Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1981, Síða 22
22
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
LAPPARSTlG 29
(milli Laugavegarog
Hverfisgötu)
Timapantanir
í síma
13010
T Útboð —
Ji Loftræstikerfi
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í smíði og uppsetningu loft-
ræstikerfa í iþróttahús Víðistaðaskóla.
tftboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn 500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15.
desemberkl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Tilboð óskast
í neðangreindar bifreiðar, skemmdar eftir umferðaróhöpp:
Ford Ltd. station 1977
Volvo 144 árg. ’73
Mazda 929 árg. ’79
Austin Allegro árg. ’78
Wagoneer árg. ’79
Datsun Homer DIsil (pallbíll) árg. ’81.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Hamarshöfða 2 fimmtu-
daginn 3. des. kl. 12:30 til 17.'00.
Tilboðum sé skilað eigi síðar en föstud. 4. des. á skrifstofu
vora Aðalstræti 6.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN H/F
SMIÐJUVEGI8 KÓPAVOGI
Gamli góði
barnastóllinn kominn aftur
Fáaniegur í:
beyki, hv'rtlakkaður og brúnu
Verð kr. 740,-
NÝBORG
húsgagnadeiid,
Ármúia23 -Sími86755
Nýborgarhúsgögn, Smiðjuvegi 8,
Kópavogi. Sími 78880.
„Við erum ekki
„Við sr. Þórhallur Höskuldsson er-
um ágætir vinir og við ætlum okkur að
vera það áfram. Þess vegna höfum við
einsett okkur að standa að þessum
kosningum á eins friðsamlegum grund-
velli og frekast er unnt. Við erum ekki í
stríði. Við bjóðum þjónustu okkar og
hlítum þeim úrskurði sem söfnuðurinn
kveður upp. Ég bið þess að blessun
fylgi störfum þess sem kallaður verður
til starfa”, sagði sr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, sem sækir um Akureyrar-
prestakall ásamt sr. Þórhalli Höskulds-
syni.
Sr. Jón er Þingeyingur að ætt og
uppruna, fæddur að Ófeigsstöðum í
Kinn, en uppalinn á Rangá í sömu
sveit. Jón er 35 ára gamall, sonur hjón-
anna Baldvins Baldurssonar, oddvita á
Rangá og Sigrúnar Jónsdóttur. Jón
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1%8 og Guðfræðiprófí
lauk hann frá Háskóla íslands 1974.
Síðar sama ár var hann vígður til þjón-
ustu í Staðarfellsprestakalli, en undir
það prestakall heyrir heimasveit Jóns.
Þar hefur Jón þjónað síðan, að undan-
skildu einu ári, sem hann notaði til
framhaldsnáms í sálgæslu í Edinborg.
Þó Jón sé eini „útlendingurinn” í
hópi þeirra presta, sem sækja um
prestaköllin á Akureyri, þá bætir hann
það upp með Margréti Sigtryggsdóttur,
eiginkonu sinni, sem er Akureyringur.
Hún er dóttir Sigtryggs Júlíussonar,
rakarameistara, og Jóhönnu Jóhanns-
dóttur. Margrét varð stúdent frá MA
árinu á undan Jóni. Siðan nam hún
tækniteiknun við verkfræðideild Há-
skóla íslands. Aftur settist Margrét á
bekki Háskólans til að nema grísku og
dönsku. Eftir að í Staðarfell kom hefur
Margrét kennt við Stóru-Tjarnarskóla
og Hafralækjarskóla. Margrét og Jón
eiga tvær dætur, Sigrúnu 12 ára og
Róshildi 9 ára.
Kirkjusókn góð
til sveita
Jón var fyrst spurður um viðhorf til
safnaðarstarfa. „Allar aðstæður til
safnaðarstarfa í sveitinni eru gerólikar
því sem er á þéttbýlli stöðum. Presta-
kall mitt er um 100 km langt og þjóna
ég þar þrem sóknum. Messuhald helg-
ast þvi mikið af tíðarfari og það dugir
heldur ekki að messa yfir háannatím-
ann hjá bændum.
