Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
UMBOÐSMENN
Hvolsvöllur
Arngrímur Svavarsson
Litlagerði 3
Sími 99-8249
Höfn í Homafiröi
Guðný Egilsdóttir
Miðtúni 1
Sími 97-8187
ísafjörður
Helgi Jensson
Sundstrœti 30
Sími 94-3855
Keflavík
Margrét Sigurðardóttir
Smáratúni 31
Sími 92-3053
Ágústa Randrup
Íshússtíg 3
Sími 92-3466
Kópasker
Gunnlaugur Indriðason
Boðagerði3
Sími 96-52106
Mosfellssveit
Rúna Jónína Ármannsdóttir
Arnartanga 10
Sími66481
Neskaupstaður
Þorleifur Jónsson
Nesbraut 13
Sími 97-7672
Ólafsfjöröur
Jóhann Helgason
Aðalgötu 29
Sími 96-62300
Ólafsvfk
Þorsteinn Kristinsson
Ólafsbraut 52
Slmi 93-6204
Sauðárkrókur
Gunnar Guðjónsson
Gr'undarstig 5
Sími 95-5383
Branddís Benediktsdóttir
RaftahUð 40
Sími 95-5716
Selfoss
Bárður Guðmundsson
Sigtúni 7
Sími 99-1377
Seyðisfjöröur
Sigmar Gunnarsson
Gilsbakka 2
Sími 97-2327
Siglufjörður
Friðfinna Símonardóttir
Aðalgötu 21
Sími 96-71208
Skagaströnd
Erna Sigurbjörnsdóttir
Hólabraut 12.
Sími 95-4758
Stokkseyri
Pétur Birkisson
Heimakletti
Sími 99-3241
Stykkishólmur
Hanna Jónsdóttir
Silfurgötu 23
Sími 93-8118
Stöðvarfjöröur
Ásrún Linda Benediktsdóttir
Steinholti
Sími 97-5837
Súðavík
Jónína Hansdóttir
Túngötu
Sími 94-6959
Suðureyrí
Helga Hólm
Sœtúni 4
Sími 94-6173
Tálknafjörður
Björg Þórhallsdóttir
Túngötu 33
Sími 94-2570
Vestmannaeyjar
Aurora Friðriksdóttir
Kirkjubæjarbraut 4
Sími 98-1404
VíkíMýrdal
Sigurður Þór Þórhallsson
Mánabraut 6
Sími 99-7218
Vogar,
Vatnsleysuströnd
BrimhUdur Jónsdóttir
Aragerði 9
Sími 92-6569
Vopnafjörður
Laufey Leifsdóttir
Sigtúnum
Sími 97-3195
Þingeyri
Sigurða Pálsdóttir
Brekkugötu 41
Sími 94-8173
Þoriákshöfn
FrankUn Benediktsson
Knarrarbergi 2
Sími 99-3624 og 3636
Þórshöfn
Aðalbjörn Arngrímsson
ArnarfeUi
Sími 96-81114
LJmboðsmenn okkar um land
allt taka á móti nýjum áskrif-
endum.
Neytendur Neytendur Neytem
„Heyrzt hefur ao tn sou ner a landl stórar, ertendar kartöftur sem fist ekki sottar 6 markað fyrr en inntenda
smœlkið erbúið,"sagöi Jónas BJamason.
Sala á kartöf lum hef ur stórminnkað:
„Með vondum og smáum
kartöf lum er búið að venja
fólk af að borða þær”
— segir Jónas Bjarnason
„Með vondum og smáum kartöflum
er hreinlega búið að venja fólk af því
að borða þær,” sagði Jónas Bjarnason
efnaverkfræðingur og stjórnarmaður í
Neytendasamtökunum.
Sem mönnum mun kunnugt átti í
sumar að setja reglugerð þess efnis að
kartöflur þyrftuað vera 35millimetrar í
þvermál í stað 33 millimetra áður til
þess að komast í fyrsta flokk. Þessu
mótmæltu kartöflubændur harðlega
með þeim árangri að gildistöku reglu-
gerðarinnar var frestað.
