Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
9
lönd
Útlönd
Útlönd
Myndin sem vakti svo mikla reiði i Bretlandi.
Díana í bikini
Tvö brezk blöð, The Sun og Daily Star, hafa nú
beðið brezku konungsfjölskylduna afsökunar á mynd-
um er blöðin birtu af Díönu prinsessu af Wales,
íklœddri bikini einu saman. Díana er kominn fimm
mánuði á leið ogskrapp hún ásamtKarli manni sínum
í 10 daga frí til Bahama en þar voru myndirnar teknar
með aðdráttarlinsum.
Elízabeth drottning varð öskureið er hún sá mynd-
irnar og almenningur hefur tekið þessa fréttamennsku
afar óstinnt upp. Enda hafa bæði blöðin nú kallað
fréttaritara sína og Ijósmyndara heim frá Bahama og
yfirvöld á eyjunum gæta þess vel að sagan endurtaki
sig ekki.
Hjúkra ekki
lengur útlend-
ingum ókeypis
Ríkisspítalar á Bretlandi eiga frá og
með október næstkomandi að heimta
greiðslur af útlendingum, sem njóta
læknisþjónustu þeirra, eftir að stjórn
íhaldsflokksins breytti regluni um
þennan þátt heilbrigðisþjónustunnar.
Ýmsir íhaldsþingmenn hafa í fjölda
ára kvartað yfir því sem þeir kölluðu
misnotkun útlendinga á heilbrigðis-
þjónustu Breta.
Þegnar frá EBE-löndunum, Var-
sjárbandalagsríkjunum, Austurríki,
Noregi.Svíþjóð, Júgóslaviu, Portúgal,
Nýja-Sjálandi, Möltu, Hong Kong og
Gíbraltar munu áfram njóta ókeypis
sjúkravistar á rikisspitölum i Bretlandi
vegna gagnkvæmissamninga við þessi
lönd. Eins verður ekki krafið um gjald
fyrir hjálp í hreinum neyðartilvikum.
Gert er ráð fyrir að þessi breyting
muni leiða af sér sex milljón sterlings-
punda tekjur fyrir spítalana.
hjá
Tlmes
Ástralski blaðakóngurinn, Rupert
Murdoch, segist vera búinn að segja
200 manns af skrifstofuliði The
Times upp störfum en munu halda á-
fram útgáfu blaðsins, ef hann geti.
Murdoch tilkynnti þessar uppsagnir
í gærkvöidi þegar farið höfðu út um
þúfur samningaviðræður við forráða-
menn launþegasamtakanna sem hlut
eiga að máli. Murdoch hafði óskað
eftir því að 600 segðu upp af sjálfs-
dáðum til þess að fækka í mannahaldi
TheTimes úr 2600 i 2000.
Bæði blöðin The Times og The
Sunday Times tapa um 300 þúsund
sterlingspundum á viku. Murdoch, sem
keypti bæði blöðin fyrir ári eftir
nokkurt hlé á útgáfu þeirra, segir að
rekstrinum verði ekki haldið gangandi
með sama lagi lengur. Tapið á
rekstrinum á þessum tíma nemur orðið
um 15 milljónum sterlingspunda
(kaupverðið var £12 milljónir).
Starfsmannafélagið hefur lýst þvi
yfir að það muni ekki láta sér
uppsagnir þessara 200 lynda.
Willoch
á launa-
skrá hjá
iðnrek-
endum
Mikið fjaðrafok varð í Noregi þegar
uppvist varð, að Kaare Willoch for-
sætisráðherra hefði i yfir 20 ár þegið
laun hjá samtökum norskra
iðnrekenda, auk þingmannslauna. Og
það þótt hann hafi, seinni árin, ekki
unnið handtak hjá samtökunum.
Hefur ekki um annað meira verið
talað i Noregi síðustu vikuna því að al-
menningur á bágt með að trúa því að
hagsmunasamtök eins og þessi hafi
menn á launaskrá án þess að njóta
einhvers góðs af þeim. Á fyrstu níu
mánuðum ársins 1981 fékk Willoch 90
þúsund norskar krónur hjá
iðnrekendasamtökunum. Laun þessi
hefur hann ávallt gefið upp til skatts.
Willoch var áður starfandi hjá
þessum samtökum. Fyrst sem ráðgjafi
og síðan sem aðstoðarframkvæmda-
Willoch dugði ekki ráöherralaunin.
