Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Síða 4
EftirHtsmenn vínveitingahúsa gera könnun: Lítil fjölbreytni í óáfengum drykkjum — „sama” gosf laskan seld þrisvar Eftirlitsmenn á vinveitingahúsum heimsóttu um fyrri heigi alla vin- veitingastaði á Reykjavíkursvæðinu með jrað fyrir augum að kanna það úrval af gosdrykkjum sem þar væri á boðstólum og jafnframt að kanna stærð skammta og verðlag á þvi á hverjum stað. í 12. grein áfengislaganna stendur m.a.. . að dómsmálaráðherra sé heimilt að veita veitingahúsi leyfi til vínveitinga þegar eftirtalin skilyrði séu fyrir hendi. A. að veitingahúsið hafi á boðstólum mat og fjölbreytta óáfenga drykki við hóflegu verði”! Skiptar skoðanir eru um hversu fjölbreytnin sé mikil á flestum veitingastöðunum og þetta með hóflega verðið er nokkuð sem flækist fyrir mörgum. Flestir eru á því að verið sé þegar komið fram úr öllu hófí eins og fram kom í greinum í Dagblaðinu og Vísi í síðustu viku. Eftir því sem DV kemst næst munu víneftirlitsmennirnir hafa komizt að því að víða hafi vantað mikið á að fjölbreytnin væri nægileg af óáfeng- um drykkjum á þeim 24 eða 25 veit- ingahúsunt sem hafa vínveitingar á Reykjavikursvæðinu. Verðið hafi einnig verið mjög mis- munandi. Hæsta verð á gosdrykkjum hafi verið 2Ó krónur og á pilsner 25 krónur. Áberandi munur var á hvað verð á gosdrykkjum var lægra á hinum minni matsölustöðum en öðrum. Lægst var gosverðið hjá Félagsstofnun stúdenta en þar er eingöngu létt vín á boðstólum. Magnmælingar voru einnig gerðar og staðfestu þær það sem áður hafði komið fram i DV. Á nokkrum stöð- um voru einnig gerðar mælingar á gosmagni sem komst í glösin eftir að búið var að hella í þau tvöföldum af víni og moka í þau ís. Á þeint veitingastöðum sem mest hefur verið talað um að undanförnu vegna lítilla gosskammta var útkoman einna bezt. Þar mældist gosskammturinn 14 cl en á öðrum stöðum sáust tölur eins og 9 el og allt niður í 6 cl. í einni litilli Coca Cola-flösku eru 19 cl og hefur því veitingastaðurinn sem kom 6 cl af gosi meðfram klakanum og víninu því fengið þrjá skammta út úr flöskunni. Hver skammtur kostaði þarna 20 krónur. Gosflaska kostár 1,60 kr. i inn- kaupi til veitingastaðanna og hefur því þessi veitingastaður hagnazt all- sæmilega. Hann hefur fengið inn 60 krónur fyrir flöskuna, eða 6000 krónur gamlar, og er varla hægt að kalla það „hóflegt verð”. -klp- Landssamband slökkviliðsmanna: Gagnrýnir harðlega ráðningu varastjóra l.andssamband slökkviliðsmanna hefur tekið undir þá gagnrýni Bruna- varðarfélags Reykjavíkur og mótmælt harðlega, að nýlega skyldi ráðinn „svo til óreyndur maður” í stöðu vara- slökkviliðsstjóra í Reykjavík. Telur sambandið að ráðning óreyndra manna í stöður yfirmanna, skapi strax óvissu og öryggisleysi á þeim tímum er mest reyni á, þ.e. á eldstað. Skólaganga geti þar engan veginn jafnast á við langa reynslu úr starfinu sjálfu. Landssambandið hyggst beita sér fyrir því að ráðningar sem slikar verði ekki endurteknar í slökkviliðum landsins, heldur verði hagsmunir lands- manna og slökkviliðsmanna sjálfra hafðir að leiðarljósi. -,IB. Sultartangi: Framkvæmdir við stíflu í vor ,,.!