Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1982, Qupperneq 19
18
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1982.
19
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir , íþróttir
VERÐUR ANDERS
DAHL-NIELSEN
ÞJÁLFARIKR?
KR-ingar fá endanlegt svar frá honum á næstu dögum
— Við erum mjög bjart-
sýnir á að Anders Dahl-Niel-
sen komi til okkar og gerist
þjálfari og leikmaður hjá
okkur, sagði Gunnar Hjalta-
lín, formaður handknattleiks-
deildar KR.
KR-ingar hafa haft auga-
sað á Anders Dahl-Nielsen
sem kom hingað til landsins
til að ræða við KR-inga.
Hann hélt til Danmerkur í
morgun en síðan er ferð hans
heitið til V-Þýzkalands þar
Anders Dahl-Nielsen ásamt Jóhanni Inga Gunnars-
syni, þjálfara KR. DV-mynd: Friðþjófur.
sem hann verður fréttamaður
danska sjónvarpsins í HM-
keppninni.
— Það kemur í ljós nú
næstu daga, hvort Anders
tekur tilboði okkar og
kemur hingað i byrjun júlí.
Hann skrifar þá undir eins árs
samning við okkur, sagði
Gunnar.
Það þarf ekki að kynna
Anders fyrir islenzkum hand-
knattleiksunnendum. Hann er
einn snjallasti handknattleiks-
maður sem Danir hafa átt og
lék lengi með Fredericia
KFUM.
Sagöi Gunnar að ef svo
færi að Anders tæki ekki
tilboði KR vonaðist hann eftir
þvi að Jóhann Ingi Gunnars-
son yrði áfram með KR-liðið
næsta vetur — svo framarlega
að hann gerðist ekki þjálf-
ari erlendis, sagði Gunnar.
-sos.
Viljafá
Rummenigge
ogPassarella
ítalska 1. deildarliðið Fiorentina
hefur ákveðið að styrkja lið sitt
verulega fyrir næsta keppnistímabil.
Formaður félagsins tilkynnti í gær að
hann mundi reyna að fá Karl-Heinz
KummenÍRRe frá Bayern Miinchen og
Daniel Passarella, fyrírliða argentínska
landsliðsins, til að leika með Fiorentina
næsta keppnistimabil. -SOS.
Keflavík
ermeð
fullt hús
Keflavik vann öruggan sigur á Borg-
arnesi í I. deild körfuknattleiksins i
Keflavik á laugardag. Orslit 105—87
eftir 51—39 i hálfleik. Keflavíkurli.'ið
fór rólega af stað en jók svo hraðann og
sigurínn var alllaf öruggur.
Tim Higgins var að venju stiga-
hæstur í Iiði Keflavikur með 45 stig.
Þorsteinn Bjarnason var með 20, Björn
Skúlason og J6n Kr. Gíslason 12 hvor.
Hjá Borgnesingum var Carl Pearson
stigahæstur með 41 stig. Hans Egilsson
með 16 og Bragi Jónsson 10. Staðan í
deildinni er nú þannig:
Keflavík
Haukar
Grindavík
Borgarnes
10 10 0 1014—780 20
9 5 4 791—819 10
10 3 7 891—933 6
11 2 9 941—1105 4
-hsím.
Valsmenn
mæta KR
Kinn leikur verður leikinn i
1. deildarkeppninni i hand-
knattleik í kvöld. Valsmenn
og KR-ingar mætast í I.augar-
dalshöllinni kl. 20.
Claus Peters
DV-mynd: Friðþjófur.
Þjálfari Vals
er kominn
— til að leggja línurnar
Claus Peter v-þýzki knatt-
spymuþjálfarinn sem mun
þjálfa Valsmenn i sumar, er
nú staddur i Reykjavík til aö
ræða við forráðamenn Vals
og leggja línurnar fyrir
sumarið. Peter mun fara aftur
til V-Þýzkalands og koma
síðan í marz og byrja þá að
þjálfa Valsmenn af fullum
krafti.