KVIKMYNDAMARKAÐURINN
VIDÉO • TÆKI • FILMUR
Skólavörðustíg 19, simi 15480
T rcsmíða vcrkstæði
á Eskifirói til sölu.
Tilboð óskast í trésmíðaverkstæði á Eskifirði.
Húsið er 220 ferm, byggt 1965 og er með góðum vél-
búnaði.
Upplýsingar gefnar í síma 97-6179 utan vinnutíma.
Í&tr vatnásvæðí Lýsu
Félagið hefur tekið á leigu veiðiréttinn í Brynjudalsá í Hvalfirði sumarið
1982. 2 stangir. Stangarverðfrá kl. 400 til kr. 1100. Umsóknum frá þeim
sem fengu ekki úthlutun í janúar í samræmi við óskir unt veiðileyfi i
öðrum laxveiðiám verður sérstaklega sinnt. Einnig eru nú á boðstólum
veiðileyfi á vatnasvæöi Lýsu á Snæfellsnesi. Stangarverð kr. 300. Upp
lýsingar á skrifstofunni í Austurveri, s. 86050/83425.
Stangaveiöifélag Reykjavíkur.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
i LIFANDISTARF
5 Duglegt og ábyggilegt fólk óskast til starfa við stórt fyrir-
tæki í örum vexti, sem sér um sölu og innkaup á Reykja-
■ víkursvæðinu.
Um er að ræða mikla möguleika og góð laun fyrir dug-
mikið fólk.
■ Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
■ Umsóknum sé skilar til auglýsingadeildar DV, Þverhvolti
11 fyrir 25. febrúar nk. merkt „Lifandi starf”.
KNATTSPYRNUDEILD VÍKINGS
Aðatfundur
knattspyrnudeildar Víkings verður haldinn þriðjudaginn 2.
marz nk. kl. 20.30.
Fundarefni: Venjuleg aðatfundarstörf.
Stjórnin.
/b\ Öorgartúni 2A
\ / Sími 13630 oq 196i4
\/ Bí/a^a/a Bi/a/oiga
Árg.: Vcrð:
Volvo 245 GL, ok. 4 þús. km 1980 185.000
Volvo 244 DL, ok. 28 þús. km 1980 140.000
Dodgc Aspcn 2 d., ck. 30 þús 1979 145.000
Saab 900 GLS, ck. 30 þús., sjálfsk 1979 155.000
Saab 99 EMS, ok. 32 þús 1978 105.000
Honda Accord, ok. 2 þús., sjálfsk 1981 160.000
Mazda 626 2000,2 dyra, ck. 29 þús 1980 110.000
Galant 1600 GL, ckinn 20 þús. km. 1980 105.000
Bcnz 220 D, ný vcl, cinkabíll 1973 95.000
Lanccr 1600, ck. 13 þús 1981 95.000
Colt GL1200,5dyra 1981 95.000
Daihatsu Charadc svartur Runabout . . . 1979 75.000
Mazda 929,4 dyra sjálfsk. ck. 12 þús. . . 1981 130.000
Mitsubishi pick-up 4x4 L200 1982 127.000
BMW 316, 2 dyra, nýtt lakk 1577 95.000
Lada Sport, ck. 35 þús., ný dckk 1978 70.000
Honda Accord 1979 100.000
10 manna fallogur bíll, vcrð í sórflokki. . . 130.000)
Ford Fairmont, ck. aðeins 36 þús 1978 80.000
BMW 320 6 cyl. ck. 10 þ. km 1982 180.000
Plymouth Volarc 4 d. ck. 38 þ. km 1979 138.000
Ch. Nova, gullfallcgur 1976 80.000
M. Bonz 240 D ck. 140 þ. km 1979 210.000
VÖRUBÍLAR:
Volvo F87 m/2,5 tonna krana lítið ckinn. 1978 370.000
Volvo F88, ck. 270 þús. km 1969 180.000
Vcgna mikillar sölu undanfarið vantar allar gcrðir bíla
á skrá.
Einnig vantar allar gcrðir vörubíla og vinnuvcla á skrá.
Stór og bjartur sýningarsalur, malbikað útisvæði.
Opið frá kl. 9—7 alla daga — ncma
sunnudaga. Símar 13630 og 19514.