En ibúðirnar
eru með flottum eldhúsum og
búrum, þannig að búast má við
að þeir eldi ofan í sig sem það
geta. íbúðirnar eru skemmtilega
innréttaðar og kemur hver og
einn með sín húsgögn. Bæjar-
félagið leggur hins vegar til hús-
gögn í sameiginlega setustofu og
eru þau í björtum og upplifgandi
orange-lit. Jón B. Stefánsson
félagsmálastjóri sagði einmitt við
afhendinguna að hann teldi á-
ríðandi að gamla fólkið hefði
bjarta og fallega liti í kringum sig.
Sameiginlegur gangur er prýddur
stóru keri með lifandi blómum,
sem gefa hlýlegan svip.
Margt manna var við
afhendinguna og var á að heyra
að öllum litist vel á. Einn gamlan
mann sem þarna fékk íbúð heyrði
eg segja að hann hlakkaði til að
deyja í svona fallegri ibúð.
Honum fyndist hann strax
kominn til himnaríkis.
-Regína/Selfossi.
Þorrifærnýjavél
Þorri SU bátur Pólarsíldar á
Fáskrúðsfirði fór í reynsluferð á
mánudag. Verið var að setja nýja
Mannheim aðalvél í bátinn. Vélin
er 950 hestöfl og gekk prófun
hennar vel í hvítvetna. Vélin var
að mestu sett í af starfsmönnum
Pólarsíldar undir stjón Agnars
Jónssonar verkstjóra.
-DS/Ægir, Fáskrúðsfirði.