Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
TEPPADEILD 3. hæð
A A A A A A
Lj, l!j l
Jón Loftsson hf. ___
Hringbraut 121
Z11
u EiaQaa'jv
u □uupgjui^
«■ n Bfi ítti U M H i Íl H119
Sími 10600
Ekkert lát á her-
lögunum og Walesa
ekki látinn laus
—Allt aö 400% hækkanir á matvörum boðaðar 1. febrúar
Yfirvöld Póllands hafa kynnt áætl-
anir um hrikalegar hækkanir á matvör-
um en þær skulu taka gildi I. febrúar.
Um leið verða laun hækkuð.
PAP-fréttastofan pólska greindi frá
því í gærkvöldi að efnahagsnefnd
stjórnarinnar hefði lagt til að matvæli
og eldsneyti verði hækkað frá 200 til
400%.
Fyrri tilraunir pólskra yfirvalda til
þess að hækka matvörur hafa leitt af
sér óeirðir og verkföll. Voru þær meg-
inástæðan til verkfallanna í ágúst 1980
en upp úr þeim voru hin óháðu verka-
lýðsfélög stofnuð, sem aftur varð til
þess að herlög voru leidd í gildi fyrir
síðustu jól.
Fyrr í gær hafði Rakowski aðstoðar-
forsætisráðherra borið til baka allar
fyrri vangaveltur manna utn að herlög-
in yrðu senn numin úr gildi. — ,,Eng-
inn stjórnmálamaður getur sagt ná-
kvæmlega fyrir um hvenær núverandi
ástandi linnir.”
Ummæli póska sendiherrans í
London um að Lech Walesa yrði senn
sleppt úr stofufangelsi hlutu kuldaleg
viðbrögð hjá aðstoðarutanríkis-
ráðherra Póllands, Viejacz, i gær.
„Það hefur verið túlkað á of bjartsýn-
an hátt,” sagði hann.
Rakowski sagði í gær að hann gæti
vel séð fyrir stöðu þar sem Walesa
kænti hvergi nærri því að móta framtíð
Póllands. — ,,En það táknar ekki að ég
hafi afskrifað Walesa,” bætti hann
við.
við flokkapólitík og aldrei átt sæti á
þingi. Hann hefur mjög verið orðaður
við efnahagslegan uppgang Finnlands
vegna starfa sinna sem seðlabanka-
stjóri Finnlands á kreppuárunum upp
úr 1970. Hann þykir íhaldssamur
sósíaldemókrati.
Slysið í Washington:
Svarti
kassinn
finnst
ekki
Björgunarmönnum tókst í gær að ná
upp stéli flugvélar þeirrar er féll í Poto-
mac ána í Washington sl. miðvikudag.
Flugritinn, sem gæti látið í té upplýs-
ingar um það hvers vegna vélin fórst,
fannst þó ekki.
Flugfélagið sem átti vélina, Air Flor-
ida, er þegar búið að fá á sig fyrstu
málaferlin vegna slyssins. Katherine
Ericson, sem missti mann sinn, James,
i slysinu, hefur stefnt félaginu og krefst
5 milljóna dollara skaðabóta fyrir hönd
aðstandenda þeirra sem í slysinu fór-
ust.
Kafarar náðu einnig upp sjö líkum í
viðbót í gær, þannig að tala þeirra er
fundizt hafa er nú komin upp i 53. Auk
hinna 74 er fórust með vélinni létu 4
lífið er leið áttu um brúna í öku-
tækjum, er slysið varð.
Fiskibátur á siglingu í gegnum ís-
hrafl við Jótlandsströnd, en slikur
hefur kuldinn vcrið að undanförnu,
að smærri skip og bátar hafa máll
sæta færis og sigla í kjölfar stærri
skipa, sem brjóta siglingarennu i
gegnum ísinn. — Hinum megin við
Atlantshaf, í Bandaríkjunum, ber-
ast fréttir af því, að ekkert hafi
dregið úr kuldum að ráði.
Komið og gerið góð kaup
Sdjum í dag og næstu daga ýmsar
stærðir og gerðir af
TEPPABÚTUM
á ótrúlega hagstæðu verði
Yf irburðasigur Koivistos
S' f___J — J_________— Fékkl45kjörmennoger
i fyrstu atrennu trfK
Mauno Koivisto, sem vann sig frá
e\rarvinnunni í hafnarbænum Turku í
l innlandi upp í forsætisráðherrastól-
inn, vann öruggan sigur í fyrsta áfanga
forsetakosninganna í gær. Verður hann
fyrsti sósíaldemókratinn, sem /\ í
forsetastól Finna.