-SOS.
„Möguleikar
okkar eru góðir”
— að komast í 8-liða úrslit”
sagði Karl Þórðarson
— Við eigum mjög góða
möguleika á að tryggja okkur
sæti í 8-liða úrslitum bikar-
keppninnar, sagði Karl
Þórðarson, landsliðsmaður
hjá Laval i Frakklandi.
Laval dróst gegn 2. deild-
arliðinu Calias i 16-liða úr-
slitunum þcgar dregið var sl.
föstudag. Leikið verður
heima og heiman. — Calias er
eitt af neðstu liðunum í 2.
deild, þannig að möguleikar
okkar eru góðir, sagði Karl.
-SOS.
• Karl Þórðarson
Wieland Schmidt, markvörðurinn snjalli frá A-Þýzkalandi. Hans sæti er gullstóllinn.
Verður „rússneski
bjöminn” sterkastur?
Keppnin um HM-titilinn verður örugglega hörð og spennandi
Frá Viggó Sigurðssyni — frétta-
manni DV í V-Þýzkalandi:
— Rússar, A-Þjóðverjar,
Júgóslavar, Ungverjar og Rúmenar eru
þeir sem eru líklegastir til að taka
heimsmeistaratitilinn i handknattleik
frá V-Þjóðverjum.
Við skulum til gamans líta nánar á
þau lið sem taka þátt í HM-keppninni í
V-Þýzkalandi.
RÚSSLAND: Rússar eru með gott
sambland af reynslumiklum og ungum
leikmönnum, eins og íslendingar sáu,
þegar þeir léku gegn íslenzka lands-
íiðinu á dögunum i Reykjavík. Það má
segja að valinn maður sé í hverju rúmi
hjá Rússum. Antoli Evtúshebko,
Þeir hafa orðið
heimsmeistarar
Þeir sem hafa orðið heimsmeistarar
i handknattleik síðan fyrsta HM-
keppnin fór fram — 1938, eru:
1938:—Þýzkaland
1954:—Svíþjóö
1958:—Svíþjóð
1961:—Rúmenía
1964:—Rúmenía
1967:—Tékkóslóvakia
1970—Rúmenía
1974:—Rúmenia
1978:—V-Þýzkaland
HM-dómar-
arnir á
skólabekk
Frá Viggó Sigurðssyni, fréttamanni
DV i V-Þýzkalandi:
— Það er vitað mál að dómarar þeir
sem dæma f HM-keppninni í hand-
knattleik koma til með að leika stórt
hlutverk, eins og alltaf. Sérstaklega þó
núna, eftir að nýju reglurnar voru
teknar i notkun, en þær hafa verið mis-
túlkaðar.
Þvi urðu hin 12 dómarapör sem
dæma hér á HM að koma saman um
helgina á dómaranámskeið þar sem
allar reglurnar voru yfirfarnar og
samræmdar. Dómararnir voru mjög
ánægðir með þessa ákvörðun alþjóða
handknattleikssambandsins.
þjálfari Rússa, vili örugglega bæta fyrir
mistökin á OL í Moskvu, þegar Rússar
töpuðu óvænt fyrir A-Þjóðverjum í úr-
slitum. Með varnarrisa sína og frá-
bærlega breytilegan sóknarleik, þar
sem hraðinn er mikill, ætla þeir sér að
sigra.
Lokar Schmidt
markinu?
A-ÞÝZKALAND: — Paul
Tiedemann, þjálfari A-Þjóðverja,
kemur hingað með marga „gamla
refi”, sem verða ekki auðunnir. Aðal-
hlutverkið hjá þeim munu skytturnar
GUnter Dreibrodt og Frank Wahl leika.
Þá verður Krilger hættulegur í horninu
og Peter Rost á miðjunni, að
ógleymdum markverðinum snjalla
Wieland Schmidt sem er bezti mark-
vörður heims.