ú, það er rétt að i desember voru stifluframkvæmdir við Sultartanga boðnar út og nú nýverið óskað eftir tilboðum i stífluvélar, en þetta er alveg í samræmi við áællanir frá því í fyrravor,” sagði Rögnvaldur Þorláks- son, yfirbyggingaverkfræðingur hjá Landsvirkjun isamtali við DV. Kvað hann þessar framkvæmdir ráð- gerðar með vorinu og væri tilgangurinn sá einn að bæta vatnsrennslis- aðstæður. Auðvitað væri þetta undir- búningur virkjunar en þýddi samt ekki að hún yrði hafin í beinu framhaldi. Líklegt væri að bæði framkvæmdir við Búrfeil og Blöndu kæmu á undan. „Það hefur ekkert verið heimilað umfram þessar undirbúningsfram- kvæmdir og þess vegna þýðir þetta enga breytingu á virkjanamálunum,” bættiRögnvaldur við. -JB. DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982. Vélstjórar á námskeiði Vélstjórar víðs vegar af landinu sóttu á dögunum námskeið á vegum heildverzlunarinnar Hekiu í Reykjavík. Voru það viðgerðarmenn og vélstjórar á bátum þar sem Caterpillar vélarnar frægu eru notaðar. Námskeið sem þessi eru haldin árlega og standa í þrjá daga. Annað námskeið er svo haldið síðar á árinu og er það eingöngu fyrir stjórnendur og viðgerðarmenn Cater- pillar vjnnuvéla. Aðalkennari á þessum námskeiðum er Hermann Hermanns- son sem er hér á miðri myndinni sem Bjarnleifur ljósmyndari okkar tók af vélstjórunum á síðasta námskeiðinu. -klp- Nokkur aukning varð á útköllum Fjöldi sjúkraflutninga hefur slökkviliðsins í Reykjavík á árinu haldizt svo til óbreyttur allt frá árinu 1981, miðað við árið á undan. Útköll 1973 eða rúmlega 10 þúsund á ári. voru 418 á síðasta ári miðað við 353 Þeir voru t.d. 10.295 árið 1980. árið 1980. Fjöldi útkalla þar sem Tvö meiri háttar brunatjón urðu á slökkva þurfti elda jókst cinnig úr árinu 1981, en þrír menn fórust í 1271 Í317. eldsvoðacinsogárið 1980. -JH. M0RMÓNAR 0PNA GESTAMIÐSTÖÐ Mormónar hafa nú opnað gesta- islenzku starfrækja gestamiðstöðina. miðstöð að Skólavörðustig 46 í Þar er hægt að fá bækur og bæklinga Reykjavík. Þangaðeru allir velkomn- um mormóna. ir á milli klukkan 9 og 17 virka daga Mormónatrúin var fyrst boðuð hér til að ræða við mormóna og fræðast á landi árið 1856 en árið 1914 lagðist um söfnuð þeirra, Kirkju Jesú Krists það starf niður. Árið 1975 hófst hinna síðari daga heilögu. mormónatrúboð hér á landi á ný og Er þetta fyrsta gestamiðstöð sem eru safnaðarmeölimir nú um sjötíu mormónar opna hérlendis en hún er í talsins. kjallaranum i húsinu á Skólavörðu- Þess má geta að mormónar bjóða stíg. Bandarisk hjón sem tala nú Mormónsbók ókeypis. -KMU. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Kosningabarátta í kátínuhúsum Næsta lota að undirbúningi borg- arstjórnarkosninga í vor stendur hjá Framsókn um þessar mundir, en iim næstu helgi munu framsóknarmenn í borginni ganga til prófkjörs. Komið er á daginn að Kristján Benediktsson ætlar að sitja áfram í borgarstjórn fyrir Framsókn og munu margir þvi fegnir. Þótt Kristján sé ekki hávaða- maður, þá hefur hann reynst (raustur fulltrúi í borgarstjórn bæði fyrir flokk sinn og borg. Vegna þessarar ákvörðunar mun