Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1982, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1982, Qupperneq 2
2 DV-HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982. Bretamir f lykkjast út í hreina og óspillta náttúmna — til íslands „Landkynningarstarfið er svipað hjá okkur og áður að öðru leyti en því að nú erum við með nýjan stíl. Áherzla er lögð á lifandi náttúru íslands, hreina, óspillta og frjálsa dýralífið, í staðinn fyrir að áður hefur landslagið sjálft, fegurðin og fjölbreytni þess mótað kynninguna. Viðbrögðin eru stórkost- leg, eiginlega ótrúleg,” sagði Jóhann Sigurðsson, umboðsmaður Flugleiða hf. í London, jregar DV ræddi við hann hér á landi. ,,Það varð myndarleg aukning á ferðum Breta hingað í fyrra, um 30% aukning yfir sumartímann, og alls komu hingað um 8.000 Bretar það ár, fleiri en nokkru sinni fyrr á einu ári. Kynningarstíll okkar nú ætlar síðan að bera ríkulegan ávöxt. Við erum með nýjan bækling og höfum auglýst lif- andi náttúru íslands með selsmynd og viðeigandi texta. Viðbrögðin eru strax slík að núna fyrir viku höfðum við fengið frá áramótum 7 þúsund fyrir- spurnir á sérstökum upplýsingabeiðn- um, sem fylgja auglýsingunum, en allt árið í fyrra fengum við innan við 13 þúsund slikar fyrirspurnir,” sagði Jóhann. íslandsdvöl Jóhanns hér nú var meðal annars tengd undirbúningi að heimsókn forseta íslands til Bretlands í sumar. Stórblöðin Times og Guardian eru að viða að sér íslandsefni. ,,Jú, ég er ekki í nokkrum vafa um að íslandsáhugi Breta á eftir að stór- aukast með forsetaheimsókninni. Hugsum okkur aðeins hvað gerist, þegar þessi blöð og vafalaust fleiri brezkir fjölmiðlar, koma allt í einu með fjölbreyttar upplýsingar um land og þjóð á milljónamarkaði. Ég get til — og væntanlega verður forsetaheimsóknin til þess að kveikja enn meiri íslendingaáhuga — segir Jóhann Sigurðsson umboðsmaður Flugleiða hf. í London Oiðsendfr'ð tíi ásW^en . ,W***'*I'° !u ti' ^eW''r'9utT!^'m verða að ha'a undr sem työ' 'Pel (símaZ7022 ^eSJeVðs\ub!aðs>ns' jndviða'ff pKosta . m munU're^rnPhveviu s'nn'- Jóhann Sigurðsson hefur langa reynslu i að selja Bretum íslandsferðir. (DV- mynd Einar Ólason) dæmis sagt það um slíkt efni í Times, að það lesa einmitt þeir hópar, sem líklegast er að hafi áhuga á íslandi til þess að komast á óvenjulegar slóðir, komast þangað sem er friður og ró og samt góð þjónusta, eða þangað sem þeir komast í snertingu við ýmislegt sem hvergi er að finna annars staðar. Þetta eru til dæmis menn í viðskiptalíf- inu og stjórnkerfinu, menn sem hafa meira en venjuleg peningaráð. Þá er það ekki litil auglýsing fyrir Flugleiðir að komast inn í frásagnir Times, sem er aðalblaðið i viðskipta- heiminum í Bretlandi og geysimikið sem slíkt í ýmsum öðrum löndum, og að þar sé sagt frá því hvernig félagið hefur bætt reksturinn frá 20 milljóna dollara tapi 1979 í jöfnuð eða hagnað í fyrra.” Hvers konar Bretar koma til íslands öðrum fremur? ,,Það er eins og ég sagði frekar fólk með peninga eða fólk sem leitar að hinu óvenjulega í náttúrunni. Þegar ég tala um peningamenn á ég meðal ann- ars við menn í viðskiptalífinu sem gjarnan fara með syni sína þangað sem er rólegt og tími til þess hreinlega að kynnast þeim öðru vísi en í fyrir- tækjunum. Þetta er fyrirbæri, sem er nokkuð algengt í Bretlandi, þótt það kunni að þykja sérkennilegt hér á ís- landi. Nú, með fólkið sem leitar að hinu óvenjulega, þá er