JÚGÓSLAVÍA: - Júgóslavar eru
stóra spurningarmerkið. Eftir að þeir
urðu heppnir í riðladrættinum er þeim
spáð því, að þeir leiki til úrslita um.
HM-titilinn. Sterkustu leikmenn þeirra
eru skytturnar Radjenovic og Elezovic,
sem eru geysilega skotfastir.
Rúmenar ætiasór
stóra hlut
RÚMENÍA: — Rúmenar unnu sigur
22:20 yfir Rússum fyrir stuttu í alþjóð-
legu móti á Spáni og eftir þann sigur,
sagði þjálfari þeirra — Nicolae Nedef,
að Rúmenar ætluðu sér að verða
heimsmeistarar. Beztu leikmenn þeirra
eru Stinga, Munteanu og Dragnita, sem
eru allt leikmenn á heimsmælikvarða.
PÓLLAND: — Pólverjum er spáð
því, að þeir leiki um eitt af efstu
sætunum. Eins og svo oft áður byggist
leikur þeirra i kringum stórskyttuna
Jerzy Klempel.
Reynslumiklir
Ungverjar
UNGVERJALAND: — Ungverjar
eru með lið sem byggist upp á leik-
mönnum með mjög mikla reynslu,
hvorki meira né minna en 9 leikmenn
þeirra hafa yfir 100 landsleiki að baki.
Frægastan má nefna markvörðinn
snjalla H. Bartalos, sem er talinn
einn af beztu markvöcðum heims. Þá er
stórskyttan Kovacs hættuleg — leik-
maður sem skorar yfirleitt yfir 9 mörk i
leik.
SVÍÞJÓÐ: — Svíar hafa verið með lið
sitt i mótun og er það mikill styrkur
fyrir þá að „Bobban” Anderson og
Claes Ribendahl eru byrjaðir að leika
að nýju með þeim. Svíar eiga enga
leikmenn á heimsmælikvarða en styrk-
leiki þeirra tiggur i samvinnu leik-
manna og mikilli baráttu.
SVISS: — Svisslendingum er spáð
einnafsexefstu sætunum. Það þykir þó
nokkur yeikleiki hjá þeim hvað leikur
þeirra er oft fálmkenndur, þegar á móti
blæs.
Rétta Tókkar
úrkútnum?
TÉKKÓSLÓVAKÍA: — Tékkar eru
ákveðnir að fara að rétta úr kútnum,
eftir mörg mögur ár og vilja þeir aftur
komast í hóp beztu handknattleiksliða
heims. Þá vantar þó illilega lang-
skyttur en aftur á móti eiga þeir einn
bezta linuspilara heims, þar sem Kotrc
er.
DANMÖRK: — Danir hafa ekki
sýnt neina snilldartaka að undanförnu
og er ólíklegt að þeir nái að koma á
óvart i HM, eins og þeir gerðu i
Danmörku, þegar þeir höfnuðu í
fjórða sæti.
Júlíus íFylki
Július Marteinsson, markvörður
Skallagrims frá Borgarnesi, hefur á-
kveðið að ganga til liðs við 2. deildar-
liðs Fylkis og leika með Árbæjariiðinu i
sumar. Július mun taka stöðu
Ögmundar Kristinssonar sem fór til
Vikings.
Þá er nær öruggt að Ómar Egilsson
verður áfram í herbúðum Árbæjar-
liðsins.
-SOS.
Frá Viggó Sig-
urössyni
HM-keppnin í
V-Þýzkalandi
Spánverjar
hættuiegir
SPÁNN: — Spánverjar hafa sýnt
mestu framfarirnar undanfarin ár sem
sést bezt á því að þeir náðu fimmta sæti
á OL i Moskvu. Þeir hafa nýlega tapað
aðeins 21:22 fyrir Rússum og gert jafn-
tefli 17:17 gegn Rúmenum. Spánverjar
eru með lið sem aðrar þjóðir mega
vara sig á.
