Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1982, Síða 28
28 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1982. Andlát Gunnar Krislinsson frá Múla lézt 11. janúar 1982. Hann var fæddur 23. september 1913. Hann var kvæntur Svanhildi Guðmundsdóttur, þau eign- uðust 4 börn. Gunnar starfaði víða, bæði til lands og sjós, en árið 1953 hóf hann störf sem fangavörður við Hegn- ingarhúsið í Reykjavik, hann starfaði þar í 23 ár. Útför Gunnars verður gerð í dag. Böðvar Indriðason frá Gilá, Hofsvalla- götu 23 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. janúar kl. 13.30. Gyða Berþórsdöttir, Bláskógum 14, lézt í Landspítalanum 16. þ.m. Guðbjörg Jónsdóttir frá Eystri-Lofts- stöðum, Gaulverjabæjarhreppi, til heimilis að Vesturvallagötu 7, Reykja- vik, lézt í Landakotsspitala 18. janúar. Ingibjörg Oddsdóttir, Litlagcrði 2, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 21. janúar kl. 1.30. Sigriður Guðmundsdóttir, ljósmyndari frá ísafirði, lézt að Hrafnistu 15. janú- ar. Sigurlaug Þórðardóttir, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 20. janúar kl. 3. Vigfús Jakohsson, skógfræðingur, andaðist að heimili sínu i Kaliforníu, 14. janúar 1982. Minningarathöfn og bálför hefur farið fram. Minningarspjöld Minningarkort Sambands dýraverndunarfélaga íslands fást á cftirtöldum stööum: RF.YKJAVÍK: Lofliö Skólavöröusilt 4, Vcr/lunin Bella l.atigavcgi 99. Bókaverzlun Ingiliargar Einars dóttur Kleppsvegi 150. Flóamarkaður SDl. Laufás vegi I, kjallara, Dýraspitalinn Víðidal. KÓPAVOGUR. Bókabúðin Vcda Hamiaborg. HAFNARFJÖRDUR: Bókabuð Olivirs Steins Strandgötu 31. AKUREYRI: Bókabúð Jónasar Johannssonar Hafn arstræti 107. VESTMANNAFYJAR: Bokabúð n Hciðarvegi 9. SELFOSS: Engjavegur 79. Minningarspjöld MS félags fslands fást á cftirtöldum stööum: Reykjavíkur Apóteki, Bókabúð Máls og Menningar, Bókabúð Safamýrar v/Háaleitisbr. 58—60, Bókabúð Fossvogs Grímsbæ v/Bústaðaveg og Skrifstofu Sjálfsbjargar Hátúni 12. R. Efnisskil helgardagbók Að gefnu tilefni skal minnt á það að efnisem á að koma í Helgardagbók DB þarf að hafa borizt ritstjórn blaðsins fyrir miðvikudags- kvöld. Ekki er tryggt að fréttir og tilkynningar sem berast cfiir það geti komizt með. VERDLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI Fyrir allar tegundir iþrótta. bikar ar styttur. verölaunapemngar — Framleiðum telagsmerki Magnús E. Baldvinsson' t.aug.w«9. 8 - n«vk|«w.k - Siuu 22804 í Minningarspjöld MS fólagsins (MuKiple sclerosis) fást á eftirtöldum stöðum: í Reykjavíkurapóteki, Bókabúð Máls og Menningar, Bókabúð Safamýrar, Bókabúðinni Grímsbæ og skrifstofu Sjálfsbjargar, Hátúni 10. Minningarkort Styrktarfólags vangefinna fást á eftirtöldum stöðum: Á skrífstofu fclagsins, Háteigsvegi 6. Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar- stræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers Steins, Strand- götu31 Hafnarfirði. Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins að tekið er á móti minningargjöfum í sima skrifstof- unnar, 15941, og minningarkortin síðan innheimt hjá sendanda með giróseðli. Minningarspjöld Kven- fólags Haf narfjarðarkirkju fást í Bókabúð Olivers Steins, Blómabúðinni Burkna, Bókabúö Böðvars og Verzlun Þórðar Þórðarsonar við Suöurgötu. Minningarkort Styrktarfélags vangefinna fást á eftirtöldum stöðum: Áskrifstofu félagsins, Háteigsvegi 6. Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Lækjargötu 2. Bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4 og9. Bókaverzlun Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnar- firði. Athygli er vakin á þeirri þjónustu félagsins að tekið er á móti minningargjöfum i síma skrif- stofunnar 15941 og minningarkortin síöan innheimt hjá sendanda með g’tróseðli. Þá eru einnig (il sölu á skrifstofu félagsins minningarkort Barnaheimilissjóðs Skálatúns- heimilisins. Minningarkort Hjartaverndar fést á eftirtöldum stöðum: Reykjavik: Skrifstofu Hjartaverndar, Lágmúla 9, 3. hæð, sími 83755; Reykjavíkurapóteki, Austur- stræti 16; Skrifstofu DAS, Hrafnistu; Dvalarheim- ili aldraðra viö Lönguhlíð; Garðsapóteki, Sogavegi 108; Bókabúðinni Emblu v/Noröurfdl, Breiðhdti; Árbæjarapóteki, Hraunbæ 102 a; Bókabúð Glæsi- bæjar, Álfheimum 74 og Vesturbæjarapóteki, Melhaga 20—22. Kópavogur: Kópavogsapóteki, Hamraborg 11. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Strand- götu 31 og Sparisjóöi Hafnarfjarðar, Strandgötu 8—10. Keflavík: Rammar og gler, Sólvallagötu 11, og Samvinnubankanum, Hafnargötu 62. Akranes: Hjá Svcini Guðmundssyni, Jaðarsbraut 3. ísafjörflur: Hjá Júlíusi Helgasyni rafvirkja- meistara. Siglufjörflur: Verzluninni ögn. Akureyrí: Ðókabúðinni Huld, Hafnarstræti 97, og Bókavali, Kaupvangsstræti 4. Fundir AA-fundir Þriðjudagur REYKJAVÍK Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00. Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 21.00 Tjarnargata 3 (91-16373). Rauða húsiö, samloku- deiid kl. 12.00 Tjarnargata 3 (91-16373) Rauða húsiö kl. 21.00 Neskirkjakl. 21.00 Ingólfstræti 1A, uppi kl. 21.00 LANDIÐ Akureyri, (96-22373). Geislagata 39. kl. 21.00 Húsavik, Höfðabrekka 11 kl. 20.30. ísafjörður, Gúttó við Sólgötu kl. 20.30 Keflavík (92-1800) Klapparstig 7 kl. 21.00 Keflavíkurflugvöllur kl. 11.30 Laugarvatn, Barnaskóli kl. 21.00 Ólafsvík, Safnaðarheimili kl. 21.00 Siglufjörður, Suðurgata 10 ki. 21.00 Staðarfell Dalasaýsla (93-4290) Staðarfell kl. 19.00 Miövikudagur REYKJAVÍK Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið. Hádegisfundur opinn kl. 12.00 Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00 Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 18.00 Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 21.00 Grensás, Safnaöarheimili kl. 21.00 Hallgrimskirkja kl. 21.00 LANDIÐ Akranes, (93-2540) Suðurgata 102 kl. 21.00 Borgarnes, Skúlagata 13 kl. 21.00 Fáskrúðsfjörður, Félagsheimil.ö Skrúður kl. 20.30 Höfn Hornafirði, Miðtún 21 kl. 20.00 Keflavík, (92-1800) Klapparstig 7. Enskakl. 21.00 Afmæli 75 ára afmæli á I dag Sigurður E. Óla- son hæstaréttarlögmaður. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ árið 1933. Síðar varð hann fulltrúi hjá ríkis- féhirði og 1941 skipaður fulltrúi í fjár- málaráðuneytinu. Sigurður er kvæntur Unni Kolbeinsdóttur kennara. Þau eiga sex börn. I gærkvöldi í gærkvöldi Jæja, það fór þá svona! Með hálfum huga sættist ég á að rýna í skjáinn í gærkvöld, auk þess að leggja eyrun að útvarpi Reykjavík síðasta sólarhringinn. Fyrri samn- ingnum um að takast á við þetta verkefni og bregða upp hugrenning- um um það eftir á hér í DV hafa nefnilega fylgt ýmis ósköp. Síðast skelltu þeir á herlögum í Póllandi og hleyptu með því nokkru lífi i fréttirn- ar i ríkisfjölmiðlunum, sem mér fannst annars afar klénar þann kafl- ann. Þá hlógu þeir hrossahlátri. . . Alla vega þótti mér vissara að skipta mér ekkert af fréttum i útvarpi og sjónvarpi í gær, og ekki gustuk að raska ró manna með ófyrirsjáanleg- um afleiðingum fyrir yfrið nógu hrjáðar þjóðir úti í stóra heiminum. Þaðan af síður að kalla yfir okkur hérna á skerinu meiri háttar náttúru- hamfarir rétt í þann mund að við er- um að vakna til Iífsbjarganna á nýju ári, eftir nærri þriggja vikna umhugs- un. Ég reyndi meira að segja að horfa sem minnst á íþróttaþáttinn hans Bjarna I sjónvarpinu, enda kom hann mér gersamlega í opna skjöldu með því að sýna enga skautamynd að þessu sinni og ekki nema fimm sinn- um sömu byltuna í bruninu. Hins vegar missti ég alveg af Hermanni í útvarpinu, enda óvíst að hann hafi komizt þar að í öllu fréttaflóðinu. . . Þrátt fyrir efa minn um réttmæti þess að taka að mér það hlutverk miktt sem ég hér og nú skýri frá, bar ég í brjósti þá tálvon, að ef til vill yrði herlögum létt af í Póllandi í gær. Því einhvers staðar verður að starta frétt- unum, ef ekki hinum megin á hnett- inum, þá að minnsta kosti fyrir aust- an tjald. Og ég hef af einhverjum ástæðum sérstaka samúð með Pól- verjum síðan við lentum saman í rík- isfjölmiðlunum síðast. En meðal annarra orða: Sjón- varpsleikritið hans Ivans Vis bar af öðru. Aldrei þessu vant man ég heila biómynd daginn eftir að ég sá hana. Svo raunsönn úr fjarlægð, framandi tíma og rúmi. En samt ekki af þvi að hún leiddi nokkurn mann á heims- enda, i lengsta lagi til Istanbúl. Held- ur af því að hún var örlagapakki með krossbandi. Og sálirnar horfðust í augu við móttöku. Herbert Guömundsson. 85 ára afmæli á í dag, 19. janúar, Elinborg Elisdóttir, en hún er nú vist- kona á Hrafnistu í Hafnarfirði. í dag, á afmælisdaginn, verður hún á heimili dóttur sinnar að Bröttukinn 15, Hafn- arfirði. 70 ára afmæli á i dag ívar Guðmunds- son aðalræðismaður. ívar starfaði hjá Morgunblaðinu, aðallega við innlendar fréttir, íþróttir og myndatöku. 80 ára afmæli á í dag 19. janúar, Margrél H. Þorláksdóttir frá Saurum í Súðavik. Maður hennar var Ólafur Jónsson kennari. Hann lézt árið 1957. Margrét hefur alltaf verið búsett í Súðavík. Tilkynningar islenzki Alpaklúbburinn Myndasýning miövikudaginn 20. janúar kl. 20.30 að Hótel Loftleiðum (ráðstefnusal). Philippe Patay sýnir litskyggnur af klifi og fjallgönpum I Nepal og Himalayafjöllum. Aðgangseyrir er kr. 25.00. Allir velkomnir. Kvenfélag Fríkirkjunnar Reykjavík heldur spila- og skemmtikvöld aö Hallveigarstöðum fimmtudagskvöld 21. janúar kl. 20.30. Er það fyrjr allt Frikirkjufólk og gesti þess. Myndakvöld á vegum Útivistar Myndakvöld verður i kvöld kl. 20.30 að Ásvallagötu 1. Guðmundur Erlendsson og Emil Þór sýna. Kaffi- veitingar. Allir velkomnir. Útivist. Hvar er silfurgráa reiðhjólið Fyrir utan Asparfell 12 var tekið DBS- kvenreiðhjól sem er þriggja gíra.silfurgrátt að lit, með bögglabera og Ijósútbúnaði. Númerið á hjólinu er 7033420. Hjólið er glænýtt og mjög bagalegt fyrir eiganda þess að missa það. Eigandi DBS hjólsins biður þann sem er með hjólið að skila þvi utan við húsið Asparfell 12. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um hjólið eða hvar það er niðurkomið vinsamlega hringi í síma 74181. Útivera og íþróttir Dagana 22.-24. janúar nk. verður haldin i anddyri Laugardalshallarinnar sýning er ber nafnið Útivera og íþróttir. Að sýningunni stendur Skiöasamband íslands og er sýningin leið til kynningar á skíða- búnaði og skiðaiþróttinni og einnig til fjáröflunar. Alls eru sýningaraðilar 14 og munu þeir sýna allt það nýjasta sem á boðstólum er í dag af skíðavörum og ýmsu fleira. Einnig verður nýjasta tízkan í skíða- fatnaði sýnd. Auk þess verður kvikmyndasýning og sýnikennsla i meðhöndlun skiða. Veitingasaia verður á staðnum ásamt fleiru. Sýning þessi er einstakt tækifæri fyrir almenning til að kynna sér skíðaútbúnað o. fi. á einum stað. Samkirkjulegar helgistundir í Haf narfirði í Alþjóðlegri bænaviku 18.—25. janúar verða haldnar samkirkjulegar helgi- og bænastundir í kapellu st. Jósefssystra i Hafnarfirði og hefjast þær kl. 20.30 öll kvöld vikunnar. Fulltrúar kaþólsku og lútersku kirkjudeildanna, aðvcntista og hvítasunnu- manna standa að þessum hclgistundum. Árshátíð félags Snæfellinga og Hnapp- dæla í Reykjavík verður haldin laugardaginn 23. þ.m. í Domus Medica og hefst kl. 19.30. Heiðursgestur félagsins verður Guðmundur Runólfsson útgerðarmaöur Grundarfirði. Aðgöngumiðar verða afhentir hjá Þorgils eftir kl. 3 á fimmtudag. Mætum stundvís- lega. Skemmtinefndin. Einsöngur f útvarpssal — Jóhanna G. Möller í kvöld, þriðjudag, kl. 21.00 syngur í útvaipinu Jóhanna G. Möller, við undirlcik Krystynu Co>rtcs, Ijóð eftir Max Reger, Franz Schubert Johannc*- Brahms og Hugo Wolf. Áheit og gjaf ir til Kattavinafélagsins Á árinu 1981 bárust Kattavinafélagi íslands 16.000 krónur i áheitum og gjöfum. Stjórn Kattavi.na- félagsins þakkar gjöfina. Félagsvist í félagsheimili Hallgrímskirkju verður spiluð I kvöld kl. 20.30, þriðjudag til styrktar kirkjubyggingasjóði. Spilaö verður annað hvern þriöjudag. Gítartónleikar f Tryggvaskála Pétur Jónasson gítarleikari flytur gítartónlist frá ýmsum löndum á tón leikum i Tryggvaskála á Selfossi á mið- Pétur Jónasson gítarleikari. vikudagskvöld. Það er Fjölbrauta - skólinn á Selfossi sem gengst fyrir tón- leikunum en þeir hefjast klukkan 20.30. Á efnisskránni eru meðal annars lög eftir Haug, Coste, Walton, Villa- Lopos, Térrega, Moreno-Torroba og Albéniz. Pétur Jónasson nam gitarleik hjá Eyþóri Þorlákssyni í Tónlistarskól- anunt I Garðabæ og liélt síðan til fram- haldsnáms hjá Manuel López Remos i Mexíkóborg. Hann hefur haldið fjöl- marga einleikstónleika á íslandi og í Mexíkó og hefur kornið fram í útvarpi og sjónvarpi. -ATA-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.