það ekki endi- lega í betur stæða hópnum en safnar þá gjarnan til slíkra ferða um lengri tima. Og ísland hefur margt að bjóða þessu fólki.” Hvað er helzt í veginum fyrir Breta sem vilja ferðast til fslands? „Verðlagið hér og minnkandi kaup- geta Breta. Þó má búast við að gengis- breytingin núna hafi jákvæð áhrif og vegi nokkuð þarna á móti í bili. Það hefur þó mest áhrif á einstaklingsferð- ir, minni á hópferðir eða svokallaðar pakkaferðir, sem eru kynntar nokkuð löngu fyrirfram og á föstu verði. Þó er reynt að koma til móts við fólk í þessum pakkaferðum, til dæmis með því að bæta dögum við ferðirnar, án aukakostnaðar.” Jóhann sneri aftur til London i morgun enda nóg að gera að sinna viðskiptunum þar, þegar skrifstofu hans bárust 800—1.300 fyrirspurnir um íslandsferðir i hverri viku, það sem af erárinu. HERB Verzlunarráð sendir yfirvöldunum tóninn Framkvæmdastjórn Verzlunar- ráðs íslands kom saman til fundar og samþykkti harðorða ályktun sem send var stjórnvöldum. Hljóðar hún „Atvinnustarfsemi í sjávarútvegi hefur nú verið lömuð í um tvær vikur, þar sem dregizt hefur að ákveða nýtt fiskverð. Ákvörðun nýs fiskverðs og stjórn efnahagsmála eru nátengd. Strax í desember gátu legið fyrir fullnægjandi upplýsingar um stöðu fiskvinnslu og útgerðar. Ljóst var að breyta þurfti skráðu gengi krónunnar og skapa rekstrargrund- völl fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Án þess vantaði allar forsendur fyrir ákvörðun nýs fiskverðs um áramótin. Orsakir til þessarar stöðvunar í at- vinnulífinu má annars vegar rekja til rangrar stefnu í efnahagsmálum, þar sem treyst er á skammtímalausnir, og hins vegar til þess að ríkisstjórnin lét undir höfuð leggjast að taka nauðsynlegar og óumflýjanlegar á- kvarðanir í tíma. Stöðvun atvinnustarfsemi i sjávar- útvegi er sprottin af mistökum í efna- hagsstjórn landsins. Með þessu hefur verið skapað atvinnuleysi af manna- völdum. Ef nauðsynlegar ákvarðanir hefðu verið teknar á réttum tíma hefði verið hægt að koma í veg fyrir stöðvun verðmætasköpunar í undir- stöðuatvinnugreinum þjóðarinnar, stþðvun viðskipta við útlönd og truflanir á þjónustustarfsemi í landinu. Til þess að koma atvinnulífinu út úr vítahring skyndiráðstafana og millfærslna er löngu orðið tímabært að marka markvissa framtíðarstefnu í efnahagsmálum. Skapa þar at- vinnulífinu svigrúm til frelsis og at- hafna og losa það undan miðstýringu og forsjá ríkisins. Hlutverk rikisins í þessum efnum er aðeins að skapa at- vinnurekstrinum almenn skilyrði.” -klp- Sólarkaff i á Eskifirdi Eskfirðingar sáu sólina aftur á Fimmtudaginn eftir mánaðar sólarleysi. Sólarkaffi var víða í bænum í tilefni dagsins, m.a. bauð Erla Charlesdóttir kaffi og gómsætar sólarpönnukökur í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Þótt aðeins séu 12 km á milli Eski- fjarðar og Reyðarfjarðar missa Reyð- firðingar sólina í tvo mánuði á ári. Þrátt fyrir það eru mældar fleiri sólar- stundir á Reyðarfirði en Eskifirði. Emil, Eskifirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 96., 101. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á cigninni Stekkjarkinn 7, Hafnarfirði, þingl. eign Sigurðar Hjálmarssonar, fer fram eftir kröfu Stefáns Skarphéðinssonar hdl., Innheimtu rikissjóðs og Bjarna Ásgeirssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 19. janúar 1982 kl. 13.30. Bæjarfógetinn f llafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.