JAPAN: — Japanir eru með mjög
tekniskt lið og eiga þeir marga létt-
leikandi leikmenn. Það sem háir þeim
er, að leikmenn þeirra eru ekki nægi-
iega líkamlega sterkir.
ALSÍR: — Alsirbúar eru eins og
Japanir — leika hraðan og skemmti-
legan handknattleik. En þeir eru ekki
líkamlega sterkir til að þola mikil átök.
KÚBA: — Kúbumenn eru með lið,
sem gæti komið á óvart en annars er
ekki búizt við miklu af þeim.
KUWAIT: — Kuwait-menn eru
tvimælalaust með lakasta liðið hér
HM.
-ViggóASOS.
Expressen skrifar um Teit Þórðarson:
„Islendingurinn okkar í
Frakklandi glansar
í Lens-myrkrinu”
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV i Sviþjóð:
Sænska blaðið Expressen, stærsta
blað Svíþjóðar, fjallaði í gær um
sænska leikmenn sem leika með erlend-
um knattspyrnufélögum. Í greininni
var mikil fyrirsögn: „íslendingurinn
okkar i Frakklandi glansar i Lens-
myrkrinu.” Teitur Þórðarson fær veg-
legan sess i greininni enda er hann Svi-
um að góðu kunnur frá þvi hann lék
með Öster og varð þar sænskur meist-
ari i knattspyrnu oftar en einu sinni.
Greinilegt er að Sviar telja hann með
„sínum mönnum”.
Expressen skrifar: „Nú eru það tveir
fyrrum Österleikmenn sem eiga mestri
velgengni að fagna. Teitur Þórðarson
hefur skorað 12 mörk fyrir Lens á leik-
timabiiinu og Peter Nilsson hefur feng-
ið „fljúgandi start” hjá FC Brugge i
Belgiu. Hefur skorað fjögur mörk i sex
leikjum. Bæði lið þeirra félaga eru í
Viðar ekki
með íbikar-
leiknum?
Valur mætir
Keflavík íkvöld
Bikarleikur í körfuknattleiknum
verður í kvöld i Hagaskóla milli Vals-
mannaog Keflavíkinga.Leikurínn hefst
kl. 20 og má búast við fjörugum leik.
Valsmenn eru ásamt Fram I 2.—3. sæti
i úrvalsdeildinni en Keflavíkingar hafa
mikla yfirburði f 1. deild. Unnið þar
alla sina leiki.
Ekki er vist að landsliðsmaðurinn
Kefiavikinga, Viðar Vignisson, geti
leikið með Keflavikingum vegna
meiðsla. Úr þvi fæst skorið síðar i dag
en hins vegar verður Axel Nikulásson
með Keflvíkingum á ný eftir tveggja
mánaða fjarveru vegna meiðsla.
-hslm.
fallhættu.. Téitur Þórðarson er þegar
fyrsta keppnistimabilið sem atvinnu-
maður orðinn stórt nafn í Frakklandi.
Ennfremur segir i grein Expressen að
Teitur sé skyttu-kóngur Lens með 12 af
26 mörkUm liðsins í |. deild, hafi skor-
aði tvö glæsimörk i mjög mikilvægum
sigri Lens-liðsins, 3—2, á fjórða efsta
liðinu, Sochaux, um helgina.
Expressen birtir einnig viðtal við Teit
Þórðarson. Þar segist Teitur vera
ánægður með byrjunina á atvinnu-
mannaferli sinum i Frakklandi. Það
sem skiptir máli er að skora mörk, segir
Teitur, en bætir þvi við að lið hans sé i
fallhættu. Ef liðið falli vonast hann til
að fá tilboð frá 1. deildarliði. Segist
ekki vera spenntur fyrir þvi að leika i 2.
deild.
