Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNl 1982. Læríð að fíjúga GÓÐAR 'VÉLAR Skemmtilegt sport fyrir alla. Leitið upplýsinga í síma 2897U. Reykjavikurflugvelli Skerjaifjarðarmegin Loftpressa Nýinnflutt, uppgerð loftpressa til sölu. ' Hamrar, fleygar og slöng- ur fylgja. Ath. gott atvinnutæki- , fœri fyrir duglegan Gagnheiöi u, Selfossi, mann. . . símar 99-11888 og2200. Kvöldsími 99-1632. Til sölu BMW 520 érg. 1980 Ranauit 20 TS árg. 1978 BMW 518 árg. 1981 Renault 18 TS árg. 1979 BMW 518 árg. 1980 Renault 18 TL árg. 1980 BMW 323 i árg. 1980 Renault 14 71 árg.1979 BMW 320 árg. 1981 Renault 5 L árg. 1979 BMW 320 árg. 1980 Renault 5 TL árg. 1974 BMW 318 i automatic árg. 1981 Ronault 4 Van árg. 1981 BMW 318 automatic árg. 1979 Renault 4 Van árg. 1980 BMW 316 árg. 1978 Renault 4 Van árg.1979 BMW316 árg. 1877 Renault 4 Van árg.1974 Renault 20 TS Renault 20 TS árg. 1980 árg. 1979 Opið laugardag kl. 1 -5 I <0> L KRISTINN GUONASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 j HÚSBYGGJENDUR Að halda að ykkur hita er sérgrein okkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging- arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pípueinangrun: frauð- plast/glerull. BORGARPLASTHFl Borgamesi simi 93-73701 f Kvöldslmi og helgarslmi 93—7355 Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Ofurhugar þöglu kvikmyndanna Hér sést ofurhuginn Henry Victor fijúga fornfáiegum grip i myndinni The Conquest OfAir en skömmu eftir oð þessi mynd var tekin iézt hann við lendingu. Hér stendur ofurhuginn Dick Grace fyrir framan vél sem hann var ný- búinn að nauðienda. Varþað fyrir myndina Wings sem gorð var 1927. Á þeim tíma var hugrekkið ofar öllu því lítill tími var til æfinga og eftir að kvik- myndatökuvélin för af stað var hún ekki stöðvuð hvað sem gekk á Aö undanfömu hefur íslenska sjón- varpið sýnt stórgóða þætti um tíma- bil þöglu kvikmyndanna í Holly- wood. Nýlega var einn þátturinn helgaður hlut ofurhuga í kvikmynd- um og lýsti vel því hættulega og erfiða hlutskipti sem þeir búa við. Hlutverk ofurhuga eða „stunt- manna” er að framkvæma ýmis hættuleg atriði í kvikmyndum sem talið er óráðlegt að láta sjálfar kvik- myndastjömurnar inna af hendi. Ef sjálf stjarnan slasaðist í einhverju erfiðu atriöi þá yrði að stööva fram- leiöslu myndarinnar, en þótt einhver ofurhugi yrði fyrir meiðslum, eða jafnvel dræpist, mætti alltaf fá ein- hvern annan til að hlaupa í skarðiö. Einnig em ieikarar í fæstum tilvik- um íþróttalega sinnaðir og því dauöfegnir að fá staðgengla til að fram- kvæma fyrir sig þessi áhættuatriði. Undantekningar En á þessu eins og öðru em til undantekningar. Ein þeirra er gamanleikarinn Buster Keaton sem var ekki síöur fær sem ofurhugi en gamanleikari. Keaton, sem starfaöi áður m.a. sem loftfimleikamaður, framkvæmdi ekki aöeins flest hættu- legu atriöin sjálfur heldur hljóp einnig í skaröið fyrir samleikara sína. „Vissirðu að í atriðinu í mynd- inni SHERLOCK JR. þegar ég var á mótorhjólinu með lögregluþjóninum og við ókum ofan í slæma holu á veginum svo að hann datt af hjólinu, þá var það raunar ég sem féll, en ekki sá sem átti aö leika lögregluþjóninn. Eg klæddi nefnilega Emie Orsatti, umsjónarmann leik- muna, í fötin mín og fór síðan sjálfur í búning lögregluþjónsins.” 