Liríkur Tómasson ekki vera á þeim buxunum að sækjasl eftir sæti á lisla flokksins að sinni. Annar maður í röðinni núna er svo Jónas Guðmundsson, þaulkunnugur borgarmálum og innfæddur Reyk- víkingur, en þeir eru yfirleitt ekki margir framsóknarmennirnir í Reykjavík sem geta státað af þvi. Liklegt er talið að i þriðja sætið á listanum veljisl kona, en margar kon- ur (aka þátt í prófkjörinu að þessu sinni. Þar ber mest á Gerði Steinþórs- dóttur, en hún mun hafa talið sig svo gott sem sjálfkjörna í fyrsta sæti list- ans, þangað til Ijóst var að Kristján hélt áfram. Munu það hafa orðið nokkur vonbrigði fyrir hana. Því hafði verið fleygl að hún myndi ekki ætla sér í borgarstjórnarkosningar í þelta sinn af persónulegum ástæðum, en það er augljóst að slíkt hefur ekki við rök að styðjast. Gerður er vinstri sinnuð og dregur mjög dám af sjón- armiðum vinstri manna á sviði félags- mála, en það eru nú í tísku í F'ram- sókn. Fieiri menn hafa gefið kost á sér og hafa nú uppi mikla tilburði fyrir prófkjörið. Einn býður upp á sjúss á Broadway og býðst til að svara fyrir- spurnum þar. En framsóknarmenn eru strangt agaðir í brennivínsmálum af Halldóri Kristjánssyni, einum hclsta blaðamanni Þórarins Þórarins- sonar, og má að líkindum búast við greinum núna um lausung framboðs- liðsins, ef fram fer sem horfir. Maður að nafni Jósteinn og Valdimar Kr. Jónsson prófessor, vinna saman í prófkjörinu og hvor fyrir annan, en höfuðstöðvar þeirra er sagður veit- ingastaðurinn Manhattan. Á ekki af framsóknarmönnum að ganga að vera kenndir við veitingastaði. Hall- dór á Kirkjuhóli, sem einn þingmað- ur nefndi óvart Halldór á Drykkju- bóli, þarf svo sannarlega að fara að skrifa bindindisgrein. Ætti honum ekki að reynast þungt fyrir að sópa frá sér svona strákum, fyrst hann komst upp með að kaila Bernharð Stefánsson „brennivínsforseta”. Þótt Framsókn lendi yfirleitt í nokkrum gamanmálum og leggi und- ir sig kátínuhús í kosningaslag, þá sjá aðrir um húsvcrkin og alvöruna. Kristján Benediktsson nýtur stuðnings i fyrsta sæti listans og Jónas Guðmundsson mun fylgja honum í annað sætið. Jónas er talinn mjög heppilegur í það sæti, því það tryggir Framsókn, að kosningabarátlan verður ekki daufari en nauðsyn kref- ur. Jónas vegur gjarnan á báðar hendur og er þrautreyndur í margvís- legu orðaskaki. Hann mun heldur ekki bregðast hvað gamansemi snert- ir, þótt ekki þurfi hann að sækja kátínuhúsin sér til hressingar gegn heimatrúboði flokksins. Nú þegar fjölgað er í borgarstjórn er talið mögulegt að Framsókn fái allt að þrjá menn kjörna. Þeir keppa a.m.k. að því, og það skiptir þá imiklu máli að vel takist til með upp- röðunina á listanum. Það hefur nú oft gengið skrítilega fyrir sig hjá Framsókn, einkum áður en prófkjör voru upptekin, en þá bar listinn volt um þær hannyrðir, sem stundaðar voru á flokksskrifstofunni. Núna er þetta allt orðið frjálslegra og lausara í böndum, enda munu þeir margir klíkuforstjórarnir í flokknum, sem harma liðna daga, þegar þeir gálu komið eins og einni saumakonu á list- ann svo litið bæri á. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.