Þá segir blaðið frá gengi Ralf
Steve Foster
Edström, fyrrum félaga Asgeirs Sigur-
vinssonar hjá Standard Liege. Segir að
Edström hafi átt við meiðsli að stríða
að undanförnu. Hann hefur skorað 14
mörk fyrir Monaco en 13 þeirra voru
skoruð fyrir jól. Benny Wendt hefur
skorað 12 mörk fyrir Standard Liege,
sem er efst í 1. deild í Belgíu. í Þýzka-
landi eigi þeir Hasse Borg og Ronnie
Hellström við meiðsli að striða en séu
byrjaðir að æfa með liðum sinum.
GAJ/hsim.
Brasilíumaður
þjálfarNew
YorkCosmos
Brasiliumaðurinn Julio Mazzei var i
gær ráðinn þjálfari New York Cosmos
i staðinn fyrir Hannes Weisweiler, sem
var rekinn í sl. viku.
• Teitur Þórðarson hefur leikið vel
meðLens.
F0STER NYLIÐI
HJÁ GREENW00D
Ron Greenwood, landsliðseinvaldur
Englands, hefur valið einn nýliða i lið
sitt fyrir leikinn gegn N-írlandi í kvöld
á Wembley en leikurinn er liður í
keppninni um brezka meistaratitilinn.
Nýliðinn er Steve Foster — 24 ára
miðvörður hjá Brighton — sem tekur
stöðu Phil Thompson.
Foster mun leika við hliðina á Dave
Watson — 35 ára miðverði Stoke, sem
hefur náð að endurheimta landsliðs-
sæti sitt. Það hefur vakið athygli að
Greenwood valdi aðeins tvo leikmenn
sem léku siðasta landsleik Englendinga
— sigurleikinn (1:0) gegn Ungverjum,
til að leika gegn N-írum. Þá Bryan
Robson og Kevin Keegan.
Þá hefur það einnig vakið athygli, að
blökkumaðurinn Cyrille Regis, sem
hefur skorað mikið af mörkum fyrir
WBA að undanförnu, hefur ekki
fengið tækifæri til að leika. — Regis
verður á bekknum og mun ég gefa
honum tækifæri til að koma inn á ef ég
sé ástæðu til þess, sagði Greenwood.
Enska landsliðið er skipað þessum
leikmönnum: Clemence (Tottenham),
Anderson (Forest), Watson (Stoke),
Foster (Brighton), Sansom (Arsenal),
Hoddle (Tottenham), Robson (Man.
Utd. Wilkins (Man. Utd.), Keegan
(Southampton), Francis (Man. City?
og Morley (Aston Viila).
-sos.
HM-keppnin íhandknattleik í V-Þýzkalandi:
Hvað gerir töfra-
maðurínn Stenzel
V-Þjóöverjar tefla fram yngsta liðinu í keppninni og hefja vörn
HM-titilsins með þvíað leika gegn Kuwait
• Vlado Stenzel. Þarf hann aó skila
kórónunni eftir HM?
Riðlaskiptingin í HM
Riðlaskiptingin er þannig í HM-
keppninni i handknattleik sem hefst i
V-Þýzkalandi í dag:
A-RIÐILL:
Leikið í Essen og Dortmund:
1. V-Þýzkaland
2. Rússland
3. Tékkóslóvakia
4. Kuwait.
B-RIÐILL:
Leikið i Homburg, Eppelheim, Berlin
og Ludwikshawen:
5. Ungverjaland
6. Spánn
7. Alsir
8. Svíþjóð.
C-RIÐILL:
Leikið i Hamborg, Bremen og Kiel:
9. A-Þýzkaland
10. Pólland
11. Japan
12. Sviss
D-RIÐILL:
Leikið í Göppingen, Eppelheim, Berlín
ogSindelfinger:
13. Rúmenia
14. Júgóslavía
15. Danmörk
16. Kúba
Þrjár þjóðir komast úr hverjum
riðli I milliriðlana tvo og leika
þjóðirnar úr A og C-riðli saman og
þjóðirnar úr B og D riðli saman.