„Þetta hefur haft þau áhrif að sala á
kartöflum hefur stórminnkað. Fólk
hefur farið að borða ýmislegt annað en
kartöflur með mat vegna þess hversu
vondar og smáar þær hafa verið. Þessi
þrýstingur frá bændum hefur því ekki
orðið þeini til góðs.
Það hefur einnig heyrzt að til sé hér á
landi stór sending af erlendum stórum
kartöflum sem fáist ekki settar á mark-
að fyrr en innlenda smælkið er búið.
Þetta er stóralvarlegt mál fyrir neytend-
ur,”sagði Jónas.
Hann sagðist hafa ntjög góðar heim-
ildir fyrir því að sala á kartöflum hefði
minnkað. „Og eftir að fólk er orðið
vant þvi að borða annað en kartöflur
með mat er ekki að vita hvort það fæst
til að taka aftur upp kartöflurnar,”
sagðiJónas. -DS.
Hulsturbók um drykki:
„Sniðugra að búa til vín-
blöndur en eilífar bollur”
„Við gáfum þessa bók út af því að
okkur fannst miklu sniðugra fyrir fólk
að búa til góðar vínblöndur en þessar
eilífu bollur sem allir verða veikir af,”
sagði Sigríður Friðriksdóttir, einn af
aðstandendum fyrirtækisins
Hulsturbók sf. Fyrsta bókin frá því
fyrirtæki kom ú.t á dögunum.
í henni eru 170 uppskriftir að hvers
konar drykkjum og litmyndir af 35
þeirra. Um 20 drykkjanna eru óáfeng-
ir, nokkrir rétt aðeins áfengir en flestir
talsvert áfengir. Bókina hafa menn
verið að selja í húsum á 50 krónur.
„Við fengum þessa bók frá sænsku
fyrirtæki sem hefur gefið út unt 200
svona bækur sem hafa notið mikilla
vinsælda. Við þýddum hana aðeins en
staðfærðum ekki neitt. Næsta bók
verður síðan um knattspyrnutækni og
slíkt,” sagði Sigríður.
Eins og nafn fyrirtækisins bendir til
eru bækurnar sem gefnar verða út i
litlu plasthulstri. Þær eru líkar í laginu
og snældur ætlaðar í segulbandstæki.
Hulstrinu er síðan flett sundur og þá er
hægt að lesa á spjöldin sem í því eru.
Góðar leiðbeiningar eru í upphafi
bókar um hvernig fara á að við drykkj-
argerðina. Einnig er gefið upp ná-
kvæmlega hvað átt er við með hverri
þeirri tegund sem talin er upp sem inni-
hald. Til dæmis er sagt frá því úr
hverju sumar áfengistegundirnar eru
búnar til.
„Fólk ætti að geta fengið alla þessa
drykki á börum hér á landi. En ég veit
til þess að barþjónar eru dálítið tregir
til að blanda þá, slíkt tekur tlma og
þarf þá meiri mannskap,” sagði
Sigriður þegar hún var spurð að því
hvort þessar uppskriftir væru ís-
lenzkum barþjónum kunnar.
Sérstaka athygli vekur hlutinn með
óáfengu drykkjunum.
„Við höfum gert allt of lítið að því
að kynna og bjóða fólki óáfenga
drykki,” sagði Sigríður. „Þegar fólk
sem ekki drekkur vín kemur í boð er
því oftast aðeins boðið gos. En ég veit
til þess að þær uppskriftir sent hafa
birzt, til dæmis í Gestgjafanum, af
óáfengum drykkjum hafa vakið mikla
athygli.” Við getum tekið undir þau
orð hennar því eftir að Dagblaðið hélt
keppni í uppskriftum að óáfengum
drykkjum hefur verið rriikið hringt í
okkur og við beðnar um uppskriftir að
þeim.
-DS.