Ég er opinn fyrir því að auka fjöl-
breytni í messugerðinni, til að gera
hana eins áhugaverða og kostur er.
Guðþjónustan er uppspretta þess starfs
sem unnið er í söfnuðinum. En auk
þess vinnur presturinn mörg dulin verk,
sem öll sóknarbörnin gera sér ekki
grein fyrir. Ég get nefnt almenna sál-
gæslu, þjónustu á sjúkrahúsum og í
heimahúsum og sáttasemjarastörf.
Einnig þarf að halda barnastarfi vak-
andi, ásamt starfsemi með öldruðum
og fötluðum, svo fátt eitt sé nefm.
Ég legg mikið upp úr því að gera leik-
menn virka til starfa. Kirkjan er ekki
bara prestarnir, heldur söfnuður allra
þeirra sem vilja fylgja hennar boðskap.
Safnaðarstarfið verður hvorki fugl né
fiskur, nema með sameiginlegu átaki.
Ég legg því meginþunga á að leikmenn
komi til á sem flestum sviðum, einnig
við flutning Guðþjónustunnar. Þeir
geta fært meiri músik og söng inn í
kirkjuna, þeir geta predikað, lesið úr
ritningunni og leitt bænahald. Sóknar-
börn geta miðlað söfnuðinum af list
sinni í kirkjunni”.
Jón er mikill áhugamaður um söng
og hefur sungið í kvartett og kórum,
svo fátt eitt sé nefnt. Hann var næst
spurður um viðhorf hans til kirkju-
söngs?
,,Ég tel að allur söngur geti átt heima
í kirkjum, þó ekki sé allt að minum
smekk. Það þarf að gæta fjölbreytni
við val á kirkjusöngvum, því einstefna
er slæm. Hins vegar verður söngurinn
að vera vel fluttur, hvað sem sungið
er”.
Jón hefur tekið virkan þátt í félags-
starfi innan kirkjunnar sem utan. Það
Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson.
er því í mörg horn að lita í daglegu
amstri prestsins, en hvað gerir Jón þeg-
ar presturinn á frí?
— Rættvid
sr.lónAðalstein
Baldvinsson,
annan
umsækjandann
um Akureyrar-
prestakall
,,Ég er mikill náttúruunnandi og
stunda útiveru eins og kostur er á. Um
sumartímann fer ég talsvert í veiði,
hvort heldur sem von er á laxi eða
silungi. Einnig hef ég mjög gaman af
golfi, en kveikjuna fékk ég úr fjöl-
skyldu konunnar minnar, sem spilar
oft golf að loknum vinnudegi. Margrét
hefur meira að segja orðið Akureyrar-
meistari í íþróttinni. Hins vegar hefur
okkur hjónum sjaldan gefist tækifæri
til að stunda þessa íþrótt á undanförn-
umárum”.
Ekki sáttur við
prestkosningar
Næst var Jón spurður um afstöðu
hans til prestkosninga?
,,Ég er ekki hrifinn af prestkosning-
um og tel að taka eigi upp annað form.
Ég hef stutt þær tillögur sem margoft
hafa verið bornar upp á prestastefnum
og kirkjuþingum, sem síðan hafa dag-
að uppi hjá Alþingi. Þessar tillögur fela
í sér, að sóknarnefndir eða sérstakar
kjörnefndir, velji þann umsækjenda
sem þær telja hæfastann. Umsögn er
síðan send til biskups, sem síðan kemur
henni til ráðherra, sem skipar að lokum
í embættið. í prestkosningum er fram-
bjóðendum att saman og oft verður úr
persónuleg barátta. Að kosningum
loknum er andrúmsloftið i sókninni
erfitt fyrir þann sem sigrar. Oft hefur
það tekið mörg ár að jafna þann
ágreining og græða þau sár sem kosn-
ingar hafa skilið eftir.
Sem betur fer hefur slíkt ekki komið
upp á við undirbúning komandi kosn-
inga. Við Þórhallur tókum höndum
saman um að fyrirbyggja slíkt og ég
vona að það takist”, sagði sr. Jón
Aðalsteinn Baldvinsson i lok samtals-
ins.
bjargað
||UMFERÐAR
f
GSAkureyri