Innbyrðis úrslit úr riðlunum verða látin
standa í milliriðlum.
Frá Viggó Sigurðssyni, fréttamanni
DV á HM-keppninni i V-Þýzkalandi:
Heimsmeistarar V-Þjóðverja hefja
vörn sina á heimsmeistaratitlinum i
handknattleik i dag þegar þeir mæta
Kuwait. Tekst V-Þjóðverjum að verja
meistaratitilinn sem þeir tryggðu sér í
Danmörku 1978? og hvað hefur gerzt i
herbúðum þeirra að undanförnu? Svör
við þessum spurningum fást hér i V-
Þýzkalandi.
Það hafa orðið miklar breytingar á
landsliði V-Þjóðverja siðan þeir unnu
heimsmeistaratitilinn. Eins og menn
muna slasaðist aðalstjarna þeirra i
Danmörku, Joachim Deckarm, svo illa
í Evrópuleik með Gummersbach að
hann hefur ekki leikið handknattleik
siðan. Nú eru aðeins þrir leikmenn eftir
sem voru með í Danmörku en það eru
þeir Wunderlich hjá Gummersbach,
Meisinger og Freisler hjá Grosswall-
stadt en þessir leikmenn léku ekki stórt
hlutverk í Danmörku.
Vlado Stenzel, landsliðsþjálfari V-
Þjóðverja, hefur átt i stöðugum erjum
við þá leikmenn sem léku i HM í
Danmörku 1978 og hafa þeir sagt að
Stenzel sé sá eini sem hefur eitthvað
grætt peningalega séð á HM í
Danmörku. Fyrir aðeins rúmlega
tveimur mánuðum tilkynntu fjórir af
máttarstólpum landsliðs V-Þýzka-
lands, þeir Waltke, Nettelstedt,
Niemeyer, Dankersen, Spengler,
Hiittenberg, fyrrum fyrirliði landsliðs-
ins og Ehret hjá Hofwder að þeir lékju
ekki framar með landsliðinu undir
stjórn Stenzel. Áður höfðu þeir Hoff-
mann og Klilhspies hjá Grosswallstadt
og Brand hjá Gummersbach hætt að
leika með landsliðinu. Þetta eru allt
leikmenn sem myndu styrkja landsliðs
V-Þjóðverja mikið i HM-keppninni.
Stezel varð þvi að byrja að byggja
upp algjörlega nýtt lið aðeins tveimur
mán. fyrir HM-keppnina og er landslið
hans það yngsta i keppninni. Meðalald-
ur leikmanna er aðeins 23,3 ár. Þessu
unga liði er ekki spáð mikilii velgengni
hér i blöðum, en töframaðurinn
Stenzel er ákveðinn i að koma enn einu
sinni á óvart. Hann er þó varkárari nú
en fyrir HM-keppnina í Danmörku.
Fyrir hana sagði hann að V-Þjóðverjar
myndu fara til Danmerkur til að
tryggja sér heimsmeistaratitilinn. Hann
segir nú að markmið V-Þjóðverja sé að ..
vera í einu af sex fyrstu sætunum.
Þegar dregið var í riðla i HM-keppn-
inni og ljóst var að V-Þjóðverjar
myndu leika í riðli með Rússum og
Tékkum og mæta síðan A-Þjóðverjum
og Pólverjum í milliriðli sagði Stenzel:
„Þetta er siæmur riðill þar sem Rússar
og Tékkar eru með sterk landslið og
einnig A-Þjóðverjar og Pólverjar. En
til að verða heimsmeistarar verðum við
að sigra alla þá beztu. Það er eins gott
að gera það i byrjun.
-Viggó/-SOS