Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Síða 17
T
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982.
lur Lesendur Lesendur
Ingimundur Sæmundsson telur að sjáv-
arútvegur og landbúnaður ættu að nægja
okkur íslendingum, ef vel er að staðið og
afurðir ekki seldar óunnar úr landi.
Lesendur
Franzisca Gunnarsdóttir
Við þurfum
enga
stóríðju
— okkur væri nær að eff la landbúnaðinn
og sjávarútveginn, segir lesandi
Ingimundur Sæmundsson skrifar:
Margt hefur verið spjallað um stór-
iðju og álverksmiðjur, og vilja sumir að
slikt risi sem víðast. Ekki er ég sam-
mála þessum sjónarmiðum, þvi slíkum
fyrirtækjum fylgja mikil jarðspjöll og
mengun. Ef slíkur iðnaður þarf hins
vegar endilega að vera hér, þá vil ég að
við stöndum að honum sjálf, en leyfum
ekki erlendum fyrirtækjum að búa um
sig hér.
Annars þurfum við enga stóriðju.
Okkur væri nær að auka og efla land-
búnaðinn og sjávarútveginn. Við eigum
að vinna úr hráefnum þeim, sem þær
atvinnugreinar skila, en ekki selja þetta
óunnið úr landi, að mestu, öðrum til
hagnaðar. Þjóðin hefur lifað af land-
búnaðar- og sjávarafurðum frá fyrstu
tið og getur það enn, ef vel er á haldið.
Sjálfur hef ég stundað landbúnað og
einnig hef ég verið til sjós á gömlu
togurunum. Þá sváfum við átján menn
í þröngum lúkar frammi í skipinu og
eina upphitunin var kolaofn í miðjum
lúkarnum. Síðan var ein vatnsfata, sem
mannskapurinn þvoði sér upp úr. Var
gólfiö þvegið úr vatninu, því þá þurfti
aö spara vatnið. Maður vissi aldrei
hversu lengi maður yrði í hverjum túr,
sljkt fór eftir veðráttu og fiskiríi. En
sama fatan var notuð til andlits- og
gólfþvottar.
Það þýddi ekki að reyna að bjóða
mönnum upp á þær aðstæður í dag,
sem betur fer. Nú eru kjörin önnur og
skipin bæði stór og rúmgóð, búin
öllum þægindum. En við, sem höfum
þurft að vinna lúnurn höndum og gæta
að hverjum eyri, eigum stundum erfitt
með að horfa upp á hversu illa er farið
með verðmæti og lítil fyrirhyggja sýnd f
hvívetna.
Hringið í si'm3
milli kl. 13 og 15,
eðaskrifið
Farið varlega,
sýnið gætni
Mér finnst því að þingmenn og ríkis-
stjórn ættu að fara sér varlega, hvað
stóriðjunni viðvíkur og kanna vel allar
hliðar slíkra áætlana; kosti og ókosti.
Þeir menn sem gefa sig í það að stjórna
landinu verða að gera sér grein fyrir
þeirri ábyrgð sem á herðum þeirra
hvílir og vera gætnir i verkum sínum —
og ekki aðeins með hliðsjón af at-
kvæðasöfnun.
Mér finnst ráðamenn okkar oft vera
fljótir til þess að apa eftir öðrum
þjóðum, sem reynast siðan ekki verðug
fyrirmynd, þegar öll kurl koma til
grafar. Sumt getur verið til bóta, en
annað til óþurftar. Ég tel að landið
okkar bjóði upp á einhver þau beztu
skilyrði í veröldinni, ef allt er skoðað
niður í kjölinn, en við verðum að sýna
forsjálni og sjálfstæði í hugsun.
í því sambandi dettur mér í hug
hvort ríkisbáknið okkar er ekki óþarf-
lega mikið og allt of dýrt fyrir svonalitla
þjóð. Þurfum við t.d. svona marga
alþingismenn? Væri ekki að skaðlausu
hægt að fækka þeirn i 45 og minnka
eitthvað þau fríðindi, sem þeir hafa og
hafa verið duglegir að úrskurða sér?
Vafalaust mætti finna hæfa og góða
menn sem vildu vinna landi og þjóð til
heilla í sölum Alþingis, án sumra þeirra
fríðinda, sem nú fylgja starfinu.
n
Mannlaus bfll stóð hálf ur inni á Reyk janesbraut:
Lögregfan gerói ekkert
til að fjartægja stór-
hættulega slysagildru
—segir gramur vegfarandi
6636—6456 hringdi:
Er ég var að aka til vinnu minnar
suður til Keflavíkur sl. þriðjudag fór
ég fram hjá mannlausum fólksbil sem
stóð hálfa breidd sina inn á steypta
veginn á Strandarheiðinni. Skyggni
var mjög lélegt þennan dag.
Þar sem þarna var um augljósa
hættu að ræða, bíilinn ljóslaus og
kyrrstæður, og vitandi það að mjög
alvarleg slys hafa orðið á Keflavikur-
veginum að undanförnu, stöðvaði ég
i hliðinu á Keflavikurflugvelli og lét
lögregluna vita af bílnum. Lög-
reglumaður fór strax í sima, að þvi er
mér skildist til að gera einhverjar
ráðstafanir til að láta fjarlægja
bilinn.
Þegar ég var á heimleið úr vinnu
um kl. 17.15ókégframásamabílinn
aftur og enn stóð helmingur hans inni
á steypta veginum. Lögreglan hafði
sem sagt ekkert gert til að fjarlægja
þessa stórhættulegu slysagildru.
Sem vegfaranda blöskraöi mér
sinnuleysi lögreglunnar. Mér finnst
það verulegta gróft að gera ekkert i
málinu, þó ekki nema bara þaö að
ýtabílnum tilhliðar.
17
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 172., 75. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á hluta i Æsu-
felli 4, taíinni eign Rafns Benediktssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar i Reykjavik á eigninni sjáifri fimmtudag 21. janúar 1982 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
2ja-3ja hcrbcrgja
íbúð óskast á leigu sem fyrst, helzt í miðborg-
inni, þó ekki skilyrði. Reglusemi, góðri um-
gengni og skilvísi heitið.
Vinsamlega hringið í síma 26457 eða 50339
eftir kl. 18 á kvöldin.
BYGGINGANEFND
SELJASKÓLA
óskar eftir tilboðum í byggingu íþróttahúss við skólann.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og er hér um að
ræða gerð hússins frá botnplötu og til þess að vera að
mestu tilbúið undir tréverk.
Útboðsgögn munu verða afhent á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, Tjarnargötu 12 frá og með þriðjudeginum
20. janúar nk. gegn 2500,00 króna skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sama stað og verða þau opnuð þar
9. febrúar nk. kl. 11.00 f.h.
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir desembermánuð 1982
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20% en síðan eru viðurlögin 4,5% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. febrú-
ar.
Fjármálaráðuncytið,
18. janúar 1982
0'
FREEPORTKLÚBBURINN
Aðaffundur
Freeportklúbburinn heldur aðalfund sinn
fimmtudaginn 21. janúar nk. kl. 20.30 í Safn-
aðarheimili Bústaðakirkju.
Stjórnin.
Afgreiðslumaður
Óskum að ráða mann til afgreiðslustarfa í
byggingavöruverzlun okkar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi góða þekkingu
á byggingavörum, sé stundvís og reglusamur.
Upplýsingar veittar á staðnum eftir kl. 17, ekki
í síma.
Bjfggingflvöruvertlun
[BYæi^Æ^Rj Trygjvn Hnnnessonnr
__" " ... Siðumúla 37
Simar 83290 — 83360