1 sömu mynd hálsbraut Keaton sig án þess að komast að því fyrr en löngu síðar. Keaton varð í einu atriöinu að flýja upp á þak járnbrautarlestar sem stóð á hliðar- spori. Hann sá þar kaðalenda og greip í hann en því miður var hann tengdur vantsturninum sem miölaði vatni til lestanna. I viðtali við Photo- play 1927 lýsti Keaton því svona sem gerðist. „Vatnssúlan lenti á mér af svo miklu afli að ég missti takið á kaðlinum og féll niður. Eg lenti þannig að hálsinn skall á annan járn- brautarteininn.Ég man ég hafði höfuðverk í nokkrar klukkustundir. Miidred Harris bjó ekki langt frá og ég skrapp yfir til hennar og fékk mér nokkragráa”. Háttuppi Keaton vaknaði siðan næsta dag án þess að finna nokkuð fyrir fallinu og hélt áfram að vinna. En nokkmm árum síðar, þegar Keaton var í lækn- isskoðun í Sawtelle, spurðu læknar hann eftir að hafa skoöað röntgen- myndirnar sem teknar höfðu verið af honum hvenær hann hafði hálsbrotn- að. Það var fyrst þá sem Keaton átt- aði sig á því að hann hafði hálsbrotn- að forðum, þegar hann datt ofan af lestinni. Tveir aðrir þekktir leikarar frá timum þöglu kvikmyndanna fram kvæmdu sjálfir mörg af sínum atrið- um sem fólu í sér töluverða áhættu. Það voru þeir Harold Lloyd og Doug- las Fairbanks. Lloyd notaöi oft ör- yggisbúnað þegar hann var að leika í hættulegum atriðum sem voru tekin hátt frá jörðu. 1 þeim atriðum sem tekin vom á gluggasyllum eða flagg- stöngum sem vom oft upp við þak- brún háhýsa, þá lét Lloyd yfirleitt byggja trépalla rétt fyrir neðan eöa setja upp öryggisnet ef ske kynni að hann félU. Eitt sinn athuguðu samstarfsmenn Lloyds hvað gerðist, ef þeir létu brúöu detta ofan á pallinn. Hún lenti að vísu á pallinum en þeyttist síðan fram af og niður á götuna, sem var margra metra fall. Hefðu það líklega orðið örlög Lloyds ef eitthvað hefði farið úrskeiðis. En það sem gerði hugrekki Lloyds svo aðdáunarvert var að hann vantaði hluta á tvo fing- ur annarrar handar. Hafði hann misst þá 1919 þegar sprengja, sem notuö var sem leikmunir, reyndist vera virk. Hittiekki á hestinn Fairbanks var mikill íþróttamað- ur, en ólíkt mörgum öðrum ofurhug- um, undirbjó hann vandlega öll áhættuatriði sin og naut þar góörar aöstoðar ofurhugans Richard Talmadge. Fairbanks lét oftast Talmadge framkvæma viðkomandi atriði fyrst, en horfði sjálfur á og skráði niður hvað mætti betur fara. Síðan framkvæmdi Fairbanks sama atriði sjálfur. I blaðaviðtali við Talmadge var eitt sinn eftirfarandi haft eftir hon- um. „Við notuðum aðeins ofurhuga í stað Fairbanks í atriöum þar sem líkur voru á að hann gæti slasast. 1 einni kvikmynd þar sem ég vann ekki með honum, heimtaði Fair- banks að fá að framkvæma atriði sem ég hefði aldrei ljáð máls á að hann fengi aö gera, og viti menn, hann meiddist. Fairbanks átti að stökkva yfir svalir og lenda á hesti sern var fyrir neðan. En eins og allir vita hreyfa hestar sig oft úr stað, þegar þeir skyn ja að einhver er að koma, ög það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.