Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JtJNl 1982
4
AUGLÝSING
UM LÖGGILDINGU Á VOGUM
Athygli skal vakin á því að óheimilt er að nota
vogir við verzlun og önnur viöskipti, án þess að
þær hafi hlotið löggildingu af Löggildingarstof-
unni.
Sama gildir um fiskverkunarstöðvar og iðnað,
þar sem vogir eru notaðar í þessum tilgangi.
Löggildingarstofa ríkisins,
12. iúní 1982.
VIST Á STÚDENTAGÚRÐUM
Umsóknir um vist á stúdentagörðunum Gamla
Garði, Nýja Garði svo og Hjónagörðum fyrir
veturinn 1982—1983 skulu berast skrifstofu
Félagsstofnunar stúdenta á þar til gerðum eyðu-
blööum fyrir 25. júní nk.
Á Gamla og Nýja Garði eru samtals 100 herbergi
og á Hjónagörðum 54 íbúðir.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu F.s. í
stúdentaheimilinu v/Hringbraut, Reykjavík, sími
16482. Pósthólf 21.
FLEETWOOD FLEETWOOD
ÚTGERÐARMENN
Látiö vita tímanlega hvaöa dag þiö viljiö
landa.
Leitiö upplýsinga um markaöshorfur og
annaö sem þiö hafið áhuga á, eins ef ég
gæti á einhvern hátt veriö ykkur til
aðstoðar. Beztu óskir um góöa veiði.
Vinarkveöja til ykkar allra.
Helgi H. Zoéga
1 Newby Avenue Larkholme
Fleetwood, Lancs., England
Telex: Símar: 03917—4411
67485 03917-79331 (heima)
B/acks. Oecken
GARÐSLÁTTUVÉLAR
Aflmesta garðsláttuvélin frá
Black & Decker RM—1 með
1100 W mótor.
12 tommu sláttubreidd, 4
sláttuhæöir. Tvöfalt meira
grasrými en áður, slær upp
að húsveggjum og út yfir
kant.
Hlífin öll úr ABS plasti sem
brotnar ekki og
ryðgar ekki.
Tvöföld
einangrun.
Ars
ábyrgð.
T—1, tólf tommu
loftpúðasláttuvél.
Lauflétt
loftpúöasláttuvél,
sem líður yfir
grasflötinn,
slær bæði rakt,
þurrt og hátt
gras af snilld.
Tvöföld
einangrun.
Verð
kr. 2.443.20.
Kr. 2.443.20
Handíð
VERZLUN MEÐ TÓMSTUNDAVÖRUR
Laugavagur 29 - 101 Raykjavík - Simi 296*6
opið
10-12
laugardag
Svalir verða meðfram norOurvegg i framhaidi af vestursvö/um.
Akureyri:
NÝR OG BETRISJALU
OPNAÐUR Á ÞRIÐJUDAGINN
Að undanförnu hafa akureyrskir
iðnaöarmenn unnið nótt sem nýtan
dag viö endurreisn Sjallans, þannig
að þar verði hægt að stíga dans á lýð-
veldisdaginn í næstu viku. Og iðnaö-
armennirnir ætla sér raunar að gera
gott betur því Sjallinn verður að lík-
indum opnaöur á ný þriðjudags-
kvöldiö 15. júní.
I gær voru múrarar, pípulagninga-
menn, rafvirkjar og málarar meðal
annarra í miklum vinnuham í Sjall-
anum, en smiðimir voru í verkfalli.
Þeir koma aftur til vinnu, hvíldir og
endurnærðir, um miðnætti föstu-
dagskvöld.
Miklar breytingar hafa verið gerð-
ar á húsinu, þannig að hætt er við að
gamlir ,,SjaUaistar” þekki sig þar
ekki. Nýr inngangur hefur verið
gerður á norðurhlið hússins og jafn-
framt hefur verið steyptur nýr stiga-
uppgangur, allt frá kjallara og upp á
3. hæð.
Þegar opnað verður á þriðjudags-
kvöldiö verður aðalsalurinn nær til-
búinn, þó búast megi við að einhver
handtök verði eftir t.d. við ljósabún-
að og annan frágang. Settar hafa
verið svalir með norðurvegg salar-
ins, í framhaldi af þeim svölum sem
voru fyrir, þvert á vesturendann.
Verður hægt að ganga niður af svöl-
unum í norð-austur horninu, þar sem .
sviðiö var áður, en það hefur verið
fært nær miðjum sal við suðurvegg. 1
fljótu bragði minnir þessi skipan á
gamla Glaumbæ.
Veggir og loft verða hraunuð, en
síðan verða þau máluð í svörtu og
hvítu. Glimmer verður einnig áber-
andi ásamt speglum. Á dansgólfið og
víðar verður lagður marmari en á
önnur gólf verða lögð rauð teppi með
hvítum stjömum.
Það á sem sé að gera aöalsalinn,
ásamt svöium og tilheyrandi, kláran
fyrir þriöjudagskvöld. Síðan verður
haldiö áfram við að fullgera anddyr-
ið, en þar verður bar og hugguleg-
heit. A efstu hæðinni verður síðan
innréttaður ráðtefnusalur sem rúm-
ar um 100 manns. Þá er einnig
áformað að innrétta litinn „kósí”
matsal í kjallaranum. Þegar þessu
verður öllu lokið mun nýi Sjallinn
rúma 800—900 manns sem er nær því
helmings stækkun.
Sjallinn heitir fullu nafni Sjálf-
stæðishúsið, en nú hafa ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins selt hlut flokks-
ins í Akri hf., sem á og rekur húsið.
Kaupendur eru nokkrir einstakUng- j
ar, m.a. ÞórðurGunnarsson, JónKr. 1
Sólnes og Aöalgeir Finnsson. Ráða-
menn Sjálfstæðisflokksins munu
hafa mælzt tU þess að húsið fengi
nýtt nafn. Þrátt fyrir það getur
Sjalia nafnið staöið áfram, en nöfii
eins og Stjaman og Hvíta húsið hef-
ureinnig borið á góma.
Eins og áður sagði, þá má búast
við að nýi SjalUnn verði nokkuð
„hrár” á þriðjudagskvöldið, þó ball-
fært verði orðiö. En áfram verður
unnið við lokafrágang af fuUum
krafti og um helgina 19.—20. júní
verður nýr og betriSjaUi væntanlega
opnaöur með pompi og prakt.
Rekstrarstjóri hússins verður Sig-
urður Þ. Sigurðsson, yfirþjónn verð-
ur HaUa Sigurðardóttir og Valmund-
ur Ámason verður yfirmatsveinn.
GS/Akureyri.
UnniO er af kappi svo hægt verði að opna fyrir þjóOhátíO.
(DV-myndir Gísli Sigurgeirsson).
ÞaO er engu likara en /OnaOarmenn sóu farnir aO æfa barstöður.