í gær og í fyrradag kusu Finnar 3 0' 1
kjörmann, sem velja á eftirmann
Kekkonens. Talningin leiddi i Ijós, að
sósíaldemókratar höfðu hlotið 145
kjörmenn. — Kommúnistar hlutu 32
kjörmenn, en þeir höfðu heilið Koi-
visto stuðningi. Er hann þvi öruggur
með meirihluta í kjörmannaráðinu,
þegar það kemur saman 26. janúar til
þess að velja forsetann.
Aðrir forsetaframbjóðendur flýttu
sér að lýsa yfir sigri Koivistos og óska
honum til hamingju með úrslitin.
Koivisto sagði fréttamönnum, að
hann gæti mjög vel unað við þessi úr-
slit, sem hefðu komið honum á óvart.
,,í haust vorum við farnir að eygja
þriggja stafa tölu í kosningu kjör-
manna, en að við kæmumst svona
nærri 150 var framar öllum vonum,”
sagði hann.
Hann sagði, að sitt fyrsta verk, ef
kjörráðið veldi hann, yrði að endur-
skipuleggja ríkisstjórnina. — Við hinu
er þó ekki bú;zt. að hann leysi upp þing
og boði til nýrra þingkosninga, áður en
kjörtímabilið rennur út, sem verður i
marz 1983.
Kjörsókn mun hafa verið 86,6%,
sem er met i fínnskum forsetakosning-
um. Kjörmenn sósíaldemókrata Koi-
vistos fengu 1,4 milljónir atkvæða eða
43,3%, semer 19,3% aukning atkvæða
frá því í þingkosningunum 1979. —
Skoðanakannanir höfðu spáð Koivisto
37% fylgi i mesta lagi.
Dr. Koivisto hefur haldið sig utan
Þessi urðu úrslitin ífinnsku kosningunum ígœr ogfyrradag:
Mauno Koivisto (sósíaldemókr.) 145 kjörmenn, Kalevi Kivistoe (kommúnistar og
bandam.) 32 kjörmenn, Harri Holkeri (sameiningarfl. og íhaldsm.) 58 kjörmenn,
Veikko Vennamo (dreifbýlisflokkur) 1 kjörmann, Johannes Virolainen (miðfl.) 36
kjörmenn, Jan-Magnús Jansson (sænski alþýðufl.) 11 kjörmenn, Helvi Sipilae
frjálslyndir) 1 kjörmann.
Eftir er að útdeila sjö kjörmannasœtum miili andsósíalísku flokkanna.
4 listflugmenn
fórust á æfíngu
Framtíð bandarísku listflugsveitar-
innar Thunderbirds er nú í óvissu, eftir
að fjórir af flugsnillingum sveitarinnar
fórust í árekstri í loftinu í gær yfir Nev-
adaeyðimörkinni.
Talsmenn flughersins hafa aflýst
byrjun sýningartímabils sveitarinnar
fyrir þetla ár (sem var i ntarz). Láta
þeir á sét skilja að Thunderbirds, ?em
hafa haldið flugsýningar víða um heim,
muni ef til vill aldrei sýna aftur.
Fjórar flugvélar sveitarinnar rákust á
og er þetta versta slysið í sögu hennar.
en sveitin var stofnuð fyrir 28 árum.
Alls hafa 19 flugmenn sveitarinnar á
þessum tima farizt og 29 flugvélar. —
Búizt er við því að slysið verði tilefni
fyrirspurnar í Bandaríkjaþingi um
hvort álitsaukinn vegna snilli þessara
flugfimleika sé ekki of dýru verði
keyptur.
Vélarnar fjórar voru að koma úr
lykkju i lítilli hæð í fylkingarskipan þar
sem vængendarnir nánast snertust.
Sjónarvottar segja, að ein hinna
tveggja hreyfla T—38 Talonvéla
sveilarinnar hafi þá tapað hæð og allar
fjórar vélarnar endastungust í eyði-
mörkina í Indian Springs.
í hópi þeirra sem fórust var Norman
Lowry majór, yfirmaður Thunder-
birds-sveitarinnar.
Opið:
mánud.—miðvikud. til kl. 18
fimmtudaga til kl. 20
föstudaga til kl. 22
laugardaga kl. 9—12