Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIDJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
Fimmtudaginn 14. janúar lauk
matvælasýningunni í Balucin.
Íslenzki sýningarbásinn vakti mikla
athygli og var skrifað um hann í blöðin
í Bahrain nokkrum sinnum, bæði á
undan sýningunni og eins meðan á
henni stóð. Einnig vakti danski
sýningarbásinn athygli, en aðrar
Norðurlandaþjóðir tóku ekki þátt í
sýningunni, ef frá er talið eitt norskt
fyrirtæki, segir í frétt frá Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins.
Islenzku fyrirtækin sem tóku þátt og
höfðu fulltrúa sinn á staðnum, telja öll
að vörum þeirra hafi verið vel tekið og
að markaðsmöguleikar séu góðir, bæði
íBiil tiii og öð um Arabalöndum.
Lýsi hf. kynnti meðalalýsi aðallega en
einnig fóðurlýsi. Vörunni var sýndur
mikill áhugi, verðið var samkeppnis-
hæft, gerðir voru sölusamningar og
skipaður umboðsmaður. Nú er verið að
athuga með umboðsmenn i öðrum
Arabalöndum og frekari sölur.
Fyrirtækið Sól hf. kynnti ávaxtasafa á
sýningunni og hefur hann vakið mikla
alhygli sem sérstök gæðavara. Margir
Arabar virðast hafa áhuga á þessari
vöru, en sem kunnugt er er öll sala
áfengra drykkja bönnuð i Araba-
löndum nema i Bah ejn. Nú er verið að
reyna að ganga frá lyrstj sölunt á
þessari vöru, annars vegar til Bah ein
og Kuwait og hins vegar til Saudi-
Arabiu. Hér er um sendingar í gámum
að ræða og verður kaupandi að kaupa
minnst einn kæligám til þess að
hagstæður flutningur náist.
Sölustofnun lagmetis kynnti niðursuðu
og gekk sú kynning mjög vei. Þannig
var gengið frá sölum til Bah■ dn, Saudi-
Arabiu, Sameinuðu furstadæmanna og
Egyptalands.Arabarnir virðast i fýrstu
Matvælasýningin íBahrein tókst vel:
Arabar kaupa strax
týsi og lagmeti
—sýna áhuga á öðrum varningi héðan
umferð hafa áhuga fyrir allri mögulegri
niðursuðu frá íslandi, en tíminn mun
leiða ljós hvaða vara líkar bezt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
kynnti fyrst og fremst lambakjöt og svo
hraðfrystan fisk. Meðan á sýningunni
stóð var íslenzkt lambakjöt á
boðstólum i einu hótela Bahiein,
Ramada Inn, og var það borið fram að
arabískum hætti. Mjög þarf að huga að
öllum reglugerðum i Arabalöndum.
Sem dæmi má nefna að ekki má selja
lambakjöt, sem geymt hefur verið
lengur en 9 mánuði. Gert er ráð fyrir að
tilraunasending af kjöti fari bráðlega
til Arabalanda.
Pétur Thorsteinsson sendiherra átti á
sama tíma viðræður við stjórnvöld um
sendiherraskipti og undirbúning
útnefningar ræðismanns á staðnum.
Var einkar gagnlegt að þessar umræður
skyldu fara fram um leið og sýningar-
þáttakan. Þá tókust og góð lengsl við
Verzlunarráð Bahrein og viðskipta-
ráðuneyti á staðnum, en þeir
síðarnefndu veittu sérstaka aðstoð,
segir ennfremur í fréttinni.
Á islenzka sýningarbásnum störfuðu 2
íslenzkar flugfreyjur frá Flugleiðum
hf. Framkoma þeirra var rómuð og
settu þær mikinn svip á starfsemina á
básnum. Kom i Ijós mikill áhugi fyrir
íslandi og íslandsferðum. Coldwater
Seafood Corp., dótturfyrirtæki
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
tók einnig þátt i sýningunni og kynnti
unnar fiskafurðir steiktar. Létu
fulltrúar þeirra vel af þátttökunni.
Ýmis önnur íslensk fyrirtæki kynntu
vöru og þjónustu á íslenska standinum
án þess að fulltrúar þeirra væru með í
ferðinni. Þá voru á standinum fulltrúar
islenska fyrirtækisins Shams Trading,
en þeir hafa tekið að sér umboðsstörf
fyrir nokkur islensk fyrirtæki í Araba-
löndum.
Þessi fyrsta sýningarþáttaka i Mið-
austurlöndum nær virðist benda til
þess, að athyglisverður markaður sé
fyrir ýmsar íslenskar vörur og
þjónustu, og að rétt hefði verið að snúa
sér að þessum málum fyrr, segir í fréu
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
□ Égerþegar
GETRAUNIN
Hvaða dagblöð hafa nú sameinazt
í eitt stórt og myndarlegt blað?
□
□
□
Dagblaðiö og Vísir
Alþýðublaðið og Morgunblaðið
Þjóðviljinn og Tíminn
□ Ég óska að gerast
• Þegarþú veizt svarið krossarþú í viðeigandi reit
• Efþú ert ekki áskrrfandi þá krossarþúí reitínn tiihægri, annars hinn.
• Þú sendir getraunaseðilinn til afgreiðslu OV, Þverhotti 11, 105 Reykjavík, merktan „DV
áskrifandi
að DV
áskrifandi
að DV
getraun".
• Hver áskrifandi getur sent inn einn seðii fyrir hvern mánuð, sem hann er áskrifandi,
Vinningslíkur þeirra, sem eru áskr 'rfendur allan timann, eru þannig meiri en hinna, sem
aðeins eru áskrrfendur hluta tímabilsins.
• Hver getraunaseðill er endurbirtur fyrirnýja áskr'tfendur ogþá sem gleyma sór.
A thugið að aðeins þýðir að senda inn hvem seðil einu sinni, þ.e. einn ISUZUSEDIL 4.
• Verðmæti vinninga er samtals kr. 360.000.
Þeir áskrifendur, sem eru í vanskilum, þegar dregið er, koma ekki tilgreina.
• Innsendir Isuzu seðlar nr. 1, 2 og 3 úr Visisgetraun eru í fullu gildi.
Hoimilisfang
Byggðarlag
Sími
Nafnnúmor