Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982. Spurningin Ætlar þú að fara í dansskóla einhvern tíma á næstunni? Bára Þorgrimsdótlir húsmóðir: „Nei, ég hef ekki hug á þvi. Hins vegar fór ég í dansskóla þegar ég var barn og þótti bara ágætt.” Guðmundur Gunnarsson nemi: „Nei, ég er ákveðinn i að fara ekki. Ég var mikið að hugsa um að skella mér í haust, en gat það ekki vegna tíma- skorts. Það er sama sagan núna.” KagnneiOur KrynjOltsdóttir húsmóðir: „Ég væri alveg til í það, þótt trúlega verði nú ekkert úr því. Ég átti ágætan dansherra einu sinni, en eftir að ég .missti hann hef ég alveg hætt þessu.” Herdís Ástráðsdóllir hjúkrunarfræð- ingur: „Nei, ég hef ekkert hugsað mér það.” Ragnar Sigurðsson leigubílstjóri: „Ég hef aldrei farið í dansskóla, og nú hef égekki nokkurn tima til þess.” Sigríður Sveinbjörg Kjartansdóttir: „Ég er nýflutt til Reykjavíkur og fer örugglega ekki i svoleiðis skóla í vetur. En ég gerði það, þegar ég var í Vik, þar sem ég átti heima, og likaði bara vel.” Lesendur Lesendur Lesendur Lesen Slæm reynsla af viðskiptum við Flugleiðir: Lofuöu að hringja þegar vélin átti að fara en gerðu það ekki — ræður kunningsskapur hverjir komast með vélunum? Magnús Hansson, lögreglumaður á ísafirði hringdi: Mig langar til þess að segja frá reynslu minni í viðskiptum við Flugleiðir í byrjun þessa árs. Ég veit að hún er ekkert einsdæmi. Ég hafði verið í Reykjavík á milli jóla og nýárs og ætlaði að fara hingað vestur 29. desember. Ég atti að byrja á vakt hér þann 30. Ekkert var flogið, hvorki 29., 30. eða 31. hingað vestur, vegna veðurs, en mér var lofað fari með fyrsta flugi 2. janúar. Ég spyr dömu hjá Flugleiðum hvort ég þurfi ekki að hringja að morgni 2. janúar til að kanna breytingar á flugi. Samkvæmt áætlun átti vélin að fara kl. 10.30. Hún sagði að algjöran óþarfa; það yrði hringt í alla, sem ættu pantað með vélinni, rúmum klukkutíma fyrir brottför. Ég vaknaði snemma þennan morgunn og datt því í hug að athúga með flugið. í einn og hálfan tíma hringdi ég í Flugleiðir með stuttum hléum en fékk ekki svar. Ég reyndi að hringja hingað vestur í Hörð Guðmundsson, flugmann, en þar var alltaf á tali. Þetta fannst mér allt orðið svolítið grunsamlegt og þar sem Magnús Hansson telur Flugleiðir hafa veitt honum lélega þjónustu. Flugleiðir telja þá ásökun vera óréttmæta. ég var sár og svekktur, að hafa verið veðurteptur alla þessa daga, hringdi ég einu sinni enn í Flugleiðir kl. 10.10. Þá var svarað i símann og mér tilkynnt að vélin fari kl. 10.30. Ég segi dömunni að ég eigi pantað far með vélinni og spyr hvers vegna ekki hafi verið hringt í mig. Hún svarar, að hringt hafi verið í alla sem átt hefðu pantað far. Ég spyr hana þá, hvort hafi verið á tali hjá mér, en hún segir einungis að símanum hafi ekki verið svarað. Mér fannst þetta nú frekar ómerkilegt svar, þar sem þrír fullorðnir voru heimafyrir og síminn hafði ekkert hringt. Ég var því orðinn æstur og segir við hana, að ef vélin yrði farin, þegar ég kæmi á flugvöllinn, myndi ég heimta einkaflugvél með mig vestur, á kostnað Flugleiða. Auk þess óskaði ég eftir að sjá framan í þá manneskju sem sagðist hafa hringt í mig. Þegar ég var kominn út á völl, var mér sagt að vélin biði eftir mér. Ég bað þó um að fá að sjá framan í stúlkuna, sem sagðist hafa hringt í mig og hún kom þarna, skömmustuleg á svip, og hélt því enn fram, að enginn hefði svarað hjá mér. Ég vil segja frá þessu, þar sem ég frétti af öðru svipuðu tilfelli. Þá höfðu tveir piltar átt far pantað hingað vestur. í þá átti líka að hringja en var ekki gert. Hins vegar grobbuðu tvær vinkonur af því, hér fyrir vestan, hvað þær hefðu fengið góða þjónustu hjá Flugleiðum. Þær þekktu einhvern í afgreiðslunni sem hafði reddað þeim fari — í staðinn var að sjálfsögðu aidrei hringt í piltana tvo sem áttu þessi sæti. Slík fyrirgreiðsla hjá flugfélagi er til háborinnar skammar og fyrir- finnst örugglega ekki hjá öðru félagi en Flugleiðum. SvarFlugleiða: MAGNUSILAÐIST AÐ GEFA UPP BREYTT SÍMANÚMER — og þess vegna náðist ekki til hans er flugið var tilkynnt Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugleiða, svarar Magnúsi Hanssyni: í sambandi við bréf Magnúsar Hanssonar og athugun á því tilfelli er hann skrifar um, er þess fyrst að geta að missagna gætir um ýmis at- riði. Rétt er að ófært var til ísa- fjarðar þá daga sem hann telur upp og eftir frátök var fyrst flogið til ísafjarðar 2. jan. Magnús var á skrá í farskráningartölvunni og hafði fljót- lega eftir komu til Reykjavikur gefið upp símanúmer í Kópavogi. Síðar hringdi hann og gaf upp sínanúmer í Sandgerði. Það símanúmer var .að sjálfsögðu sett inn i farskrártölvuna og Kópavogsnúmerið þá tekið út. Að morgni 2. janúar þegar vel leit út með fiug til ísafjarðar hófst af- greiðslufólkið snemma handa um að tilkynna farþegum að flug til ísa- fjarðar væri líklegt og þeir beðnir að mæta á Reykjavíkurflugvelli. Þegar hringt var í símanúmer það, er Magnús hafði gefið upp í Sandgerði, svaraði það ekki, þrátt fyrir ítrekaðar hringingar. Svo vel vill til, að afgreiðslustúlka sú, sem sá um bókun Magnúsar og einnig tók við breytingum á síma- númerinu, var við innritun ísa- fjarðarfarþeganna, er hann kom í flugstöðina. Það er þvi algjör mis- sögn í bréfi Magnúar að hún hafi komið þarna skömmustuleg á svip. Afgreiðslustúlkan beinlínis tók á móti Magnúsi er hann kom. Það er hins vegar hárrétt sem segir í bréfi Magnúsar ,,Ég var því orðinn æstur” þvi framkoma hans bar vott um slíkt. Magnús komst hins vegar með þessari flugvél og leystist málið þannig farsællega. Hinn 2. janúar fóru flugvélar Flugleiða þrjár ferðir til Isafjarðar og fluttu alla farþega, sem óskað höfðu eftir fari þann dag. Það liggur i augum uppi að flug- félag sem stundar áætlunarflug reynir allt hvað það getur til að hafa góð og vinsamleg samskipti við far- þega sína, verðandi farþega og aðra viðskiptamenn. Engum er Ijósara en þeim sem afgreiðslu stunda að slikt verður að sitja í fyrirrúmi og ég fullyrði að starfsfólk Flugleiða sé enginn eftirbátur annarra flugfélags- starfsmanna á því sviði. Ásökunum um mismunun vegna kunningsskapar visa ég á bug. Hins vegar verður af- greiðslufólkið stundum fyrir órétt- mætum ásökunum og iðulega kemur fyrir að fólk mætir ekki til flugs sem hindrar þá aðra farþega í að bóka og komast með því flugi sem þeir helzt kjósa. Um niðurlagið í bréfí Magnúsar Hanssonar er fátt að segja. Sú ósk er hins vegar Iátin í ljósi að betur takist til með samskipti næst þegar hann ferðast með Flugleiðum og við starfs- fólkið bjóðum Magnús velkominn aftur. Er barnaef ni sniðgengið? ekki minnzt á Leikbrúðuland þegar fjallað er um leiksýningar Móðir skrifar: Oft heyrist kvartað undan því, að fjölmiðlar og leikhús borgarinnar geri of litið fyrir yngstu börnin. Það virðist oft gleymast að hér í borg er til leikhús, sem sinnir þörfum vngstu borgaranna, en það er Leikbrúðuland Mér finnst undarlegt að þetta leikhús er undanskilið, þegar fjallað er um sýningar leikhúsanna í fjölmiðlum. Til dæmis var fjallað um allar nýjar leiksýningar í Vöku-þætti sjónvarpsins nú fyrir stuttu. Ekki var minnzt einu orði á sýningu Leikbrúðulands, sem hóf þó göngu sína skömmu fyrir jól, Hvers vegna var ekki minnzt á þessa sýningu? Getur verið að það sé vegna þess að þetta er barnasýning? Ég hélt nú að sá hugsunarháttur væri orðinn úreltur, en hver er svo raunin? Ég hef oft farið með mín börn í brúðuleikhúsið á Frikirkjuveginum og þar höfum við átt marga ánægjulega stund, bæði ég og börnin. Leikritin, sem nú er verið að sýna, eru hin bezta skemmtun fyrir yngstu börnin okkar og ég vil endilega benda foreldrum á að missa ekki af þessu tækifæri. Krakkarnir fylgjast með af lífi og sál og þetta er kjörið tækifæri til þess að kynna þeim ævintýraheim leikhússins; kenna þeim að fara í leikhús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.